Morgunblaðið - 09.03.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ1986
Akureyri:
Nauðsynlegt
er að treysta
hráefnisöflun
— segir Jón Signrðarson formaður atvinnumála-
nefndar um aðild bæjarins að Oddeyri hf.
Akureyri 8. marz.
„Útflutningsverðmæti rælqu frá K. Jónsson og co. hefur
verið mjög verulegt og við teljum nauðsynlegt að tryggja
betur rælquaðföng til verksmiðjunnar,“ sagði Jón Sigurðar-
son, formaður atvinnumálanefndar Akureyrar og forstjóri
Iðnaðardeildar SÍS, í samtali við Morgunblaðið í morgun,
í framhaldi af stofnun hlutafélagsins Oddeyrar hf. sem
greint var frá í blaðinu í dag.
Stærstu hluthafar í fyrirtækinu
eru Akureyrarbær og K. Jónsson
og co. en auk þeirra eru nokkrir
aðilar sem eiga hlutafé í fyrirtæk-
inu. Skv. heimildum Morgunblaðs-
ins eru forráðamenn Oddeyrar hf.
vongóðir um að fá a.m.k. annað
raðsmíðaskipið sem í smíðum er
í Slippstöðinni hf. hér í bænum.
Hingað til hefur K. Jónsson og
co. keypt rækju sína frá Rússlandi
og af bátum í nágrenni Akureyrar.
Þess má geta að verksmiðjan
vinnur úr u.þ.b. 4.000 lestum af
rækju árlega.
Stjóm hins nýja fyrirtækis
hefur enn ekki komið saman til
að skipta með sér verkum vegna
veikinda Jóns Sigurðarsonar en
hann er fulltrúi bæjarins í stjóm-
inni. Akureyrarbær er stærsti
hluthafínn þannig að telja verður
líklegt að Jón verði stjómarfor-
maður fyrirtækisins.
Tollalækkun grænmetis:
Þýðir 15-20% lækkun
á verði út úr búð
TOLLALÆKKUN á grænmeti úr
70% í 40% hefur í för með sér
15—20% Iækkun á útsöluverði
þess að meðaltali. Verð á græn-
meti út úr búð er hins vegar
mjög breytilegt, bæði vegna þess
að innkaupsverð þess er mismun-
andi frá einum tima tíl annars,
og álagning í heildsölu og smá-
sölu er fijáls.
Hér á eftir fer heildsöluverð á
Tegund
Hvítkál
Blómkál
Tómatar
Agúrkur
Paprika
Iceberg-salat
Grænar belgbaunir
Kínakál
nokkrum tegundum grænmetis hjá
einum innflutningsaðila, fyrir og
eftir tollalækkun. Smásöluálagning
er almennt á bilinu 30—60% svo
verð út úr búð er hærra sem því
nemur. Miðað er við verð á hveiju
kílógrammi:
Það vekur athygli að paprikan
hefur hækkað í verði þrátt fyrir
tollalækkun en það stafar af stór-
hækkuðu innkaupsverði.
Fyrir tollalækkun Eftir tollalækkun
35 kr. 22 kr.
103 kr. 80 kr.
159 kr. 116 kr.
183 kr. 159 kr.
159 kr. 177 kr.
258 kr. 197 kr.
376 kr. 299 kr.
182 kr. 123 kr.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið veiðibann báta um
páska. Allar þorsknetaveiðar
báta 10 tonna og stærri verða
bannaðar frá klukkan 20.00 25.
marz til klukkan 10 árdegis 1.
april. Allar fiskveiðar báta minni
en 10 tonn, aðrar en grásleppu-
veiðar, verða bannaðar frá
klukkan 20.00 22. marz til 10
árdegis 1. apríl.
Nýtt holræsi í Kópavogi
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við nýtt holræsi i Kópavogi milli
Kópavogs og Arnarness. Kostnaður við fyrsta áfanga, sem nær
frá Urðarbraut, vestari mörk Kópavogshælisins og að miðjum
Fífuhvammsvegi, er áætlaður kr. 20 millj. og á verkinu að vera
lokið í maí.
Að sögn Sigurðar Bjömssonar
bæjarverkfræðings verður lögð
130 metra bráðarbirgarlögn út í
voginn í þessum áfanga en stefnt
er að varanlegri lögn fram að
Kársnestá. Endanlegt holræsi
kemur til með að þjóna allri byggð
í Fífuhvammsdal að Vatnsenda-
hæð og Suðurhlíðum, „nánast allri
byggð í Kópavogi sunnan við
vatnaskil á Kársnesi og Digranes-
hálsi“.
Akureyri:
Eining
samþykk-
ir kjara-
samninginn
Fjöldi sat hjá á
fundi bókagerðarmanna
Enn hafa engar fregnir bo-
rist af verkalýðsfélagi, sem
fellt hefur nýgerða samn-
inga ASÍ og samtaka at-
vinnurekenda. í flestum fé-
lögum hafa samningarnir
verið samþykktir með yfir-
gnæfandi meirihluta at-
kvæða, eins og til dæmis í
Einingu á Akureyri, þar sem
þeir voru samþykktir á
fimmtudagskvöldið með 167
atkvæðum gegn 13, átta sátu
hjá. Félagar í Einingu eru
um þrjú þúsund.
Fundur í Félagi bókagerðar-
manna samþykkti samninginn á
fimmtudaginn með meirihluta
atkvæða gegn 18 en fjölmargir
félagar sátu hjá. Nær 200 manns
voru á fundinum. Þar var sam-
þykkt ályktun, þar sem forysta
verkalýðshreyfíngarinnar er for-
dæmd fyrir að „knýja þessa samn-
inga upp á verkalýðsfélög" og að
forysta ASÍ hafi í samvinnu við
atvinnurekendur bundið hendur
verkalýðsfélaga til að sækja þann
rétt, sem verkafólki ber, og allar
ytri aðstæður buðu upp á, eins og
það var orðað.
Allmörg félög héldu fundi um
samningana í gær, önnur halda
fundi í dag og eftir helgi. Samning-
ar ASÍ og atvinnurekenda voru
undirritaðir með fyrirvara um að
aðildarfélögin væru búin að stað-
festa þá fyrir 12. mars, sem er á
miðvikudaginn.
Verðlagsnefnd ASÍ ræðir við fulltrúa Tryggingaeftirlitsins:
Lækkun á verði bíla hefur
lítil áhrif á tjónabætur
— segir Erlendur Lárusson forstöðumaður Tryggingaeftirlitsins
Veiðibann umpáskana
NÝSKIPUÐ verðlagsnefnd á
vegum Alýðusambands íslands
ræddí við fulltrúa Trygg-
ingaeftirlitsins vegna hækkunar
ábyrðartrygginga ökutækja um
22% þann 1. mars. Einn nefndar-
manna, Hómgeir Jónsson, sagði
að óskað hefði verið skýringa á
því hvers vegna skyldutrygging-
in hækkaði um 22%, nú þegar
bílar lækkuðu í verði, og þar með
tjónabætur, að því er virtist.
Fiskaflinn í janúar og febrúar:
Jafnmiklu landað
í Eyjum og erlendis
FYRSTU tvo mánuði ársins hefur nánast verið landað jafnmiklum
afla erlendis og í stærstu verstöð landsins, Vestmannaeyjum. Löndun
erlendis nemur 64.912 lestum en i Eyjum 65.840. Mestur þorskur
hefur komið á land á Akureyri, 4.621 lest.
Þessa mánuði var 2.058 lestum.
af þorski landað erlendis, 3.223
lestum af öðrum botnfíski og
59.631 lest af loðnu. í Vestmanna-
eyjum hafa 2.725 lestir af þorski
komið á land, 3.262 lestir af öðrum
botnfíski og 59.853 lestir af loðnu.
Á eftir Vestmannaeyjum hefur
mestu verið landað á Austfjörðum,
Eskifírði 36.454 lestum, Seyðisfírði
29.845 og Neskaupstað 26.974
lestum. í þessum tilfellum er loðna
megnið af aflanum.
Mestum þorski hefur verið landað
á Akureyri, 4.621 lest, ísafirði
3.944, Keflavík 3.825, Ólafsvík
3.779 og í Sandgerði 3.170 lestum.
I febrúar var langmestu landað
í Vestmannaeyjum, 45.739 lestum,
13.446 lestum í Grindavík og
13.297 í Reylqavík. Mestum þorski
var landað í Ólafsvík, 2.989 lestum,
Akureyri 2.515, Reykjavík 2.460,
Grindavík 2.346, Keflavík 2.252 og
Vestmannaeyjum 2.084 lestum.
Erlendis var landað 41.506 lestum,
635 af þorsksi, 1.971 lest af öðrum
botnfíski og 38.900 af loðnu.
Þessi nefnd ASÍ hefur það hlut-
verk að fylgjast með verðlagi í
landinu i kjölfar kjarasamning-
„Við fengum þau svör að lækk-
unin á verði bfla hefði sáralítil áhrif
á tjónabætur vegna ábyrgðartrygg-
ingar og þvf væri ekki grundvöllur
fyrir því að draga úr hækkuninni,"
sagði Hómgeir. Hann sagði að
næsta skref nefndarinnar væri lík-
Iega að ræða við fulltrúa trygginga-.
félaganna og viðkomandi ráðuneyti,
því meiningin væri að reyna að
koma þessari hækkun eitthvað
niður.
Erlendur Lárusson forstöðumað-
ur Tryggingaeftirlitsins sagði að
hlutverk Tryggingaeftirlitsins væri
einungis það að fínna eðlilegan
iðgjaldagrundvöll miðað við tjóna-
reynslu og kostnaðarforsendur. „Ég
tel að 22% hækkun sé lámarks-
hækkun miðað við þær forsendur,
og tryggingafélög standi ekki undir
því að lækka þá tölu,“ sagði Erlend-
ur.
Hann sagði að lækkun á bflverði
virkaði ekkert að ráði til lækkunar
tjónabóta, þar eð bætur vegna slysa
á fólki væri stærsti liðurinn í
greiðslum tiyggingafélaga vegna
ábyrgðartrygginga. Ennfremur
væri algengt að skemmdir bflar
væru borgaðir út, síðan væru þeir
gerðir upp og seldir á almennum
markaði, svo tap og gróði trygg-
ingafélaga vegna bflverðslækkunar
jafnaðist út.
Veður
hamlar
flugi
DJÚP lægð suður af landinu
hefur valdið austan- og norð-
austanátt um allt land með
snjókomu eða rigningu. Af
þessum sökum hafa orðið
nokkrar tafir bæði á innan-
lands- og millilandafluiri
Flugleiða.
Þotu Flugleiða sem koma átti
til Keflavíkur kl. 6 í gærmorgun,
var snúið til Glasgow vegna
veðurs í Keflavík. Þá töfðust
vélar sem áttu að fara til Salz-
burg og Lúxemborgar og Glas-
gow og Kaupmannahafnar
vegna vondra vallarskilyrða í
Keflavík. Flug til Færeyja féll
niður í gær.
Innanlandsflug gekk úr
skorðum og féllu m.a. niður
ferðir til Vestmannaeyja og
Akureyrar vegna veðurs þar.