Morgunblaðið - 24.01.1986, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 24. JANÚAR1986
3
20% hækkun
refaskinna
á fyrsta upp-
boði ársins
VERULEG verðhækkun varð á
refaskínnum á fyrsta skinnaupp-
boði ársins sem fram fór í Len-
ingrad í vikunni og að sögn Skúla
Skúlason, umboðsmanns Hudson
Bay hér á landi, bendir þetta
uppboð til þess að verðlag verði
hagstætt á skinnum á næstunni.
A uppboðinu í Leningrad varð 20%
hækkun á bláref, um 30% hækkun
á „shadow“-skinnum, 20% hækkun
á silfurbláum skinnum og 10%
hækkun á silfurrefsskinnum. Öll
skinn seldust á þessu uppboði nema
silfurrefsskinnin sem seldust þó að
95% leyti. Að sögn Skúla er verðlag-
ið á skinnum á uppboðsmarkaðinum
í Leningrad nú um 20% hærra en
á hliðstæðum uppboðum í desember
og því væri hér mjög greinileg
verðhækkun á ferðinni.
Nær eingöngu rússnesk skinn
eru á uppboðinu í Leningrad en að
því er Skúli segir er það engu að
síður mikilsverð vísbending um
verðlag skinna þar sem það er
fyrsta uppboð ársins. Næsta uppboð
verður í Finnlandi 27. janúar og
síðan kemur uppboð á vegum
Hudson Bay í New York síðast í
mánuðinum. í febrúar koma síðan
öll stærstu uppboðin hvert á eftir
öðru.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Undirbúningur
þorranns á Akureyri
Á Akureyri kepptust menn
við að undirbúa þorrann í gær
og á þessari mynd er verið
að pakka þorramatnum í
neytendapakkningar hjá
Hagkaupi.
Nafn mannsins
sem drukknaði
MAÐURINN sem drukknaði í Bláa
Lóninu hét Þorvaldur Emil Valdi-
marsson, til heimilis að Vallargötu
20 í Keflavík. Þorvaldur heitinn var
31 árs, fæddur6. október 1954.
Morgunblaðið/RAX
Ómar Hallsson veitingamaður í Nausti og Björn Erlendsson matreiðslumeistari með þorratrog
veitingahússins.
Þorri geng-
inn í garð
ÞORRINN gengur í garð í dag og
framundan er tími þorrablótanna.
Veitingahúsið Naust endurvakti
þennan þjóðlega sið fyrir nákvæm-
lega 30 árum, eða 1956, og hafa
vinsældir þorrablótanna vaxið ár
frá ári. Matreiðslumenn Naustsins
byijuðu að súrsa matinn um mán-
aðamótin september/október í
haust og í dag byija þeir að taka
hann upp úr tunnunum og bera
fyrir gesti hússins í hinum þekktu
þorratrogum.
Það er næstiun
út í hött
að auglýsa Polonez
1500 lúxusvagn
á aðeins
285.630 kr.
En svona geta staðreyndir lífsins verið ánægjulegar
Þessi stóri og glæsilegi vagn er án efa ein hagkvæmustu kaupin í bílum
í dag því þið fáið eiginleika stórrar bifreiðar á verði lítillar
• 5 manna fjölskyldubíll með skutfyrir-
komulagi
• Þyngd 1140 kg
• Elektrónisk kveikja
•Ökuljós stillanleg í tengslum
við hleðslu
• ítölsk hönnun
• Hliðarbitar í hurðum
•Stillanlegt stýri
• Upphituð afturrúða
•Slitsterkt tau á sætum
• Diskahemlar á öllum hjólum
POLONEZUMBOÐIÐÁRMÚLA 23, 685870 - 81733