Morgunblaðið - 05.04.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.04.1986, Blaðsíða 29
i:^kQfeM^at)ÍÐÍUÚÍjÁRDÁ^R^>AÍ»RlL^86 cíi29 Kiwanismót æskunnar í skák verður á sunnudag Á SUNNUDAGINN kemur fer fram Kiwanismót æskunnar í skák 1986. Teflt verður í Kiwan- ishúsinu Smiðjuvegi 13A í Kópa- vogi. Mótið er haldið á vegum kiwanis- klúbbsins Eldeyjar og Skákfélags Kópavogs sem sér um alla fram- kvæmd mótsins. Væntanlegir þátt- takendur mæti á staðinn með tafl ogklukku kl. 14. Bændaferð til Bret- landseyja BÆNDASAMTÖKIN efna til bændaferðar til Skotlands og Englands í júní, en bændaferð til útlanda er orðinn árviss við- burður hjá bændasamtökunum. í fréttatilkynningu frá Stéttar- sambandi bænda kemur fram að fyrstu tvær nætumar verður gist í nágrenni Edinborgar. Annan dag- inn verður farið á stóra landbúnað- arsýningu. Síðan verður ekið um skoska hálendið, skoðaðir ferða- mannastaðir og bændur heimsóttir, meðal annars. Síðan verður farið til Jórvíkur á Englandi og aftur til Skotlands. Lagt verður af stað í ferðina 17. júní og komið heim aftur 28.júní. Aætlaður kostnaður við ferðina er 32 þúsund krónur á mann og er innifalið í verðinu meðal annars. flug, hópferðabíll, gisting, morgun- verður og oft kvöldverður auk far- arstjómar. „Hvenær sofa hvalirnir?“ í MORGUNBLAÐINU í gær var birt spjall, sem Anna Dóra Theó- dórsdóttir átti í París við Thor Vilhjálmsson, rithöfund, þar sem hann var I boði Maison de la Poesie (Ljóðahúsið). í viðtalinu segir Thor m.a. frá því, að hann hafi verið staddur í pakkhúsi á íslandi, þegar atóm- sprengjan sprakk og hafí verka- menn kastað kaffípökkum á milli sín. Þetta er ekki allskostar rétt, því það vom kaffípokar, 50 kg að þyngd. Þá segir ennfremur, að Thor hafí verið eitt ár á Spáni, en það rétta er að hann dvaldi þar í tvo mánuði. Loks er spumingin, sem Laxness lagði fyrir Kjarval í danska sendi- ráðinu rétt þannig: „Hvenær sofa hvalirnir." Þá verður svar Kjarvals skömmu síðar skiljanlegra, en það var: „Ætli þeir hafí ekki vakta- skipti?" Útvarpsstjóramir talið frá vinstri: Ólafur Ragnar Halldórsson, Björa Þrastarson, Hallur Eyfjörð, Kristján Þór Ingvarsson og Jóhannes Karl Kristjánsson. Iðnskólinn í Reykjavík heldur Iðnskóladag í dag Útvarpsstöð starfrækt um helgina IÐNSKÓLADAGUR verður haldinn í dag á vegum Iðnskólans í Reykjavík þar sem væntanlegum nemendum, aðstandendum þeirra og öðrum þeim er áhuga kynnu að hafa gefst tækifæri til að skoða starfsemi skólans á Skólavörðuholti. Allar deildir verða starfræktar auk þess sem kennarar og nemendur verða til viðtals við gesti. Sex gmnndeildir verknáms em starfræktar við skólann. Gmnn- deild stendur í eitt skólaár og er helmingur námsins verklegur en hinn helmingurinn bóklegur. Grunndeildimar em í bókagerð, fataiðnum, hársnyrtingu, málm- iðnum, rafíðnum og tréiðnum. Auk þess fer fram kennsla fyrir samningsbundna iðnnema í yfír 30 iðngreinum. Tækniteiknun er eins árs nám. Tölvutækni er þriggja ára nám, sem skiptist í hugbúnaðardeild og- vélbúnaðardeild. Tæknifræði- braut samsvarar undirbúnings- og raungreinadeild Tækniskóla Islands. I Iðnskólanum er einnig rekið meistaranám fyrir sveina i húsasmíði, múraraiðn og pípu- lögn. Fer sú kennsla fram á kvöld- in og er þriggja anna nám. Öld- ungadeild í bókagerðargreinum og rafeindavirkjun verður starf- rækt frá næsta hausti. Iðnskóladagurinn hefst kl. 10.00 árdegis og verður m.a. sýndur bíll í réttingu, vélmenni í gangi, sumarhús í smíðum, stýri- kerfí í gangi og fleira. Kaffíveit- ingar verða í matsal kl. 16.00. í tilefni dagsins verður útvarpað frá Iðnskólanum á FM stereo 98,7 MHz frá 10.00 til 15.00 í dag og á morgun kl. 10.00 til 18.00. SélFoss: Stuttar fréttir úr bæjarstjórn Selfossi BÆJARSTJÓRN Selfoss kom saman til 108. fundar síns mið- vikudaginn 2. apríl. Á fundinum var samþykkt fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og iðnþróunarsjóðs Selfoss. Heildartekjur bæjar- sjóðs era 186.375.000 og gjöld 146.669.000 krónur. Til fjárfest- ingar fara 39.706.000, þar af er eignfærð fjárfesting 37.159.000 kr. Heildarniðurstöðutölur gjalda og tekna eru 219.312.000. Aðalframkvæmd bæjarsjóðs í ár er nýbygging félagsheimilis sem að hluta verður tekið í notkun á þessu ári. Til að ljúka byggingunni verða teknar 27 milljónir að láni til næstu fimm ára hjá Landsbanka íslands. Fjárhagsáætlunin var samþykkt með 7 atkvæðum gegn tveimur atkvæðum minnihlutans (Alþ.fl. og Alþ.b.) sem töldu lánakjör vegna félagsheimilisbyggingarinnar ekki nægilega ljós. Samþykkt var deiliskipulag tveggja lóða við Eyrarveg, nr. 11 og 13 og nr. 4 við Heiðarveg þar sem lóðareigandi, Hreiðar Her-~ mannsson, hyggst reisa þriggja hæða hótel og verslunarbyggingu. Á fundinum var m.a. staðfest tillaga frá félagsmálaráði þar sem lagt er til að gerð verði könnun á áfengis- og fíkniefnanotkun ungl- inga á Selfossi. Sig. Jóns. Ahugafélag um bijóstagjöf; Lýsa yfir stuðningi við stofnun brj óstamj ólkurbanka ÁHUGAFÉLÖG um bijóstagjöf á Suðuraesjum og í Kópavogi hafa sent frá sér ályktun, þar sem skorað er á Alþingi að samþykkja fram- komið frumvarp um lengingu fæðingarorlofs úr 3 mánuðum í 6 mán- uði. Einnig er lýst yfir fullum stuðningi við tillögur prófessors Helga Valdimarssonar um bijóstamjólkurbanka og ofnæmisprófanir á nýbur- um og skorað á landlækni að taka tillögur Helga til athugunar. í greinargerð með ályktuninni Mjög góð leið til að mynda náin til- segir meðal annars: „Áhugafélögin um bijóstagjöf á Suðumesjum og í Kópavogi vilja benda á að Ienging fæðingarorlofs sé þjóðfélagslega hagkvæm sé til langs tíma litið. Benda má á erlendar og innlendar rannsóknir sem sýna, að geðheilsu ungra bama sé hætta búin, ef þau njóti ekki ástríkrar umönnunar foreldra í frumbemsku. Hálf húseign ánöfnuð safnahúsinu á Húsavík Húsavík, 4. apríl. BENEDIKT Jónsson listmálari, gamall og vel þekktur Húsvík- Akranes: Myndlistar- sýningn að ijúka UM helgina lýkur myndlistarsýn- ingu, sem staðið hefur að undan- fömu í Bókaskemmunni á Akranesi. Góð aðsókn hefur verið að sýning- unni. Að sýningunni standa myndlist- armennimir Guttormur Jónsson, Hrönn Eggertsdóttir, Margrét Jóns- dóttir og Bjami Þór Bjamason. Á sýningunni em m.a. málverk, graf- ík; leirverk og skúlptúr., e E, t bi • ingur, sem andaðist i vetur ánafnaði safnahúsinu á Húsavík hálfa húseign sína, Sandfell, Túngötu 22, Húsavik. Eignin er að brunabótamati 1,8 milljónir. Húsið var upphaflega byggt árið 1925 en endurbyggt og stækkað árið 1961. Því hefur ávallt verið vel við haldið og er það með fögmm blómagarði umhverfis. Einnig ánafnaði Benedikt safnahúsinu málverk eftir sig sem máluð em á ýmsum tímum. Bókasafn sitt hefur hann ánafn- að bókasafni Aðaldæla í minningu foreldra sinna en faðir hans var frá Garði í Aðaldal og móðir hans var dóttir hins mikla bókasafns- frömuðar, Benedikts Jónssonar frá Auðnum. •t-nftisv lii/'íjfi :Érétta^itari; fínningatengsl móður og bams bijóstagjöfin. Nýjustu rannsóknir sýna að besta fæðan, og sú eina sem þörf er á fyrir ungbamið fyrstu 6 mánuðina, er móðurmjólkin. Ef ofnæmi er ættgengt í fjölskyldum nýburans, er móðurinni ráðlagt að besta leiðin til að fyrirbyggja það, sé að hafa bamið eingöngu á bijósti, í 6 mánuði. Þama yrði beinn spamaður, bæði í inn- flutningi þurrmjólkur og í lyfja- og lækniskostnaði, vegna þess að böm sem em á bijósti verða síður veik, og fá síður ofnæmisútbrot og of- næmi. Við viljum hvetja feður til að nota hluta fæðingarorlofsins. Það er ómetanlegt tækifæri fyrir föður til að kynnast bami sínu, tækifæri sem ekki kemur síðar í lífínu. Reynslan Hluti setning- ar féil niður í FRÉTT í blaðinu í gær um ráð- stefnu á Akureyri um vanda bygg- ingaiðnaðar féll niður hluti úr setn- ingu og brenglaði hana verulega. Hið rétta er að tveir fyrirlesara em Alexander Stefánsson félags- málaráðherra og Guðlaugur Stef- ánsson hagfræðingur. Hlutaðeigendur em beðnir vel- .virðmgar.á þessum mistökum.--- hefur sýnt, að mæður geta haldið áfram bijóstagjöf, þó þær starfi utan heimilis. Það er trú okkar, að gæfíst for- eldrum lengri tími við góðan fjárhag og góð félagsleg skilyrði til að sinna bami og eigin tilfínningamálum myndi slíkt skila sér í betra mann- lífí. Það myndi jafnframt spara þjóð- félaginu ómælt fé, bæði í heilsu- gæslu og vegna þess að mæður sem hafa böm sín á bijósti verða sjaldnar frá vinnu vegna veikinda bama Áburðarsala- Lionsmanna í Garðabæ í DAG, laugardag, fer fram hin árlega áburðarsala Lionsmanna í Garðabæ. Lionsmenn munu ganga i hvert hús I bænum og bjóða til sölu húsdýraáburð. Þeir annast einnig dreifingu í garða sé þess óskað. Ennfremur taka þeir á móti pöntunum í tilbúinn áburð, sem afgreiddur verður seinna, segir í frétt frá Lionsmönnum. - Áburðarsalan er ein af fjáröflun- arleiðum Láonsmanna í Garðabæ. Öllum ágóða af áburðarsölunni svo og öðmm fjáröflunum Lionsmanna er varið til líknar- og velferðarmála í Garðabæ. Lionsmenn vænta þess að Garð- bæingar taki þeim vel að venju og kaupi úrvalsáburð á hagstæðu verði. Tilboð hvítir fata- skápar frá kr. 4.500.- Hæð 210 cm — dýpt 60 cm. Opið laugardag Nýbýlavegi 12 200 Kópavogur Sími 44011. Pósthólf 167.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.