Morgunblaðið - 18.05.1986, Side 2

Morgunblaðið - 18.05.1986, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18.MAÍ 1986 Ingi Tryggvason formaður Stéttarsambands bænda: „Verðum að aðlaga okkur markaðnum“ INGI TRYGGVASON formaður Stéttarsambands bænda segir að nauðsynlegt hafi verið, við núverandi aðstæður að ákveða að bændur fái einungis 6 krónur fyrir lítrann af umframmjólk sem þeir framleiða eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. „Þetta er nauðsynlegt, fyrst og væri ekki réttlátt að fara að greiða fremst vegna þess að reglugerðin kom fram seint, og bændur höfðu takmarkaðan tíma til þess að aðlaga sig þessari framleiðslustjóm," sagði Ingi. Hann sagði að þessi upphæð, sem ráð væri fyrir gert að greiða fyrir mjólkurlítrann, væri að sjálf- sögðu ekki nema hluti af fram- leiðslukostnaði, þannig að það hagnaðist enginn á að framleiða umframmjóik. „Hins vegar dregur þessi upphæð svolítið úr skaðanum sem menn verða fyrir við að fram- leiða hana, og hjálpar mönnum til þess að vera viðbúnir eðlilegri fram- leiðslu á næsta verðlagsári," sagði Ingi- Ingi var spurður hvort ekki mætti eiga von á harkalegum við- brögðum kúabænda við þessari ákvörðun: „Auðvitað verður enginn ánægð- ur með þetta verð. Það dettur mér ekki í hug. En á móti kemur það, að margir bændur hafa reynt að aðlaga sig þessum aðstæðum. Menn vissu meira og minna hvað í vænd- um var. Gagnvart þessum mönnum tiltölulega hátt verð fyrir umfram- framleiðsluna." Ingi var spurður hvað hann vildi segja um yfirlýsingar kúabænda í þá veru að þeir helltu frekar niður mjólkinni, en leggja hana inn í mjóikursamlögin fyrir litla sem enga greiðslu: „Það verður að vera þeirra mál. Það verður hver og einn sem í hlut á, að ákveða sjálfur hvemig hann bregst við þessu. Það voru gerðir samningar um ákveðið magn, og við eigum ekki annars kost, en reyna að aðlaga okkur markaðnum," svaraði Ingi Tryggvason. Morgunblaðið/RAX Fimm á slysadeild Harður árekstur varð á mótum Hamrahlíðar og Kringlumýrarbrautar laust fyrir hádegi í gær. Þar rákust saman Saab-bOl úr Reykjavík og Dodge úr Keflavík. Fimm voru fluttir á slysadeild úr Keflavíkurbílnum. Báðir bílamir eru mikið skemmdir. Er leghálskrabba- mein vírussjúkdómur? Tíðni forstigsbreytinga hefur farið vaxandi hér á landi á undanf örnum árum „ERLENDAR rannsóknir hafa sýnt fram á að ákveðin vírustegund, sem nefnd hefur verið HPV hefur fundist í 90% þeirra kvenna sem hafa sterkar forstigsbreytingar eða krabbamein í leghálsi. Það er hugsanlegt að þarna sé á ferðinni sökudólgur forstigsbreytinga eða krabbameins,“ sagði Kristján Sigurðsson yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins í samtali við Morgunblaðið. Tíðni forstigs- breytinga hefur farið vaxandi að undanförnu lyá konum í ákveðnum aldurshópi hér á landi, mest hefur aukningin orðið í aldurshópnum 25—34 ára samkvæmt upplýsingum úr skýrslu Krabbameinsfélagsins sem lögð var fyrir á aðalfundi félagsins 9. mai sl. Akureyri: Bautinn eldar fyrir Sjallann Akureyri. Veitingahúsið Bautinn hefur gert samning við skemmtistaðinn Sjallann um að sjá um alla mat- seld fyrir húsið, og tekur vænt- anlega við strax eftir helgina. „Það má segja að við verðum verktaki hjá Sjallanum — þeir kaupa af okkur matinn og selja hann svo í húsinu og út í bæ,“ sagði Stefán Gunnlaugsson, einn eigenda Bautans, í samtali við Morgunblaðið í gær. Matsveinar þeir sem starfað hafa hjá Sjallanum undanfarið hafa hætt störfum, og Bautamenn mæta væntanlega í Sjallaeldhúsið eftir helgina. Kristján sagði að forstigsbreyt- inga yrði vart svo til eingöngu hjá þeim konum sem lifa samlífi. „Það hefur oft verið talað um tengsl milli vírusa og krabbameins, en aldrei fyrr hefur verið hægt að einangra vírus í jafn ríkum mæli og nú.“ A síðasta ári fundust 364 konur með forstigsbreytingar í leghálsi hér á landi sem skiptist þannig, 89 konur með forstigsbreytingar á vægu stigi, 67 konur með forstigsbreytingar á miðlungsstigi, 117 konur með alvar- legar forstigsbreytingar, 91 kona með breytingar á óljósu stigi og 15 konur með grun um krabbamein í leghálsi. Meðalaldur kvenna sem greindust með forstigsbreytingar lækkaði um 2,75 ár á tímabilinu ’79-’84, úr 35,90 árum í 33,15 ár. Á síðasta ári voru 20.562 konur skoðaðar á vegum Leitarstöðvarinn- ar, fleiri en nokkru sinni fyrr, en alls voru 23.458 sýni rannsökuð á frumurannsóknarstofunni. Sýni eru einnig tekin hjá kvensjúkdómalækn- um og á heilsugæslustöðvum um land allt. Um 59% krabbameins- tilfella í leghálsi greindust við leit, og 44% af þeim sem fengu brjósta- krabbamein. Samkvæmt bráða- birgðauppgjöri krabbameinsskrár greindust 95 tilfelli af bijósta- krabbameini, en það er hærri tala en nokkru sinni fyrr. Samkvæmt upplýsingum úr skýrslu Krabbameinsfélagsins er mæting kvenna í skoðun misjöfn eftir búsetu, flestar konur mæta til skoðunar á Flateyri, eða 93%, en yfír 90% mæting er einnig á Grund- arfírði, Hólmavík, Blönduósi, Seyðis- fírði, Laugarási og Vestmannaeyj- um. Á Reykjavíkursvæðinu mæta aðeins um 64% kvenna til skoðunar, og mæta konur á Reykjavíkursvæð- inu verst kvenna á landinu að undan- skildum konum á Kópaskeri, en þar koma einnig aðeins 64% kvenna til skoðunar. Fast á hæla þeirra koma konur á Akureyri, en þar mæta aðeins 65% kvenna til skoðunar. „Mæting kvenna í krabbameins- skoðanir hefúr aukist um 16% á árunum ’79-’85, meðaltalsmæting um allt land er um 70%. Átak var gert í því að auka mætingu utan höfuðborgarsvæðisins með breyttri skipulagningu og hefur það skilað sér. Hægur bati hefur einnig átt sér stað á Reykjavíkursvæðinu, á síðasta ári komu 6% fleiri konur til skoðunar en tveim árum áður. Aðstaðan í hinu nýja húsnæði Leitarstöðvarinnar er langt í frá fullnýtt, við getum tekið við 60% fleiri konum til skoðunar," sagði Kristján Sigurðsson. „ Allt í einu varð mótið eitt eldhaf “ — segir Ljubodrag Mark Ovic, sem slapp naumlega úr brunanum á Skagaströnd Skagaströnd. Á f immtudag varð stórbruni hér á Skagaströnd þegar plastverk- smiðja og verkstæði við hlið hennar brunnu til kaldra kola. Oðru verkstæði í sama húsi tókst að bjarga með naumindum, þó þar yrðu töluverðar skemmdir af vatni og reyk. Annar eigandi plast- verksmiðjunnar, Ljubodrag Mark Ovic, sem er fæddur í Júgóslav- íu, var við vinnu í plastverksmiðjunni þegar eldurinn kom upp. Hann bjargaðist á undraverðan hátt út um glugga. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti Marko, eins og hann er kallaður, að máli í dag. — Marko, hvað gerðist eigin- lega? „Ég veit það ekki. Ég var að vinna með slípirokk, var að slípa styrkingar í bátinn, sem við vorum að smíða. Við vorum nýbúnir að sprauta plasti í mótið af trillunni, ca. 40 fermetra flöt, höfðum lokið við það ca. 20 mínútum áður. Ég get ekki sagt hvað kom fyrir, hvort það var slípirokkurinn sjálf- ur sem brann yfír eða hvort neisti hefur hlaupið frá honum. Ég veit bara að allt í einu verður mótið eitt eldhaf." — Hvað gerðir þú? „Ég reyndi fyrst að komast að dyrunum á austurstafninum en eldurinn lokaði þeirri leið. Þá sneri ég við og ætlaði yrfír á verkstæðið hinum megin við vegginn að vest- anverðu en þá varð sprenging og eldurinn komst í veg fyrir mig þar.“ — Þá var glugginn einn eft- ir . . . „Já, ég hljóp að glugganum og sté upp á loftpressuna, sem var undir honum. Síðan reyndi ég að bijóta glerið með hnefunum en það tókst ekki, hvemig sem ég reyndi. Þá, þegar ég var farinn að hugsa að nú væri þetta allt búið, og ég myndi brenna þama inni, þá verður önnur sprenging, sem þeytti mér í gegnum rúðuna og út á götu.“ — Þú hefur þá verið inni ein- hvem tíma eftir að eldurinn kvikn- ar? „Já, ég giska á, að það hafi verið kannski ein mínúta eða svo. En ég var með rykgrímu fyrir andlitinu og ég held að hún hafí bjargað lífí mínu. Einnig það, að bátsmótið, sem eldurinn kom upp í, lá á hliðinni og sneri frá mér. Eldhafíð og reykmökkurinn leitaði þess vegna í fyrstu frá mér. — Hvar var félagi þinn þegar eldurinn kviknaði? „Hann hafði skroppið út í búð til að kaupa eitthvað með kaffinu. Ég var að strekkja við að klára styrkingamar fyrir kaff- ið. Þegar hann var svo að koma heim að húsinu þá sér hann hvar ég kem fljúgandi út um giuggann í reyk- og eldhafí. Hann dró mig síðan frá og tók af mér rykgrím- una, því ég náði ekki andanum. Fljótlega kom svo lögreglan og flutti mig inn á Blönduós á spítal- ann, þar sem læknir saumaði skurði á hendinni á mér. Ég var svo á spítalanum í nótt en kom heim rétt fyrir hádegi í dag. — Marko, nú brann þama rúm- lega 200 fermetra hús, allur lag- erinn ykkar, mótin, plastsprautan og öll ykkar verkfæri. Var þetta tryggt? „Já, þetta var allt tryggt en tryggingar bæta aldrei svona lagað að fullu. Þú veist til dæmis að húsnæði fyrir svona starfsemi er ekki til héma á staðnum. Verkefnin, sem við vorum búnir að fá allt til haustsins, þau miss- um við sjálfsagt og fleira þess háttar fæst aldrei bætt.“ — Þið ætlið sem sagt að halda áfram? „Ég hef nú ekki haft tfma til að ræða það við meðeiganda minn en ég reikna þó frekar með þ\n.“ — Marko, geturðu nokkuð giskað á hve tjónið er mikið? „Nei, það get ég ekki. Þetta er milljónatjón. Til dæmis kostar sprautan með fylgibúnaðinum 800 þúsund krónur. Húsið og allt saman — það skiptir áreiðanlega milljónum." - ÓB.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.