Morgunblaðið - 22.02.1986, Side 26

Morgunblaðið - 22.02.1986, Side 26
,MjOR&IfNPlJA;ÐIÐÆAUGARDAQyRg2.;FBBRtrAR 1986 arstofnunum og um önnur viðbrögð gegn skemmdarverkum á ófriðar- eða ólgutímum. Ennfremur þarf að ákveða hvar þessum mikilvæga þætti, innra-öryggi, verður komið fyrir í stjómkerfinu. Reynsla frænd- þjóða okkar á Norðurlöndum getur komið að góðu gagni í þessu efni. -^V IV Eysteinn Jónsson komst þannig að orði þegar hann rifjaði upp aðdragandann að stofnun NATO á 30 ára afmæli bandalagsins, að hann hefði talið það mikils um vert að ísland ætti þar aðild til þess að verða ekki „bitbein stórveldanna". íslendingar hefðu orðið að taka afstöðu, annað hefði leitt til illdeilna og erfiðleika fyrir ísland. Þessi stefna hefði eytt óvissu og þar með > stuðlað að friði. Hinu er ekki að leyna að sá friður styðst við hin breiðu spjót nútímans; kjamavopnin. Við getum virt fyrir okkur þá vopnatækni úr nokkurri Qarlægð og ekki á banastundinni líkt og vom örlög Atla Ásmunds- sonar. Við mörkun utanríkisstefnu okk- ar verðum við íslendingar að gæta þess, að verða hvorki beint né óbeint „bitbein" í átökum. Mest hætta er því samfara að fljótfæmislegar eða illa ígmndaðar ákvarðanir verði til þess að auka á óvissu eða óstöðug- leika-í-okkar heimshluta. Hurð skall nærri hælum fyrir röskum tíu ámm síðan þegar allir tilskyldir frestir “ < vom liðnir og stjómvöld farin að undirbúa brottför vamarliðsins. Ómögulegt er að geta sér til um hvaða afleiðingar það hefði haft ef sú ákvörðun hefði komið til fram- kvæmda. Ég vil tiltaka hér tvö atriði þar semþörf er á sérstakri árvekni. 1. Á þingum Norðurlandaráðs hafa komið fram hugmyndir um að lýsa því einhliða yfir að Norður- lönd skuli vera án kjamavopna. Það hlýtur að vera stefna Islend- inga í þessu efni, eins og ég hef raunar lagt áherslu á í Norður- landaráði, að kjamorkuvopna- laust svæði á Norðurlöndum verði liður í mun víðtækari frið- lýsingu þar sem samkomulag stórveldanna skiptir mestu máli. Einhliða yfirlýsingar veita enga tryggingu fyrir því að löndin verði ekki fyrir árás kjama- vopna. Þá hlýtur svæði án kjamavopna og að taka til hafs- ins sem er raunar hagsmunamál okkar íslendinga að verði friðað. í þessu sambandi verðum við að hafa hliðsjón af hagsmunum annarra ríkja í Atlantshafs- bandalaginu, minnugir skuld- bindingarinnar um að öll ríki Atlantshafsbandalagsins séu eitt svæði í vamarlegu tilliti. 2. Á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna hafa komið fram hug- myndir um svonefnda „fryst- ingu“ kjamavopna. í því efni skiptir tvennt mestu máli. í fyrsta lagi virkt eftirlit með framkvæmd afvopnunar og í öðm lagi samkomulag risaveld- anna. Allar yfírlýsingar sem samþykktar em á allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna um af- vopnun stoða lítt ef ekki kemur til vilji og samkomulag stórveld- anna. Ég gat þess að friður í okkar heimshluta styddist við ógn kjama- vopnanna. Eðlilegt verður að teljast að leitað sé leiða til að tryggja öryggi með einhverjum öðmm hætti en ógnaijafnvæginu því ólíklegt er að menn muni ávallt una þeim friði er styðst við helsprengjuna. Mikið veltur á að reynt verði að fínna aðra og ekki síðri tryggingu friðar. Hér verða menn þó að gæta raun- sæis, það er á grandvelli styrks Atlantshafsbandalagsins sem Sov- étmenn hafa nú afráðið að koma á ný til samninga um afvopnun eftir að hafa slitið samningaviðræðum fyrir þremur ámm. Hygg ég að þar ráði mestu ákvörðun Atlantshafs- bandalagsríkjanna að vega upp yfírburði Sovétmanna á sviði meðal- drægra kjamavopna svo og geim- vamaáætlun Bandaríkjamanna. I nóvember kynntu Bandaríkja- menn mjög umfangsmiklar tillögur um afvopnun sem hvíldu á hinni svonefndu „núll-lausn“ sem Ronald Reagan kynnti fyrst fyrir fjóram ámm. Þessar tillögur, eða tilboð, innihalda öll svið Genfar-viðræðn- anna (þ.e. langdræg og meðaldræg kjamavopn svo og geimvamir) og njóta víðtæks stuðnings Vestur- veldanna. í kjölfar viðræðna þeirra Reagans og og Gorbasjofs í lok nóvember kynntu Sovétmenn hug- myndir þar sem virðist komið til móts við tilboð Bandaríkjamanna og þeir virðast nú reiðubúnir að fást við niðurskurð kjamavopna undir virku og gagnkvæmu eftirliti. Mörg atriði hugmynda Sovét- manna em varasöm út frá öryggis- sjónarmiðum V-Evrópuríkja og krefjast nákvæmrar skoðunar. Mikilvægt er samt að taka til greina það sem nýtilegt kann að vera úr hugmyndum þeirra og freista þess að ná samkomulagi, t.d. um 50% niðurskurð kjamavopna og um að Evrópa verði hreinsuð af kjama- vopnum. Allt þetta verður væntan- lega til meðferðar á þeim fundum risaveldanna sem nú fara í hönd. Samskipti austurs og vesturs em ekki einkamál risaveldanna. í þeim efnum ber öllum hlutaðeigandi þjóð- um að hafa skoðun og hafa áhrif á mótun samskiptareglna. Við Is- lendingar verðum að gera okkur grein fyrir því hvar liggi gangvegir og hvar glapstígir og hegða okkur í samræmi við það. Carrington lá- varður, framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins, komst nýlega svo að orði, að hemaðarstyrkur einn væri í sjálfu sér ekki ófriðarboði og að sínu leyti væm fagrar yfírlýs- ingar um friðarvilja heldur engin trygging friðar. Hann tók til dæmis þá staðreynd að Bretar og Frakkar elduðu um aldir grátt silfur saman. Nú á tímum búa þessar þjóðir hvor um sig yfír margföldum hemaðar- styrk miðað við fyrri tíma en samt flýgur engum í hug að koma upp strandvirkjum eða vera með vamar- viðbúnað við árás yfír Ermarsund. Það sem veldur óttaleysi Breta og Frakka styðst við margvísleg og náin samskipti þessara þjóða. Mikil- virkt upplýsingastreymi er á milli ríkjanna og allar meiriháttar breyt- ingar á stjómarháttum sýnilegar löngu fyrirfram. Nægur tími væri því til vamaðar ef á þyrfti að halda. I samskiptum V-Evrópuþjóða við Sovétríkin er þetta alhliða streymi upplýsinga ekki fyrir hendi. Sovét- ríkin hafa að vísu möguleika á því að kynna sér og draga lærdóm af þróun stjómmála í NATO-ríkjun- um. NATO-ríkin hafa á hinn bóginn lítil tök á að fylgjast jafn náið með straumum og stefnum í sovésku stjómkerfí. Þykkir múrar Kremlar umlykja stjómkerfí ráðstjómarinn- ar. Niðurstaðan er þessi: Við vitum um gífurlega uppbyggingu herveld- is Sovétríkjanna en vegna hins lokaða stjómkerfís getum við ekki verið viss um áætlanir þeirra. Þetta ræður miklu um stefnu V-Evrópu- ríkja í öryggismálum og við verðum því að brynja okkur gagnvart styrk þeirra en getum ekki treyst yfírlýs- ingum þeirra. Þessari stefnu má líkja við húftryggingu. Þessi mikli munur á stjómkerfum austurs og vesturs hlýtur að hafa áhrif á viðræður um afvopnun. Lýð- ræðisfyrirkomulagið, þingræði og frjálsir fjölmiðlar munu m.a. tryggja að Vesturveldin virði samn- inga um afvopnun. Þetta vita Sovét- menn mæta vel. En þessu er ekki fyrir að fara í A-Evrópu og er það höfuðástæða áherslunnar á virkt eftirlit með framkvæmd samninga um afvopnun. í því efni má ekki og getur ekki verið um neina tilslök- un að ræða af hálfu NATO-ríkj- anna. Um þetta segir Carrington lávarður „Það má ekki henda okkur hið sama og manninn sem fór til skraddarans að kaupa sér föt. „Hafðu ekki áhyggjur af klæðinu," sagði skraddarinn, „en finndu hve víddin er þægileg." Öryggi ekki síð- ur en góð föt er komið undir klæð- inu. Því lengur sem við viljum að það vari því meiri áherslu leggjum viðágæðin." í upphafi máls míns lagði ég út af atviki sem greint er frá í Grettis- sögu, einu kunnasta bókmennta- verki íslendinga. Oft vill gleymast að eitt af markmiðum okkar með samstarfínu í varnarbandalagi vest- rænna þjóða er að gera okkur kleift að varðveita _ menningu okkar og tungu. Aðild íslendinga að Atlants- hafsbandalaginu tryggir þeim frelsi til að rækta þjóðlegan menningar- arf. Sá arfur er smiðjan sem þeir eiga að ganga í til að skerpa dóm- greind sína og hyggjuvit. Sökum fólksfæðar emm við ekki í aðstöðu til að halda uppi eigin herafla og verðum því að treysta á dómgreind okkar í ríkari mæli en ella. í því efni varðar miklu að við höldum árvekni okkar og öflum okkur þekkingar á öryggis-, vamar- og alþjóðamálum, sem gagnað geta íslenskum hagsmunum. Á þennan hátt hygg ég að við íslendingar munum ekki þurfa að sæta örlögum Atla Ásmundssonar á Bjargi sem heima sat og beið þess sem verða vildi. Erindi þetta fluttí utanríkis- ráðherra á fundi Varðbergs 20. febrúar. Ferðaskrifstofa stúdenta: Kynning á ferð- um sumarsins FERÐASKRIFSTOFA stúdenta er nú að hefja kynningu á starf- semi sinni fyrir sumarið. Kynningin hefst í Félagsstofnun stúdenta sunnudaginn 23. febrúar 1986 kl. 14.00, en eftir það er ferðinni heitið til eftirtalinna staða í samvinnu við nemendafélögin á hveijum stað: 24.2. Fjölbrautaskólann Suður- nesjum, 25.2. Menntaskólann ísafírði, 26.2. Menntaskólann Akur- eyri og 27.2. Menntaskólann á Egilsstöðum. Með í förinni verða Simon Le Fort frá Englandi, Emest og Sylvía Crossen frá Irlandi og Wemer Glinka frá Þýskalandi. Kjmningin miðast við þarfir og óskir ungs fólks og námsmanna, en innihald kynningarinnar hafa námsmenn sjálfir ákveðið með því að svara spumingum um helstu áhugaverðu Staðina. (Fréttatilkynning) Peningamarkaðurinn GENGIS- SKRANING Nr. 36. — 21. febrúar 1986 Kr. Kr. Toll- EÚ.KI. 09.15 Kaup Sala gengi Dollari 41,730 41,850 42,420 SLpuod 60,112 603 59,494 Kan.dollari 29,975 30,061 29,845 Dönskkr. 4,8660 430 4,8191 Norsk kr. 5,7539 5,7704 5,6837 Sænskkr. 5,6618 5,6780 5,6368 Fi.mark 7,9866 8,00% 7,9149 Fr.frsnki 5,8482 5,8650 5,7718 Belg. franki 0,8772 0,8798 03662 St. franki 21,5381 21,6000 20,9244 Holl. gyllini 15,8941 15,9398 15,7053 V-þ. mark 17,9522 18,0039 17,7415 IL líra 0,02639 0,02646 0,02604 Austurr.sch. 2,5563 2,5636 2,5233 PorL escudo 0,2754 0,2762 0,2728 Sp. peseti 0,2851 0,2859 0,2818 Jap.yen 0,22716 0382 0,21704 Irskt pund 54,291 54,447 52,697 SDR(Sérst 47,2328 47,3697 46,9476 - INNLÁNSVEXTIR: Sparisjóðsbækur................... 22,00% Sparisjóðsreikningar með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 25,00% Búnaðarbankinn.............. 25,00% Iðnaðarbankinn.............. 23,00% Landsbankinn................ 23,00% Samvinnubankinn............. 25,00% Sparisjóðir................. 25,00% Útvegsbankinn............... 23,00% Verzlunarbankinn............ 25,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 30,00% Búnaðarbankinn.............. 28,00% Iðnaðarbankinn.............. 26,50% Samvinnubankinn............. 30,00% Sparisjóðir................. 28,00% Útvegsbankinn............... 29,00% Verzlunarbankinn............ 31,00% með 12 mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 32,00% Landsbankinn................ 31,00% Útvegsbankinn............... 33,00% Innlánsskfrteini Alþýðubankinn............... 28,00% Sparisjóðir................. 28,00% Verðtryggðir reikningar miðað við lánskjaravísitölu með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 1,50% Búnaðarbankinn............... 1,00% Iðnaðarbankinn............... 1,00% Landsbankinn................. 1,00% Samvinnubankinn.............. 1,00% Sparisjóðir.................. 1,00% Útvegsbankinn................ 1,00% Verzlunarbankinn............. 2,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 3,50% Búnaðarbankinn............... 3,50% Iðnaðarbankinn............... 3,00% Landsbankinn................. 3,50% Samvinnubankinn.............. 3,50% Sparisjóðir.................. 3,00% Útvegsbankinn................ 3,00% Verzlunarbankinn............. 3,50% með 18 mánaða uppsögn: Útvegsbankinn................ 7,00% Samvinnubankinn.............. 7,50% með 24 mánaða uppsögn: Samvinnubankinn.............. 8,00% Ávísana- og hlaupareikningar: Alþýðubankinn - ávísanareikningar......... 17,00% - hlaupareikningar.......... 10,00% Búnaðarbankinn............... 8,00% Iðnaðarbankinn............... 8,00% Landsbankinn................ 10,00% Samvinnubankinn............. 10,00% Sparisjóðir................. 10,00% Útvegsbankinn................ 8,00% Verzlunarbankinn............ 10,00% Stjörnureikningar: I, II, III Alþýðubankinn................ 9,00% Safnlán - heimilislán - IB4án - pkislán með 3ja til 5 mánaða bindingu Iðnaðarbankinn............. 23,00% Landsbankinn................ 23,00% Sparisjóðir................. 25,00% Samvinnubankinn............. 23,00% Útvegsbankinn............... 23,00% Verzlunarbankinn............ 25,00% 6 mánaða bindingu eða lengur Iðnaðarbankinn.............. 26,00% Landsbankinn................ 23,00% Sparisjóðir................. 28,00% Útvegsbankinn............... 29,00% Innlendir gjaldeyrisreikningar: Bandaríkjadollar Alþýðubankinn................ 8,00% Búnaðarbankinn............... 7,50% Iðnaðarbankinn............... 7,00% Landsbankinn................. 7,50% Samvinnubankinn.............. 7,50% Sparisjóðir.................. 8,00% Útvegsbankinn................ 7,50% Verzlunarbankinn............. 7,50% Steriingspund Alþýðubankinn............... 11,50% Búnaðarbankinn.............. 11,00% Iðnaðarbankinn..........'.. 11,00% Landsbankinn................ 11,50% Samvinnubankinn............. 11,50% Sparisjóðir................. 11,50% Útvegsbankinn............... 11,00% Verzlunarbankinn............ 11,50% Vestur-þýsk mörk Alþýðubankinn................ 4,50% Búnaðarbankinn...... 4,25% Iðnaðarbankinn............... 4,00% Landsbankinn................. 4,50% Samvinnubankinn.............. 4,50% Sparisjóðir.................. 4,50% Útvegsbankinn................ 4,50% Verzlunarbankinn............. 5,00% Danskarkrónur Alþýðubankinn................ 9,50% Búnaðarbankinn............... 8,00% Iðnaðarbankinn............... 8,00% Landsbankinn................ 9,00% Samvinnubankinn...... ....... 9,00% Sparisjóðir.................. 9,00% Útvegsbankinn................ 9,00% Verzlunarbankinn........,... 10,00% ÚTLÁN S VEXTIR: Almennir víxlar, f orvextir: Landsbankinn................ 30,00% Útvegsbankinn............... 30,00% Búnaðarbankinn.............. 30,00% Iðnaðarbankinn............. 30,00% Verzlunarbankinn............ 30,00% Samvinnubankinn............. 30,00% Alþýðubankinn............... 30,00% Sparisjóðir................. 30,00% Viðskiptavíxlar Landsbankinn................ 32,50% Búnaðarbankinn.............. 34,00% Sparisjóðir................. 34,00% Yfirdráttarlán af hlaupareikningum: Landsbankinn................ 31,50% Útvegsbankinn............... 31,50% Búnaðarbankinn.............. 31,50% Iðnaðarbankinn.............. 31,50% Verzlunarbankinn............ 31,50% Samvinnubankinn............. 31,50% Alþýðubankinn............... 31,50% Sparisjóðir................. 31,50% Endurseljanleg lán fyrir innlendan markað............ 28,50% láníSDRvegnaútfl.framl............. 10,00% Bandaríkjadollar.............. 9,75% Sterlingspund................ 14,25% Vestur-þýsk mörk.............. 6,25% Skuldabréf, aimenn: Landsbankinn................ 32,00% Útvegsbankinn................ 32,00% Búnaðarbankinn.............. 32,00% Iðnaðarbankinn.............. 32,00% Verzlunarbankinn.............. 32,0% Samvinnubankinn.............. 32,00% Alþýðubankinn................ 32,00% Sparisjóðir.................. 32,00% Viðskiptaskuldabréf: Landsbankinn................. 33,50% Búnaðarbankinn............... 35,00% Sparisjóðimir................ 35,00% Verðtryggð lán miðað við lánskjaravísitölu í allt að 2 ár......................... 4% Ienguren2ár............................ 5% Vanskilavextir........................ 45% Óverðtryggð skuldabréf útgefin fyrir 11.08. ’84 .......... 32,00% Líf eyrissj óðslán: Lífeyrissjóður starfsmanna rikis- ins: Lánsupphæð er nú 500 þúsund krón- ur og er lánið vísitölubundið með lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár, en getur verið skemmri, óski iántakandi þess, og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg, þá getur sjóðurinn stytt lánstímann. Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til sjóðsins í tvö ár og tvö mánuði, miðað við fullt starf. Biðtími eftir láni er fjórir mánuðir frá því umsókn berst sjóðnum. Lífeyrissjóður verzlunarmanna: Lánsupphæð er nú, eftir 3ja ára aðild að lífeyrissjóðnum, 216.000 krónur, en fyrir hvern ársfjórðung umfram 3 ár bætast við lánið 18.000 krónur, unz sjóðsfélagi hefur náð 5 ára aðild að sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóðsaðild bætast við höfuðstól leyfilegar lánsupphæðar 9.000 krón- ur á hverjum ársfjórðungi, en eftir 10 ára sjóðsaðild er lánsupphæðin orðin 540.000 krónur. Eftir 10 ára aðild bætast við 4.500 krónur fyrir hvern ársfjórðung sem líður. Því er í raun ekkert hámarkslán í sjóðnum. Höfuðstóll lánsins er tryggður með lánskjaravísitölu, en lánsupp- hæðin ber nú 5% ársvexti. Láns- tíminn er 10 til 32 ár að vali lántak- anda. Þá lánar sjóðurinn með skilyrðum sérstök lán tií þeirra, sem eru eignast sína fyrstu fasteign og hafa greitt til sjóðsins samfellt í 5 ár, kr. 590.000 til 37 ára. Lánskjaravísitala fyrir febrúar 1986 er 1396 stig en var fyrir janúar 1986 1364 stig. Hækkun milli mánað- anna er 2,35%. Miöað er við vísi- töluna lOOíjúní 1979. Byggingavísitala fyrir janúar til mars 1986 er 250 stig og er þá miðaö við 100 í janúar 1983. Handhafaskuldabréf í fasteigna- viðskiptum. Algengustu ársvextir eru nú18-20%. Sérboð Nafnvextir m.v. Höfuðstóls- óverðtr. verðtr. Verðtrygg. færslurvaxta kjör kjör tímabil vaxtaáéri Óbundiðfé Landsbanki, Kjörbók:1) .................... 7-36,0 1,0 3mán. 2 Útvegsbanki, Abót: ..................... 22-36,1 1,0 1 mán. 1 Búnaöarb., Sparib: 1) .................. 7-36,0 1,0 3mán. 2 Verzlunarb., Kaskóreikn: ................. 22-31,0 3,5 3mán. 4 Samvinnub., Hávaxtareikn: ................ 22-39,0 1-3,5 3mán. 1 Alþýðub., Sérvaxtabók: ................... 27-33,0 ... ... 4 Sparisjóðir, Trompreikn: .................... 32,0 3,0 1 mán. 2 Iðnaðarbankinn: 2) ........................ 26,5 3,5 1 mán. 2 Bundiðfó: Búnaðarb., 18mán. reikn: .................... 39,0 3,5 6mán. 2 1) Vaxtaleiðrétting (úttektargjald) er 1,7% hjá Landsbanka og Búnaðarbanka. 2) Tvær úttektir heimilaðar á hverju sex mánaða tímabili án, þes að vextir lækki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.