Morgunblaðið - 16.03.1986, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR16. MARZ1986
„Mun betri vertíð
en á síðasta ári“
— Sigurður Georgsson o g áhöfn hans
á Suðurey komin með 630 tonn
„ÉG ER ánægður með gang mála á vertíðinni nema veðrið, það
hefur verið rosalegt siðustu 10 daga. Við erum komnir með 630
tonn, þar af um 400 af þorski. Þetta gengur þvi mun betur en í
fyrra og meira er af þorski, við þyrftum bara að fá meira fyrir
þessi kvikindi," sagði Sigurður Georgsson, skipstjóri á Suðurey VE,
í samtali við Morgunblaðið.
Sjálfboðaliðar við vinnu i
Reykjadal í gærmorgun, á _
minni myndinni sést hvemig
umhorfs var í eldhúsinu.
Unnið að viðgerðum í Reykjadal
Sigurður Georgsson, og áhöfn
hans, var aflakóngur á síðustu
vertíð með rúm 1.600 tonn. Þegar
Morgunblaðið náði talstöðvarsam-
bandi við hann á föstudag, var hann
að berjast í brælu út af Vík í Mýr-
dal og var með um 3 tonn í fýrstu
trossunni.
Sigurður sagði, að hann stefndi
ekkert frekar á titilinn í ár, það
yrði bara að koma í ljós, þegar upp
væri staðið hver yrði handhafi hans.
Hins vegar væri þessi vertíð mun
betri en í fyrra og mestu munaði
hve mikið væri af þorski um allan
sjó. í janúar í fyrra hefði aflinn
verið 70 tonn en í sama mánuði nú
160. Verkfallið í febrúar í fyrra
skekkti samanburð en aflinn í þeim
mánuði nú hefði orðið 300 tonn.
Þetta hefði verið jafnt og gott núna,
en tveir róðrar skæru sig úr með
Sigríður Oddsdóttir
Konu leitað
LÖGREGLAN í Kópavogi lýsir
eftir 60 ára gamalli konu, Sigríði
Oddsdóttur, Álfhólsvegi 12,
Kópavogi.
Sigríður er um 170 sentimetrar
á hæð, þybbin, gráhærð og klædd
í grá-drapplitaðan rykfrakka, grátt
pils og í ljósum skóm og var með
stóra svarta handtösku. Hún fór
að heiman um klukkan 10.30 á
föstudagsmorgun, en síðdegis þann
dag varð hennar vart á Lækjartorgi.
Þeir, sem hafa orðið Sigríðar varir
eftir þann tima, eru beðnir um að
hafa samband við lögregluna í
Kópavogi.
Afmæli
í dag, 16. mars, verður 75 ára
Friðrik Baldvinsson frá Grenjum.
Hann verður að heiman.
33 og 34 tonn. Sigurður sagði að
þeir hefðu 822 tonna þorskígilda-
kvóta á skipið og sér virtist að tími
væri kominn til að endurskoða kvót-
ann; svo mikið væri af þorskinum
nú, að til þess væri fyllsta ástæða.
„Það er ábyggilega mun meira af
honum en menn halda," sagði Sig-
urður.
„Við erum nú að nálgast 500
tonnin, en þetta hefur verið lítið
af undanfömu. Ufsakvótinn er bú-
inn og lítið af þorski. Við viljum
ekki „breyta" ufsa í þorsk og förum
okkur því hægt, enda mikið um
brælur upp á síðkastið," sagði Sig-
urður Bjamason, skipstjóri á Friðrik
Sigurðssyni ÁR.
Sigurður sagði, að þeir hefðu 350
tonna ufsakvóta og 600 af þorski.
Mun meira hefði nú verið af ufsa
á vertíðinni en síðustu ár, en að
sama skapi lítið af þorski. Því væri
ufsakvótinn búinn. Það gengi engan
veginn upp nú að „breyta" ufsanum
í þorsk eins og leyfilegt er, þar sem
verð fyrir hann hefði lækkað og
ekki gengi lengur að flaka hann
og salta vegna þess hve horaður
hann væri orðinn.
BANKASTJÓRN Seðlabanka ís-
lands hefur fallizt á, að bankinn
greiði útflytjendum, sem orðið
hafi fyrir gengistapi, 70 milljónir
króna. Tap þetta er komið til
vegna misgengis afurðalána í
SDR og afurðaverðs í dölum á
síðasta ári. FuUtrúar fiskvinnsl-
unnar telja tap sitt af þessum
sökum mun meira eða allt að 400
milljónum. Einstök fyrirtæki
hafa tapað 10 tíl 15 miUjónum á
síðasta ári vegna misgengis
þessa.
Undirbúningi vegna endur-
greiðslunnar er lokið af hálfu bank-
ans og er fyrirhugað að auglýsa í
vikulokin eftir umsóknum útflytj-
enda, sem orðið hafa fyrir nefndu
tapi.
Fulltrúar fískvinnslunnar em
óánægðir með það hve Iítil endur-
greiðsla þessi er og telja auk þess,
að ekki hafí verið staðið við yfírlýs-
ingar stjómvalda. í svömm þeirra
í Reykjadal í Mosfellssveit er
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
með sumardvalarheimili fyrir fötluð
böm. Mikið tjón varð þar í janúar
síðastliðnum þegar vatnsleiðsla
sprakk.
í gær unnu foreldrar og aðstand-
endur bama, sem dvelja á sumrin
til fískvinnslunnar við nauðsynleg-
um úrbótum frá því í febrúar hafi
komið fram, að endurgreiða ætti
fískframleiðendum einum þessar 70
milljónir, enda væri í fylgiskjölum
með umræddum svömm tap ftyst-
ingar einnar af þessum sökum
metið á 70 til 100 milljónir.
Knútur Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands físk-
vinnslustöðvanna, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þó þetta væri
mun lægri upphæð en menn teldu
sig hafa tapað, væri ekki við Seðla-
bankann að sakast, þar sem afurða-
lánin væm komin yfír til viðskipta-
bankanna. í þessu sambandi mætti
benda á það, að SDR hefði á síðasta
ári hækkað um 15,97% gagnvart
krónunni en dalur um 3,74 og væra
allt að 80% afurða frystingarinnar
seldar í dölum. Þó hann teldi að
fískvinnslunni hefði verið lofað
umræddum 70 milljónum væri hann
engan veginn á móti því, að öðmm
í Reykjadal, ásamt starfsfólki og
velunnuram að því að rífa gólf, loft
og eldhúsinnréttingu úr húsinu. Að
sögn Andreu Þórðardóttur for-
stöðumanns er ætlunin að ljúka
viðgerð á nýrri álmu hússins fyrir
1. júní, en þá koma fyrstu bömin
útflutningsgreinum svo sem ullar-
iðnaði væri endurgreitt tap af þess-
um sökum. Það ætti einfaldlega
ekki að skerða áðumefnda upphæð,
sem lofuð hefði verið fískvinnslunni.
Menn spyrðu sig einnig þeirrar
spumingar, fyrst þeir hefðu tapað
af þessum sökum, hvort einhverjir
hefðu ekki hagnazt á móti.
Aðspurður hvort það væri ekki
til bóta fyrir fiskvinnsluna, að frá
ALÞÝÐUFLOKKURINN minnist
70 ára afmælisins með hátíðar-
samkomu á Hótel Sögu í dag og
í kvöld verður sameiginlegur
kvöldverður og dansleikur í til-
efni afmælisins.
Hátíðarfundurinn verður settur
kl. 14 af Jóhönnu Sigurðardóttur,
varaformanni Alþýðuflokksins, að
loknum leik Lúðrasveitar verkalýðs-
ins. Á dagskrá verður m.a. ávarp
Jóns Baldvins Hannibalssonar, for-
manns flokksins, og ávörp erlendra
Athugasemd
í GREIN í Morgunblaðinu 14. marz
og áður í DV er fullyrt að undirrit-
aður muni senn gerast fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokks-
ins. Þessar fréttir em með öllu úr
lausu lofti gripnar. Slíkt hefur ekki
verið rætt og er ekki til umræðu
af minni hálfu.
Með þökk fyrir birtinguna.
Kristján Benediktsson.
til sumardvalar. Eldri álmunni verð-
ur lokað vegna þess hve illa farin
hún er. Eldhús og borðstofu verður
komið fyrir í nýbyggingu sem átti
að vera leikskáli með aðstöðu fyrir
sjúkra- og iðjuþjálfun.
því í haust hefði verið leyfllegt að
breyta afurðalánum úr SDR í aðrar
myntir, sagði Knútur, að af því
hefði í upphafi verið blendinn hag-
ur. Viðskiptabankamir hefðu krafíð
framleiðendur um vemlegar fjár-
hæðir sem gjaldtöku við slfkar
breytingar. Gjaldtakan hefði falizt
í því, að bankamir hefðu krafízt
helmings á mismun kaup- og sölu-
gengis SDR og hinnar nýju myntar.
gesta, og tónlistarflutningur, m.a.
syngur Kristinn Sigmundsson
ópemsöngvari við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. í kvöld er sam-
eiginlegur kvöldverður og skemmti-
atriði, Haukur Mortens og Laddi
skemmta matargestum og hljóm-
sveit Magnúsar Kjartanssonar leik-
urfyrirdansi.
Sjá á bls. 56-58: „Lífs-
skoðun jafnaðarmanna".
Sunnudags-
hugvekja
í BLAÐINU í dag hefst að
nýju birting kristilegrar
hugvekju á sunnudegi, en
hlé hefur orðið á því frá ára-
mótum.
Óskar Jónsson brigader hjá
Hjálpræðishemum og Einar J.
Gíslason forstöðumaður Ffla-
delfíu munu skiptast á um að
skrifa þessar hugvekjur næstu
mánuðina.
Þrennir tónleikar
á vegum Tónlistar-
skólans í Reykjavík
ÞRENNIR tónleikar verða á
vegum Tónlistarskólans í
Reykjavík dagana 17., 18. og
19. marsnk.
Mánudaginn 17. mars kl. 20.30
verða haldnir á Kjarvalsstöðum
tónleikar tónfræðadeildar Tónlist-
arskólans. Fmmflutt verða verk
eftir 9 nemendur skólans. Þetta
er 4. árið í röð sem slíkir tónleikar
em haldnir. Höfundar verkanna
em nemendur Atla Heimis Sveins-
sonar og Þorkels Sigurbjömsson-
ar.
Þriðjudaginn 18. og miðviku-
daginn 19. mars verða nemenda-
tónleikar Tónlistarskólans haldnir
á Kjarvalsstöðum og heíjast þeir
bæði kvöldin kl. 20.30. Þar munu
nemendur skólans flytja verk eftir
hina ýmsu höfunda og er efnis-
skráin afar fjölbreytt.
Aðgangur á tónleikana er
ókeypis og öllum heimill.
Útflytjendum greiddar 70
milljónir vegna gengistaps
— tap einstakra frystihúsa af þessum sökum 10 til 15 milljónir á síðasta ári
Sjötíu ára afmæli
Alþýðuflokksins