Morgunblaðið - 24.01.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.01.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1986 9 Rýmingarsala 20-50% fsláttur fram að helgi. Glugginn, Laugavegi 40, (Kúnst-húsinu), sími 12854. Alda 1002 þvottavél og þurrkari árgerð 1986 er komin Sömu gæðin, en tæknilega jafnvel ennþá fullkomnari • Nú með stillanlegu hitastigi á öllum þvottakerfum • 1000/500 snúninga vinduhraði • Heitt og kalt vatn Verðið er aðeins kr. 30.270,- stgr. Vorumarkaðurinn hf. Ármúla 1a, s. 686117. óskast! Austurbær Úthverfi Ingólfsstræti Þingholtsstræti Leifsgata Vesturbær Ægissíða 44-78 Rafstöð við Elliðaár Ártúnsholt (iðnaðarhverfi) Langholtsvegur 71-108 u Hlaupumst ekki frá verkefnunum í 1. tbl. Flokksfrétta, hinu nýja fréttabréfi miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokks- ins, er birt viðtal við Þorstein Pálsson, fjár- málaráðherra og formann Sjálfstæðisflokks- ins. Þar er m.a. fjallað um fjárlagafrumvarpið, flugvallarskattinn, vörugjald á kökur, hækkun opinberra gjaldskráa, stjórnarsamstarfið og stjórnarandstöðuna. í Staksteinum í dag eru birtar glefsur úr þessu viðtali. Fjárlaga- frumvarpið. Þorsteinn er fyrst spurður um það hvaða breytingar hann hafi gert á Qárlagafnunvarp- inu, er hann tók við embætti fjármálaráð- herra. Hann svarar: „Breytingamar fólust í allverulegri lækkun út- gjalda bæði hjá ríkissjóði sjálfum og iijá opinber- nm stofnunum. Rinnig var ótýákvæmilegt að gera ráð fyrir hækkun nokkurra tekjuliða til að komast hjá hallarekstri. Niðurstaðan varð sú að fjárlög voru afgreidd með tæplega 163 mil(jón króna afgangi þrátt fyrir þær hækkanir sem urðu í eðlilegum meðforum Qárvcitinganefndar og dregið var úr þörf fyrir opinberar erlendar lán- tökur um sem nam hundruðum milijóna. Ég tel að hér hafi verulegur árangur náðst þótt auð- vitað hefði hann mátt verameirL" Fjármálaráðherra er einnig spurður um hækk- un flugvallarskattsins. Hann svarar: „Flugvall- arskattur hefur verið óbreyttur f nær þijú ár, eða 250 kr. Verðgildi hans hefur því rýrnað nqög verulega og skatt- urinn lækkað mikið mið- að við erlenda mynt Að því leyti til varð þreföld- un hans nú aðeins til þess að hann náði fyrra raun- gildi. Aðaiatriði málsins er hins vegar ekki það hvort flugvallarskattur er 250 eða 750 krónur, heldur hvort hann eigi yfirleitt rétt á sér eða ekki. Fins og nú standa sakir eru ekki efni til þess að fella skattinn niður, enda ekki óeðlilegt að sú þjónusta sem ríkir veitir millilandafluginu standi undir sér. Skattur sem þessi er ekki óþekkt- ur annars staðar. Hins vegar er fyrirkomulag á innheimtu skattsins eflaust ekki það besta eða haganlegasta, sér- staklega ekki að þvi er varðar erlenda farþega sem keypt hafa farseðla sína erlendis. Er f ráði að kanna hvort unnt sé að breyta þessari skatt- heimtu áður en hækkun skattsins kemur til fram- kvæmda 1. mars nk. Vörugjald á kökur Fjármálaráðherra er einnig spurður nm álagn- ingu vörugjalds á kökur: „Vörugjald var lagt á brauð og kökur með lögum árið 1975,“ svarar hann. „Innheimtu þess hefur síðan verið frestað f rúm 10 ár að þvf er varðar innlenda fram- leiðslu en innfluttar brauðvörur og kökur hafa hins vegar borið umrætt 30% vörugjald. Sú framkvæmd felur f sér mismunun gagnvart innfluttum vörum og er i sjálfu sér ekki f sam- ræml við fríverslunar- samninga okkar við aðr- ar þjéðir. Nú hefur verið ákveðið að hagnýta laga- heimild til álagningar þessa gjalds að hluta og leggja gjaldið á þann hluta af framleiðslu bak- aría sem mest sykurinni- hald hefur, þ.e. kökur og sætabrauð. Er þá að nokkru leyti jöfnuð sam- keppnisstaða annarra sætinda gagnvart þessari framleiðslu en hollustu- vörurnarf brauðgerðar- húsunum, brauðin sjálf, sldlin eftir gjaldfijáls. Þegar staða rfldssjóðs er jafn erfið og nú, er vand- séð hvemig hægt er að amast við slikri gjald- töku. Kjami málsins er sá, að ríkissjóð verður að reka án halla. Hafi sjálf- stæðismenn skyldum að gegna við stjóra rflds- fjármála lúta þær fyrst og fremst að þvf að láta tekjur mæta gjöldum. Ríkissjóður á að þvf leyti að lúta sömu lögmálum og fyrirtæki og heimili. Þeir sem stöðugt knýja á um aukin opinber útgjöld verða í reynd að fínna fyrir því, að slfkar ákvarðanir kalla á tekju- öflun. Verði menn ekld látnir flnna fyrir þeirri ábyrgð að útgjöldum fylgir tekjuöflun er lftil von til þess að unnt verði að hamla gegn auknum rfldsumsvifum. Aðhalds- aðgerðir af þessu tagi voru þvf óumflýjanlegar eins og sakir stóðu.“ Talinu er pínníg vikið að hækkun á verði opin- berrar þjónustu. Þor- steinn Pálsson er spurður um ástæður þess. „Gjald- skrár fyrir ýmsa opin- bera þjónustu eru flestar ákveðnar f reglugerð um aukatekjur rfkissjóðs, sem endurskoðuð er ár- lega. Það hefur yfirleitt ekki verið ágreiningur um að slfkar gjaldskrár skuli hækka til samræmis við almennar verðlags- breytingar. Hins vegar var einnig tekin ákvörð- un um það nú að hækka sérstaklega gjöld fyrir ýmis leyfi og skfrteini, sem menn greiða aðeins fyrir á margra ára fresti eða jafnvel aðeins einu sinni á Iffsleiðinni. Má hér til nefna gjöld fyrir vegabréf, ökuskfrteini og réttindi ýmis konar. Slfk- ar hækkanir eru f sam- ræmi við þá stefnu, að þjónusta rfkisins á við- komandi sviði eigi sem mest að standa undir sér.“ Stjórnarsam- starfið Formaður Sjálfstæðis- flokksins er spurður um mat sitt á stöðu rflds- stjórnarinnar og svarar: „Styrkleiki stjórnarinnar fer eftir málefnum. Kjarasamningarnir munu t-d. ráða talsverðu nm framvindu efnahags- málanna. Það eru engin áform uppi um að hlaup- ast frá verkefnunum, en samstaða um raunhæfa stjómarstefnu hlýtur að ráða lengd sQórnarsam- starfsins f samræmi við stjórnniálayfirlýsingu siðasta landsfundar. Stærsta almenna stjóra- málaverkefnið á næst- unni er að tryggja sjálf- stæðismönnum góða sigra í komandi sveita- stjóraarkosningum, hér f Reykjavík sem og f öðr- um bæjum og byggðum Iandsins.“ Sfðasta spurningin, sem fréttabréfið beinir til Þorsteins Pálssonar er þessi: „Hvað er að frétta af stjómarand- stöðunni?" Og svarið er stutt og laggott: „Til hennar hefur ekkert spurst á nýja árinu.“ íbúðir fyrir aldraða á Akureyri: 600.000 krónur í undirbúninarsvinnu Akureyn, 23. janúar. ^ SAMÞYKKT var á bæjarsfjórn- arfundi á þríðjudag að veita 600.000 krónur úr Framkvæmda- sjóði Akureyrar til greiðslu á undirbúningsvinnu við byggingu íbúðabygginga fyrír aldraða. Kynntar hafa verið tillögur um byggingu íbúða fyrir aldraða í fjöl- býlishúsum og raðhúsum auk þjón- ustubyggingar á svæði vestan og sunnan Víðilundar. Gert er ráð fyrir að íbúðimar verði 72—74 talsins og þær kostaðar og í eigu íbúanna. Þó gætu nokkrar íbúðir verið í eigu Akureyrarbæjar sem leiguíbúðir. Þjónustubyggingin yrði hins vegar í eigu Akureyrarbæjar og að öllu leyti kostuð af bænum. Setja á reglur um sölu íbúðanna sem tryggja að þær séu ávallt í eigu og ábúð aldraðra. Tíð rúðubrot á Akurevri Akurevri 22. ianúar. V Akureyri 22. janúar. RÚÐUBROT hafa verið tíð í miðbæ Akureyrar undanfarnar helgar. Einn var tekinn um sið- ustu helgi við að bijóta rúðu á Hótei Varðborg og helgina áður voru þijár rúður brotnar i versl- unum. Ein þeirra þriggja sem eyðilögð var um fyrri helgi var í bókaverslun- inni Eddu og voru skemmdir í út- stilltum vörum í glugganum metnar á 45.000 krónur — auk rúðunnar sjálfrar. Sá sem þennan verknað vann náðist. Á Dalvík var brotist inn í Bfla- verkstæði Dalvíkur um helgina, skemmdarverk unnin og 7—8.000 kr. í peningum stolið. Það mál upplýstist strax á sunnudag. Eins og skýrt hefur verið frá í blaðinu þurfti að aflífa hest sem ekið var á aðfaranótt laugardags við Dvergastein skammt utan Akureyrar. Ökumaðurinn stakk af en lögreglan hafði uppi á honum og viðurkenndi hann verknaðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.