Morgunblaðið - 11.05.1986, Page 40
40
MORG UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR11. MAÍ1986
Skákkeppni stofnana og fyrirtækja:
Búnaðarbankinn sigraði
/»• P X / • X / •• X
fjorða anð 1 roð
Skák
Margeir Pétursson
SKÁKSVEIT Búnaðarbanka
íslands sigraði fjórða árið í röð
i skákkeppni stofnana og fyrir-
tækja sem lauk í síðustu viku.
Það voru helst sveitir Flugleiða
og Ríkisspítalanna sem náðu
að veita Búnaðarbankasveitinni
verulega keppni, en þegar upp
var staðið höfðu bankamenn-
irnir hlotið 2 '/zvinningi meira
en spitalarnir.
Sigursveitin fór þó hægt af
stað, í fyrstu umferð gerði hún
2-2 við Flugleiðir en var síðan
óstöðvandi þar til hún mætti ungri
og efnilegri sveit Ríkisspítalanna,
en hana skipa Davíð Olafsson,
Þröstur Þórhallsson og Róbert
Harðarson, auk gömlu kempunn-
ar Lárusar Johnsen, sem teflir á
fjórða borði. Þrátt fyrir mikla
viðleitni tókst Ríkisspítalasveit-
inni aðeins að saxa 1 Vívinning
af bankanum og hann vann því
nokkuð öruggan sigur á mótinu.
I sveit Búnaðarbankans eru Mar-
geir Pétursson, Jóhann Hjartar-
son, Bragi Kristjánsson og Hilmar
Karlsson. Varamenn eru Jón
Garðar Viðarsson og Tómas
Björpsson.
Úrslit í A-flokki:
1. Búnaðarbanki íslands, A sveit
23 '/2V. af 28 mögulegum.
2. Ríkisspítalar, A sveit 21 v.
3. Flugleiðir A sveit 19 V2 v.
4. Útvegsbanki íslands 15 V2 v.
5. -7. Verkamannabústaðir í
Reykjavík 15 v.
5.-7. Háskóli íslands 15 v.
5.-7. Búnaðarbanki íslands, B
sveit 15 v.
8.-10. Löggiltir endurskoðendur
hf. 14 V2 v.
8.-10. Iðnskólaútgáfan 14 V2 v.
8.-10. Bókaforlagið Svart á Hvítu
14 V2V.
Úrslit í B-flokki:
1. Póstur og Simi 18 V2
v. (86,5 stig)
2. Ármúlaskólinn 18 2/o v. (78,5
stig)
3. A.T.V.R. 18 v.
4. Borgarfógetaembættið 17 v.
5. -6. Húsnæðisstofnun ríkisins
I6V2V.
5.-6. Ríkisspítalar, B sveit 16 V2
v.
7. Nýja Sendibílastöðin 15 V2 v.
8. Landsbanki íslands, B sveit
14 V2v.
Búnaðarbankinn náði einnig að
sigra í hraðskákkeppninni. Þar
hlaut sveitin 45 V2V. Ríkisspítal-
amir komu næstir með 39 V2V.
Verkamannabústaðirnir hlutu 33
V2 v. Flugleiðir, B sveit 33 v.,
Flugleiðir A sveit 32 v., Útvegs-
bankinn og Búnaðarbankinn, B
sveit hlutu báðar 30 v.
Það kom á óvart í hraðskákinni
að B sveit Flugleiða skákaði A
sveitinni, en það sýnir breiddina
innan fyrirtækisins. í aðalliði
Flugleiða eru nú þeir Karl Þor-
steins, Elvar Guðmundsson, Bjöm
Theódórsson og Stefán Þórisson.
Næsta ár ætti Flugieiðasveitin að
verða ennþá illvígari, því Róbert
Harðarson hefur verið ráðinn til
þeirra og ættu þeir þá a.m.k. að
geta ráðið við Ríkisspítalana.
Keppnin fór vel fram, en þátt-
taka var með minna móti, aðeins
tæplega 40 sveitir voru með.
Skýringin á því er án efa sú að
keppnin hófst ekki fyrr en í apríl,
eða 4-6 vikum síðar en venjulega.
Þessu þarf að snúa aftur til fyrra
horfs, þó Taflfélag Reykjavíkur
auki stöðugt starfsemina verður
að láta þessa gamalgrónu og
vinsælu keppni ganga fyrir nýj-
ungum.
Jöfn keppni á sovézka meist-
aramótinu
Sovézka meistaramótinu í Kiev
ætti nú að vera lokið, en fregnir
af lokaúrslitum hafa þó ekki enn
borist. Mótið fór fram í næsta
nágrenni við kjamorkuverið í
Chemobyl, en það er þó ólíklegt
að síðustu umferðunum hafi verið
frestað af þeim sökum. Geisla-
virknin hefur vart dregið úr
spennunni í þremur síðustu um-
ferðunum, en fyrir þær áttu a.m.k.
níu skákmenn möguleika á sigri.
Staðan að loknum 14 umferðum
af 17:
I. -3. Balashov, Malanjuk og
Tseshkovsky 8 V2 v.
4. Bareev 8 v. og biðskák.
5. -7. Eingom, M. Gurevich og
Lemer 8 v.
8.-9. Gavrikov og Khalifman 7 V2
v.
10. Judasin 7 v.
II. -13. Dolmatov, Luptjan og
Rashkovsky 6 V2V.
14. Beljavsky6v.
15. Azmaparashvili 5 v. og bið-
skák.
16. -18. Dvoris, Jakovich og
Smagin 5 v.
Hinn tæplegi tvítugi meistari
Bareev gæti staðið bezt að vígi
vinni hann biðskákina. Þar er nýtt
nafn á ferðinni, en hann vann þó
það afrek að sigra í 1. deildar
keppni meistaramótsins sl. haust,
en það er úrtökumót fyrir aðal-
mótið og ávallt vel skipað. Þeir
sem fyrir fram þóttu líklegastir
til sigurs em fyrir neðan 50%
mörkin, sérstaklega kemur slæg-
leg frammistaða Beljavskys á
óvart, en hann er langstigahæsti
þátttakandinn.
Góð frammistaða hins gamal-
reynda Balashovs kemur á óvart.
Það hefur líklega haft góð áhrif
á hann að segja sig úr vistinni
hjá Karpov.
Við skulum líta á spennandi
skák frá mótinu. Þar hugðist
Baljavsky bæta slæma stöðu sína
á mótinu með því að tefla þekkt
rúlluskautaafbrigði gegn jafntefl-
isvélinni Balashov. Hann kom þó
ekki að tómum kofanum, Balas-
hov sýndi að hann getur teflt upp
á mát, a.m.k. ef hann er neyddur
til þess.
Hvítt: Balashov
Svart: Beljavsky
Katalónsk byrjun
1. d4 - d5, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- Rf6, 4. g3 - dxc4, 5. Bg2 -
b5!?
Benóný hefur í áratugi reynt
að halda c4 peðinu með slíkum
leikjum, en þetta afbrigði er nú
orðið hámóðins og mikið teflt
austur í Sovétríkjunum um þessar
mundir.
6. a4 — c6, 7. axb5 — cxb5, 8.
Re5 - Rd5, 9. Rc3 - Bb4, 10.
0 — 0! Bxc3,11. e4!
Þessi leikjaröð hefúr verið
þaulprófuð fýrir austan. Hvítur
verður að tefla geysilega hvasst
til að halda frumkvæðinu.
11. — Bxb2, 12. exd5 — Bxal,
13. Ba3-a5,14.Dg4.
í nýlegri skák Kengis-Meister,
náði hvítur vinningsstöðu eftir 14.
dxe6!? Bxe6, 15. Bxa8 - Bxd4?
16. Rc6!, en 15 — Dxd4 er mun
betra.
14. - b4, 15. Dxg7 - Hf8, 16.
Hxal
16. - Ha6.
Hjá Chemin og Judasin 1984
var leikið 16. — bxa3, 17. dxe6
— Bxe6, 18. Bxa8 — Dxd4, 19.
Hbl! - Rd7, 20. Bc6 - Dd6? 21.
Bxd7+ Bxd7, 22. Rxc4 — Dc5,
23. Hb8+ Bc8, 24. Hxc8+ og
svartur gaf, en eftir 20. — a2! er
staðan enn tvísýn.
17. Bcl! - exd5, 18. Bh6 -
Hxh6, 19. Dxh6 - Be6 20. Hel
— De7,21.Rxc4!
Hvíti tekst að vilhalda nægilegu
frumkvæði til að svartur komi
peðamassa sínum ekki á skrið.
21. - dxc4, 22. d5 - Kd7, 23.
De3! - Dd6, 24. Da7+ Dc7,
25.dxe6+ fxe6, 26. Dd4+ Kc8,
27. Hxe6 - c3, 28. Bh3! Kb7,
29. Dd5+ Ka7, 30. Bg2 - Ra6,
31. Hc6 og Beljavsky gafst upp.
Alfræðibækur
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Oxford Illustrated Encyclo-
pedia. General Editor Harry Judge.
Volume I: The Physical World.
Volume II: The Natural World.
Oxford 1985.
Saga alfræðirita er jafngömul
sögu evrópskrar menningar.
Speusippos, systursonur Platons,
setti saman fyrsta alfræðiritið, til
stuðnings við kennslu í Akademiu
Þijú prests-
embætti laus
BISKUP íslands hefur auglýst
eftirtalin þrjú prestsembætti laus
til umsóknar og er umsóknar-
frestur til 4. júní n.k.
Þingeyri í Isafjarðarprófasts-
dæmi. Þar hefur þjónað undanfarið
séra Gunnlaugur Garðarsson sem
nú er að fara til framhaldsnáms í
Kanada.
Staðarfell í Þingeyjarprófasts-
dæmi. Sr. Sigurður Árni Þórðarson
' sóknarprestur þar hefur sagt emb-
ætti sínu lausu, þar sem hann hefur
verið ráðinn rektor Skálholtsskóla.
Embætti fangaprests. Undan-
farin 16 ár hefur sr. Jón Bjarman
gegnt þessu starfi eða frá stofnun
þess. Séra Jón hefúr nú verið ráðinn
sjúkrahúsprestur þjóðkirkjunnar og
, tkur við starfi í sumar.
Platons. Brot þessa rits hafa varð-
veist. 18. og 19. aldir eru blóma-
skeið alfræðiritanna, Encycklopedia
Diderots, Brittanica og Brockhaus,
Larousse og fullkomnari tækni í
prentlist eykur framboðið á 20. öld.
Lengi vel réð hin hefðbundna
form, efninu raðað eftir stafrófsröð
og greinarnar oft langar riterðir og
sumar þeirra halda enn gildi sínu
t.d. ritgerðir í Encycklopedia Bri-
tannica í níundu og elleftu útgáfu.
Með aukinni sérhæfingu og stórau-
kinni þekkingaröflun innan ýmissa
sérsviða verður sífellt erfiðara að
safna saman allri mannlegri þekk-
ingu í nokkur þykk og viðamikil
bindi, eins og ætlunin var með út-
gáfu hinna viðamiklu alfræðirita
19. og framan af 20. öld. Alfræðirit
innan sérgreina verða því algengari
þegar líður á 20. öld og einnig út-
gáfa alfræðirita, þar sem efninu er
skipt niður í bindi og raðað eftir
stafrófsröð innan hvers efnisflokks.
Sá háttur er hafður í þessari nýju
alfræðibók frá Oxford University
Press, en hún verður alls átta bindi
og eru tvö þau fyrstu nýkomin út.
Fyrsta bindið fjallar um efnisheim
og náttúru. Útgefandi fyrsta bindis
er Vivian Fuchs, þar er að finna
staðreyndir um efnafræði, haffræði,
eðlisfræði, jarðmyndunarfræði,
veðurfræði, jarðvegsfræði, jarð-
fræði í víðri merkingu o.fl.
Bindið er 384 tvídálka síður með
útskýringum og lýsingum á fyrir-
brigðunum, ásamt kortum og
myndum. Uppsláttarorðin eru rúm-
lega 2500 og 26 sérfræðingar skrifa
textana. Myndir eru alls 360, helm-
ingur þeirra litmyndir. Mælingar
eru alls 360, helmingur þeirra lit-
myndir. Mælingar eru allar bæði
samkvæmt ensku kerfí og metra-
kerfi. Fjallað er um merkustu eðlis-,
efna og jarðfræðinga, landkönnuði
og landfræðinga.
Malcolm Coe ritstýrir öðru bind-
inu, sem fjallar um lífríkið, „ríki
náttúrunnar,“ blaðsíðutalið er það
sama og í fyrsta bindinu. Meðal
efnisflokka eru: Grasafræði, dýra-
fræði, líffræði og læknisfræði.
Hryggdýr, fuglar, lagardýr, ormar
og margvíslegustu pöddur og aðrir
hryggleysingjar eru umfjölluð í
knöppu og skýru máli. Greinar eru
um útdauðar dýrategundir og stein-
gervinga. Lýst er flokkun lífríkisins
og þeim kerfum sem flokkunin
byggist á. Þróun hinna ýmsu dýra-
tegunda er tekin til meðferðar.
Greinagóðar upplýsingar eru um
sjúkdóma og pestir sem hrjá lífríkið
og mannkynið þar með. Kaflar eru
um merka líffræðinga, lækna, dýra-
og grasafræðinga og þá sem kunn-
astir cru sem höfundar náttúrusögu
merka líffræðinga, lækna, dýra og
grasafræðinga og þá sem kunnastir
eru sem höfundar náttúrusögu
almennt. Uppsláttarorðin eru yfir
2.500 eins og í fyrra bindinu. 34
höfundar leggja til efnið. Myndir
og töflur og kort eru um 360.
Ritstjóri verksins segir í formála:
„Með auknum fjölbreytileika þess
heims sem við byggjum hefur þörfin
fyrir alfræðirit aukist en ekki týrn-
að . . . Við undirbúning útgáfunnar
kom tvennt til, að byggja ritið upp
með löngum og all ítarlegum grein-
um eða hafa greinamar styttri og
fleiri, síðari kosturinn var valinn.“
Rit þetta virðist vera mjög hand-
hægt, val höfunda á að tryggja
öruggar staðreyndir um hvert svið
mannlegrar þekkingar svo að þetta
getur orðið lykill að aðalatriðum,
sem allur almenningur og nemend-
ur geta haft fullt gagn af.
Síðari bindi eiga að spanna upp-
lýsingar um listir, tækni, samfélög
manna, sögu mannkyns pg alheim-
inn.
Höfuð áherslan er lögð á ná-
kvæntni og staðreyndir, settar fram
í eins knöppu formi og gerlegt er
talið. Svo virðist sem þetta hafi
tekist í þessum tveimur bindum sem
út eru komin.
Manuela Wiesler
heldur hér tónleika
Það er ekki nóg að vorið sé komið
— Manuela Wiesler er væntanleg
og ætlar að spila fyrir okkur. Á
mánudagskvöldið kemur kl. 20.30
spilar hún í Iðnó, á vegum Musica
Nova, trúarlega framúrstefnutón-
list. Og svo fimmtudaginn þar á
eftir flautukonsert eftir Carl Philipp
Emanuel Bach, með Sinfóníuhljóm-
sveitinni.
í hvert skipti sem ég heyrði hana
spila fannst mér landið rísa. Hún
starfaði hér um árabil og nærvera
hennar var alltaf jákvæð. Hún gerði
miklar kröfur til allra sem hún
starfaði með, en mestar til sjálfra
sín. Þetta smitaði út frá sér, bæði
hjá spilurum og tónskáldum. Hún
á mikinn þátt í þeim gæðum sem
tónlistarflutningur hefur hér á
landi.
Manuela spilar alla tónlist jafn
vel, gamla sem nýja. Hún er jafn-
víg á allar stíltegundir, og þannig
eru allir miklir músíkantar. Hún er
frábær liðsmaður í kammermúsík,
glæsilegur einleikari með hljóm-
sveitum, en kannski er hún stærst
þegar hún spilar ein á flautuna.
Þá hefur mér stundum fundist
tíminn hætta að líða.
Konsertar hennar eru oft þvílík
upplifun að tónlistin verður að trú-
arlegri reynslu, eða andlegri íhug-
un. Maður kemst á æðra svið. í
flutningi Manuelu er tónlistin
uppalandi sálarinnar.
Því hlakka ég til mánudagsvölds-
ins í Iðnó. Efnisskráin er bæði
óvanaleg og spennandi. Það er fátt
vanalegt við Manuelu nema hæ-
verska hennar sjálfrar.
Manuela Wicsler
Á tímum sískrums finnst mér
erfítt að nota hástemmd lýsingar-
orð. En í þetta sinn geri ég það
með góðri samvisku.
Atli Heimir Sveinsson