Morgunblaðið - 22.02.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986
11
Læknarnir sem manna neyðarvakt þyrlunnar, flugmenn og farkostur. Frá vinstri: Hermann Sigurðsson,
Ari Ó. Halldórsson, Jón Baldursson, Guðmundur Björnsson, Felix Valsson, Óskar Einarsson og Páll
Halldórsson. Fyrir framan þá stendur Bergsveinn Snorrason, ungur áhugamaður um þyrlur.
Fimm læknar í áhöfn gæsluþyrlunnar:
Manna neyðarvakt
í sjálfboðavinnu
25. febr. bænaguðsþjónusta á
föstu kl. 18.00. Föstutónlist frá
kl. 17.45. Píslarsagan lesin,
sungið úr Passíusálmunum, fyrir-
bænir. Föstudagur 28. febrúar,
síðdegiskaffi kl. 14.30. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Laugardagur, sam-
verustund aldraðra kl. 15.00,
gestir Ármann Kr. Einarsson,
Sigurður Gunnarsson og ungt
tónlistarfólk. Sr. Guðm. Óskar
Ólafsson. Sunnud. barnasam-
koma kl. 11, sr. Frank M. Hall-
dórsson. Guðsþjónusta kl. 14.00,
sr. Guðm. Óskar Ólafsson.
Mánudag kl. 20.00 æskulýðs-
starf. Þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 13-17 opið hús fyrir aldraða.
Fimmtudag kl. 20 föstuguðs-
þjónusta, sr. Guðm. Óskar ðlafs-
son.
SEUASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 10.30.
Barnaguðsþjónusta í Seljaskóla
kl. 10.30. Guðsþjónusta í Öldu-
selsskóla kl. 14.00, altarisganga.
Fyrirbænasamvera þriðjudag.
25. febr. kl. 18.30 í Tindaseli 3.
Fundur í æskulýðsfélaginu
þriðjud. 25. febr. kl. 20.00 í
Tindaseli 3. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN: Barna-
samkoma kl. 11.00. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Séra Frank M.
Halldórsson. Sóknarnefndin.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Skírn.
Guðspjallið í myndum. Barna-
sálmar og smábarnasöngvar.
Afmælisbörn boðin sérstaklega
velkomin. Framhaldssaga. Við
píanóið Pavel Smid. Kvöldbænir
eru í kirkjunni kl. 18 alla virka
daga vikunnar nema mánudaga.
Sr. Gunnar Björnsson.
KIRKJA ÓHÁÐA SAFNAÐAR-
INS: Útvarpsmessa kl. 11. (Ath.
breyttan tíma). Organisti Heið-
mar Jónsson. Sr. Þórsteinn
Ragnarsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN
Ffladelffa: Sunnudagaskóli kl.
10.30. Almenn guðsþjónusta kl.
20.00. Ræðumenn Sam Daniel
Glad og fleiri. Samskot til kirkj-
unnar.
KFUM & KFUK, Amtmannsst.:
Söngsamkoma kl. 20.30. Margir
kórar, sönghópar og einsöngvar-
ar taka þátt í samkomunni. Vitn-
isburður og hugleiðingu flytur
Guðmundur Guðmundsson
cand. theol.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa
kl. 14. Rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18.00 nema á laugar-
dögum þá kl. 14.00.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11.00. Lágmessa
mánudag-föstudags kl. 18.00.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14.00. Hjálpræðis-
samkoma kl. 20.30 með ung-
barnavígslu. Lautinantarnir
Margaret Saue og Paul W. Marti
frá Akureyri taka þátt í samkom-
unni og stjórna ásamt Ann Mer-
ete og Erlingi Nielssyni á ísafirði.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Barnasamkoma í Lágafellskirkju
kl. 11.00. Messa á Mosfelli kl.
14.00. Sr. BirgirÁsgeirsson.
GARÐASÓKN: Barnasamkoma í
Kirkjuhvoli kl. 11.00. Æskulýös-
félagsfundur í Kirkjuhvoli nk.
mánudagskvöld kl. 19.30. Sr.
Bragi Friðriksson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Skátahöfðing-
inn Ágúst Þorsteinsson talar. Sr.
Bragi Friðriksson.
KAPELLA st. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Almenn guös-
þjónusta kl. 14. Prestur, kór og
organisti Fríkirkju Hafnarfjarðar
annast guðsþjónustuna. Sr. Sig-
urður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 10.30. Munið
skólabílinn. Messa kl. 14. Kjartan
Már Kjartansson leikur einleik á
víólu. Organisti Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN Hafnarf.: Barna-
samkoma kl. 10.30. Sameiginleg
guðsþjónusta Fríkirkjunnar og
Víðistaðasóknar verður á Hrafn-
istu við Skjólvang kl. 14. Organ-
isti Þóra Guðmundsdóttir. Sr.
Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 14.00. Rúmhelga daga
er lágmessa kl. 18.00.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúrnhelga daga er
messa kl. 8.00.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Messa kl. 14. Altarisganga.
Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf kl. 11.00. Sóknar-
prestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabíl-
inn. Skátaguðsþjónusta kl. 14.00
í tilefni Baden Powell-dags. Skát-
ar aðstoða. Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11.00. Föndur fyrir
yngstu börnin. Messa kl. 14.00.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Sr. Órn
BárðurJónsson.
ÚTSKÁLAKIRKJ A: Messa kl.
14.00. Sóknarprestur.
HJALLAKIRKJA: Messa kl.
14.00. Sr. Tómas Guðmundsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Tóm-
asGuðmundsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Almenn
safnaðarguðsþjónusta kl. 14.00.
Sóknarprestur.
ARNARNESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 10.30. Messa kl. 14.00.
Organisti Jón Ól. Sigurðsson. Sr.
Björn Jónsson.
SIGLUFJARÐARKIRKJA:
Æskulýðsmót kirkjunnar á
Norðurlandi í Þelamerkurskóla
um þessa helgi. Messa á
Möðruvöllum sunnudag kl. 11
við lok mótsins. Sr. Vigfús Þór
Árnason.
FIMM læknar Borgarspítalans
hafa tekið að sér neyðarvakt
fyrir sjúkraflug Landhelgisgæsl-
unnar. Verður ávallt einn þeirra
til taks allan sólarhringinn. Þyrla
Landhelgisgæslunnar TF-SIF
mun fyrst og fremst verða notuð
til þessara starfa. Læknarnir
manna vaktirnar í sjálboðavinnu.
Fram að þessu hefur oft gengið
erfiðlega að fá lækni í neyðarflug,
og skapast af því óvissa og óöryggi.
A blaðamannafundi sem haldinn
var í Borgarspítalanum á fímmtu-
dag sagði Ólafur Þ. Jónsson yfir-
læknir að með þessu skipulagi yrði
slysagæsla aukin til muna. Með
þessu væru tryggð skjótari við-
brögð, þar sem læknar vanir þyrlu-
flugi yrðu jafnan til taks. „Það er
Á SÍÐASTLIÐNU ári var hleypt
af stokkunum tónleikaröð með
öllum orgelverkum J.S. Bachs. í
allt er um að ræða 15 tónleika,
og er það söngmálastjóri Þjóð-
kirkjunnar, kirkjukórasamband
íslands og félag íslenskra orgel-
leikara sem standa að þessum
tónleikum, en á þeim koma fram
fjölmargir organleikarar.
Nú er komið að 8. tónleikunum,
og verða þeir haldnir í Dómkirkj-
unni mánudaginn 2. febrúar kl.
20.30. Á efnisskránni eru eftirtalin
einnig mikilvægt að héraðslæknar
þurfa nú ekki lengur að yfirgefa
umdæmi sitt,“ sagði Guðmundur
Bjömsson læknir. Að sögn Guð-
mundar hefur það oft skapað
vandamál þegar læknar verða veð-
urtepptir í Reykjavík eftir að hafa
fylgt sjúklingi suður. Harald Hols-
vik, framkvæmdastjóri Farmanna
og fiskimannasambands Islands,
sagði að öryggi sjómanna ykist til
muna með tilkomu neyðarvaktar-
innar. Harald minnti á að slys um
borð í skipum gætu orðið með þeim
hætti að læknir í landi gæti ekki
veitt nægjanlega aðstoð.
„Það hefur lengi verið draumur
okkar að læknir væri áhafnarmeð-
limur, og kallaður út eftir okkar
útkallskerfi," sagði Páll Halldórs-
verk: Prelúdía og fúga í C-dúr
(BWV 547), Partíta við „Allein
Gott in der Höhe sei Ehr“, Sónata
nr. 1 í Es-dúr, Fúga í g-moil, sálm-
formleikur: „Wenn wir in höchsten
Nöthen sein“ (BWV 668) og loks
hin svokallaða dóríska Toccata og
fúga(BWV 538).
Á þessum tónleikum leika organ-
leikaramir Guðmundur H. Guðjóns-
son, Ámi Arinbjamarson og Guð-
mundur Gilsson. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
son flugstjóri Landhelgisgæsluþyrl-
unnar. „Því fögnum við í áhöfn
þyrlunnar þessu framtaki." Land-
helgisgæsluþjTlan TF-SIF getur
flutt allt að 4 sjúkrabömr ef þörf
krefur. Þyrlan verður búin lyfjum
og lækningatækjum sambærilegum
þeim sem notuð em á bráðamóttöku
Borgarspítalans. Að sögn Páls hef-
ur tekist að halda viðbragðstíma
áhafnarinnar í lágmarki, 15 mínút-
ur á tímanum 8.00 til 16.00 en 30
til 40 mínútur þess utan. Læknamir
sem gegna neyðarvöktunum hafr.
þegar verið þjálfaðir í neyðarflug-
um. Á þriðjudag þreytti einn þeirra
frumraun er slasaður sjómaður um
borð í togaranum Viðey RE 6 var
sóttur á haf út.
Orgeltónleikar í Dómkirkjunni
Sparið upp í farið í Frí-klúbbsferð.
Verðlækkun í mörgum ferðum frá fyrra ári.
Fyrir sömu upphæð kemstu lengra og býrð
betur í Útsýnarferð.
Takið ekki ákvörðun um
sumarleyfið án þess að
hafa okkur með í ráðum.
Kynnið ykkur fjölbreytn-
ina í 48 bls. sumaráætlun
Útsýnar.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN HF. AUSTURSTRÆTI17. SÍMI26611.
Aukinn
kaupmáttur
í ferðalögum
Beint leiguflug á eftir-
sótta sólarstaði. Ódýrt
áætlunarflug með sér-
samningum við flugfélög-
in.
Spánn - Costa del Sol.
Portúgal - Algarve.
ftalía - Lignano - Bibione.
Gardavatn - Abano Terme.
Enska Rivieran + London.
Þýskaland - Mosel- Bayern.
Franska Rivieran - Corsica.
Grikkland - Krít - Korfu.
Mallorca — Ibiza.
Flug + bíll um alla Evrópu.
Siglingar.
Heimsreisur.