Morgunblaðið - 09.03.1986, Side 40

Morgunblaðið - 09.03.1986, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ1986 'y ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON Pósti snúið við á Haga á Barðaströnd Póstmálaumræða í efri deild Opinberum póststofnunum var víðast komið á fót í Evrópuríkjum á 16. og 17. öld. í Danmörku 1624, í Svíþjóð 1636 og í Noregi 1647. Kristján konungur sjöundi gaf út tilskipun um Póststofnun á íslandi 13. maí 1776. Opinber póstþjónusta hérlendis verður því 210 ára í maímánuði næstkomandi, ef miðað er við tilskipun konungs. Opinber þjónusta var hinsvegar sein í svifum, þá eins og oft síðar. Það dróst sum sé til ársins 1782 að fyrsta póstferðin yrði farin. Miðað við þá tímasetningu verða starfsár póstsins 204 á þessu ári. Samkvæmt tilskipun konungs „skyldi póstur ganga þrisvar á ári úr hverjum landsfjórðungi til Bessa- staða í tenglsum við póstskip milli íslands og Danmerkur. Stjóm og skipulag póstmála var í höndum stiftamtmanns og sýslumanna. í tilskipun konungs er skýrt tekið fram að póstferðum sé fyrst og fremst komið á fót til þess að áríð- andi embættisbréfum verði greið- lega komið áfram. Þetta kom fram í framsögu Matthíasar Bjamasonar, samgönguráðherra, er hann mælti fyrir stjómarfrumvarpi að nýjum póstlögum um miðjan síðastliðinn mánuð. Fyrsta póstferðin Matthías Bjamason, viðskipta- og samgönguráðherra, hefur þann skemmtilega sið er hann mælir fyrir frumvörpum er tengjast opinberum stofiiunum, að rekja sögu þeirra aftur í tímann; tengja saman fortíð og samtíð og stefnumið í fyrirsján- legri framtíð. Fyrsta póstferðin hófst 10. febrú- ar 1782. Pósturinn hét Ari Guð- mundsson. „Hann lagði upp frá Reykjarfirði við ísafjarðardjúp, hélt þaðan um Ögur til ísafjarðar og siðan gangandi alla firði suður unz hann kom 16. febrúar að Haga á Barðaströnd. Þar bjó sýslumaður, Davíð Scheving. Þar sem pósturinn hafði aðeins örfá bréf meðferðis þótti sýslumanni ekki svara kostn- aði að senda Ara áfram suður held- ur bað hann vermann á leið suður fyrir bréfin. Fleiri vóm póstferðir ekki það árið og það var ekki fyrr en 1785 að póstferðir í samræmi við tilskipunina frá 1776 hófust reglulega." Þettá vóm orð samgönguráð- herra. Og enn yngist pósturinn. Ef við miðum við árið 1785 er regluleg- ar póstferðir hófust, varð eða verður íslenzk póstþjónusta 201 árs annó 1986. Póstferðað fornum hætti Á þjóðhátíðarárinu 1974 var farin póstferð að fornum hætti, frá Reykjavík i Skagafjörð norður. Póstur var settur í kistur og þær á klakk. Þarfasti þjónninn, hesturinn, sem var eina „farartæki" íslendinga um aldir, var að sjálfsögðu i aðalhlutverki i þessari „sviðsettu" þjóðlifsmynd — frá löngu liðnum tima. Davíð Scehving, sýslumaður, hefur látið spamaðarsjónarmið ráða ferð 1782 og mætti hagsýni hans verða mörgum opinberum útgjalda- smiðnum fyrirmynd á okkar dögum, þegar langleiðina í fjórðungur ís- lendinga á vinnualdri starfar hjá ríki og sveitarfélögum eða stofnun- um á þeirra vegum. Forskrift spam- aðarins var og í tilskipun hans há- tignar. Þar var gert ráð fyrir því að sýslumenn mættu senda póst með vermönnum, til að spara út- gjöld. Gjaldskrá fyrir íslenzka póst- stofnun var gefin út 8. júlí 1779. Burðargjald hvers bréfs er þar til- greint tveir skildingar úr einni sýslu í aðra. Síðan bættust tveir skilding- ar við fyrir hveija sýslu sem bréfið var flutt um. Það hefði því verið dýrt að senda sjálfum sér eða öðrum vinarkveðju „hringveginn“ ef hann hefði til verið á þeirri tíð. Ifyrstu póstlögin vóru sett árið 1907. Þeim lögum var breytt nokkr- um sinnum unz ný heildarlöggjöf var gefin út 1921. Síðast vóru sett heildstæð póstlög 1940. Færð í nútímahorf Samgönguráðherra sagði m.a., er hann mælti fyrir frumvarpi að nýjum póstlögum, að markmið þeirra væri „fyrst og fremst að lögfesta þær breytingar á þjónustu póstsins, sem þegar eru að nokkru leyti komnartil framkvæmda. Jafn- framt eru tekin inn ákvæði sem nefndin, er frumvarpið samdi, taldi að horfðu til bóta, svo og er þess freistað að færa ákvæði núgildandi laga í nútímahorf. Frumvarpið er flutt hér nánast óbreytt frá því sem nefndin skilaði þvi, með einni und- antekningu þó. Eins og fram kemur í athuga- semdum við frumvarpið lagði nefndin til að það nýmæli yrði tekið inn í frumvarpið að póstgíróstofunni verði heimilað að veita viðskipta- mönnum sínum hliðstæða þjónustu og bankar og sparisjóðir veita varð- andi inn- og útlán. Á þetta var ekki fallist en það er að sjálfsögðu opið fyrir þingnefnd að taka málið upp ef þingmönnum sýnist svo. Ég ákvað að taka þetta út úr frum- varpinu af þeirri einu ástæðu að ég tel, eins og fleiri, að nóg sé til af bönkum í þessu landi . . .“ Frumvarpinu er skipt í átta kafla. Sá fyrsti fjallar um skilgreiningu verksviða og markmiða, annar um einkarétt póstþjónustunnar, þriðji um póstleynd, fjórði um meðferð pósts, fimmti um gjaldskrá og frí- merki, sjötti um skaðabætur, sjö- undi um viðurlög. Athugasemdir þingmanna Þrír þingmenn tóku þátt í fyrstu umræðu efri deildar um póstlög: Kolbrún Jónsdóttir (Bj.-Ne.), Eiður Guðnason (A.-Vl.) og Skúli Alex- andersson (Abl.-Vl.). Sá fyrsti gerði að umtalsefni einkarétt póstsins til að bera út skriflegar sendingar milli manna og staða. Kolbrún spurði hver áhrif frumvarpið, ef lögfest yrði, hefði á rétt annarra, er t.d dreifðu tilkynn- ingum frá félögum og fyrirtækjum. „Er ekki kominn tími til að við stokkum þetta upp og léttum svolít- ið á þessari einokun"? Eiður sagði póstgíróstofuna þeg-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.