Morgunblaðið - 18.05.1986, Síða 15

Morgunblaðið - 18.05.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1986 15 Morgunblaðið/Þorkell Börnin eru alsæl að fá að koma með mömmu sinni til íslands í allt frelsið við litla húsið þeirra á Grímsstaðaholtinu. Sigríður Ella með tvíburana Magnús og Vilhjálm og dótturina Ónnu. Með þeim er barnfóstran Hrefna. li aldrei slíkt alvarlega fyrr en búið er að skrifa undir samninga eins og Sigríður Ella bendir á, „en svona gerist þetta í þessu starfi." í þessari sömu ferð söng hún líka hjá Scand- inavian-félaginu í New York við undirleik íslenska píanóleikarans Selmu Guðmundsdóttur. U Carmen í Frans og Bandarí kjaferð 1 Það er rétt að Sigríður Ella er mjög varkár að tala um það sem fyrir liggur hjá henni. Verður að toga það út úr henni. Carmen er þó á dagskrá hjá henni á tveimur stöðum í Frakklandi og Bretlandi næsta vetur og svo tónleikaferð um Bandaríkin frá febrúar og fram í mars, þegar hún er orðin bundin í Frakklandi. Ljóst að hún verður á næsta ári að velja og hafna. Meira vill hún ekki segja um það. Hún er með allan hugann við næsta verkefni, tónleikana á íslandi. „Ég hefi ekki sungið heilan konsert hér heima í fjöldamörg ár og langaði svo til þess núna fyrst ég er heima, segir hún. Hún hefur til hans vand- að og umboðsfyrirtæki hennar ætl- ar að senda sérstakan fulltrúa sinn, Penelope Marland, til að hlusta á hana syngja og einnig til að sjá hana syngja í 11 Trovatore, því „við erum eins og hver önnur söluvara og þeir vilja vita hvað þeir eru að selja,“ útskýrir Sigríður. Talið berst aftur að Pavarotti- tónleikunum og við spyijum Sigríði Ellu hvemig þessi stórsöngvari sé eiginlega í viðkynningu. Hún svarar um hæl: „Hann er óskaplega stór og feitur. En sérstaklega skemmti- legur og heillandi, hvert einasta kíló af honum. Og hann hefur ríka kímnigáfu og er einstaklega lítillát- ur og hæverskur. Eftir því sem fólk veit meira og kann meira, þeim mun umburðarlyndara verður það.“ Með hendurnar á kafi í moldinni Eins og að ofan má sjá er ekki einfalt mál að vera söngkona, búa f London með fjölskyldu og eiga eiginlega „sel“ til að flytja sig í á íslandi. í Bretlandi býr hún með manni sínum, Simon Vaughan, í útjaðri London, þar sem foreldrar ; hans eiga búgarð og rækta blóm og grænmeti, sem hann sér um, auk [ þess sem hann hefur eigin ræktun. Þetta er á græna beltinu sem um- lykur London, aðeins 15 kílómetra leið inn á Piccadilly í miðborginni. Sigríður sagðist rétt komast í plönt- umar sínar eftir að hún kemur núna frá íslandi eftir tónleikana, áður en hún þarf að fara að syngja í Frakkl- andi. En hún kveðst njóta þess svo vel að geta farið út á akur með bömin á traktor. „Mér þykir gott að vera skítug um hendumar," bætir hún við kímin. Eiginmaður- inn, sem í vetur var að syngja í ópemnni Nabucco í Bretlandi, kemst ekkert frá á vorin vegna blómanna og gat því ekki komið með til íslands núna. „Nú lítur hann ekki upp úr moldinni," segir Sigríð- ur. Fyrir utan sumarblómin og grænmetið sem fer á markað, rækta þau hjónin allt grænmeti til heimil- isins og einnig hindber og jarðarber. Krakkarnir sækja í frelsið En þótt heimilið sé úti í sveit er ekki hægt að sleppa hendinni af bömunum einum í nánd við stór- borgina og því eru þau alsæl með að fá að koma með mömmu sinni til íslands. Heima eru þau í skólan- um samfellt frá klukkan níu að morgni til klukkan ljögur og ekki hleypt út fyrr en foreldramir sækja þau. Slíkt fyrirkomulag þykir for- eldrum ágætt, en krökkunum lítið skemmtilegt. Og ef þau vilja fá önnur börn að leika sér við, þá verður að bjóða þeim og sækja þau og flytja. Munur eða frelsið hér. Sigríður Ella segist alltaf hafa haft þau með sér þangað til sl. haust þegar þau urðu eftir hjá pabba sín- um, sem þótti gott að hafa þau hjá sér. En auk þess er ekki mjög vinsælt í skólanum að fá mikið frí, þótt það gangi meðan þau em ekki eldri en þetta. Og hér ganga þau í Melaskólann. Þetta hefur ekki komið að sök, segir móðir þeirra. þvert á móti að hún telur. „Fyrir utan það að söngurinn er allt mitt líf, er ég svo mikill sígauni í mér að ég verð að vera á ferð- inni,“ segir Sigríður Ella. „Þegar fer að vora verð ég friðlaus, verð að komast til íslands í bjartar nætur. Núna hefi ég líka frábæra stúlku, hana Hrefnu, enda er ég að læra svo mikið. Hefi enga haft undanfarin tvö ár og þá er sífelld togstreita hvort nú eigi að skúra gólfin eða læra ópemaríur. Ég get ekki lifað öðmvísi en að koma hing- að. Vinirnir verða ennþá meira virði og verðmætamatið verður kannski annað eftir því sem maður verður eldri.“ Viðtal: Elín Pálmadóttir Stúdentavasinn frá Qlit Sérsti tímamótagjöf! GL.IT Höfðabakka 9 S. 685411 LAUGAVEGI 40 REYKJAVÍK - SÍMI 16468 Kertastjakar úr hreinum og tærum kristal frá Kosta. Sendum í póstkröfu Bankastræti 10, sími 13122 Garðakaupum. Garðabæ, sími 651812

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.