Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, L'AUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986 Ífclk í fréttum \ Sköllótta söng1- konan í fullu fjöri ’ AI emendur í Fjölbrautaskólan- ■ lB um í Breiðholti, meðlimir í leiklistarfélagi skólans Aristofanesi sýna þessa dagana leikritið Sköll- ótta söngkonan eftir Eugéne Iones- co. Það hefur verið æft af krafti og við sögu koma sex persónur, tvenn hjón, slökkviliðsstjóri og vinnukona. Leikritið gerðu Eugéne á árunum 1948—49 þegar hann settist niður og ætlaði að fara að læra ensku en er Rúmeni sem mikið til hefur búið í París. Þegar hann ætlaði að byija lærdóminn fundust honum bækumar hinar furðuleg- ustu eða eins og hann sjálfur segir. „Mér brá í brún þegar ég las list- ,ann, ég var ekki að læra ensku, það sem ég hafði fyri framan mig vom afar sérkennilegar staðreyndir eins og t.d. að það eru sjö dagar í vikunni eða að gólfíð er undir okkur og loftið yfir okkur . . .“ Út frá þessu varð stykkið til og þetta er gamanleikur og grín gert að ensku skólabókunum ... Helga Aðalbjörg Arnadóttír fer Slökkviliðsstjórinn Freyr Arnar- með hlutverk Mary vinnukonu. son. Morgunblaðið/Einar Ragnar Sigurðsson Tvenn hjón koma við sögu herra og frú Smith leildn af Birni Ámasyni og Jóhönnu Ólafsdóttur og svo herra og frú Martin leikin af Óskari D. Ólafssyni og Ástu Davíðsdóttur. Sjónvarpað um Bretland og Bandaríkin SIGRÍÐUR ELLA og PAVAROTTI Þetta gengur nú bara allt vonum framar," sagði Sigríð- ur Ella Magnúsdóttir þegar slegið var á þráðinn til London og hún innt eftir því hvemig gengi í söng- listinni. „Ég kem heim nú um páskaleytið því meiningin er að vera með í 11 Trovatore og Grímu- dansleiknum sem íslenska óf>eran og íjóðleikhúsið ætla að fara að setja upp. Þá mun ég að öllum lík- indum líka sjmgja með Sinfóníunni í Stabat mater eftir Dvorák. Það er ýmislegt fleira á döfinni og kannski einna mest spennandi það sem ég kem til tneð að taka þátt í nú í byijun mars, það er kvöldstund með Pavarotti. Þetta kallast hér á Bretlandi „Master Class" og ásamt mér koma þrír söngvarar fram, sópran og tenór úr Covént Garden og síðan baritón- söngvari sem í fyrra vann Pavar- otti-söngkeppnina. Það er þegar uppselt á þessa tónleika í Barbican Center og þeim mun verða sjón- varpað um allt Bretland og Banda- ríkin. Þetta er því stórkostlegt tækifæri fyrir mig og góð auglýsing fyrir islenska söngvara. Pavarotti mun spjalla við okkur og segja álit sitt á söngnum auk þess sem gest- .’íS-V'I"'" "■msau: a—"On/ÍSB ““ r®*ck»r*d ‘,„,0 re,„V,K°m ',»Ppro»chint l|f»° rtS ifSSSZ -S-^ IS?£a^Er ""■"““".Uxiisir,, *na of Mon co*ur. hnwrvn dSSMSs phrued '*!fganlly. wlth pp W«„. -—'ÞfOtljr, | dcbul ,i Sa*m* no,{,b.lc London ' , dcddcdly Frrnch 1? v,olcf ■ I forward' '!mbre- f*cncr,l|y ,we7^'rlon pro‘«",‘l. uiiurisianaini Po*cr-» »iy|«. • ■ - * ■• *o Pcauli/ully. rtpcclally lh^Lwff llll‘« “«n of ||„, SMraa.*sí S MORGUNBLAÐINU barst í hendur úrklippa úr Financial Times þar sem farið er lofsam- legum orðum um söng Sigríðar Ellu Magnúsdóttur er hún söng með Fílharmóníunni í London nú fyrir nokkru. Þá lilaut hún einnig góða dóma í fleiri blöðum eins og The Times og Daily Tele- graph. imir fá að spyija og rabba við hann. Það stendur einnig til að ég haldi til Toronto í Kanada," heldur Sigríð- ur áfram, „og fari þar með hlutverk Vann rúmlega fimm milljónir dollara í happdrætti Heppnin virðist elta sumt fólk og það á svo sannar- lega við um hana Evelyn Marie Adams sem í október vann 3,9 milljónir dollara í happdrætti í New Jersey. Svona til að byija með ákvað frúin að vera ekkert að eyða um efni fram, en eini munaðurinn sem hún veitti sér var að auka happdrættismiðana úr 60 í 100. Og það var ekki að sökum að spyija þetta átti eftir að borga sig. Fyrir nokkmm vikum vann hún aftur og í þetta skipti 1,5 milljón dollara. Miðana hefur hún alltaf keypt á sama stað, í „7-Eleven- “-versluninni við dymar heima hjá henni, sem kærastinn rekur. Þau em nú að hugsa um að selja búðina áður en þau gifta sig í apríl og era jafnvel að hugsa um að kaupa sér hús. En hvað skyldi hún ætla að gera við afganginn af fjármununum? „Nú langar mig að læra viðskiptafræði til að afla mér vitneskju um hvemig ég á að ráðstafa pening- unum mínum.“ Ætlar frúin að halda áfram að spila í happdrættinu? „Nei, nú er ég hætt, aðrir verða líka að fá sín tækifæri."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.