Morgunblaðið - 22.03.1986, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1986
61
Feginn vildi
ég geta það
eftirLeif
Þórarinsson
Ég þakka skrif hr. Gísla Al-
freðssonar þjóðleikhússtjóra i
Morgunblaðinu sl. fimmtudag,
sem voru bæði fróðleg og
skemmtileg. Leifs rolla Þórarins-
sonar var fyrirsögnin, en þessum
pistli hr. Gísla er ætlað að vera
einskonar svar við Leikhúss-
raunarollu minni, greinarkorni
sem kom í blaðinu sl. þriðjudag,
ekki laugardag, einsog hr. Gísii
segir í byrjun pistilsins.
Hr. Gísli segir þá í stuttum inn-
gangi: „Það er sorgleg saga að
mörg undanfarin ár hefur Leifur
þessi farið hamförum á síðum
dagblaðanna og ekki hikað við að
brúka ósannindi og róg sem vopn
í þeirri baráttu sem hann þykist
vera að heyja.“
Ég minnist þess að vísu ekki að
hafa áður verið vændur um ósann-
indi, hvað þá róg, í skrifum mínum,
sem mest hafa fjallað um tónlist.
En því get ég auðvitað ekki neitað,
að oft er ég ákveðnari en svo í
orðalagi, að öllum líki. Sérstaklega
þegar um svokölluð Jákvæð hrifn-
ingarskrif" hefur verið að ræða.
„Neikvæðu skrifin" virðast mér
menn frekar hafa getað leitt hjá
sér. Er það vel, því þó hr. Gísli trúi
því kannski ekki, hefur mig aldrei
langað að koma ódrengilega fram
í þessari viðleitni minni og tel mig
aldrei hafa gert það vísvitandi.
Nú, en sitt sýnist hverjum og
ekkert við því að segja. En fyrst
hr. Gísli vænir mig um róg og lygi,
hversvegna í ósköpunum segir hann
þá ekki sjálfur sannleikann um
viðskipti Alþýðuleikshússins og
Þjóðleikhússins?
Var fundur hans og Alþýðuleik-
kvennanna þriggja eitthvað „öðru-
vísi“ en ég lýsi honum í „raunaroll-
unni“? Svona í aðalatriðum? Hvern-
ig Iagði hr. Gísli málið fyrir starfs-
mannafund í Þjóðleikhúsinu? Var
það gert af fullkomnum heiðarleik?
Voru engar rangtúlkanir þar á
ferðinni? Síðast en ekki síst, stang-
ast fullyrðingar hr. Gísla um að
Þjóðleikhússráð hafi staðið einhuga
að baki hans við að synja Alþýðu-
leikhúsinu um aðgang að Leik-
húskjallaranum algjörlega á við
persónuleg svör þriggja Þjóðleik-
húsráðsmanna til okkar „úti í kuld-
anum“. Hvort þetta fólk vill enn
standa við orð sín ætla ég ekki að
leiða að neinar getur. Það verður
auðvitað að gera þetta mál allt upp
við eigin samvisku og hjálparlaust.
Hr. Gísli líka.
En hafí þetta brölt okkar í AL
komið því til leiðar, að nú sé loks
kominn skriður á undirbúning leik-
sýningar á litla-sviðinu í Jóns Þor-
steinssonar-húsinu ber sannarlega
að fagna því. Einnig má vel vera
að Þjóðleikhúskjallarinn eigi eftir
að bjarga fjárhag Þjóðleikhússins,
sé þar að heíjast „veitingarekstur
að fullu“, einsog hr. Gísli segir
reyndar að hafí gerst strax um síð-
ustu áramót. Er þetta satt? Hvað
sem því líður óska ég Þjóðleikhúsinu
svo sannarlega góðs Ijárhagslegs
gengis, þó það listræna hefði
kannski mátt sitja í fyrirrúmi.
Hvað varðar fullyrðingar Hr.
Gísla um góðvilja sinn og annarra
Leifur Þórarinsson
starfsmanna Þjóðleikhússins í garð
AL, t.d. varðandi „lán“ á leikurum
og leikstjórum, svo og búningum
og leikmunum, vil ég benda honum
á að þar hefur aðeins verið reynt
að framfylgja lögbundnum skyldum
ÞH við leiklistarstarfsemi í landinu,
sbr. 1 15. og 17. greinar laga um
þjóðleikhús frá 1978. Einnig og
ekki síður, mætti benda hr. þjóðleik-
hússtjóra, Gísla Alfreðssyni á að líta
í Reglugerð fyrir þjóðleikhús frá
1982, serílagi 22. og 23. grein.
Að lokum langar mig rétt að fjasa
útaf „lyginni", sem hr. Gísli vænir
mig um varðandi réttinn á Tom og
Viv, verkefni sem Alþýðuleikhúsið
hefur sýnt á Kjarvalsstöðum að
undanfömu. Ég segi í „Leikhúss-
raunarollu" minni, að við höfum
„frétt" að Þjóðleikhúsið hafi reynt
með brögðum að ná flutningsréttin-
um frá okkur. Þessar fréttir bárust
framkvæmdastjóra AL munnlega,
frá umboðsskrifstofu höfundarins í
London. Ef þær hafa reynst byggð-
ar á misskilningi, eins og ég tek
skýrt fram í grein minni ég voni,
þá er mér ljúft og skylt að biðjast
afsökunar á að hlaupa svona snögg-
lega með þær í blöðin. Og feginn
vildi ég geta treyst orðum hr. Gísla
Alfreðssonar sem og annarra.
Höfundur er tónskáld.
Sjómannasamband Islands:
Sj ómannadagurinn
verði lögskipaður
frídagur sjómanna
Sjómannasamband íslands
hefur sent eftirfarandi áskorun
til ráðherra og alþingismanna:
„Um langt árabil hefur fyrsti
sunnudagur í júní verið helgaður
Sjómannastéttinni, án þess að um
lögskipaðan frídag hafí verið að
ræða. Það hefur lengi verið baráttu-
mál sjómanna að sjómannadagur-
inn verði lögskipaður frídagur, og
í samningum ýmissa verkalýðsfé-
laga hefur þegar verið um það
samið að sjómannadagurinn sé frí-
dagur.
Sjómannadagurinn er hátíðis-
dagur allra sjómanna í landinu.
Skilyrði fyrir því að hægt sé að
halda hátíð þenna dag er að allir
sjómenn séu í landi.
Á síðasta Alþingi lýsti sjávarút-
vegsráðherra því yfír í umræðum
að hann teldi að sjómannadagurinn
ætti að vera allsherjarfrídagur sjó-
manna, án undantekninga. Einnig
lýsti ráðherra því yfír við sama
tækifæri að hann teldi sjálfsagt að
taka málið fyrir á yfírstandandi
þingi.
Sambandsstjóm Sjómannasam-
bands Islands beinir því þeirri
áskorun til ráðherra og þingmanna
að þeir hlutist til um að sjómanna-
dagurinn verði framvegis lögskip-
aður frídagur sjómanna."
Mývatn:
Dorffveiðikeppni
gegnum
Mývatnssveit.
DORGVEIÐIKEPPNI fyrir alla
fjölskylduna verður haldin á
Mývatni laugardaginn 29. mars
næstkomandi. Keppnin hefst kl.
11 fyrir hádegi og lýkur kl. 16.
Skráning og allar upplýsingar
varðandi keppnina era veittar í
Hótel Reynihlíð, svo og Eldá í Mý-
vatnssveit, ennfremur Ferðaskrif-
ísinn
stofunni Ævintýraferðir í Reykja-
vík. Margvísleg verðlaun verða veitt
í mótslok í Hótel Reynihlíð, m.a.
fyrir flesta físka, besta gæðamat,
stærsta físk dagsins, fyrsta fískinn,
flestar tegundir og stærsta og flesta
físka bama undir 12 ára. Þá verða
einnig veitt sérstök ijölskylduverð-
laun.
— Kristján
t._-
Brids
Arnór Ragnarsson
íslandsmótið í
tvímenningskeppni
— undanrásir
Vakin er athygli á því að skrán-
ing í íslandsmótið í tvímenningi,
undanrásir, er hafin. Skráð er hjá
öllum félögum innan BSÍ (formenn
sjá svo um að koma skráningum
áleiðis til Brídssambandsins, fyrir
9. apríl nk.). Einnig er skráð á
skrifstofu Bridssambandsins.
Spilarar era hvattir til að láta
skrá sig hið allra fyrsta, því tak-
markað húsnæðispláss í Gerðubergi
setur undanrásinni einhveijar
skorður. í fyrra tóku 112 pör þátt
í undanrásinni, sem er algjör met-
þátttaka. Má búast við að þátttakan
verði svipuð þetta árið.
Undanrásin verður spiluð með
Mitchell-sniði (tölvuútreiknað) og
komast 24 efstu pörin áfram í úr-
slit, sem verða spiluð hálfum mán-
uði síðar á Hótel Loftleiðum
(26.-27. apríl).
Þátttökugjald pr. par er kr.
2.500. í boði era ákaflega hagstæð
fargjöld/gisting frá Flugleiðum, en
spilarar verða sjálfir að panta ferð/
hótel (í nafni Bridssambandins).
Tekið skal skýrt fram, að íslands-
mótið í tvímenningi er opið öllum
sem áhuga hafa. Spilatíminn er:
laugardagur og laugardagskvöld.
12. apríl og sunnudagur 13. apríl,
alls 3 umferðir.
Núverandi íslandsmeistarar (tví-
menningi, era þeir Sigtryggur Sig-
urðsson og Páll Valdimarsson úr
Reykjavík.
Bridsdeild Skagf irðinga
Jón Þorvarðarson og Þórir Sigur-
steinsson sigruðu öragglega að-
altvímenningskeppni Skagfírðinga,
sem var borometer með þátttöku
■44 para. 'Sþiluð voru 4 spil milK
para, alls 172 spil. Röð efstu para: Jón Þorvarðarson — Þórir Sigursteinsson 629
Bjöm Hermannsson — Lárus Hermannsson 489
Jörandur Þórðarson — Sveinn Þorvaldsson 469
Baldur Ámason — Sveinn Sigurgeirsson 352
Baldur Ásgeirsson — Magnús Halldórsson 326
Guðni Kolbeinsson — Magnús Torfason 312
Ármann J. Lárasson — SigurðurSiguijónsson 292
Murat Serdar _ — Þorbergur Ólafsson 277
Guðmundur Þórðarson — Valdirhar Þórðaraon ' «73
Kristján Ólafsson
— Rögnvaldur Möller 245
Vegna smáskekkju í útreikningi
síðasta kvöldið (ein skorin snerist
við) höfnuðu þeir Bjöm og Láras í
2. sæti, en ekki í 3. sæti eins og
reiknað var út á staðnum.
Næstu þriðjudaga verða eins
kvölds tvímenningskeppnir á dag-
skrá hjá félaginu. Öllu spilaáhuga-
fólki velkomin þátttaka meðan hús-
rúm leyfir. Spilað í Drangey v/Síðu-
múla 35 og hefst spilamennska kl.
Úrslitakeppnin í
sveitakeppni
Úrslitakeppni íslandsmóteins í
sveitakeppni hefst á sktrdag kl. 48
á Hótel Loftleiðum. Spilaðar verða
7 umferðir yfír bænadagana, tvær
umferðir á dag fyrstu þijá dagana
og ein umferð á páskadag. Töfluröð
sveita er þessi:
1. sv. Ásgríms Sigurbjömssonar, Siglufirði.
2. sv. Siguijón Tryggvasonar, Reykjavík.
3. sv. Delta, Reykjavík.
4. sv. Pólaris, Reykjavík.
5. sv. Samvinnuferða/Landsýnar, Reykja-
vík.
6. sv. MagnúsarTorfasonar, Reykjavík.
7. sv. Stefáns Pálssonar, Reykjavík.
8. sv. Jóns Hjaltasonar, Reykjavík.
Mjög góð aðstað er fyrir áhorf-
endur og verða leikir m.a. sýndir á
sýningartöflu.
Opna mótið á Akureyri
. - Minnt er á skráninguna í Opna
' mótið' 6 Akureyri, helgina-6.—6.
apríl. Ákaflega hagstæð fargjöld
milli Akureyrar-Reykjavíkur.
Skráning á skrifstofu Bridssam-
bandsins. Allar nánari upplýsingar
einnig veittar þar.
Mjög glæsileg verðlaun era í
boði á Akureyri. Keppnisstjóri verð-
ur Ólafur Lárasson, en Vigfús Páls-
son mun annast tölvuvinnslu.
Hörkukeppni hjá
bankamönnum
Eftir 5. umferð í sveitakeppni
SÍB er staðan þessi:
Landsbanki ísjands 110
Iðnaðarbanki íslands 109
Seðlabanki íslands 104
Landsbanki íslands 72
Alþýðubanki íslandss 59
Búnaðarbanki íslands 47
Búnaðarbanki íslands 39
Landsbanki íslands 37
6. umferðin verður spiluð 25.
mars og 7. og síðasta umferðin
verður spiluð þriðjudaginn 8. apríl.
Bridsdeild Barðstrend-
ingafélagsins
Staða efstu para í barometer-
keppni félagsins eftir 18 umferðir.
Sigurbjöm Armannsson —
Helgi Einarsson Jónína Halldórsdóttir — 292
Hannes Ingibergsson Sigurður ísaksson — 168
Edda Thorlacíus Þórarinn Ámason — 136
Ragnar Bjömsson Bjöm Bjömsson — 126
Birgir Magnússon Friðjón Margeirsson — 117
Valdimar Sveinsson Viðar Guðmundsson — 101
AmórÓlafsson Wilhelm Lúðvíksson — 71
Kristín Pálsdóttir 63
Næstu 6 umferðir verða spilaðar
mánudaginn 24. mars. Spilað er i
Síðumúla 25 og hefst keppni stund
víslega kl. 19Æ0. Keppnisstjóri er
ílemiann Lárasson. ■