Morgunblaðið - 18.05.1986, Síða 39

Morgunblaðið - 18.05.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1986 39 Spáni og vorum að velta fyrir okkur hvað vekti fyrir forsvarsmönnum Arababandalagsins. Ksulen sagðist vera hissa á að Sýrlendingar kæmu ekki, þar sem það hefði gengið afar hratt fyrir sig að skipuleggja þenn- an fund — þótt hann væri með afbrigðum illa skipulagður — og þó hefðu allir þust á svæðið. Þó að það væri heyranlegt að þeir vildu tala gætilega og ekki hvað sízt Saudar tregir að taka undir nokkra gagnrýni á Bandaríkin. * Ihliðarsölum voru ráðherramir að tala saman. Klukkan varð tíu og svo ellefu. Garðurinn var baðaður í blómum og ljósum. Gjörvulegur maður kom og heilsaði upp á Anton- io. Hér var kominn herra Ramadan Barr, einn úr líbýsku sendinefnd- inni. Hann hafði unnið í sendiráði Líbýu í Madrid. Mér þótti bera vel í veiði og spurði hvort hann hefði heyrt ís- lands getið og hann hló við: „Ég hefði nú haldið það. Ég hef meira að segja millilent í Keflavík. Ég var á leiðinni til náms í Bandaríkjunum með átján félögum okkar. Þetta var í fýrsta skipti sem ég sá snjó. Ég gleymi því aldrei." Eftir að við höfðum skipzt á nokkrum orðum féllst herra Ramadan á að skila kveðju til Mansours, en hann ítrekaði að það þýddi ekki að hugsa um viðtal. Ég sagði það myndi ekki skaða að biðja að heilsa. Skömmu seinna rölti ég svo þessa fáu metra heim á hótel og tók tali vingjamlegan mann í móttökunni. I hvaða herbergjum Líbýumennimir byggju? Hann hristi höfuðið. Hann var bundinn þagna- reiði. Ég rétti honum litlu blokkina mína; þar með hefði hann ekkert sagt. Herbergi 428-432. Takk fyrir. Morguninn eftir fór eins og þytur um hótelið: Sýrlenzka nefndin með Farouk A1 Sharie í broddi fylkingar er komin. Ástæðan fyrir að Sýrlend- ingar vom ekki hér í gær er sú að það varð einhver truflun á sam- göngum. Sú skýring fannst mér ekki vitlausari en hver önnur og bera vott um húmor. Hins vegar var ljóst að engir fundir yrðu fyrr en um kvöldið og ég heyrði því fleygt, að sýrlenzku og líbýsku fulltrúamir ætluðu að nota daginn til að ræðast við f svít- um sínum og um hádegisbilið yrði móttaka hjá Hassan kóngi. Ég sá því engan tilgang í að hanga á hótelinu og fór niður í gömlu Fes sem er kapituli út af fyrir sig. Ég kom upp á Hotel Fes um hádegisbilið, klyfjuð plastpokum, og geng þá beint í flastið á herra Mansour, utanríkisráðherra Líbýu, þar sem hann er að leggja af stað til að hitta kónginn. Ég stillti mér upp fyrir framan ráðherrann og bauð honum flaust- urslega góðan dag. Samstundis fann ég að tveimur byssum var beint að hausnum á mér. Næstu sekúndubrot em harla ólýsanleg, en mér hmtu af vömm spekiorð sem hver Snorri hefði mátt vera full- sæmdur af: Æ, ráðherra, ekki skjóta mig . . . Einhvem veginn tókst mér að stynja því upp hvort ráðherrann hefði fengið kveðjuna frá mér. Já, herra Ramadan hafði skilað henni. Hvort hann vildi kannski segja við mig eitt orð um kvöldið, eftir að fundinum væri lokið? Frúirr er frá íslandi, frá Reykja- vík, sagði Mansour og ég fann að byssumar þrýstu ekki lengur að höfðinu á mér. „En ég sagði strax að ég ætlaði ekki að tala við blaða- menn og það á alls ekki að vera hægt að koma svona að mér hér á hótelinu. Eitt orð samt? Ég hef náttúrlega aldrei hitt blaðamann frá Reykjavík, og þegar ég fer að hugsa málið, því ekki örfá orð? Komið upp til okkar eftir að fundin- um er lokið og við sjáum til hvort ég hef fáeinar mínútur." Öryggisvörðunum var nú ofboðið og sópuðu ráðherranum inn í bílinn. Ég skjögraði inn í kaffíteríuna og fann að fætumir á mér vom í sér- kennilegu ástandi. Housan kom hlaupandi og spurði hvað mætti bjóða mér. Ég bað um kaffí og stór- an koníak. Eg hefði ekki haldið að ég gæti orðið jafn hrædd og þessi sekúndubrot með byssumar við höfuðið á mér. Seint og um síðir hófst svo seinni „fundurinn" í Ráðstefnuhöllinni. Af öllu mátti ráða að engin samstaða hafði orðið um kröfur Líbýu: „Við hittumst einhvem tíma eftir Ramadan" var sagt í lokatilkynn- ingunni. Sýrlenzki utanríkisráð- herrann sat og hjalaði við starfs- bróður sinn frá írak. Fyrir fáeinum vikum höfðu Sýrlendingar hengt opinberlega í Damaskus hryðju- verkamann frá írak. Saudamir yrtu ekki á sýrlenzka ráðherrann og utanríkisráðherra Túnis spjallaði aðeins við marokkanskan starfs- bróður sinn. Fundurinn hafði sem sagt farið út um þúfur og trúlega yrði nú herra Mansour í svo vondu skapi að hann myndi varpa mér á dyr þegar ég bankaði upp á. Sennilega tæki ekki einu sinni að reyna það. Eftir að fundurinn hafði staðið í örfáar mínútur var honum slitið, blaðamönnum, öðrum en mér var smalað í einum grænum upp í rút- una til Meknes og ég fór upp á hótel eina ferðina enn. Eg ýtti á hnapp númer íjögur í lyftunni áður en kjarkurinn brygðist mér. Oryggisverðimir komu þjótandi en hafa líklega munað eftir mér, svo að ég fékk að banka upp á númer 428 og herra Ramadan kom til dyra. „Æ, eruð það þér, sagði hann. Ráðherrann er í næsta herbergi, svo er hann að fara í kvöldverðarboð eftir örstutta stund, jú, en ég býst við að hann tali við yður, fyrst hann sagði þetta um hádegið. Við Líbýu- menn reynum að halda það sem við segjum." Oryggisverðimir voru komnir aftur og stöðugt með byssumar á lofti. Ég sagði herra Ramadan að ég væri byssuhrædd með afbrigðum og hvort þeir vildu ekki frekar taka töskuna mína og leita í henni. Því að ég ætlaði nefnilega að hinkra eftir herra Mansour. Höfuðhrejrfíng frá Ramadan nægði. Það leið æði stund og við vomm niðursokkin í líflegar samræðum um ferðalög, þegar glaðhlakkaleg rödd að baki mér segir: „— Ja, það er frúin frá íslandi. Afsakið að ég var seinn fyrir. Ég kann að meta fólk sem sýnir þolin- mæði. Hins vegar vildi ég miklu frekar tala um skák en stjómmál af því að þér emð frá íslandi og ég og synir mínir höfum svo gaman af að taka skák. En við skulum sjá. Hvaða spurningar höfðuð þér helzt í huga?“ Hann bandaði öryggisvörðunum frá og við hófum spjall það sem hefur birzt áður hér í blaðinu og var það hið eina sem hann talaði við blaðamenn og við kvöddumst með virktum og vonaryfírlýsingum að sjást seinna í Líbýu. Samt hafði þetta allt eiginlega byijað með samskiptum mínum klukkan átta á morgnana við mar- okkanskan lögregluforingja. En það væri efni í annað vers. Texti/Jóhanna Kristjónsdóttir heimili landsins! Hugheilar þakkir til vina, barna og vancia- manna fyrir óg/eymanlegan dag 8. mai sl., i tilefni 70 ára afmœla okkar. Sérstakar þakkir til vina okkar viÖ Langholtskirkju, safnaÖar- félaga ogkórs, sóknarnefndar og samstarfsfólks fyrir veglegt samsœti og rausnarlegar gjafir. Víst voru gjafir ykkar góÖar, en dýrmœtust þó vinátta ykkar og hlýhugur. GuÖ oggcefa fylgi ykkur RagnheiÖur Þórólfsdóttir, Kristján J. Einarsson. /Miklar sviptingdr eru í umhve/fi flestra fyrirtœkja er gera kröfur/til œðstu stjór/ienda þeirra og stjór\ a timum Hver kannq'st ekki við eitýeða fleiri eftirtalinna/atriða: • Samkeppni við innfluttan varning hefur aukist stórlega. • Það reýnist sífellt erffðara að standa sig á alþjóðamarkaði. • Hagnáður hefur mi/tnkað og fyrirtækið á/því í erfiðleikumv • Gengi erlends lánsfjár er háð mikilli óvissu. • Þqo reynist sífell/erfiðara að finna hœfa stjórnendur í œðstu síjórnunarstörf/n, o. s. frv. flestum fyrir/œkjum er það hlutvenk stjórnar að mótd og fylgja eftir stefnu fyrirtœkisins þannig að/riún stuðli að vexfí, stöðug- leika í reksfri og fyrirtækið njóti þar með eðlilegs hdgnaðar. / / / NámskeiÓið gefur mjög gott yfirlit yfir starfssvið/tjórnarmanna og þœrppplýsingar og kennitplur sem nauðsynfegar eru til að skoða/stöðu fyrirtœkisins hyerju sinni. Námskeiðið gefur stjórharmönnum fyrirtœkja jafnframt tækifœ'ri til að fá nýjar og ferskar hugmyndir frá Norðurlöndum um þ'að hvernig stfórnarmenn geta sinnt'því hlutverki að ýtjórna fyrirtækjum 'ínum af meiri fagme/nsku. / Efni námskeiðsihs er í aðalatriðum: Hriðj- Setning: Þórður EHðjónsson, formaÖur SFI. Formáli að námskeiðinu • /Verkefni kynnt og/unnin • Stjórnir fyrirtækja á 9. áratugnum • Meginstarfssvið/tjórnar • Hlutverk stjórnar gagnvart stjórnendum og tengdúm aðilum/verkefnum • Lagaleg ábyrgð eins/akra stjórnarmanna • Siðferðileg ábyrgð stjórnarin/iar • Þóknun fyri/stjórnarstörf • Þegar stjórnir og eigendur/draga sig í hlé —Jara á eftirlaun • Kynning á niðurstpðum verkefna • /yrirspurnir—hádegisverður Leiðbeinendur: Kjéld Bundgaard/Verkfrœðingur frá Danmarks Tekniske ojskole 1957 og fo/stjóri hjá Flexplan-Gruppen. Preben Juul Kfcer. Löggiltur endurskoðandi, fyrrverandi formaður sambqnds löggiltra endurskoðenda í Danmörku og fyrrverandi ritstjóri Revision og Regenskabsvœsen. Laue Trabérg Smidt. Forstjóri Hándvœrksrádet, systur- samtaka Lqndssambands iðnaðarmanna. Jafnframt á hann sæti í Monopjrádet og Exportkreditrádet. Henrik Möller. Framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtœkisins AIM Ma rkedsfori ngs rádgivning. Baldur Guðlaugsson. Hœstaréttarlögmaður. 'íini og staður: Mánudagur 26. maí kl. 10.00-18.00 og þriðjudagur 27. maí kl. 09.00-12.30 í Hótel Borgarnesi. Þátttaka tilkynnist í síma 62 10 66. Stjórnunarfélag íslæds *Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.