Morgunblaðið - 22.03.1986, Page 27
MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGUR 22, MARZ 1986
27
Málefni aldraðra:
Tillögu um byggingu
leiguíbúða vísað frá
MÁLEFNI aldraðra voru enn til
umræðu á fundi borgarstjórnar
sl. fimmtudagskvöld. Borgar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins
lögðu fram tillögu þess efnis að
hannaðar yrðu leiguíbúðir fyrir
aldraða og að bygging þeirra
hæfist eigi síðar en árið 1987.
Einnig kom fram i tillögunni að
nýta bæri lóð á mótum Dal-
brautar og Sundlaugavegar í
þessuskyni.
Guðrún Ágústsdóttir (Alb)
fylgdi tillögunni úr hlaði. Sagði hún
að nauðsynlegt væri að hjálpa þeim
sem verst væru staddir og því
ætti að hverfa frá þeirri stefnu
meirihluta. Sjálfstæðisflokksins að
byggja söluíbúðir fyrir aldraða og
hefja byggingu leiguíbúða. Guðrún
sagði ennfremur, að Sjálfstæðis-
flokkurinn virtist ekki skilja neyð
þess fólks er ekki gæti keypt íbúð-
ir.
Guðrún Jónsdóttir (Kf) sagði,
að stefna Sjálfstæðisflokksins
byggðist á því að hjálpa þeim sem
gætu hjálpað sér sjálfir. „Þeir sem
geta hins vegar ekki keypt bíða
og bíða og aldrei gerist neitt,"
sagði Guðrún.
Aibert Guðmundsson (S) sagði,
að neyð gamla fólksins væri mikil
og því ætti að hefjast handa strax,
en ekki ætti að eyða peningum
borgarinnar í hönnun ibúða, því
borgin ætti nú þegar nóg af teikn-
ingum sem mætti nota.
Páll Gíslason (S) sagði, að tillaga
Alþýðubandalagsins væri byggð
ná misskilningi. Stefna Sjálfstæð-
isflokksins byggðist ekki á því að
hafa annað hvort leiguíbúðakerfi
eða söluíbúðir, heldur hvort
tveggja. Páll sagði, að með því að
byggja bæði leigu- og söluíbúðir
fengist mun meira fjármagn til
byggingarmála aldraðra. Páll sagði
ennfremur, að nú þegar væri til
athugunar að byggja þjónustu-
íbúðir fyrir aldraða á mótum Sund-
laugavegar og Dalbrautar og því
væri tillaga Alþýðubandalagsins
ekki timabær. Því bæri að vísa
málinu frá. Var frávísunartillaga
Páls samþykkt með atkvæðum
sjálfstæðismanna gegn atkvæðum
minnihlutans. Albert Guðmunds-
son sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
„Framsóknar-
flokkurinn
deildí SÍS“
- sagði borg-íirstjóri í umræðum um Miklagarð
„HÉR ER um afar sérstætt
mál að ræða og ég held að það
sé full ástæða til þess að halda
því á lofti,“ sagði borgarstjóri
á borgarstjómarfundi í um-
ræðum um starfsleyfi Mikla-
garðs í Holtagörðum. Borgar-
stjóri lagði til, að Miklagarði
yrði veitt starfsleyfi í tvö ár
en Kristján Benediktsson (F)
lagði til að starfsleyfið yrði
veitt til fimm ára.
Borgarstjóri sagði, að Fram-
sóknarflokkurinn hefði gengið
erinda Sambandsins fyrir fímm
árum, er þáverandi meirihluti
borgarstjórnar veitti Miklagarði
starfsleyfi í Holtagörðum og enn
á ný væri Framsóknarflokknum
beitt fyrir Sambandið. „Fram-
sóknarflokkurinn hafði eitt sinn
ítök í Sambandinu en nú er
Framsóknarflokkurinn aðeins
deild innan þess og það er eins
gott að flokkurinn standi sig,
því hver veit hvaða deildir nýi
forstjórinn leggur niður," sagði
borgarstjóri. I máii borgarstjóra
kom einnig fram, að Sambandið
ætti lóð undir verslunarrekstur í
borginni en sú lóð stæði enn
óhreyfð.
Kristján Benediktsson (F)
sagði, að engin efnisleg rök
leiddu til þess að veita Miklagarði
aðeins starfsleyfi til tveggja ára
og sagði hann málflutning borg-
arstjóra einkennast af dylgjum
og skítkasti. Siguijón Pétursson
(Alb.) tók í sama streng og sagði,
að málflutningur borgarstjóra
væri ómálefnalegur.
Að loknum umræðum var til-
laga borgarstjóra um að veita
Miklagarði starfsleyfi til tveggja
ára, samþykkt.
Ný lýsing og stærri
salarkynni í List-
veri á Selljarnamesi
á það umstang sem óhjákvæmilega
fylgir grafíkinni hef ég kosið að
einbeita mér að olíu- og vatnslitum
áfram."
„Hvernig hefur þér gengið að lifa
af listinni?"
„Það hefur gengið ágætlega;
Maður er ánægðður ef maður hefur
ofan í sig og á fyrir sköttunum.
Frá því að ég byijaði að mála og
var búinn að ljúka námi í Kúnstaka-
demíunni í Kaupmannahöfn hef ég
selt myndir nokkuð jafnt og þétt
en þó aðallega á sýningum.“
„Er mikið um að fólk komi og
falist eftir myndum hjá þér milli
sýninga?"
„Já, það er alltaf eitthvað um
það.“
„Þú hefur ferðazt mikið um
dagana og á þessari sýningu eru
m.a. myndir frá Puerto Rico, Taiw-
an og Spáni.“
„Já, ég hef gaman af því að mála
í framandlegu umhverfi. Ég geri
talsvert af því að fara til útlanda
og meginmarkmiðið með þessum
ferðalögum er það að skoða myndir,
bæði á sýningum og í söfnum, en
jafnan verða til einhveijar myndir
líka. Ég hef ferðast mikið um Evr-
ópu en ekki síður í Bandaríkjunum.
Ég held að ég sé búinn að fara
einum fímmtán sinnum í námsferðir
vestur um haf. Mér fínnst þetta
ómissandi þáttur í starfí mínu og
er ekki í vafa um að það hefur
haft mikil áhrif á mig sem myndlist-
armann," sagði Pétur Friðrik.
SÝNINGASALURINN Listver á
Austurströnd 6 á Seltjamarnesi
hefur nú verið stækkaður og
sett í hann ný og fullkomin lýs-
ing. Lýsingin kemur frá Ítalíu
en hefur verið sérhönnuð i sal-
inn. Að sögn Guðmundar Krist-
inssonar, eiganda Listvers og
Rammavers á sama stað, en
Rammaver var áður til húsa við
Vesturgötuna, er unnt að skipta
sýningarrýminu í Listveri þannig
að það rými í senn tvær Iitlar
málverkasýningar.
„Það hefur að mínu mati háð
sýningarstarfsemi á höfuðborgar-
svæðinu að undanfömu að vöntun
hefur verið á húsakynnum sem eru
ekki mjög stór. Það er kostur við
þessi salarkynni hér í Listveri að
þau eru sveigjanleg þannig að ýmist
má hafa hér eina stóra sýningu eða
tvær minni. Það er þegar komið í
ljós að við erum á réttri leið því að
húsnæðið er frátekið langt fram á
árið og sífellt berast fyrirspumir,
jafnvel frá útlöndum."
Sýningarýmið í Listveri er á
tveimur hæðum, alls um 180 fer-
metrar. Fyrsta sýningin eftir breyt-
inguna verður opnuð í dag. Þar
sýnir Pétur Friðrik 70 myndir. Sýn-
ing Péturs Friðriks verður opin til
6. apríl. Hún er opin kl. 14—22 um
helgar og kl. 16—22 á virkum
dögum.
Listver er sem fyrr segir til húsa
á Austurströnd 6, sem er litla
Byggung-blokkin á bak við Spari-
sjóðinn á Seltjamamesi.
Síðustu
sýningar
Herranætur
SÍÐUSTU sýningar Herranætur
MR á Húsinu á hæðinni eða hring
eftir hring eftir Sigurð Pálsson eru'
nú um helgina. Sýnt verður laugar-
dags- og sunnudagskvöld kl. 20.30
í Félagsstofnun stúdenta við Hring-
braut.
Þessar sýningar em þær elleftu
og tólfu, en aðsókn að hinum hefur
verið mjög góð, að því er segir í
fréttatilkynningu frá Herranótt.
Tilboð
hvítir fata-
skápar frá kr.
4.500.-
Hæð 210 cm — dýpt 60 cm.
Opið laugardag
Nýbýlavegi 12 200 Kópavogur
Sími 44011. Pósthólf 167.
HAVNEN
fr
Wl HADSUNP
rap
NYR VALKOSTUR
í TRÉGÓLFUM
MK
■II IV!
21 sm breitt massíftfurugólf.
Heidur ávallt upprunalegum lit, gulnar EKKI.
Sýning laugardag kl. 9—16 sunnudag kl. 13—16.
A
MARKAÐURINN
Mýrargötu 2, sími622422