Morgunblaðið - 09.03.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1986
41
~b
ar starfa „að töluverðu leyti sem
banka", þó hún hafi ekki leyfi til
að auglýsa slíka starfsemi. „Margir
hafa þar t.d. launareikninga alveg
á sama hátt og í bönkum, m.a.
vegna þess að þar fá þeir, að ég
held, töluvert hærri vexti . . . og
á ýmsan hátt betri þjónustu . . .
Hvaða breytingar hefur þetta frum-
varp, ef að lögum verður, í för með
sér á þá starfsemi sem póstgíróstof-
an annast nú?“
Skúli spurði, hversvegna ráð-
herra hafi tekið út úr frumvarpinu
nýmæli um gíróþjónustu, er nefnd,
sem samdi frumvarpið, hafi talið
ástæðu til að setja þar inn.
Ráðherra svaraði Kolbrúnu m.a.
á þá lund efnislega, að á sitt borð
„hafi komið tilmæli um stöðvun á
útburði bréfa í tilteknum stöðvum,
þar sem farið hafi verið inn á verk-
svið Pósts og síma og ég hefi úr-
skurðað það að menn skyldu ekki
skipta sér af því þar sem það er
innan þeirrar hefðar sem hefur
verið látin viðgangast. Og þannig
er ætlunin að framkvæma þetta
frumvarp, ef að lögum verður, því
þama er í raun og veru lítil breyting
frá 45 ára gömlum lögum."
Eiði og Skúla svaraði ráðherra
m.a. svo: „Gíróþjónustan er óbreytt
eins og hún er nú.“ Ráðherra ítrek-
aði að Alþingi gæti, ef meirihluti
stæði til, tekið ákvæði um aukna
gíróþjónustu, sem hann hafi tekið
út úr frumvarpinu, inn í það aftur.
Hinsvegar væru bankar, að sínu
mati, a.m.k. nægilega margir í
okkar litla landi. „Eg vildi því
a.m.k. ekki vera faðir að þessu
bami. Ég ætla að gefa öðrum
tækifæri til þess.“
Hér verður ekki farið frekar út
í póstmálaumræðu á Alþingi íslend-
inga, sem raunar var hvorki mikil
að fyrirferð né efni, ef sagnfræði
ráðherrans er undanskilin.
Það hefur hinsvegar sitt hvað
breytzt í sögu lands og þjóðar síðan
Davíð Scheving sýslumaður sneri
hinum fyrsta pósti heim á leið, frá
Haga á Barðaströnd annó 1782, og
bað sjómann á suðurleið fyrir fyrsta
íslandspóstinn, sem fluttur var
samkvæmt konungstilskipun. Þessi
athöfn sýslumannsins var svo kröft-
ug, að þíjú ár liðu unz næsta póst-
ferð var farin. Sennilega flæddi út
úr dálkum Velvakanda, ef þrjú ár
liðu á milli póstferða nú, jafnvel þótt
biðin væri aðeins þrjár vikur.
V^terkurog
KJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Trésmíðaverkstæði geta nú sparað tíma
og fyrirhöfn við pantanir erlendis frá.
Við eigum nægar birgðir af ofnþurrkuð-
um viði, - á mjög hagstæðu verði!
Furu, eik, beyki, oregon pine, ask,
meranti, ramin, mahogny, tekk,
poplar, iroko, pitch pine, og m.fl.
Þar sem fagmennimir
versla
erþéróhætt
BYKO
SKEMMUVEGI2
Kúpavogi, timbur-stál-og plötuafgreiósla,
sfmar 41000,43040 og 41849
;•
<
Höíum fyrirliggjandi loítverkíœri írá
INGERSOLL-RAND
í hœsta gœdaílokki
Lofthamrcn 18 - 45 kg.
Spiengiholuborai 37 kg.
Loftþjöppu: 30 L/S(65 cfm)
og 60 L/S(125 cfm)
HlHEKIA
Laugavegi 170-172 Sír
HF
Sími 212 40
HAGSTÆTT
VERÐ