Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JOnI 1986
1) sjúklingar
2) ófaglærðir, erfiðisvinnumenn, bílstjórar
3) skrifst.- og versl.menn, póst- og lögreglumenn
4) iðnaðarmenn
5) háskólamenntaðir
6) atvinnurekendur
7) aðrir
Hvernig' er búið að öryrkjum
og sjúklingum hér á landi?
eftir Ólaf Ólafsson
Inngangur
í heilsufarsrannsókn Hjarta-
vemdar á Stór-Reykjavíkursvæðinu
er einnig leitað upplýsinga um
efnahags- og félagslegan aðbúnað,
s.s. um bifreiðaeign o.fl. Við hönnun
rannsóknarinnar var talið að fram-
angreindar breytur gæfu mun betri
upplýsingar um t.d. efnahag við-
komandi en upplýsingar um tekjur.
I þessari grein, sem er tekin úr
bókinni Efni og heilsa (handrit), er
skýrt frá breytingum er urðu á
högum 1420 46—61 árs karla á
árunum 1967/68 og 2289 karla
1979/81. Hópnum er skipt í 7 hópa
(starfsstéttir) en í einum hópnum
voru þátttakendur sem töldust til
sjúklinga og/eða öryrkja. Sameigin-
legt með þeim er féllu í síðasta
hópinn var að þeir höfðu ekki fasta
vinnu enda verið langtímum saman
frá vinnu þó að þeir væru allir vel
rólfærir.
Allir höfðu þeir legið í sjúkrahúsi
einhvem tímann og um 90% þeirra
voru undir læknishendi eða tóku lyf
reglulega. I úrtaki því sem hér er
sýnt var 31 sjúklingur eða öryrkjar
en alls voru yfir 70 í þessum hóp.
Niðurstaða
Eigendur húsnæðis: Eins og fram
kemur á mynd 1 búa yfír 90%
starfsstétta í eigin húsnæði á síðara
tímabilinu en tæp 40% sjúkling-
anna. Yfirleitt hafa allar stéttir
bætt mjög hag sinn á árunum frá
1967/68 og er munurinn ekki leng-
ur marktækur milli stétta en hagur
sjúklinga hefur ekki batnað.
Ibúðarrými undir
20m2 áíbúa
Mun færri búa í svo litlu hús-
næði, sem er álitið þröngt samkv.
upplýsingum Húsnæðismálastofn-
unar, á síðara tímabilinu eða innan
við 10% en á því fyrra og er munur
milli stétta ekki lengur marktækur.
Hagur öryrkja/sjúklinga er mun
þrengri en nær 30% búa í svo
þröngu húsnæði.
Bílaeign
Nær 90% eiga bifreið á síðara
tímabilinu og hefur hagur þeirra
allra stórbatnað í þessu tilliti. Jafn-
framt er nú sáralítill munur á milli
stétta nema ófaglærðir skera sig
nokkuð úr. Aftur hefur hagur ör-
yrkja/sjúklinga heldur versnað frá
árinu 1967/68.
Með nokkrum rökum má fullyrða
að öryrkjar hafa jafnvel meiri þörf
fyrir að eiga bifreið því að margir
þeirra eiga erfítt með að nýta sér
almenningsvagna.
Legið í sjúkrahúsi
í stuttri grein verður ekki farið
nánar út í að lýsa heilsufari þátttak-
enda en tíðni sjúkrahúslegu er
allnokkur mælikvarði á heilsufar
fólks.
Athyglisvert er að nokkuð hafa
sjúkrahúslegur aukist meðal allra
stétta en þó langmest meðal ör-
yrkja/sjúklinga á tímabilinu.
Niðurstaða
Yfirleitt hafa starfsstéttimar
bætt mjög aðbúnað sinn á tímabil-
inu 1967/68—1979/81 nema hagur
ötyrkja/sjúklinga hefur ekki batn-
að. Þeir frísku virðast komast mun
betur af en þeir veiku í velferðar-
þjóðfélaginu. Mikið er rætt um fá-
tækt þessa dagana og án þess að
gera því máli frekari skil í stuttri
blaðagrein er þó (jóst að öryrkjar
og sjúklingar eru fátækari en
aðrir og jafnvel fátækari en áð-
ur.
Þetta sýnir einnig að þeir veiku
leita meira til stofnana ef ekki er
búið vel að þeim. Við búum vel að
stofnunum enda hefur bið eftir
stofnanavist styst.
Höfundur er landlæknir.
t
Félagslegur aðbúnaður og heilsufar
7 starfsstéttir karla 46-61 árs á Stór-Reykjavíkursvæðinu
1967/68 og 1979/81.
, Eigandi íbúðar:
1) sjúklingar
2) ófaglærðir, erfiðisvinnumenn, bílstjórar
3) skrifst,- og versl.menn, póst- og lögreglumenn
4) iðnaðarmenn
5) háskólamenntaðir
6) atvinnurekendur
7) aðrir
Félagslegur aðbúnaður og heilsufar
7 starfsstéttir karla 46-61 árs á
- Stór-Reykjavíkursvæðinu 1967/68
og 1979/81.
” íbúðarrými undir 20 m2:
□ 1967-68
□ 1979-81
1) 2) 3) 4) 5) 6) 1)
1) sjúklingar
2) ófaglærðir, erfiðisvinnumenn, bílsíjórar
3) skrifst.- og versl.menn, póst- og lögreglumenn
4) iðnaðarmenn
5) háskólamenntaðir
6) atvinnurekendur
7) aðrir
allir
Frá Vestur-Berlín skrifar 36 ára
Breti, sem þar er búsettur. Hann
vill skrifast á við íslenzkar konur.
• Áhugamálin eru á sviði tónlistar:
Michael Fairhead,
Postfach 1911 66,
1000 Berlin (West) 19,
West Germany.
Sextán ára japönsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Yoshiko Miura,
1-26 Shinkotoni 6jo 9 chome,
Kita-ku,
Sapporo,
Hokkaido,
001 Japan.
Sextán ára sænsk stúlka með
áhuga á tónlist o.fl.:
Petra Hörnquist,
Trombv. 4,
175 38 Járfálla,
Sweden.
Frá Malasiu skrifar frímerkja-
safnari, sem vill skrifast á við 18-20
ára stúlkun
Joseph L. T. Yong,
P.O. Box 1305,
90008 Sandakan,
Sabah,
East Malaysia.
Sextán ára japönsk stúlka með
áhuga á matargerðarlist o.fl.:
Yumi Mizushima,
4-1 Satsukigaoka 1-chome,
Chiba City,
281 Japap.
Tólf ára brezk stúlka með mikinn
íþróttaáhuga:
Joanna Witt,
106 Sandbanks Road,
Lower Parkstone,
Poole,
Dorset,
BH14 8DA England.
Frá Bandaríkjunum skrifar karl-
maður, sem getur ekki um aldur
né áhugamál:
Joseph Ferreira,
7 Cushman Avenue,
East Freetown,
Massachusetts 02717,
U.S.A.
Sextán ára Ástralíumær með
áhuga á íþróttum, ferðalögum, tón-
list o.fl.:
Gayle Bridge,
7 Salerno Street,
Forestville 2087,
Sydney N.S.W.,
Australia.
Frá Ghana skrifar 18 ára piltur
með áhuga á íþróttum • og bóka-
lestri:
Komeng Asiamah,
P.O.Box 335,
Agona Swedru,
Ghana.
Frá Sviss skrifar karlmaður sem
getur ekki um aldur, en helztu
áhugamálin eru frímerkja- og póst-
kortasöfnun:
Andrew Giauque,
Líingistreet 11/13,
CH-4133 Pratteln-BL,
Switzerland.
Fjórtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist o.fl.:
Mihio Shimizu,
404-2 Nagabatake Hokudan-cho,
Tsuna-gun,
Hyogo,
656-17 Janan.