Morgunblaðið - 11.05.1986, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR11. MAÍ1986
60
Kveðjuorð:
Unnur Jónsdóttir
frá Blönduhlíð
Fædd 26. agúst 1923
Dáin 29. apríl 1986
Fregnin um lát Unnar barst mér
eins og kaldur skuggi á björtum
Blómastofa
Fnófinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.
Eq.w r-
vordegi. En minningamar um Unni
verða alltaf bjartar. Þær eru tengd-
ar vori æsku minnar.
Eg minnist Unnar þegar hún var
kaupakona hjá foreldrum mínum á
æskuheimili mínu, Dröngum á
Skógarströnd. Hún var björt eins
og sólargeisli með ljóst, liðað hár
niður á bak. Hún var létt í spori
og kvik í hreyfingum. Bjartur hlátur
og ljómandi lífsgleði fylgdi henni
hvar sem hún fór. Okkur krökkun-
um var hún ætíð sem besti félagi
og vinur. Það var alltaf tilhlökkun-
arefni þegar von var á Unni til
lengri eða skemmri dvalar.
Unnur var dóttir hjónanna Jóns
Laxdal og Kristjönu Ingiríðar
Kristjánsdóttur. Hún var elst af 7
systkinum og eina stúlkan í hópn-
um. Má því nærri geta að snemma
hefur hún þurft að taka til hendi
með 6 yngri bræður sér við hlið.
Það hefur þá komið sér vel að
Unnur var létt á fæti og viljug til
verka.
Það er ekki ætlun mín að rekja
hér æviferil Unnar. Því miður urðu
spor hennar ekki alltaf létt um
dagana því hún átti um margra ára
skeið við vanheilsu að stríða.
Ég vil aðeins þakka Unni með
Sálfræðileg ráðgjöf
til foreldra
varðandi börn og uppeldi. Hef opnað sálfræðiþjón-
ustu að Laugavegi 59 (Kjörgarði).
Dr. Garðar G. Viborg. Viðtalsbeiðnir í heimasíma
681648.
þessum fátæklegu línum fyrir þær
stundir sem við áttum saman. Einn-
ig vil ég flytja kveðjur og þakklæti
foreldra minna fyrir vináttu og
tryggð fyrr og síðar. Móður Unnar,
bræðrum og fjölskyldum þeirra
sendum við samúðarkveðjur.
Ég vil ljúka þessum orðum mín-
um með broti úr Viðlagi eftir Guð-
finnu Jónsdóttur frá Hömrum.
Úr djúpinu stígur ljóðsins ljóð,
er lygnir við strönd og græði.
Þótt skyggnist um heima skuggans öm
og skýjum vestursins blæði,
má heyra vonfagurt vængjatak,
- það er viðlag í dagsins kvæði.
Þá kveður sér hljóðs vort hjartaslag
í heilagri bæn og trega,
þá kveða álftir í sárum söng
við silfurblik ölduvega.
Og allt er í viðlagsins gimstein greypt
oggeymist þar eilíflega.
Úr djúpinu stígur lífsins ljóð
og leiftrar í kvöldsins hljóði.
En skyggnist um heiminn Heljar öm
og himinninn grætur blóði
fær mannssálin hvítan væng og veit:
Hún er viðlag í drottins ljóði.
Guð blessi minningu Unnar.
Kristjana E. Guðmundsdóttir,
frá Dröngum.
Einar J. Karls■
son - Minning
Fæddur 1. maí 1909
Dáinn 28. apríl 1986
Heiðursmaður er látinn, maður
af gamla skólanum, sem hvergi
mátti vamm sitt vita og öllum vildi
gott gera.
Einar Jón fæddist á ísafirði, en
átti rætur að rekja til Breiðafjarðar.
Foreldarar hans voru hjónin Kristín
Einarsdóttir og Karl Guðmundsson,
síðar brunavörður í Reykjavík. Er
Einar var á öðru ári fluttust foreldr-
ar hans til Reykjavíkur og ólst hann
þar upp. Foreldrum Einars varð sex
barna auðið, sem öll eru látin.
Einar dó á Vífilsstöðum eftir
langa og stranga legu, hann bar
veikindi sín af æðruleysi eins og
honum var einum lagið, og að
endingu óskaði hann eftir að verða
jarðsettur í kyrrþey. Jarðarför hans
fór fram 7. þ.m.
Eins og algengt var á þeim tíma
sem Einar var ungur hóf hann störf
ungur að árum, eða strax eftir
fermingu, sjórinn varð hans starfs-
vettvengur framan af, eða allt til
fimmtugs. Hann stundaði margs-
konar veiðar, bæði á bátum og
togurum, einnig var hann um skeið
hjá Landhelgisgæslunni. Hann var
þekktur fyrir ósérhlífni og dugnað,
og var ávallt boðinn og búinn að
rétta hjálparhönd þeim sem á þurftu
að halda.
Hann sigldi öll stríðsárin og var
þá oft stutt bilið milli lífs og dauða.
Hann var t.d. á skipinu Arinbirni
Hersi er loftárás var gerð á það.
Laust eftir fimmtugsaldur réðst
hann til starfa hjá Eimskip og starf-
aði þar óslitið til ársins 1978, er
hann hætti störfum vegna aldurs.
Einar var tvíkvætur, fyrri kona
hans var Margrét Lára Lárusdóttir,
ÆVINTYRAHEIMUR THAILANDS:
Allt
sem þér hefur dottið í hug
fyrir verð sem þér hefur
aldrei dottið í hug.
Vegna sérstakra samninga SAS og
Flugleiða er þér nú gert kleift að
kynnast ótrúlegum ævintýraheimi
Thailands í heila 17 daga fyrir enn
ótrúlegra verð; 52.249,— krónur per
mann í tveggja manna herbergi. Og
það er ekki eftir neinu að bíða;
brottfarir eru alla þriðjudaga a.m.k.
út maí. í september byrjarsvo gaman-
ið aftur.
Aukavika
fyrir kr. 3.698,—
Gist er í 4 nætur í Bangkok og 10
nætur á óviðjafnanlegri Pattaya strönd-
inni. Þar er dvalið á fyrsta flokks hóteli
og aukavika kostar aðeins 3.698,-
krónur. Það er frábært verð fyrir allar
þær vellystingar sem í boði eru.
Einnig er hægt að gista á lúxushóteli
og verðið hækkar þá aðeins um litlar
5.994,— krónur. íburðurinn á þessum
hótelum er engu líkur.
Aukavika í Singapore
fyrir 9.828,- krónur.
Þú getur líka farið í sérferð til Singa-
pore. Þar er gist á enn einu lúxushótel-
inu og til að kóróna allt er þar boðið
uppá 3ja daga skipsferð til Indónesíu
og ógleymanlega siglingu með einka-
snekkju.
Allar nánari upplýsingar um þetta ein-
staka ævintýri eru veittar á næstu ferða-
skrifstofu ogsöluskrifstofum Flugleiða.
FLUGLEIÐIR
S4S
þau eignuðust þrjá syni, Karl, Ol-
geir og Valdimar, en þeir tveir
fyrstnefndu eru látnir. Seinni kona
Éinars var Guðrún Brandsdóttir og
lifír hún mann sinn, eignuðust þau
eina dóttur, Kristínu, ennfremur ól
Einar upp tvær dætur Guðrúnar
af fyrra hjónabandi, þær Svövu og
Birnu Ólafsdætur, og reyndist hann
þeim hinn besti faðir eins og öllum
sínum börnum. Afkomendur Einars
eru orðnir margir, bamabörnin eru
22 talsins og langaafabörnin eru 11.
Ég sem þetta skrifa kynntist
Einari og fjölskyldu hans fyrir lið-
lega tuttugu árum, er ég kvæntist
uppeldisdóttur hans.
Ég lærði fljótt að meta Einar,
manninn sem ávallt hafði barist
harðri baráttu til að hafa nóg fyrir
sig og sína og aldrei mátti aumt
sjá öðruvísi en reyna að miðla til
þeirra sem verr voru settir. Verald-
leg auðæfi urðu því aldrei mikil, en
gleðin yfir að gleðja aðra varð því
meiri, andleg auðæfi, sem ekki
verða frá neinum tekin og engum
gefin, þar er innri maður að verki.
Lundarfar Einars var þannig að
hann óskaði ekki eftir eftirtekt
annarra. Vildi lifa í ró, ánægður
með sitt og sína, hann var barngóð-
ur með afbrigðum, enda söknuður
afkomendanna mikill þegar afi var
allur.
Guðrún mín, söknuður þinn er
mestur, megi Guð styrkja þig og
þína í sorg ykkar, en huggun er
nærri. Hann sem öllu ræður mildar
sárin og leiðir ástvinina saman á ný.
G.B.D.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI