Morgunblaðið - 02.02.1986, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR1986
%
T
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
JL—Húsið auglýsir
eftir stúlku við símavörslu og fleira.
Upplýsingar hjá deildarstjóra.
Hótelstjóri
Við leitum að áhugasömum og hörkudugleg-
um aðila til að sjá um stjórnun á nýju hóteli
á Suðurlandi.
Þeir sem hafa áhuga á starfinu sendi umsókn
með upplýsingum um fyrri störf og menntun
til augl.deildar Mbl. merkta: „Hótelstjóri —
3125“ fyrir 7. febrúar nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál. Öllum umsóknum verður svarað.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða hjúkrun-
arfræðinga á sjúkradeildir sem fyrst.
Laust er starf deildarstjóra frá 15. febrúar.
Ennfremur óskast skurðhjukrunarfræðingur
í hlutastarf nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Selma
Guðjónsdóttir, í síma 98-1955.
Stjórn Sjúkrahúss og
HeilsugæslustöðvarVestmannaeyja.
Rafvirki eða
rafvélavirki óskast
Ós hf. steypuverksmiðja óskar eftir rafvéla-
virkja eða rafvirkja. Um er að ræða eftirlit
og viðhald á stjórnkerfi og vélum verksmiðj-
unnar. Starfið krefst staðgóðrar þekkingar á
sviði rafmagns- og rafeindafræði.
Þeir sem hafa áhuga sendi umsóknir til
augl.deild Mbl. fyrir 7. febrúar merktar:
„Ós - 2565“.
B.S. líffræðingur
óskast
Rannsóknastofa í líffærafræði við Háskóla
íslands vill ráða líffræðing til rannsókna-
starfa. Starfið er Ijós- og rafeindasmásjár-
vinna við rannsóknir á taugakerfi. Vel kemur
til greina að hluti vinnunnar gæti nýst um-
sækjanda sem 4. árs verkefni.
Upplýsingar eru veittar á Rannsóknastofu í
líffærafræði, síma 25088.
Sjúkraliðar —
Hjúkrunarfræðingar
Kristnesspítali óskar að ráða hjúkrunarfræð-
inga og sjúkraliða til starfa nú þegar eða
síðar, eftir samkomulagi. Einstaka vaktir
koma til greina.
Húsnæði og barnagæsla fyrir umsækjendur
koma til greina.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-31100.
Kristnesspítali.
Mjólkurfræðingar
Mjólkursamlag úti á landi óskar eftir mjólkur-
fræðingi til starfa.
Upplýsingar gefur Mjólkurfræðingafélag
íslands, Skólavörðustíg 16.
Keflavík
Skrifstofustarf
Laust er starf á skrifstofu embættisins við
vélritun.
Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar undirrituðum
fyrir 10. febrúar nk.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Hálfs- og
heilsdagsstörf
Duglegt og vandvirkt starfsfólk óskast nú
þegar í fiskiðju Granda hf. við Norðurgarð.
Um er að ræða störf við pökkun og snyrt-
ingu. Akstur í vinnu og aftur heim, á morgn-
ana, í hádeginu og á kvöldin. Mötuneyti á
staðnum. — Góð starfsmannaaðstaða.
Upplýsingar og umsóknir hjá starfsmanna-
stjóra í Norðurgarði eða í síma 29424 kl.
10.00-12.00 og 13.00-15.00.
Grandi hf.
Sölumaður
Heildverslun á góðum stað vill ráða sölu-
mann sem fyrst. Aldur um þrítugt. Vörur
tengdar fiskeldi. Þarf að hafa einhverja
þekkingu eða reynslu á því sviði. Ensku-
kunnátta/bílpróf.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist skrifstofu okkar fyrir 29. jan. nk.
Guðnt Tónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐNl NCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Óskum að ráða
starfsmann í afgreiðslu hálfan daginn í Herra-
ríki Glæsibæ.
Upplýsingar í síma 34350.
Þýskur framleiðandi
iðnaðarmyndbandakerfa leitar eftir umboðs-
manni eða dreifingaraðila á íslandi. Umboðs-
maðurinn þarf að fjármagna birgðakaup.
Bæði almenn- og tæknikennsla innifalin.
Umsóknir óskast sendar augl.deild Mbl.
merktar: „Þýskt — 1044“.
5PARI5JÚÐUR
HAFNARFJARGAR
Sparisjóðsstjóri
óskast
Staða sparisjóðsstjóra (önnur staða af tveimur)
hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar er laus til um-
sóknar.
Umsóknir um stöðu þessa ásamt upplýsing-
um, m.a. um menntun og fyrri störf, skulu
sendar formanni sparisjóðsstjórnar, Stefáni
Jónssyni, Hamarsbraut 8, Hafnarfirði, eigi síð-
ar en 10. febrúar nk.
Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar.
Hagvangur hf
- SÉRI IÆ;FÐ RÁÐNINGARRJÓNUSTA
BYGGÐ Á GAGNKVÆMUM TRÚNAÐI
Rekstrarstjóri (4)
Fyrirtækið er þekkt matvælafyrirtæki í
Reykjavík.
Starfssvið: Daglegur rekstur, þ.m.t. stjórnun
framleiðslu, markaðsmál, starfsmannahald,
söluáætlanir, sala til verslana og annarra
fyrirtækja.
Við leitum að röskum og dugmiklum manni
sem á auðvelt með að umgangast og stjórna
fólki. Reynsla af sölu- og stjórnunarstörfum
nauðsynleg.
Starfið sem er stjórnunar— og ábyrgðarstarf
hjá traustu fyrirtæki er laust strax eða eftir
samkomuiagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórir
Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs fyrir 8.
febrúar nk.
Hagvangur hf
RÁÐNINGARPJÓNUSTA
CRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVÍK
SÍMAR: 83666 - 83472 - 83483
Ftekstrar- og tækniþjónusta Námskeiöahald
Markaös-og söluráögjöf Tölvuþjónusta
Þjóöhagfræðiþjónusta Ráöningarþjónusta
Skoðana- og markaðskannanir
Þórir Þorvarðarson
Katrín Óladóttir og Holger Torp.
Vilt þú leggja
öldruðum lið?
Við leitum að starfsfólki á öllum aldri — ekki
síst eldri konum, sem hafa tíma aflögu til
að sinna öldruðum. Vinnutími eftir samkomu-
lagi, allt frá 4 tímum á viku upp í 40 tíma.
Liðsinni þitt getur skipt sköpum fyrir aldrað-
an, sem e.t.v. hefur beðið vikum saman eftir
lítilsháttar aðstoð.
Vinsamlegast hafðu samband við Heimilis-
þjónustu Félagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar, Tjarnargötu 11, sími 18800.
Kerfisfræðingur
Óskum að ráða kerfisfræðing til starfa í
skýrsludeild.
Starfið felst í vinnu við nýja IBM 4361 tölvu-
samstæðu, notkun VM stýrikerfis, CICS sí-
vinnslu kerfis, VSAM skráavinnslu og forritun-
armálin COBOL, CPG og RPG II. Auk þess
erum við með nokkrar PC-tölvur. Jafnframt
tökum við í notkun á næstunni SQL/DS
gagnagrunn og fjórðukynslóðarmálið CSP.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá
starfsmannahaldi, Ármúla 3, sími 681411.
G2Ó“|SAMVINNU
LcáJtryggingar
VÁ7\\áJ ÁRMÚLA 3 SÍMI81411
22ja ára
nýstúdent óskar eftir atvinnu. Get byrjað
strax. Margt kemur til geina. Upplýsingar í
síma 78168.