Morgunblaðið - 24.01.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1986
37
Morpfunblaðið/RAX
Gypsy sem gítarleikari, teikna
töluvert og safna hljómplötum. Ég
stefni svo að því að fara í skóla
á næsta ári. En núna vinn ég
bara, æfi mig og safna fyrir
Englandsferðinni."
— Þú ætlar semsagt að halda
áfram af fullum krafti!
„Já, áhuginn er alltaf að aukast
eftir því sem ég læri meira svo
það er ekki aftur snúið í bili.“
Ingólfur að sýna brögð sín í
Hollywood nú fyrir skömmu.
að taka þátt í þeim við tækifæri.
Hingað til hefurfyárhagurinn ekki
leyft það og svo hefur mér ekki
fundist sem ég hefði nógu mikið
fram að bjóða. Fingralipurðin þarf
að vera mikil og atriði frumsamin.
Þessu vinn ég nú að.“
Morgunblaðið/Emelía
Ingólfur Ragnarsson
— Hefurðu tíma fyrir fleira en
vinnuna og þetta?
„Já, já, ég var í hljómsveitinni
Charlene ásamt dóttur sinni Cherish. Giftingin fór fram í september síðastliðnum.
LUCY í DALLAS
Hún er næstum óþekkjanleg
hún Lucy úr Dallas-þáttun-
um í sjónvarpinu. í áraraðir hefur
Charlene Tilton verið að beijast við
aukakílóin og svo virðist sem nú
hafi hún náð takmarkinu.
Aðferðina gaf hún ekki upp, í
viðtali sem birtist með þessum
myndum, en kannski er það bara
ástin sem hefur haft þessi áhrif.
Charlene gekk nefnilega í hjóna-
band nýlega með Domenick Allen
sem gekk þá dóttur hennar í föður-
stað.
„Við kynntumst fyrir ári,“ segir
Lucy „nánar tiltekið í janúar og á
þeim tfma var ég ekki að huga
neitt að karlamálum, enda nýskilin
við Johnny Lee. En svona kemur
þetta alveg óvænt og áður en við
vissum vorum við orðin ástfangin
upp fyrir haus.
Þetta var erfíður tími fyrir mig
sem Domenick hjálpaði mér í gegn-
um. Það má segja að trúin hafí
sameinað okkur. Við göngum að
vísu ekki um heimilið okkar syngj-
andi sálma og biðjandi bænir, en
við trúum á Guð og förum reglulega
í kirkju. Það sem skipti mig þó
mestu máli í sambandi við Dom-
enick var hvemig hann kom fram
við litlu telpuna mína. Hann tók
henni sem sinni eigin og betri föður
fyrir hana gæti ég ekki hugsað mér.
Getur það verið?
Næstum óþekkjan-
leg, ekki satt.
Charlene Tilton
eða Lucy úr Dallas
ásamt eiginmann-
inum Domenick
Allen.
Kristinn Jóhann-
esson — Minning
Fæddur 21. október 1904
Dáinn 18. janúar 1986
Afí minn, Kristinn Jóhannesson,
lést í Borgarspítalanum 18. janúar
sl. eftir stutta sjúkrahúslegu.
Hann fæddist 21. október 1904
í Borgarfírði þar sem hann ólst upp
og var fímmti í hópi 10 systkina.
1933 giftist hann Ónnu S. Jóns-
dóttur, sem lést 16. október 1982.
Þau áttu tvö böm, Elínu, sem gift
er Hreini S. Halldórssyni og Jón
sem andaðist 24. desember sl.,
aðeins fimmtugur að aldri og var
hann giftur Guðrúnu Hjaltadóttur.
Bamabömin eru fímm.
Við andlát náins ástvinar
streyma fram minningar liðins
tíma. Efst er í huga uppvaxtarárin,
en í 15 ár bjuggu amma og afí í
sama húsi og foreldrar mínir á
Otrateig. Það vom því mikil sam-
skipti við afa og samverustundimar
margar sem gott er að minnast.
Afí var af þeirri kynslóð sem
ekki naut skólamenntunar og átti
lífsgæði af skomum skammti.
Snemma var farið að vinna fyrir
sér, en lengst af vann hann sem
bílstjóri, lengi hjá vegagerðinni. Afí
var mikið prúðmenni, hógvær,
snyrtimenni og kom afar þægilega
fyrir. Síðustu 10 árin bjó hann í
Hátúni lOb þar sem honum leið
vel. Hann stundaði mikið göngu-
ferðir um nágrennið en átti þó alltaf
erfítt með að sætta sig við að hætta
að vinna. Heilsan var alltaf tiltölu-
lega góð, en snemma í janúar var
afí fluttur í spítala og fljótlega kom
í ljós að hverju stefndi.
Við getum sætt okkur við dauð-
ann þegar aldraðir og sjúkir fá
hvíld. En eðlilega fylgir kveðju-
stundinni söknuður og eftirsjá, þar
sem dauðinn getur aldrei talist
hversdagslegur atburður þrátt fyrir
þá staðreynd að hann verður aldrei
umflúinn. Fjölskylda mín fylgir nú
afa mínum síðasta spölinn réttum
mánuði eftir að faðir minn dó. En
það er huggun harmi gegn að hann
lauk lífínu á jafn æðrulausan hátt
og hann hafði lifað því, hvarf á
hljóðlausan hátt úr hópnum, hvfld-
inni feginn.
Guð varðveiti miningu hans.
Lúðvík Hjalti Jónsson
Umræðunni um
Hóf í í þættínum
„Á líðandi stundu“
mótmælt
Útvarpsráði var sendur undir-
skriftalisti 38 kvenna á Húsavík,
þar sem mótmælt var umræðunni
um Hólmfríði Karlsdóttur, fóstru
og fegurðardrottningu, í þættin-
um „A líðandi stundu“ miðviku-
daginn 15.janúarsl.
Þar segir. „Sérstaklega mót-
mælum við forræðishugmyndum og
kvenfyrirlitningu í máli Davíðs
Oddssonar borgarstjóra. Við bend-
um útvarpsráði á að þó kvennaára-
tugi sé lokið, er ástæðulaust að
hampa í Rfkisútvarpinu þeim nátt-
tröllum, er enn vinna gegn jafnrétti
kynjanna."
Nú er þorri
genginn í garð