Morgunblaðið - 18.05.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1986
37
Italía:
Baráttan hert gegn
of hröðum akstri
Tórínó. Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunbladsins.
Seldi falsaða
Chernobyl-filmu
ÍTÖLSKU vegalögreglunni hafa
nú verið gefnar frjálsari hendur
en áður í baráttunni gegn of
hröðum akstri. Auk hefðbund-
inna radarmælinga hefur lög-
reglan nú leyfi til að athuga
„svarta kassann" í vöruflutn-
ingabifreiðum og enn fremur
hraðbrautarmiða, þar sem
stimplað er á hvaða stað og tíma
bifreiðin kom inn á hraðbraut-
ina.
Franko Nicolazzi, samgöngu-
málaráðherra Ítalíu, undirritaði síð-
astliðinn þriðjudag reglugerð, sem
gefur ítölsku vegalögreglunni
frjálsari hendur í baráttunni við of
hröðum akstri, en hér á Ítalíu eru
mikil brögð að því að menn aki
langtum hraðar en leyfilegt er og
alvarleg umferðarslys skipta tugum
þúsunda á ári hveiju.
Það sem er einna athyglisverðast
í reglugerð ráðherrans er leyfi
vegalögreglunni til handa til að
athuga miða þá, sem bílstjórar fá
í hendur er þeir koma inn á hrað-
brautir. A miða þessa er tilgreint
hvar bifreiðin kom inn á hraðbraut-
ina og á hvaða tíma. Þannig getur
lögreglan reiknað út meðalhraða
þeirra bifreiða sem hún stöðvar
vegua gruns um of hraðan akstur
og hefur þannig haldbærari sannan-
ir í höndum en áður fengust með
hefðbundnum radarmælingum. Þá
mun vegalögreglan ítalska einnig
notast við athuganir á hinum svo-
kallaða „svarta kassa", sem finnst
í öllum stærri bifreiðum.
Ekki eru menn á eitt sáttir um
ágæti þessarar nýjungar, en búist
er við að lögreglan muni beita
þessum nýju aðferðum af hörku.
Fjársektir við brot á reglum um
hámarkshraða nema allt að 150
þúsund lírum (um 4 þúsund íslensk-
um krónum) og sviptingu ökuleyfis
um lengri eða skemmri tíma.
Hóm. AP.
LÖGREGLAN í Róm tilkynnti í
gær að handtekinn hefði verið
24 ára gamall Frakki fyrir að
selja tveimur bandarískum sjón-
varpsstöðvum filmu undir því
yfirskyni að hún hefði verið
tekin við kjarnorkuverið í
Chernobyl skömmu eftir slysið.
Maðurinn, Thomas Garenq, var
fyrst talinn Júgóslavi, en lögreglan
sagði síðar að hann væri Frakki.
Hann er sakaður um svik.
Sjónvarpsstöðvamar ABC og
NBC sýndu fílmuna. En það komst
fyrst upp um svikin þegar filman
var sýnd í ítalska sjónvarpinu,
RAI. Ibúar borgarinnar Trieste við
júgóslavnesku landamærin hringdu
umvörpum til sjónvarpsstöðvarinn-
ar til að kvarta yfir því að myndin
hefði í raun sýnt ýmis svæði utan
við borgina.
Haft er eftir áreiðanlegum heim-
ildarmönnum að Garenq hafi fengið
2.000 dollara (80.000 ísl.kr.) fyrir-
framgreiðslu frá hvoru sjónvarps-
fyrirtæki og 20.000 dollara
(800.000 ísl. kr.) þegar filman var
afhent.
m og stéttum
MUNSTUR NO. 1
BOMANITE er járnbent steinsteypa (S-300), sérstaklega lituð og hert á yfirborði með kvarz
hersluefni, sem eykur högg og slitstyrk. Fœst í 8 litum.
Steypan er greypt með sérgerðum verkfœrum. Með þessu móti fœst fjölbreytilegt útlit og
ending, sem erfitt vœri að ná með helium eða steinum. BOMANITE er auðleggjanlegt að
niðurföllum, stöllum og veggjum, í halla sem á jafnsléttu. Gliðnar ekki í vatnsgangi og
springur ekki í frostum. BOMANITE sameinar þannig hagkvœmni, endingu og slyrkleika
járnbentrar steinsteypu og fegurð fínnar steiniðju.
BOMANITE er sérlega hentugt í stígum og stéttum, bílastceðum og heimkeyrslum
. og f sólstofum og gróðurhúsum. BOMANITE býður því upp á sveigjanleik í skipulagi
og verulegan sparnað.
BOMANITE á íslandi sf. er einkaleyfishafi þessarar tœkni frá BOMANITE Corp. í
Bandaríkjunum. Þar sem verktakinn sér um aliar framkvœmdir og útvegun hráefnis, er
reynsla hans og sérþekking trygging fyrir faglegri vinnu. BOMANITE International Society er
féiagsskapur meir en 100 verktaka um víða veröld. BOMANITE verktakar hafa steypt milijónir
fermetra við öll veðurskilyrði. Sérhver BOMANITE verktaki hefur því aðgang að fjölda annarra
verktaka og BOMANITE Corp., um reynslu og þekkingu f einstökum tilvikum.
DCDac
OCDCD
DCDCDC
CDOCD
‘my
MUNSTUR NO. 2
MUNSTUR NO. 3
MUNSTUR NO. 4
MUNSTUR NO. 5
MUNSTUR NO. 6
MUNSTUR NO. 7
Á höfuðborgarsvæðinu
notum við eingöngu steypu
frá ÓS.
STEYPA
SEM STEIMST
BOMANITE
AKUREYRI
Magnús Glslason
Múrorameistari
Lerkilundi 28
S. 96-21726
BOMANITE BOMANITE
HAFNARFIRÐI / GARÐABA KEFLAVÍK / SUÐURNESJUM
Bjóm Ámason Einar Traustason
Múrarameistari Múraramelstari
Hjallabraut 13 Hafnargötu 48
S. 53468 S. 92-3708
Samaníle
Á fSLANDI
SMIÐJUVEGI 11 e
S. 641740
midas
Gangi þér vel á BOMANUE