Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 38
I eltingarleik við utanrikisráðherra eða Lí fsrey nslusaga frá Fes ÞEGAR ég sat í blaðamanna- stúkunni í Ráðstefnuhöllinni í Fes í Marokkó og horfði á utanríkisráðherra Arabaríkj- annna og sendinefndir, örygg- isverði og fána og hlustaði á forseta Arababandalagsins, Chadli Klibi flytja innantóma ræðu, hvarflaði að mér sú hugsun, hvort vesenið við að fá að sitja þama, hefði verið fyrirhafnarinnar virði. Að vísu gat ég virt fyrir mér Hassan Mansour, utanrík- isráðherra Libýu, stuttan mann og hnellinn með fallega sköllótt höfuð. Ég gat sömu- leiðis horft á fylupokana frá Saudi Arabiu og fallegu strák- ana frá Óman, sem voru í lit- fegurri búningum en aðrir. Og hvað með það? Síðustu þrír dagar höfðu farið í stöðugar ferðir í upplýsingadeildina í Fes, þar sem herra Boukanan hafði beðið um staðfestingar á hver ég væri, hvemig stæði á því, að ég hefði I áhuga á þessum fundi, hvemig blað Morgunbiaðið Reykjavík Iceland væri. Þegar við Boukanen höfðum gefíst upp á hvort öðm, tóku við leigubílaferðir til bæjarins Meknes, 60 km frá Fes. Þar átti að vera svokölluð miðstöð blaðamanna. Eins og áður hefur komið fram í pistli um fundinn var blaðamönnum ekki hleypt til Fes þessa daga. En fyrir einskæra heppni hafði ég fengið inni á hótel Fes áður en fundurinn hafði verið ákveðinn. Þar áttu svo flestar sendinefndimar að búa, meðal annars sú sýrlenzka — ef hún kæmi — og sú lýbíska. Hótel- ið hafði verið rýmt af ferðamönnum og hótelstjórinn hafði reynt að út- skýra fyrir mér í mestu vinsemd, að ég yrði að flytja. Blaðamenn mættu ekki vera í Fes og þó allra sízt þama á hótelinu. Þetta hlyti ég að skilja. Ég sagðist skilja að hann væri í erfíðri aðstöðu. Á hinn bóginn yndi ég mér prýðilega, þetta væri huggu- legt hótel og gott starfslið og ég myndi ekki gera flugu mein. Þessar samræður okkar Zekri hótelstjóra f stóðu lengi og hvikaði hvorugt frá sínu. Loks var ákveðið að við skyldum . tala saman daginn eftir, ég hlyti að skilja að hótelstjómin hefði feng- ið sín fyrirmæli og það væri ekkert persónulegt við þetta. Nema síður væri. Ég sagði honum glöð í bragði að ég myndi hvergi fara og hann yrði að láta vopnaða hermenn bera mig út. Herra Zekri fómaði höndum og spurði hvort íslendingar væru allir svona þrjóskir og svona yfír- máta kurteisir. Ég bar töndum mín- um vel söguna. Daginn eftir þeyttist ég enn til Meknes og í þijá tíma, þrasaði ég á þeirri kurteisku sem maður verður að nota við araba, ef maður ætiar að fá einhverju framgengt. Án árangurs í bili. Leigubílakostn- aðurinn var orðinn geigvænlegur. Það leit ekki út fyrir, að neinar þær staðfestingar eða skeyti sem voru sendar, gætu sannfært stjómendur miðstöðvarinnar. Ég kom gijótfúl á Hótel Fes um kvöldið, skundaði inn í kaffíteríuna og pantaði mér rósa- vín og salat. Fundurinn átti að byija klukkan fímm daginn eftir og ég var engu nær því en þegar ég byijaði að vafstra í þessu að komast á fiindinn, hvað þá að ég myndi komast í návígi við neina sem skiptu máli. Þjónninn Housan færði mér rós með rósavíninu og það léttist enn á mér brúnin, þegar ég kom upp í herbergi 310 og sá, að alit var þar með felldu og engin frekari skilaboð biðu frá herra Zekri. Ég ákvað að gera eina tilraun enn og hringdi í Ben Yonan í Meknes sem hafði haft með þetta endalausa mál mitt að gera. Og viti menn. Staðfestingin var þá bara löngu komin. Nú skyldi ég bara skreppa eina ferðina enn til Meknes morguninn eftir og sækja skilríkin mín og muna að taka far- angurinn minn, þvi það mættu sem sagt engir biaðamenn vera í Fes. I býtið morguninn eftir dreif ég mig af stað. Ben Yonan fagnaði mér eins og gömlum vini. Það var alveg óskiljanlegt, hvemig þetta hafði getað gerzt, en einhveijir starfsmenn höfðu ekki áttað sig í tæka tíð. Hann var harmi lostinn yfír þessu klúðri, en hann var að minnsta kosti búinn að panta fyrir mig herbergi í Meknes. Eg sagði honum, að því miður hefði ég steingleymt að taka dótið og nú þætti mér sem sagt vænt um, elsku vinur, að fá skilríkin og svo skyldum við sjá til. Þegar ég kom aftur til Fes var ég rétt eina ferðina enn stöðvuð; sendinefndimar voru að streyma að og allir ferðamennimir fluttir burtu, stólamir við sundlaugina og útigrillið hafði einnig verið fjarlægt. En inn komst ég og klukkan var að nálgast tólf á hádegi, það var miðvikudagur og fundurinn átti að byija klukkan fímm. Til vonar og vara skauzt ég upp í herbergi. Það leit alténd ekki út fyrir að ég yrði borin út þann daginn. Eg tók blað með mér niður í kaffístofuna og pantaði mér te og lét sem ég væri niðursokkin í að lesa. Herra Zekri gekk hjá. Hann leit líka í aðra átt. Sennilega var gengið í gildi þegjandi samkomulag. Klukkan fímm fór ég út að Ráð- stefnuhöllinni. En því miður. Fund- urinn myndi byija kiukkan sex. Ég tyilti mér á tröppur og beið. Allar götur höfðu verið rýmdar, fánar blöktu við hún, stressaðir lögreglu- þjónar og hermenn á hveiju strái. Klukkan sjö kom blaðamannarútan frá Meknes og æstir blaðamenn og sjónvarpsmenn kollsteyptust út til að verða fyrstir að mynda það sem var reyndar ekki mætt á svæðið: utanríkisráðherrahópinn. Margir blaðamannanna voru öskureiðir, einkum þeir evrópsku. Ég sagði einhveijum sem ég hitti að síðasta lögga hefði sagt að fundurinn byij- aði um átta. Öllum blaðamönnunum var því boðið inn, garðurinn blómum skrýddur og lýstur með marglitum ljósum, og svo var te og kaffí á boðstólum eins og hver vildi. Klukkan hálf átta fer að komast hreyfíng á. Sírenuvæl og öryggis- verðir þyrpast að og allir ljósmynd- aranir og sjónvarpsmennimir tróð- ust hver um annan þveran en lang- mestur var þó áhuginn á að ná myndum, þegar Hassan Mansour frá Líbýu kom til fundarins. Hann bandaði blaðamönnum frá sér og öryggisverðir vom allt í kringum hann. Svo vorú allar sendinefndimar komnar — nema sú sýrlenzka og það var enginn mættur frá Norður- Jemen heldur. Hvað sem þvi nú leið, herra Klibi flutti áðumefnda ræðu og voru þar línur lagðar: ekki yrði rætt Líbýumálið eitt sér eins og Gaddafí hafði krafíst. Mansour kveikti sér í sígarettu og horfði fram fyrir sig, svipbrigðalaus. Sjö auðir stólar vom áberandi, þar hafði Sýrlendingum verið ætlað pláss. Klibi virtist biðla meira til Sýrlendinga en hann fordæmdi Bandaríkjamenn vegna árásar þeirra á Líbýu. Hann útskýrði vandlega fyrir viðstöddum, hvað Sýrlendingar byggju við mikla erfiðleika vegna yfirvofandi árásar ísraelskra síonista á þá og innlimun- ar Golan-hæða í Israel á sínum tíma. í fundarhiéi hitti ég hollenzkan útvarpsmann, Jan Keulen, og við tókum tal við Antonio nokkum frá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.