Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986 21 David og Alexandra að dansa tangó. Klúbbur Listahátiðar: Jazz og tangó-teygja í kvöld KLÚBBUR Listahátíðar verður að vanda opnaður á Hótel Borg kl. 22.30 í kvöld og að þessu sinni ber jazz og tangó hæst á dag- skránni. Hljómsveitin Ófétin leikur en þessi „óféti“ eru Eyþór Gunnars- son, Priðrik Karlsson, Tóms R. Einarsson og Gunnlaugur Briem, allt þekkt nöfn í íslenzkri sveiflu, eins og Jón Múli Arnason tæki líklega til orða. Til liðs við Ófétin kemur Þorleifur Gíslason sem leikur á saxófón. Um hálftólfleytið — ef áætlun hinnar röggsömu forstöðukonu klúbbsins, Henríettu Hæneken, stenzt, er atriði á vegum Kram- hússins. Það er tangódans þar sem aðaldansarar eru David Höner og Alexandra Prúsa en auk þeirra munu tvö íslenzk danspör teygja sig út og suður um dansgólfíð, þ.e. Kolbrún Halldórsdóttir og Guðjón Pedersen og Elín Edda Amadóttir og Þorsteinn Geirharðsson. Fyrir dansinum leikur íslenzk tangó- hljómsveit sem skipuð er Reyni Jón- assyni, Karli Lilliendahl og Hrönn Geirlaugsdóttur. Gleðskapurinn í Klúbbi Listahá- tíðar stendur til hálfþijú hveija nótt þar til listahátíðinni lýkur, en loka- atriði dagskrárinnar í kvöld er far- andsöngvarinn eða trúbadúrinn Bjami Tryggvason. meginþorra þjóðarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 Jlli0iripw®)Wbi§> Handbók um Þing velli komin út BÓKAKLÚBBUR Amar og Örlygs hefur gefið út Þingvallabókina — Handbók um helgistað þjóðarinnar eftir prófessor Bjöm Þorsteinsson sagnfræðing. Eftii bókarinnar er mjög fjölbreytt. Þar er að finna sagnfræði, náttúmfræði, stað- ftæði, sögur og ljóð. Sérstakur kafli er um Þingvallavatn eftir Siguijón Rist vatnamælingamann og annar um gróður á Þingvöilum eftir Ingólf Davíðsson grasafræð- ing. Ásgeir S. Bjömsson lektor ritstýrði verkinu. í Þingvallabókinni em mörg yfirlitskort. Eitt þeirra er af þeirri útsýn sem getur að líta af efri barmi Almannagjár og em nöfn allahringsins skráð á kortið. mefnakort er að ftnna í bókinni þar sem merkt er við 62 ömefni á Þingvöllum. Sérstök litmynd var tekin úr lofti yfir þingstaðinn. Á hana em merktar 32 þingmanna- búðir auk fjölda ömefna. Þá er og loftmynd í lit sem sýnir leiðir og stíga á Þingvöllum sérstaklega ætluð þeim sem vilja skilja farar- tækið eftir, leggja land undir fót og njóta útivistar í guðsgrænni náttúmnni. Einnig er vert að geta þess að í bókinni em litmyndir teknar úr lofti af Bimi Rúrikssyni sem hafa það megin verkefni að Bjöm Þorsteínsson Handbók um helgístað jjóðarinnar SaííB - Nattúnmreði.. Sta&&aí3s - ^júdsogur - I.]oð sýna jarðfræði Þingvalla. Auk framangreindra korta og mynda em rúmlega 50 aðrar myndir og teikningar í bókinni, flestar í litum, og margar frá fyrri öldum og því hinar sögulegustu. Þingvallabókin er byggð á kafla um Þingvelli sem upphaflega kom út i bókinni Landið þitt Is- lands, U-Ö, en efni hans hefur verið stórlega aukið og endurbætt. Margir hafa lagt verkinu lið sitt og má þar sérstaklega nefna þá Kristján Jóhannsson frá Skógar- koti sem er manna staðfróðastur á Þingvöllum, séra Eirík J. Eiríksson fyrrum þjóðgarðsvörð og séra Heimni Steinsson núverandi þjóð- garðsvörð. Þingvallabókin er prentuð í Prent- stofu G. Benediktssonar en bundin í Amarfelli hf. Kápumynd tók Páll Jónsson en kápuna hannaði Sigur- þór Jakobsson. (Fréttatilkynning). Hægt er að ná býsna drjúgum vexti á 18 mánuðum - ef aðstæður eru góðar. Nú gefur Iðnaðarbankinn viðskiptavinum sínum kost á að ávaxta fé sitt á 18 mánaða bók eða reikningi sem gefur enn hærri vexti en önnur boð bankans. Með því besta sem býðst fyrir þá sem vilja ná enn hærra ® iðnaðarbankinn -mtim trnlQ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.