Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR18. MAl 1986
þetta fjallar Richard Halliburton í
l>ók sinni Sjömílnaskónum (Ak.
1943).
Inn í þessar deilur hefur dregizt
prófessor nokkur við Kalifomíu-
háskóla, Jonathan Ericson, sem
hefur boðizt til að rannsaka líkin
með strontíum-ísótóp-aðferð.
Ericson notaði þessa aðferð í
fyrra til að bera kennsl á lík land-
vinningamannsins Francisco Piz-
arro og hefur beðið um að fá að
gera samanburð á tönnum líkanna
í Santo Domingo og Sevilla til að
aldursgreina þær. Hann heldur því
fram að tennumar muni leiða í ljós
hvar eigandi þeirra hafi búið á yngri
ámm, þar sem þær muni gefa
bendingar um mataræði hans.
Kenningar Ericsons eiga ekki
upp á pallborðið hjá prófessor
Gaetano Ferro við landfræðideild
háskólans í Genúa, fæðingarbæ
Kólumbusar á Ítalíu. Hann segir
að skekkjumörk aðferðar Ericsons
séu 20 ár og beinin í dómkirkjunni
í Santo Domingo séu í raun og veru
jarðneskar leifar sonar Kólumbus-
ar, Diego. Diego Kólumbus erfði
titil föður síns, „aðmíráll úthaf-
anna“, og andaðist í Santo Domingo
20 ámm eftir dauða föður síns.
Ruglingurinn jókst þegar birt var
grein eftir spænskan fræðimann,
Jose de la Pena. Hann heldur því
fram að skekkjumörk strontíum-
ísótóp-greiningar séu of mikil til
að hægt sé að komast að ótvíræðri
niðurstöðu. Hann gefur í skyn að
í grafhvelfíngunni í Santo Domingo
sé aðeins hluti af beinum Kólum-
busar og þar að auki lík sonarsonar
hans. Hann hét líka Kristófer og'
lézt í Santo Domingo 40 ámm eftir
Gröf Kólumbusar í dómkirkjunni í Sevilla.
dauða Genúamannsins nafntogaða,
sem fann Ameríku.
Kenningin um að bein Kólumbus-
ar séu í báðum dómkirkjunum
byggir á tilgátu um að aðeins hluti
beinanna hafí verið fluttur úr graf-
hvelfíngunni í Santo Domingo þeg-
ar ákveðið var að senda þau til
LA NAVIDAD
Er „hinn týndi
bær“ Kólumbusar fundinn?
Hispaniola og nærliggjandi eyjar. Teikningin er
sögð eftir Kólumbus.
Havana, Kúbu, og hvelfingin var
opnuð 1795.
Mannfræðingur í Santo Dom-
ingo, Carlos Esteban Deiven, hefur
fordæmt kenninguna og kallar hana
tilraun til að kveða upp „Salómons-
dóm“. Hann heldur því fram að
engar skjallegar sannanir styðji
kenninguna um tvo legstaði Kólum-
busar og er sammála því að lík
hans hvíli í Santo Domingo á Hi-
spaniola.
Fáir gera ráð fyrir að þessar
deilur hjaðni á síðustu ámnum fyrir
afmæli Ameríkufundar Kólumbusar
1992, sem Jóhannes Páll páfi II
hefur lýst heilagt ár. De la Pena
segir: „Báðir aðilar geta afsannað
kenningar mótaðilans, en þeim
bregst bogalistin þegar þeir þurfa
að sanna eigin kenningu."
Ekki liggur því ljóst fyrir hvort
bein Kólumbusar hvíla í gamla
heiminum eða hinum nýja. A hinn
bóginn getur fengizt úr því skorið
áður en fimm aldir verða liðnar frá
Kólumbus endurfann Nýja heiminn,
hvort leyndardómar La Navidad
hafa verið afhjúpaðir og fundin sé
nýlenda sú, sem hann stofnaði í
Nýja heiminum, fimm öldum eftir
að norrænir menn námu þar land,
en urðu frá að hverfa.
GH
ALLT AÐ VERÐA UPPSELT
Hafir þú hugsað þér MALLORKAFERÐ með ATLANTIK í sumar þá
skaltu ekki draga lengur að panta. Við erum að fylla í síðustu sætin
og nú fer hver að verða síðastur að komast með í sólarlandaferð í
HÆSTA GÆÐAFLOKKI. Hringdu strax og pantaðu í síma 28388.
Brottfarardagar
25. maí uppselt/biðlisti.
15. maí júní 8 sæti iaus.
2. júlí nokkur sæti laus.
23. júlí nokkur sæti laus.
13. ágúst uppselt/biðlisti.
3. sept. nokkur sæti laus.
23. sept. 12 sæti laus
3 vikur ffá kr. 27.926,-
Á mann miðað við
4 manna fjölskyldu ••
mmmmmii
OtCDMIK
Umboö a Islandi fynr
DINERS CLUB
INTERNATIONAL
SIMAR 28388
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTIG 1, - 28580