Morgunblaðið - 22.03.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1986
7
Fyrsta ráðstefnan í hinni nýju álmu Hótel Sögu, ráðstefna WHO.
Nýir ráðstefnusalir í
notkun hjá Hótel Sögu
HLUTI nýrrar álmu Hótel Sögu
var tekinn í noktun hinn 19.
mars, þegar fundur WHO, Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinnar,
hófst í raðstefnusölum álmunn-
ar.
Nýju ráðstefnusalimir marka
tímamót hjá Hótel Sögu og auka
tii muna möguleika Islendinga á
að bjóða afstöðu til funda- og ráð-
stefnuhalds eins og hún gerist best
erlendis.
Ráðstefnusalir hótelsins eru af
mismunandi stærð og því auðvelt
að verða við margvíslegum óskum
viðskiptamanna. Þar eru möguleik-
ar til mismunandi uppstillinga, eftir
þörfum hvetju sinni.
Salimir em með nýtísku búnaði
til ráðstefnuhalds og í tengslum við
þá eru sérstök tækniherbergi. Þar
eru kvikmyndasýningavélar, mynd-
bandstæki, skuggamyndavélar,
skyggnuvélar, sýningartjöld og
flettitöflur. Einnig er séð um að
útvega önnur tæki, svo sem túlkun-
arkerfi og hvers konar ráðstefnu-
þjónustu, sem óskað er eftir. Sér-
stök skrifstofa er til afnota fyrir
þá sem halda ráðstefnur á hótelinu.
Með því að nýta einnig þá afstöðu
sem fyrir hendi er í eldri álmu hót-
elsins, getur Hótel Saga nú hýst
mun ijölmennari ráðstefnur en
hægt hefur verið á hóteli hér á landi
hingað til.
(Fréttatilkynning)
Þvottaefnið lækk-
ar hjá Frig'g’ en
hækkar hjá Sjöfn
FRIGG í Garðabæ hefur lækkað
verð á þvottaefni, um 10-15%
eftir pakkningum og gerðum.
Jón Þorsteinn Gunnarsson mark-
aðsstjóri hjá Frigg sagði að fyrir-
tækið væri ákveðið i að hækka
ekki vörurnar og lækka þær ef
gengið héldist stöðugt. Hann
sagði að ástæðan fyrir lækkun
þvottaefnisins nú væri meiri
hagkvæmni í innkaupum og
aukinn stöðugleiki í verðlagsmál-
um hér innanlands.
Heildsöluverð á Iva þvottaefni
frá Frigg í V2 kílós pakkningum
lækkaði úr 45 krónum í 38, eða um
rúm 15%. íva í 2,3 kg. pakkningum
lækkaði úr 156 kr. í 139, eða um
tæp 11%. Sparr í 3 kílóa pakkning-
um lækkaði úr 172 kr. í 151, eða
um 12% rúm. Algengasta smásölu-
álagning er 20-30% og síðan bætist
25% söluskattur ofan á allt saman.
Jón Þorsteinn sagði að engar verð-
hækkanir hefðu verið hjá Frigg frá
því um áramót.
Sjöfn á Akureyri hefur aftur á
móti hækkað verð á hluta af hrein-
lætisvörum sínum. Sem dæmi má
nefna að heildsöluverðið á 700
gramma pakkningu af Vex þvotta-
efni hækkaði úr 42 krónum í 45,
eða um 7% og 3 kílóa pakkning af
sama þvottaefni hækkaði úr 164
kr. í 182, það er um 11%. Hækkanir
urðu á fleiri hreinlætisvörum en
ekki öllum. Handsápa og hárþvotta-
krem hækkaði til dæmis ekkert.
Þá er verðið á málningu frá Sjöfn
óbreytt.
Verðbreytingin hjá Sjöfn tók gildi
á mánudag. Aðalsteinn Jónsson
verksmiðjustjóri sagði að þessar
verðbreytingar væru samkvæmt
tölvuútskrift um nauðsynlegt verð
fyrir þessar vörur. Verðbreytingar
væru gerðar á tveggja mánaða
fresti og kæmu þá inn breytingar
á framleiðslukostnaði. Núna hefðu
komið inn breytingar á hráefnis-
verði vegna hækkunar þýska
marksins auk þess sem hækkun
plastumbúða frá því í nóvember
væri nú að koma inn í verðið. Hann
sagði að síðasta verðhækkun hjá
Sjöfn hefði verið í janúarmánuði en
aðrir framleiðendur hefðu verið
búnir að hækka verðið hjá sér fyrir
kjarasamningana.
Bessastaðahreppur:
Listi sjálf-
stæðismanna
ákveðinn
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
félags Bessastaðahrepps til sveit-
arstjórnar var ákveðinn á fundi
félagsins 19. mars síðastliðinn
og er þetta í fyrsta skipti sem
það býður fram lista.
Listinn er þannig skipaður: 1.
Sigurður G. Thoroddssen, lögfræð-
ingur, 2. Erla Sigurjónsdóttir, odd-
viti, 3. Guðrún G. Bergmann, hús-
móðir, 4. Birgir Thomsen, rafeinda-
virki, 5. Guðmundur G. Gunnars-
son, verktaki, 6. Birgir Guðmunds-
son, tæknifræðingur, 7. Guðrún
Eggertsdóttir, viðskiptafræðingur,
8. Sigurður E. Sigurjónsson, bygg-
ingarmeistari, 9. Jóhann Jóhanns-
son, bókari og 10. Sigurður Valur
Ásbjamarson sveitarstjóri.
Þá var einnig samþykkt framboð
til sýslunefndar. Áðalmaður er
Anna Snæbjömsdóttir og til vara
Dóron Elíassen.
Flestar verslanir í Gamla miðbænum verða
opnar á laugardögum f rá kl. 10—14e.h.fram
til 1. júní.
Síí
3AMLIMIÐBÆRINN
I ^-AUGAVEGI37 (UPP)), SÍMI 1t|777 ,_