Morgunblaðið - 09.03.1986, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ1986
Bjarni og Steinunn (Sigurður Karlsson og Margrét Helga Jóhanns-
dóttir).
Guðmundur Scheving, settur sýslumaður og rannsóknardómari (Gísli Rúnar Jónsson) rœður séra Eyj-
ólfi, kapellán (Jakob Þór Einarsson), heilt. Bakvið sést Steinunn í varðhaldinu.
Svartfugl Gunnars Gunnarssonar á sviðinu í Iðnó:
MENN MUNDU vart harðari vetur og eftir því var hann langur og
erfiður. Jarðbönn voru langt fram á sumar, sumstaðar á Vestfjörðum
komu tún ekki undan snjó fyrr en i endaðan júní. Hafþök lágu fyrir
gervöllu Norðurlandi fram í júli og fellir var víðast um land, þó
sérstaklega fyrir norðan. Afleiðingin var að sjálfsögðu sú, að fólk
flosnaði upp frá búum sinum og fór á húsgang, reikaði þangað, sem
von var um mat. Viða var þó fisklítið, jafnvel fisklaust. Bjargarskort-
urinn olli skyrbjúgi í landsmönnum, tannveiki og kreppu. Það heyrð-
ist jafnvel að fólk hefði dáið af hungri.
Þannig var veturinn 1802. Sum-
arið fraus við veturinn og kuldar
voru langt fram eftir sumri, en
mannlífíð var þó samt, þó víða
væri á því röskun. Vestur á Rauða-
sandi í Barðastrandarsýslu var lítið
samfélag, sem laut sömu lögmálum
og víðar á íslandi. Menn fundu fyrir
tíðarfarinu og maður nokkur týnd-
ist í fjárleit í apríl. Menn töldu Jón
Þorgrímsson bónda á Sjöundá hafa
hrapað fyrir hamra. A Sjöundá var
tvíbýli. Enn var vetrarríki þó komið
væri fram í júnímánuð er húsmóðir-
in á hinni hálflendunni, Guðrún
Egilsdóttir, gaf upp öndina. Blessun
gat það verið, því hún hafði lengi
þjást af „hóstanum", meira að segja
Bjarni Bjamason (Sigurður Karlsson). Óhamingja hans var mikO,
missti fimm börn sín.
misst tvo drengi sína úr þessum
sama sjúkleika.
Presturinn í sókninni er gamall
maður og hefur unnið sín verk.
Kapellán hafði hann nú sér til
aðstoðar og var það séra Eyjólfur
Kolbeinsson, ungur maður, tilfínn-
inganæmur, en lítt reyndur. Þrátt
fyrir erfítt tíðarfar fer ekki hjá
því að sóknarböm sjái ýmislegt.
Kerlingar stinga saman nefjum og
velqa athygli bænda sinna á því,
að samdráttur var með fólkinu á
Sjöundá. Steinunn Sveinsdóttir,
ekkja Jóns Þorgrímssonar, og
Bjami Bjamason, sem sá á eftir
konu sinni, Guðrúnu Egilsdóttur,
vom skyndilega samferða til kirkju
og samfarir þeirra vom talsvert
meiri, eftir því sem sögur hermdu.
Sakbomingarnir og séra Eyjólfur.
Sýslumaður Scheving, presturinn
veijandinn (Guðmundur Pálsson).
Þetta var svo sem gott og blessað
ef slúðrinu hefði ekki fylgt, að ekki
væri einleikið með dauða Jóns og
Guðrúnar!
Þetta er upphafíð að einu fræg-
asta sakamáli íslandssögunnar.
Smám saman mögnuðust sögumar
og yfírvöld, veraldleg og kirkjuleg
komust í málið og ekki var aftur
snúið. Þau Steinunn og Bjami vom
á endanum bæði dæmd til lífláts
fyrir að hafa hjálpast að við að
stytta Jóni og Guðrúnu aldur.
Þetta varð Gunnari Gunnarssyni
efni í skáldsöguna Svartfugl, er
að Saurbæ (Gfsli Halldórsson) og
hann ritaði í Danmörku og út kom
þar á dönsku árið 1929. Gunnar
hafði kynnt sér rækilega öll dóms-
skjöl málsins og kynnt sér að auki
atburðarrás og aðstæður.
í sögu Gunnars er Eyjólfur Kol-
beinsson, kapellán að Saurbæ í
Rauðasandshreppi, sögumaður.
Hann rifjar upp með sér þá atburði
er gerst höfðu fimmtán áram áður.
Eyjólfi svíður sárlega endurminn-
ingin, því hann hafði bein afskipti
af málinu og honum þykir hann
hafa búið Bjama og Steinunni þau
örlögerþauhlutu.
Vom Steinunn og Bjami sek?
Fyrirkomu þau Jóni og Guðrúnu eða
lést Jón af slysföram og Guðrún
af sjúkdómi sínum? Gunnar Gunn-
arsson tekur ekki afstöðu til þess.
Hann beinir fyrst og fremst augum
lesandans að sálarstríði og örlögum
EyjólfS Kolbeinssonar. Ekki minnk-
ar angist Eyjólfs við það, að þijú
böm Bjama Bjamasonar dóu í
umsjón hans og síðar dmkknar
einkasonur Eyjólfs. Var samhengi
þar á milli?
Svartfugl kom út í íslenskri þýð-
ingu Magnúsar Ásgeirssonar árið
1938 og aftur lítið eitt breytt í þýð-
ingu höfundar 1971. Og núna 11.
mars veðmr leikritið Svartfugl
fmmsýnt í Leikfélagi Reykjavíkur.
um er að ræða nýja leikgerð eftir
Eitt frægasta
sakamál á Islandi
Gömul kynni gleymast ei Melaskólinn 40 ára
Ólafur Einarsson
kennari
Sveinbjöm Einarsson
kennari
Hver man ekki eftir þessum gömlu gódu andlitum?
Axel Kristjónsson Dagný Guðmundsdóttir Ingi Kristinsson
kennari kennari skólastjóri
Ásdís Steinþórsdóttir
kennari
Árgangar fæddir '33 til ’42
hittumst í kvöld og rifjum upp gömlu góðu dagana í
gamla góða Naustinu.
Diddú verður með einstaklega skemmtilega dagskrá
í tilefni kvöldsins.
Hrönn Geirlaugsdóttir fiðluleikari og Jónas Þórir
PienóleikarUelka ljúfa tónlist fyrir matargesti.. R
kennari
Pantið borð strax í dag í síma 17759.