Morgunblaðið - 05.04.1986, Síða 21
-> MOBÚjíINBLAÐIE^ [IðU.QASQA.GUB'i5I3kFEtíUQS8C
Noregur;
„Sá fyrir mér
„Mánahestinn“
ljóslifandi“
— segir Erlingur Jónsson, myndhöggvari,
í viðtali við Aftenposten
Ósló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLENSKI myndhöggvarinn Erl-
ingur Jónsson hefur nú lokið við
gerð „Mánahestsins", styttu, sem
komið verður fyrir við bæjar-
mörk Keflavíkurkaupstaðar á
sumardaginn fyrsta, 24. april nk.
Er höggmyndin 2,40 m á breidd,
1,70 m á hæð og vegur 350 kfló.
„íslendingar eru ekki of auðugir
af höggmyndum og mig hefur alltaf
langað til að bæta þar dálítið úr
skák. Þess vegna tók ég því fagn-
andi þegar Keflvíkingar báðu mig
að gera þessa mynd," sagði Erling-
ur í viðtali við norska blaðið „Aften-
posten". „Ég var beðinn um að
gera mynd af hesti á skeiði og þegar
ég var að skoða mig um á Mána-
grund, svæði Hestamannafélagsins
Mána, kom ég auga á gæðing, sem
gaf mér hugmyndina, ég sá fyrir
mér „Mánahestinn" ljóslifandi. Á
íslensku er orðið fákur haft um góða
hesta. Mánafákur er ævintýrahest-
ur og sævarfákur er skipið, sem
býður hafinu byrginn. Þetta reyni
ég að tjá í myndinni," sagði Erling-
ur ennfremur.
Erlingur Jónsson er búsettur í
Noregi ásamt konu sinni og tveimur
bömum og lætur hann mjög vel af
dvölinni þar.
J
AP/Símamynd
J kirkju með Söru
ELÍSABET drottningarmóðir fór til morgunbæna á páskadag
ásamt dóttursyni sínum, Andrew prins, og heitkonu hans, Söru
Ferguson, og var þessi mynd tekin þegar þau komu út úr kirkj-
unni.
Bandaríkin:
Heita Haiti-sljórn
aðstoð við endurheimt
Du valier-auðæfanna
Port-au-Prince, Haiti. AP.
BANDARISK stjórnvöld ætla að
liðsinna Haiti-stjórn við að end-
urheimta ríkisfjármuni, sem
Jean-Claude Duvalier, fyrrver-
andi forseti, er sagður hafa stol-
ið, að því er háttsettur bandarísk-
ur embættismaður sagði á
fimmtudag.
„Þetta eru ykkar peningar. Þetta
eru fjármunir haitisku þjóðarinnar,"
sagði Elliott Abrams, aðstoðarutan-
ríkisráðherra, á fundi með frétta-
mönnum.
„Það verður erfiðara að eiga við
þetta mál en Marcosar (fyrrverandi
forseta Filippseyja), því að í hans
tilfelli höfðum við skjöl að styðjast
við og gátum afhent þau nýju
stjóminni," sagði Abrams. „Við
höfum hins vegar ekkert skjalfest
í sambandi við Duvalier."
Abrams skýrði það ekki nánar,
í hveiju aðstoð bandarískra stjóm-
valda við að endurheimta féð yrði
fólgin. Talið er, að það nemi milli
100 og 300 milljónum dollara.
Bæði fyrrverandi og núverandi
embættismenn á Haiti staðhæfa,
að Duvalier hafi rakað saman
óhemju auðæfum í 14 ára stjómar-
tíð sinni, bæði með því að draga
sér af skattfé ríkisins og erlendu
lánsfé, auk þess sem hann hafí
þegið mútur af innlendum og er-
lendum fyrirtækjum.
Frakkiand:
Treysta Chirac
og Mitterrand
Paris. AP.
SAMKVÆMT skoðanakönnun,
sem franska blaðið Figaro birti
á fimmtudag, hefur þeim Frökk-
um sem treysta Mitterrand for-
seta til leysa þau vandamál, sem
nú blasa við iandinu, fjölgað um
tíu prósent í apríl og nýtur hann
trausts 56 prósenta Frakka.
Chirac, forsætisráðherra, naut
trausts 57 prósenta aðspurðra.
39 prósent kváðust ekki treysta
forsetanum og 5 prósent vom
óákveðin. Könnun á borð við þessa
hafði ekki verið gerð um Chirac þar
sem hann varð ekki forsætisráð-
herra fyrr en eftir þingkosningam-
ar 16. mars.
Pang Cheng Theng fyrrum yfirmatsveinn Shanghai hefur opnað
eigið veitingahús í Kópavogi. Fjölbreyttur matseðill með hinum
heimsfrægu Canton og Peking-réttum. Allir fá ást á kínverska
matnum, — reynið sjálf!
Kínverskir matsveinar, kínversk þjónusta á borðin, kinverskt
andrúmsloft.
Spennandi kvöld í China House eða ma turinn tekinn með heim.
Opið: Virkadaga 11 til 14.30 og 17.30 til 22
Laugardaga og sunnudaga 16—22
Nýbýlavegi 20 Kópavogi Sími 44003.
UNGLINGAHÚSGÖGN
TIL FERMINGARG JAF A
Fjölbreyttasta úrval sem völ er á
SENDUMUMALLT LAND
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 10-16
Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvegi 68, HafnarfirAi, s. 54343.