Morgunblaðið - 07.01.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986
43
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nn/MunM-uj*-u II
Lækkum kostnað við einka-
bíla — þeir eru ekki lúxus
Góð bók
er gulli
betri
Til Velvakanda.
Það eru góð tíðindi að bóksala
hefur aftur aukist hér á landi og
bendir til þess að áhugi íslendinga
á bókum hafi ekki minnkað þrátt
fyrir margs konar afþreyingu sem
nú er boðið uppá. Við eigum okkur
langa hefð sem bókmenntaþjóð og
það er hefð sem við ættum ekki
að glata. Sjónvarp, myndbönd og
tónlist - þetta er allt góðra gjalda
vert, en þó held ég að bókin gefí
manni mest þegar upp er staðið.
Sagt er að ungt fólk nú lesi
minna en við sem nú tilheyrum
eldri kynslóðinni gerðum á okkar
yngri árum. Ég veit ekki hvort
þetta er rétt en ég hef grun um
að ýmsu lakara, s.s. dægurtónlist
og reifaramyndböndum, sé haldið
að ungu kynslóðinni meira en góðu
hófi gegnir. Allir hljóta að skilja
að slíkt afþreyingarefni vekur ekki
ærlega hugsun hjá nokkrum manni
hvort sem hann er ungur eða
gamall. Sama má reyndar segja
um lélegar afþreyingarbækur. Eg
tel þess vegna að uppalendur ættu
umfram allt að vekja áhuga barna
og unglinga fyrir góðum bókum,
því þegar slík kynni hafa tekist
er ekki hætta á að þau gleymist
aftur. Góð bók er gulli betri.
Ég tel að við íslendingar ættum
að vinna markvisst að því að við-
halda þeirri bókmenntahefð sem
hér er óneitanlega fyrir hendi.
Menningararfur þjóðarinnar er að
mestu á sviði bókmennta og það
myndi mikið glatast ef tengsl þjóð-
arinnar við þennan forna arf rofn-
uðu vegna innflutts afþreyingar-
efnis.
Bókamaður
Til Velvakanda.
Nú fer í hönd sá tími er bíleigend-
ur skulu standa skil á tryggingaið-
gjöldum. Allir eru víst sammála um
að þessi gjöld eru há og áreiðanlega
yrðu allir þakklátir ef hægt væri að
finna leið til að lækka þessi útgjöld.
nú er það þannig hjá öllum trygg-
ingafélögum að iðgjöldin fara lækk-
andi eftir hveiju ári sem bíleigandi
lendir ekki í umferðaróhappi sem
leiðir til tjóns. En eftir fímm ár gildir
þetta þó ekki lengur — þá er trygg-
ingaupphæðin sú sama. Ég tel mun
skynsamlegra að láta menn hagnast
frekar á því að lenda ekki í um-
ferðarslysum, þannig að trygg-
ingaupphæðin lækkaði stöðugt hjá
þeim sem ekki valda tjóni. Þetta
leiddi til þess að þeir sem valda tjóni
borguðu skaðann meira sjálfír og
það kæmi þá ekki á aðra. Fyrir utan
það að þetta væri réttlátara kerfí,
held ég að svona fyrirkomulag gæti
stuðlað að því að slysum fækkaði.
Menn myndu þá vanda sig meira í
umferðinni og síður taka áhættu
með ógætilegum akstri.
Það er geysilegur kostnaður sem
fylgir því að eiga bíl og að mínu
mati er bíleigendum gert alltof erfitt
fyrir hér á landi. Það er ekki nóg
með að nýir bílar séu tollaðir fram
úr hófi heldur þarf að greiða allskon-
ar gjöld fyrir skráningu, númer og
annað slíkt. Stafa þessar voðalegu
gjaldtökur frá þeim tíma þegar bílar
þóttu algjör lúxus, - þegar einungis
stórbokkar óku um á bílum? Sé svo
er ekki vanþörf á að endurskoða
þetta. Nú á tímum er bíll nauðsynleg
eign fyrir hveija fjölskyldu og alls
ekki neinn lúxus.
Það má undrum sæta hve íslend-
ingar sætta sig við að kaupa bíla
dýru verði. Má telja ólíklegt að ríkið
fáist nokkurntíma til að lækka tolla
af bílum svo neinu nemi. Eina vonin
virðist vera að einhver athafnamaður
semdi við erlent bílaframleiðslufyrir-
tæki um samsetningu og hlutasmíði
bifreiða hér á landi. Þannig væri
hægt að framleiða bílinn hér á landi
og líklega sleppa við tollasúpuna að
verulegu leyti.
Hvað varðar hið ógnarháa bensín-
verð hér á landi verða bíleigendur
að standa betur saman um að fá það
lækkað. Allir hljóta að vera sammála
um að ríkið hefur gengið allt of langt
í gjaldtöku af bensíni. Við neytend-
urnir höfum verið alltof þolinmóðir
- ég hef heyrt að þegar bensin-
hækkanjr hafa orðið í Évrópulöndum
hiki ökumenn ekki við að efna til
rneiriháttar mótmæla. Hér láta menn
hins vegar rýja sig eins og sauði án
þess að gera neitt raunhæft í að
svara fyrir sig. Ef til vill er það
ástæðan fyrir því að ríkinu hefur
tekist að ganga svo langt í gjald-
tökum hér sem raun ber vitni.
Auralítill bíleigandi
r
l
j Mazda j
Bk. ■ ■ — m m m k. ^
um notuöum Mazda-bílum til sölu í sýn-
ingarsal okkar.
Ef þú hefur áhuga á aö selja Mazda-bílinn
þinn, hafðu þá samband við söludeild,
okkar sem fyrst.
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Glæsilegt úrval af
eikarrúmum og antikhvítu.
Mundu aö viö tökum greiöslu-
kortin bæöi sem staögreiöslu
meö hæsta afslætti og sem út-
borgun á kaupsamning.
BUS6&GNAB0LL1N
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK® 91-81199 og 81410
Eik á næsta leik
<
‘í