Morgunblaðið - 07.01.1986, Síða 46

Morgunblaðið - 07.01.1986, Síða 46
Frábær leikur B-liðsins gegn Dönunum — Bæðiíslensku ÍSLENSKU landsliðin í körfu- knattleik unnu leiki sina á sunnu- daginn í Keflavík þegar síðustu Á leikir körfuknattleiksmótsins voru leiknir þar. A-liðið vann Luther-skólann með 105 stigum gegn 73 og B-liðið vann Dani með 108 stigum gegn 96 í skemmtileg- asta leik mótsins. Athygli vakti að á síðasta degi mótsins tókst báðum íslensku liðunum að rjúfa 100 stiga múrinn en fram að þessum leikjum hafði verið Irtið skor í leikjum þessa móts. íslenska A-liðið hóf leikinn gegn Luther ágætlega og komst í 11:4 en er átta mínútur voru liðnar af leiknum hafði heldur dregið saman með liðunum því þá var staðan orðin 17:16. íslenska liðið smá jók síðan forskotið og í leikhléi var staðan 47:32 og var það mesti munurinn á liðunum i fyrri hálfleik. í síðari hálfleik var það sama uppi á teningnum. Allt gekk upp hjá langskyttum liðsins, í fyrsta sinn í þessu móti, og hraðaupp- hlaupin voru vel-útfærð. Valur Ingimundarson meiddist snemma í fyrri hálfleik en það virt- ist ekki hafa mikil áhrif á liðið því maður kom í manns stað. Pálmar Sigurðsson var í miklu stuði í þessum leik. Sem dæmi má nefna a$ hann skoraði þrjár þriggja stiga > körfur í upphafi síðari hálfleiks. Hann og Jón Kr. Gíslason voru bestu menn leiksins. Lokatölur urðu sem fyrr segir 105:73 og var sá sigur síst of stór. Liðið lék mjög vel sem heild og áttu allir góðan leik að þessu sinni. Stig fslands-A: Jón Kr. Gislason 22, Pálmar Sigurðsson 21, Porvaldur Geirsson 11, Matt- hías Matthíasson 11, Leifur Gústafsson 10, Hreinn Þorkelsson 9, Ragnar Torfason 8, Torfi Magnússon 6, Páll Kolbeinsson 5, Valur Ingi- mundarson 2. liðin yfir 100 stigin ÍSLAND-b DAN- MÖRK 108:96 Þessi leikur var sá skemmtileg- asti sem undirritaður hefur séð lengi í körfuknattleik. Mikill hraði var í leiknum og auk þess var hann mjög jafn mest allan tímann. Danir byrjuðu á að skora en íslenska liðið komst yfir, 6:5, og þeir létu foryst- una ekki af hendi eftir það í leiknum þó svo ekki munaði miklu. íslenska liðið náði þrettán stiga forystu um miðjan hálfleikinn, 33:20, en þá tóku Danir heldur betur við sér og er fjórar mínútur voru til leikhlés höfðu þeir minnkað muninn niður í eitt stig, 45:44. ís- lenska liðið tók síðan góðan enda- sprett fyrir hlé og staðan i leikhléi var 58:49. Danir hófu siðari hálfleikinn vel og eftir rúmar fjórar mínútur var staðan orðin 63:62 en þá fór ís- lenska liðið aftur í gang og jók muninn smátt og smátt. Mestur varð munurinn 18 stig er þrjár mínútur voru til leiksloka, 102:84, en Danir löguðu stöðuna aðeins fyrir leikslok og lokatölur 108:96. íslenska liðið átti frábæran leik að þessu sinni. Allir leikmenn léku mjög vel en þó var Jóhannes Krist- björnsson bestur og i siðari hálfleik átti Kristinn Einarsson sérstaklega góðan leik. Stig Íslands-B: Jóhannes Kristbjörnsson 26. Símon Ólafsson 24, Kristinn Einarsson 18, Ivar Webster 15, Tómas Holton 11, Sigurð- ur Ingimundarson 8, Einar Ólafsson 6, Ólafur Rafnsson 2. Að venju var Henrik Norre Niel- sen stigahæstur Dana, að þessu sinni skoraði hann 28 stig. ÓT. Morgunblaöiö/Einar Falur • Hingað og ekki lengra, góurinn ... Torfi Magnússon stöðvar hér 1 einn Dananna er hann reynir körfuskot. Morgunblaðið/Einar Falur • Jóhannes Kristbjörnsson úr Njarðvík átti stórleik með B-liðinu er þeir unnu Dani. Hér er hann á fleygi- ferð gegn Luther-liðinu. Sveiflukenndur leikur A-liðsins gegn Dönum — B-liðið lagði háskólastrákana að velli TVEIR leikir voru á laugardaginn í fjögurra liða mótinu sem haldið var á Suðurnesjum um helgina og voru báðir leikirnir í Njarðvík. B-landslið íslands sigraði lið frá Luther-háskólanum bandaríska og A-lið íslands vann Dani í hörkuspennandi leik, leik sem flestir töldu vera úrslitaleik móts- ins, en síðar kom á daginn að B-landsliðið vann Dani einnig þannig að íslensku liðin skipuðu tvö efstu sætin í mótinu. Fyrri leikurinn á laugardaginn var á mijli Íslands-B og Luther- skólans. íslenska liðið byrjaði vel og komst í 13:6, en þá komust háskólastrákarnir í stuð og er átta mínútur voru til leikhlés höfðu þeir breytt stöðunni í 17:16 og íslenska liðið því aðeins með eins stigs forystu. Þetta fannst okkar mönnum ekki nógu sniðugt og eina ráðið sem þeir kunnu til að bæta sinn hlut var að taka góðan endasprett. Þeir reyndu allt hvað þeir gátu en ekki tókst þeim þó að hrista strák- ana af sér og í leikhléi var staðan 31:28 eða þriggja stiga munur. I upphafi síðari hálfleiks komst lið Luthers yfir, 33:35, en íslensku strákarnir löguðu þá leik sinn tal- svert og staðan breyttist að sama skapi. Þeir komust yfir og leiddu það sem eftir var leiksins með einu til fimm stigum utan að einu sinni var jafnt, 47:47. Þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum var staðan orðin 58:51 og nú tóku strákarnir verulega á því það sem eftir var leiksins skor- aði lið Luthers ekki eitt einasta stig og lokatölur urðu 66:51 eins og áður segir. Vörn íslenska liðsins var góð í þessum leik, sérstaklega undir lokin, en einnig virtist gæta nokk- urrar þreytu hjá hinu unga liöi Luther. Stig Íslands-B: ívar Webster 20, Simon Ólafsson 15, Jóhannes Kristbjörnsson 11, Tómas Holton 8, Kristinn Einarsson 6, Ivar Ásgrimsson4, Sigurður Ingimundarson 2. Stigahæstur hjá Luther var Dave Thorseon með tíu stig. ÍSLAND-a DANMÖRK 62:59 Síðari leikurinn á laugardaginn í Njarðvík var hörku skemmtilegur og spennandi. Margirtöldu hérum úrslitaleik þessa móts að ræða og því mikil spenna í mannskapnum. Þessi spenna virtist hafa slæm áhrif á strákana því þeir hófu leik- inn mjög illa. Danir skoruðu fyrstu 11 stigin í leiknum og virtust leik- menn íslenska liðsins vera nokkuð værukærir. Eftir sjö mínútur var staðan orðin 6:18 og þá loksins fór ís- lenska liðið í gang. Þeir breyttu um leikaðferð í vörninni með þeim afleiðingum að þeir Páll Kolbeins- son, Pálmar Sigurðsson og Hreinn Þorkelsson stálu knettinum hvað eftir annað af Dönunum og skor- uðu úr hraðaupphlaupum. Lang- skytturnar hittu illa og þar sem Danir eru mjög hávaxnir áttu leik- menn í vandræðum með að stíga þá út og því tóku þeir flest öll frá- köst. Þegar rúmar fimm mínútur voru Lokastaðan LOKASTAÐAN í körfuknatt- leiksmótinu varð þessi: islandA 3 3 0 238:199( 39) 6 IslandB 3 2 1 241:218 ( 23) 4 Danmörk 3 1 2 235:247 (+12) 2 Luther Collage 3 0 3 201:251 (->-50) 0 Stigahæstu menn urðu: stig Henrik Norre Nielsen Danm. 63 Símon Ólafsson fsl. B 56 Pálmar Sigurðsson ísl. A 47 ívar Webster ísl. B 43 Jóhannes Kristbj.son ísl. B 41 eftir af leiknum hafði íslenska liðið náð forystu í leiknum, 25:24, en það varði ekki lengi því Danir settu þá í næsta gír og höfðu fjögurra stiga forystu í leikhléi, 30:34. I síðari hálfleik endurtók sagan sig en Danir juku þó muninn mun hægar en í þeim fyrri. Mestur varð munurinn 14 stig er leikið hafði verið í rúmar átta mínútur og gm miðjan hálfleikinn var staðan 40:50. Nú hljóp mikil barátta í okkar menn og þeir skoruðu mikið úr hraðaupphlaupum. Þetta bar þann árangur að er 6 mínútur voru eftir af leiknum náðu þeir forystu, 53:52, og eftir það skiptust liðin á um að leiða. ísland hafði eins stigs forystu er rúm mínúta var til leiksloka, 60:59, og mikil stemmning og spenna í íþróttahúsinu í Njarðvík. íslenska liðið var með knöttinn en missti hann og Danir fá vítakast. Fyrra skotið mistókst hjá þeim þannig að þeir fengu ekki síðara skotið og við náðum frákastinu. Á klaufalegan hátt misstu strákarnir boltann en náðu honum þó aftur og héldu honum til loka leiksins en skömmu áður en flautað var til leiksloka tókst Jóni Kr. Gíslasyni að skora síðustu körfuna og sigur- inn í höfn. Páll Kolbeinsson var langbesti leikmaður íslenska liðsins í þess- um leik þó svo hann skoraði ekki mikið. Danski þjálfarinn setti leiö- inlegan svip á leikinn þar sem hann var sí og æ að rífast i dómurum og hefði honum örugglega veriö vikið úr húsi ef ekki hefði verið um vináttuleiki að ræða. Stig islands-A: Pálmar Sigurðsson 12, Valur Ingimundarson 11, Hreinn Þorkelsson 9, Torfi Magnússon 7, Jón Kr. Gíslason 7, Páll Kolbeinsson 6, Matthías Matthíasson 6, Þor- valdur Geirsson 4. Besti maður vallarins og sá stigahæsti var Daninn Henrik Norre Nielsen en hann skoraði alls 23 stig í þessum leik. .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.