Morgunblaðið - 18.05.1986, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAU986
41
laga á Búnaðarþingi, um stofnun
búnaðarskóla á Skriðuklaustri.
Samþykkti þingið að koma á fót
búfræðslunámskeiðum, og var eitt
slíkt haldið þar næsta vetur, en
ekki varð meira úr þeirri starfsemi.
í ráðherrasamþykktinni frá 1972
er getið ýmissa nýmæla í notkun
Gunnarshúss. Meðal annars var
áætlað að koma þar upp „aðstöðu
fyrir listamann, fræðimann eða vís-
indamann, til skammrar dvalar á
staðnum". Gististaða hefur verið
fyrir hendi í húsinu, en lítið verið
notuð, enda aldrei auglýst eða
kynnt á annan hátt. Þá var ráðgert
að sérstakt herbergi eða safndeild,
„helguð frú Franziscu og Gunnari
skáldi Gunnarssyni", skyldi vera í
húsinu, „aðgengileg til skoðunar
fyrir almenning", ásamt öðrum
hlutum hússins. Er það ítrekað í
samþykktinni frá 1979, og verður
því að skoðast í fullu gildi, þótt
ekki hafi enn orðið af framkvæmd-
um í þá átt. Loks var gert ráð fyrir
aðstöðu í húsinu fyrir ýmis félaga-
samtök á Austurlandi.
Tillaga um
frœðasetur
Tillaga um „fræðasetur" á
Skriðuklaustri var sett fram haustið
1985 af þeim Helga Hallgrímssyni
safnverði á Akureyri (frá Droplaug-
arstöðum í Fljótsdal) og Þórarni
Lárussyni tilraunastjóra. Hug-
myndin var kynnt þingmönnum
Austurlands stuttu seinna, og tóku
þeir Helgi Seljan og Jón Kristjáns-
son hana upp sem tillögu til þings-
ályktunar (195. mál, 180. löggjaf-
arþings), en hún hlaut ekki af-
greiðslu.
Samkvæmt tillögunni skal hlut-
verk fræðasetursins vera: „almenn
þekkingaröflun um mannlíf, menn-
ingu og náttúrufar á Austurlandi,
þar með talið saga landshlutans,
þjóðhættir, þjóðtrú, ömefni, bók-
menntir og listir. Sérstök áherzla
skal lögð á samskipti mannlífs og
náttúru í ljósi sögunnar, með raun-
hæfa framtíðarskipan þeirra mála
fyrir augum. Fræðasetrið skal leit-
ast við að safna skrifuðum og prent-
uðum heimiidum, er varða ofan-
greind fræði austantands, og koma
upp sem fullkomnustu bókasafni."
Leitast skal við að koma upp vinnu-
stofum fyrir þær fræðigreinar, sem
einkum hafa verið stundaðar á
Austurlandi. „Er svo til ætlast, að
lífsviðhorf eða heimspeki Gunnars,
sem birtist í skáldverkum hans og
öðrum ritum, verði haft að leiðar-
ljósi við alla starfsemi fræðaseturs-
ins.“
Starfsemin skal fyrst um sinn
einkum miðast við það, „að skapa
fræðimönnum aðstöðu til dvalar og
rannsókna", ogþví skal setrið ,jafn-
an hafa til reiðu, eina meðalstóra
íbúð fyrir fræðimenn og fjölskyldur
þeirra, sem dvelja vilja á staðnum",
um lengri eða skemmri tíma, og
nokkur einstaklingsherbergi.
„Til þess er ætlast, að íslenzka
ríkið leggi fræðasetrinu til hús-
næði“, þ.e. Gunnarshús. Verði það
afhent setrinu til fullra umráða á
aldarafmæli Gunnars vorið 1989.
Húsinu fylgi lóð eða landskiki, er
miðist við að skapa því eðlilegt og
fagurt umhverfi.
Stofnun fræðasetursins hugsa
tillögumenn sér að geti farið þannig
fram, að áhugamönnum verði boðið
að gerast stofnfélagar setursins,
með því að leggja fram gjafir (stofn-
framlög) í formi bóka, muna eða
annars sem að gagni má koma við
uppbyggingu þess, eða lágmarks-
upphæð í peningum. Má geta þess,
að setrið hefur þegar fengið tilboð
um allstórt bókasfn, þjóðfræðisafn
ogýmis tæki og húsgögn.
Tilraunastöð landbúnaðarins,
sem rekin er á Klaustri, telja flutn-
'ingsmenn tillögunnar, að geti
tengst fræðasetrinu, „eða jafnvel
fallið undir starfsemi þess, er tímar
líða fram“. Til þess þyrfti þó að
afmarka hlutverk hennar betur og
gera hana óháðari höfuðstöðvunum
í Reykjavík.
„Fræðasetrinu á Klaustri er ætl-
að að bæta úr brýnni þörf lands-
hlutans (Austurlands) fyrir aðstöðu
til fræðilegrar iðkunar, sem heita
má að sé hvergi fyrir hendi nú sem
stendur, þótt nokkur vísir sé að
slíku í skjalasafninu á Egilsstöðum.
Nær allar rannsóknir og aðrar
fræðiiðkanir, sem viðkoma Austur-
landi, verða því að fara fram í
öðrum landshlutum, aðallega í
Reykjavík, þar sem þær skapa fólki
vinnu og gefa ýmsan annan af-
rakstur. Hinsvegar hafa Austfirð-
ingar lítil sem engin áhrif á fram-
kvæmd þeirra og má kallast gott
ef þeir fá einhvern tíma að sjá
niðurstöður. Sjálfstæði landshlut-
anna í rannsóknum og fræðum, er
varða þeirra eigin mannlíf eða nátt-
úru, hlýtur að vera keppikefli, enda
stór þáttur í almennu sjálfstæði nú
á tímum, auk þess sem allt fræða-
starf skapar ný atvinnutækifæri og
er því ekki ómerkur þáttur í marg-
Umtöluðu jafnvægi í byggð lands-
ins.“
Sameiningartákn
Ýmsir landshlutar eiga sína sér-
stöku sögustaði, sem íbúar þeirra
eru bundnir tilfinningaböndum, líta
á sem sameiningartákn og leggja
metnað sinn í að styðja og efla á
allan hátt. Þannig er Skálholt
Sunnlendingum, Hólar Norðlend-
ingum og Hrafnseyri fyrir Vest-
firðinga. Í seinni tíð hefur farið
fram margvísleg uppbygging og
endurreisn á þessum stöðum, og
þeir hafa á ýmsan veg orðið menn-
ingarsetur fjórðunganna að nýju.
Austurland hefur til þessa ekki
getað státað af neinum sérstökum
stað, er skipi svo veglegan sess, en
fáir eða engir staðir í fjórðungnum
hafa jafn góða möguleika á að
öðlast hann, eins og höfuðbólið
Skriðuklaustur í Fljótsdal, vegna
sögulegrar hefðar, náttúrufegurð-
ar, veðurblíðu og hagstæðrar legu
í miðju Austurlandskjördæmi, þar
sem einnig má ætla að krossgötur
verði í framtíðinni.
Með uppbyggingu fræðaseturs á
Skriðuklaustri er stefnt að því að
efla menningarlegt gildi staðarins,
og fá honum framtíðarhlutverk, er
sæmi sögu hans og þeim stórhug
og bjartsýni, er Gunnar skáld sýndi
með byggingu hússins fagra, jafn-
framt sem heiðruð er minning
skáldsins, sem hæst hefur borið
hróður Austurlands og lengst út
fyrir landsteinana.
Því skorum við undirritaðir á
Austfírðinga, hvar sem þeir eru
búsettir, að veita þessu máli liðsinni
sitt, í smáu eða stóru, og tryggja
þannig að Austurland eignist sitt
menningarsetur og helgistað.
Á hvítasunnu (18. maí), 1986.
Bjarni Guðjónsson prestur, Val-
þjófsstað.
Egill Jónsson alþingismaður,
Seljavöllum.
Eysteinn Jónsson fyrrverandi ráð-
herra.
Eyþór Einarsson grasafræðingur.
Guttormur Þormar hreppstjóri,
Geitagerði.
Halldór Ásgrímsson ráðherra.
Halldór Sigurðsson form. Safna-
stofnunar Austurlands.
Helgi Seljan alþingismaður.
Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maður.
Jón Kristjánsson alþingismaður.
Jónas Pétursson fyrrverandi al-
þingismaður.
Magnús Einarsson banka-
útibústjóri, Egilsstöðum.
Ragnheiður Helga Þórarinsdótt-
ir
borgarminjavörður.
Sigurður Blöndal skógræktarstjóri.
Sigurður Óskar Pálsson forstöðu-
maður Héraðsskjalasafns Austfirð-
inga.
Sveinn Guðmundsson form. Bún-
aðarsambands Austurlands.
Vilhjálmur Einarsson skólameist-
ari, Egilsstöðum.
Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrver-
andi ráðherra.
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri, Akureyri.
Þór Magnússonþjóðminjavörður.
Þorsteinn Sveinsson kaupfélags-
stjóri, Egilsstöðum.
Höfundar á varpsins eru Helgi
Haligrímsson safnvörðurá Akur-
eyri ogÞórarinn Lárusson til-
raunastjóri á Skriðuklaustri.
Morgunblaðið/H.Hfj.
„Dalbotninn er iðjagrœn, rennislétt grund, þar sem árnar liðast um svarta
sanda.“ Séð inn í Fljótsdal frá Brekku.
Spanspennar
Breyta 12VDC í 220VAC. Þannig er hægt að nota
220 volta tæki og verkfæri þar sem ekki er aðgang-
ur að 220V rafmagni.
Tilvalið fyrir sumarbústaði (td. með vindmyllu), fyrir
verktaka, bændur, bátaeigendur (4VDC í 220VAC)
og fleiri.
Taktu ryksuguna, sjónvarpið eða borvélina með í
sumarústaðinn.
Skipholti 9.
Símar 24255 og 622455.
ISUPER
llNVERTER
Eins og undanfarin ár mun Ferðskrifstofa ríkisins
bjóða upp á ferðir um landið í sumar undir leiðsögn
fróðra og reyndra manna. Farið verður um helstu
héruð landsins, svo fólki gefist kostur á að skoða
fagra og merka staði, rifja upp atburði og sögur
sem tengjast þeim og njóta náttúru landsins
áhyggjulaust um mat, næturstað og leiðir.
HRINGFERÐ UM LANDIÐ
10 dagar. Brottfarardagur 4. júlí.
f BYGGÐ OG ÓBYGGÐ
10 dagar. Brottfarardagar 18. júlí og 8. ágúst.
ISLAND I HNOTSKURN
Snæfellsnes, Vatnsfjörður og Látrabjarg — 6 dagar.
Brottfarardagur 11. júlí.
JOKLAR, HRAUN OGFOSSAR
6 dagar. Brottfarardagar 8. ágúst og 22. ágúst.
FJOLLOG FIRÐIR
6 dagar. Brottfarardagur 1. júlí.
Gist í þægilegum herbergjum á Eddu-
hótelum. Hálft fæði er innifalið í verði.
Svefnpokagisting möguleg.
TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI í ALLAR
FERÐIR.
gu
FRÍ
Feróaskrifstofa Ríkisins
i Skógarhlíð 6, Reykjavík, sími 25855.