Morgunblaðið - 16.03.1986, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR16. MARZ1986
gæta gagnvart Kasparov, og gegn
hinu sósíalíska föðurlandi. í stað
ánægjulegs einvígis milli tveggja
kommúnista, óskakeppni áróðurs-
manna, voru horfur á einvígi við
landflótta mann og því myndi fylgja
allt það illa umtal, sem reyndar
væri þegar hafið, sem rýrði álit
skákarinnar og íþróttalífs í Sovét-
ríkjunum (með Ólympíuleikana á
næstu grösum). Aliev reiddist og
trúiega hefur hann haft samband
við félaga sína í hugmyndafræði-
deildinni. Hann kallaði varafor-
mann íþróttanefndarinnar og helzta
sökunaut Karpovs á sinn fund, en
sá hinn sami stóð fyrir lyktum
Pasadena-málsins. Þetta var Victor
Ivonin og honum var skipað að
snúa við blaðinu og bæta úr mis-
gjörðum sínum.
Þegar þessi aumi mútuþegi hafði
heyrt röddina af Ólympushæðum
varð hann að gjalti. Um sama leyti
var sendiráðum Sovétríkjanna skip-
að að þvinga skáksamböndin í lönd-
um þeirra til að styðja einvígi milli
Kasparovs og Korchnois, en nýtt
einvígi þurfti til vegna þess að
Kasparov hafði tapað hinu fyrra
með því að mæta ekki til leiks.
Kasparov fékk og vann síðara ein-
vígið og eftir að hafa sigrað í áskor-
endaeinvíginu varð hann áskorandi
á heimsmeistarann. Þegar hér var
komið sögu voru hundruð manna
að vinna fyrir hann, á sama hátt
og hjá Karpov; stunda rannsóknir
á ákveðnum byijunum í skák eftir
tilmælum nánustu aðstoðarmanna
Gary — en mörgum þeirra og einnig
ýmsum minniháttar meisturum var
Kasparov ekki kunnugur persónu-
lega. í rauninni var Kasparov nú
orðinn forstjóri f stóru fyrirtæki,
jafnvel fjölþjóðafyrirtæki, því að
erlendir sérfræðingar, eins og til
dæmis ungverski stórmeistarinn í
fremstu röð, Andras Adoijan, voru
famir að vinna fyrir hann.
Fyrsta einvígið
Fyrsta einvígið um heimsmeist-
aratitilinn í skák milli þeirra
Karpovs og Kasparovs hófst í sept-
ember 1984 í Moskvu. Til að sigra
í einvíginu þurfti keppandi að fá
sex vinninga, en jafntefli giltu ekki.
Færi svo að Karpov tapaði einvíginu
og titlinum skyldi hann hafa rétt
til annars einvígis eftir eitt ár.
Sem skákmenn voru báðir álíka
sterkir, en þeir áttu sterkar og
veikar hliðar hvor með sínum hætti.
Frábært minni Kasparovs tryggði
honum nokkra yfirburði í að tefla
byijanir sem aðstoðarmenn höfðu
rannsakað ofan í kjölinn áður en
einvígið hófst. Aðstoðarmenn
Karpovs voru fullt eins góðir, en
minni hans rúmaði ekki jafn miklar
upplýsingar og minni Kasparovs.
Kasparov stóð einnig betur að vígi
að því leyti, að hann var við betri
heilsu en Karpov. Á hinn bóginn
var Karpov harðskeyttur baráttu-
maður, með mikinn viljastyrk, frá-
bæran skilning á rökfræði bar-
áttunnar og taugar í ágætu lagi.
Hann var sömuleiðis betri sálfræð-
ingur en Kasparov og hafði safnað
í vopnabúr sitt margvíslegum
brögðum til að beita gegn taugum
andstæðingsins.
Eftir níu skákir hafði Karpov
forystuna með 4 vinninga og 5
jafntefli: tveir vinningar í viðbót
tryggðu að hann héldi titlinum,
hataður andstæðingur hans yrði
auðmýktur og niðurbrotinn and-
lega, væntanlega um alla framtíð.
í þessum kafla einvígisins sýndi
Karpov allar sínar beztu hliðar, en
veikleikar Gary urðu augljósir.
Karpov byijaði að jafnaði vel, en
Gary þurfti tíma til að sigrast á
glímuskjálfta sínum. Skynsamleg-
ast fyrir Kasparov var að tefla til
jafnteflis í upphafí einvígisins til
þess að róa sig niður. En Gary varð
fómarlamb eigin áróðursvélar og
þeirra, sem skjölluðu hann, og
sungu í síbylju að undrabamið frá
Baku væri endurfæddur Paul Morp-
hy, bandaríski skákjöfurinn á nítj-
ándu öld, og að hann ætti að gjör-
sigra Karpov með beinum árásum
í Morphy-stíl.
Því var það að Kasparov tefldi
eins og Morphy, eða eins og Kasp-
arov, og lagði út í flækjur þar sem
hann var talinn hafa yfirburði, en
þetta voru alvarleg mistök, því að
flókið, hvasst og óljóst tafl krefst
góðra tauga og meiri baráttuvilja,
en í þessu öllu var Karpov betri.
Gary varð að þola auðmýkjandi
ósigra „á heimavelli", ef svo mætti
að orði komast. Karpov fylgdi sigr-
um sínum eftir og hugðist ganga á
milli bols og höfuðs á Gaiy. Allt
leit út fyrir að stutt væri í lok
einvígisins.
Þegar hér var komið sögu kom
til skjalanna lærimeistari Gary,
hinn 72ja ára gamli Mikhail Bo-
tvinnik, fyrrum heimsmeistari, og
veitti honum þessi ráð, að heita
má í heyranda hljóði: „Gerðu tutt-
ugu jafntefli í röð, og heilsa
Karpovs bilar. Eftir það vinnur þú
hann berhentur." Þetta fór svo að
segja alveg eftir. Eftir sautján jafn-
tefli f röð sigraði Karpov í 27. skák-
inni, en þá var hann orðinn úrvinda
og jafnvel þótt hann fengi örvunar-
lyf í stómm skömmtum dugði það
honum skammt. Gary bar hærri
hlut í 34. skákinni — en síðan gerði
hann 14 jafntefli til viðbótar, því
að hann kærði sig ekki um að taka
neina áhættu. Þegar kom fram í
fímmta mánuð einvígisins og skák-
imar vom komnar á fimmta tuginn,
höfðu Moskóvítar það í flimtingum,
að Karpov liti jafnvel verr út en
aðalritarinn, Chemenko, sem þá var
kominn að fótum fram. í 47. og
48. skákinni, sem Karpov tapaði,
tefldi hann vel fyrir neðan styrk-
leika meistara. Kasparov var enn
undir með 3 gegn 5, en sigur hans
virtist óumflýjanlegur.
*
Ovænt endalok
En nú leitaði Karpov enn til vina
sinna. Sovézka skáksambandið fór
þess á leit við FIDE, að keppendur
fengju þriggja mánaða hvíld vegna
þess að „báðir keppendur em
örmagna og allir aðrir, sem koma
nálægt þessu maraþoneinvígi".
Florencio Campomanes, forseti
FIDE, frestaði einvíginu, en almenn
reiði um heim allan gaf bandamönn-
um Karpovs í FIDE ekki kost á
því að veita sínum manni hvíldina
og geta svo byijað aftur með 5
vinninga gegn þremur. í þess stað
skyldi nýtt einvígi heflast með
hreint borð þann 2. september 1985
ogtefldar 24 skákir.
Einvígið í Moskvu og dæmalaus
frestun þess sýndi heiminum
óhreina tauið í sovézkri skák — og
miklu meira. í ritstjómargrein í The
New York Times vom þessi að-
vömnarorð: „Það skiptir máli þegar
ríki, sem sakað er um að hafa ekki
staðið við samninga um vopnabún-
að, er með gildum rökum sakað um
að bijóta jafnvel hinar ským reglur
um alþjóðlega skák."
En Karpov hrósaði sigri skamma
stund eins og í Pasadena-málinu.
Leiðtogar Sovétríkjanna em ekkert
hrifnir af því að lesa ummæli eins
og þau að ofan í „mikilsmetnum"
blöðum, sem yfírleitt em fylgjandi
viðræðum og samningum við Sovét-
menn um afvopnun. Þeir leituðu að
einhveijum sem sakfelldur yrði og
refsa bæri, en að sjálfsögðu var
Gary ekki seinn á sér að benda
velgerðarmanni sínum Aliev á, að
ekki þyrfti að leita langt. Enn einu
sinni hefðu makalaus eigingimi og
græðgi Karpovs valdið landi hans
miklum skaða. Á gmndvelli þessara
staðreynda og ýmissa upplýsinga
frá vinum mínum í Rússlandi spáði
ég því — fyrst í skákdálki mínum
í New York City Tribune og síðar
í tímaritinu Chess Life: „Það kemur
fyllilega til greina, að Karpov verði
skipað að tapa næsta einvígi við
Kasparov."
Nú er síðara einvíginu lokið.
Vissulega bar Kasparov sigur úr
býtum og á mjög gmnsamlegan
hátt. Á yfirborðinu var einvígið
átakamikið, en sumar skákimar
hafa á sér mjög sterkan gervibrag.
Jafnvel gætnir og traustir vestrænir
blaðamenn, sem fylgdust með ein-
víginu, þeirra á meðal Jon Tisdall
fyrir Reuter, létu í veðri vaka gmn-
semdir um að maðkur væri í mys-
unni.
Nú er nýtt einvígi fyrirhugað í
sumar og í haust. Líklegt má telja
að sovézk yfírvöld telji að Karpov
hafí hlotið næga refsingu, og ef svo
er, fer einvígið fram, og sjálfúr
veðja ég á að Karpov sigri. Ef svo
færi, á hinn bóginn, að hætt yrði
við einvígið, fengizt þar með 99%
fullvissa fyrir því, að úrslit síðasta
einvígisins hafi verið ráðin fyrir-
fram.
Margt bendir til þess að staða
Karpovs hjá yfírvöldunum sé miklu
lakari en staða Kasparovs.
Bezta sönnunin fyrir þessu er sú
staðreynd, að aðstoðarmenn
Karpovs hafa verið að yfirgefa hann
eins og rottur sökkvandi skip.
Ein lítil ábending til viðbótar. —
Ámm saman hékk uppi mynd í
Skákfélagi Moskvu sem sýnd var
með stolti: Brezhnev faðmar
Karpov að sér. Nýlega hvarf þessi
mynd og var erlendum blaðamönn-
um sagt að það ætti að gera við
hana.
Kasparov og tengslin
við Gorbacnev
Dominic Lawson skrifaði í brezka
blaðið Financial Times: „Það kann
að vera að um leið og Gorbachev
skapar nýtt forystumynstur — skýr-
leika í framsetningu, fágaða fram-
komu, einbeitni — sé ungi maðurinn
frá Baku ákveðinn í að verða hluti
af þeirri ímynd sem Sovétríkin sjálf
leitast við að sýna heiminum utan
þeirra."
Ekkert bendir til þess að Gorbac-
hev hafí nokkm sinni hitt Gary
Kasparov eða lýst neinum áhuga á
honum; en engu að síður fellur
ungi meistarinn mjög vel að hug-
myndum Gorbachevs um „Sovétríki
nútímans."
Berið bara saman hvemig báðum
þessum mönnum hefur verið lýst,
til dæmis í Time (Gorbachev) og í
Der Spiegel (Kasparov). Þeir em:
ungir, vel menntaðir, kraftmiklir,
með opinn huga, vestrænir í sér,
en sannir kommúnistar í átrúnaði,
og að sjálfsögðu, svo vitnað sé til
orða frú Thatchers, okkur líkar
öllum vel við þá og getum — og
það sem meira er, eigum — haft
samskipti við þá. Þó má minna á,
að í Sovétríkjunum er vinsælt mál-
tæki: „Það er ekki hægt að vera
félagi í flokknum, gáfaður og heið-
arlegur í sömu andrá. Tvennt af
þessu getur farið saman, já, en
aldrei allt þrennt, óhugsandi!"
Við hveiju má búast af Kasp-
arov? Ég spái því að nú hefjist ný
og vel skipulögð áróðursherferð í
stíl Gorbachevs, en efnislega verði
engar breytingar.
Sovétrikin stunda enn þrælahald
og hinn nýi drottnari er jafn stað-
ráðinn í því og fyrirrennarar hans
að veikja og um síðir knésetja „erki-
óvininn", Bandarfkin, til þess að
geta viðhaldið og stækkað þessa
risastóm plantekm þrælahalds.
Þessu fær hann ekki komið fram
nema með vestrænni aðstoð, án
þess reipis sem Lenin talaði um:
og til þess að ná þvi þurfa Sovétrík-
in yfirskin og Gary Kasparov ekki
síður en Bolshoi-ballettinn bjóða
fúslega slíkt yfírskin.
Friðarsóknin siglir fullum segl-
um.
1| W“4
HÚSIMÆÐIS
REIKNINGUR
! LANDSBANKÁNSl
Húsnæðisreikningur Landsbankans
byggir á lögum um húsnæóissparnaðar-
reikninga: Með því að leggja ársfjórðungslega
ínn á slikan reikning öðiast menn rétl til
skattafsláttar sem nemur fjórðungi árlegs
innleggs.
Upphæð innleggs í hverjum ársfjórðungi skal
vera á bilinu 4.089 - 40.890 krónur.
Húsnæðisreikningur Landsbankans er
verðtryggður samkvæmt iánskjaravisitölu
og að auki er ávöxtunin ársfjórðungslega
borin saman við kjör annarra almennra
inniánsforma bankans. Þannig erávallt tryggð
hámarks ávöxtun.
Húsnæðisreikningur Landsbankans veitir rétt
til lántöku að sparnaðartima loknum.
Lánsupphæð getur numið allt að fjórföldum
höfuðstólnum og endurgreiðist á helmingi
lengri tíma en sparnaðurinn stóð.
Innlegg vegna 1. ársfjórðungs verða
að berast fyrir 31. mars.
/ Landsbanki
M / íslands
Banki allra landsmanna