Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 32
MOfifilJWB^AjJID,W9J:UPAGUR3.4t?NU9g,6 Bretland: Fylgi Verka- mannaflokks- ins fer vaxandi London, AP. Verkamannaflokkurinn í Bret- landi virðist nú hafa meira for- skot fram yfir íhaldsflokkinn en áður, ef marka má skoðanakann- anir Gallup og Mori. Ef efnt yrði til kosninga nú þyrfti Margaret Thatcher, forsætisráðherra, nær örugglega að yfirgefa embættis- Veður víða um heim Lægst Haest Akureyri 12 skýjað Amsterdam 8 16 skýjað Aþena 19 29 skýjað Barcelona 21 mistur Berltn 6 16 skýjað Brussel 9 16 skýjað Chicago 17 31 heiðskírt Dublin 12 17 skýjað Feneyjar 1 skýjað Frankfurt 8 17 skýjað Genf 3 17 rigning Helsinki 14 16 skýjað Hong Kong 27 32 heiðskírt ierúsalem 14 29 skýjað Kaupmannah. 9 16 skýjað Las Palmas 21 skýjað Lissabon 16 31 heiðskírt London 13 30 skýjað LosAngeles 15 25 skýjað Lúxemborg 13 skýjað Malaga 24 skýjað Mallorca 24 lóttsk. Miami 25 29 skýjað Montreal 10 13 rigning Moskva 16 27 heiðskírt NewYork 24 33 skýjað Osló 7 13 heiðskirt Parls 14 19 skýjað Peking vantar Reykjavfk 6 skúr RíódeJaneiro 16 25 heiðskírt Rómaborg 10 23 heiðskírt Stokkhólmur 8 21 heiðskírt Sydney 11 20 heiðskírt Tókýó 20 28 heiðskírt Vínarborg 11 15 skýjað Þórshðfn 9 súld bústað sinn í Downing-stræti 10. Samkvæmt könnun Gallup, sem gerð var fyrir BBC, nýtur Verka- mannaflokkurinn 38,5% fylgis, íhaldsflokkurinn 30,6%, Kosninga- bandalag Jafnaðarmannaflokksins og Fijálslyndra 28,8% og aðrir 2,1%. Með kjörfylgi af þessu tagi hlyti Verkamannaflokkurinn 16 sæta meirihluta í neðri deild brezka þingsins, eða 333 sæti af 650. Ihaldsflokkurinn fengi 241 sæti, Bandalagið 51 og aðrir flokkar 25 sæti. Láta mun nærri að Ihalds- flokkurinn hafi misst um fjórðung þeirra atkvæða, sem hann fékk í þingkosningunum 1983, en þá vann flokkurinn yfírburðasigur og hlaut 397 af 650 þingsætum í neðri deild brezka þingsins. Könnun Mori var hagstæðari Verkamannaflokknum en könnun Gallup. Samkvæmt henni fengi flokkkunnn 40% atkvæða, ef kosið yrði nú. íhaldsflokkurinn fengi 32%, Bandalagið 26% og aðrir flokkar 2%. Samkvæmt þessu fylgi fengi Verkamannaflokkurinn 345 þing- sæti en íhaldsflokkurinn 244. Bandalagið fengi 37 þingsæti og aðrir24. AP/Símamynd Desmond Tutu biskup flytur ræðu á útifundi í Toronto í Kanada á sunnudag. Þúsundir andstæðinga aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku fóru í göngu um miðborg Toronto og héldu síðan útifund í Queen’s Park, þar sem Tutu var aðalræðumaður. Stjórn S-Afríku gef- ur út leyniskjöl ANC Srí Lanka: Fjórir deyja í bardögum Colombo, Sri Lanka. AP. BARDAGAR brutust út milli uppreisnarmanna tamíla og hers- ins á Sri Lanka á sunnudag í borginni Jaffna á norðurhluta eyjarinnar og létust fjórir, þar af tvö börn, að sögn íbúa i borg- inni. Átökin brutust út degi eftir að sprengja sprakk í höfuðborginni Colombo, þar sem 15 manns létu lífið. 45 manns hafa látist í sprengjuárásum uppreisnarmanna Tamíla á síðustu vikum, en upp- reisnarmennimir beijast fyrir sjálf- stæðu ríki tamíla á Sri Lanka. Pretoríu. AP. STJÓRN Suður-Afríku gaf í dag út bækling þar sem birt eru leyniskjöl Afríska þjóðarráðsins (ANC) og útskýrt hvers vegna stjómin kýs að eiga ekki viðræð- ur við fulltrúa blökkumanna um friðsamlega lausn deilumála í landinu. I ritinu er því haldið fram, og skjöl ANC birt því til sönnunar, að þjóðarráðið sé kommúnistasamtök, sem hafi það eitt að markmiði að bijótast til valda í Suður-Afnku með ofbeldisaðgerðum. ítrekar stjómin þá afstöðu sína að ekki komi til greina neinar við- ræður við ANC fyrr en samtökin hverfí frá og láti af ofbeldi og kommúnisma. Því er haldið fram að ANC hafi notfært sér þá skiljan- legu þrá landsmanna að friður komist á í landinu til þess að valda sundrungu og mglingi. Tilgangur- inn með útgáfunni sé hins vegar að sýna fram á hvert hið raun- verulega eðli þjóðarráðsins og leið- toga þess sé. Gavin Reilly, einn helzti iðnjöfur Suður-Afríku, segir í grein í blaðinu Sunday Times, sem gefíð er út í Jóhannesarborg, að aðskilnaðar- stefnan sé eins og dauður Alba- tross. „Nálykt" aðskilnaðarstefn- unnar hafi lítillækkað hvíta menn ekki síður en svarta. Reilly er forstjóri og aðaleigandi eins stærsta námafyrirtækis Suð- ur-Afríku, Anglo-American Corpor- ation. Hann segir í grein sinni að löngu sé orðið tímabært að stuðla að sáttum og friðsamlegri sambúð hvítra og blakkra en ekki sé hægt að hefja umbætur í þá vem fyrr en aðskilnaðarstefnunni hafi verið varpað fyrir róða. Hugarfarsbreyt- ing þurfi að verða hjá hvítum íbúum landsins og þeir verði að sætta sig við landstjóm, þar sem blökkumenn ráði ferðinni. Bandaríkín: Sovésk eldflaug fellurtiljarðar Miami, Bandaríkjunum. AP. ÍBÚAR Flórida-fylkis, sem sáu eldhnött með langan hala falla til jarðar, héldu að um væri að ræða stjörnuhrap eða fljúgandi furðuhlut, en að sögn bandarísks Yelena Bonner við brottförina frá Ítalíu: „Hver andlega heill mað- ur væri ófús að hverfa úr frelsi í fangavist" MílnnA Ifnlli. AP Mílanó, Italíu. AP. YELENA Bonner, eiginkona sovéska andófsmannsins og nóbels- verðlaunahafans Andreis Sakharov, kom í gær til Sovétríkjanna eftir sex mánaða dvöl á Vesturlöndum. Hún sagði, að fyrir heim- förina væri sér innanbijósts eins og hún væri að fara í fangelsi á nýjan leik eftir að hafa notið frelsis um skeið. Frú Bonner sagði, að eina ástæðan fyrjr þvf, að hún sneri aftur til Sovétríkjanna, væri end- urfundimir við eiginmann sinn. Tveir bandarískir þingmenn, Dan Lungren, repúblikani frá Kalifomíu, og Bamey Frank, demókrati frá Massachusetts, fylgdu Bonner til Moskvu. Sögð- ust þeir vilja tryggja, að mann- réttindi frúarinnar yrðu virt við komu hennar þangað. „Bandaríska þjóðin lítur á frú Bonner sem hetju, ekki aðeins sem hetju eigin þjóðar, heldur allra þjóða," sagði Dan Lungren. Frú Bonner, sem verið hefur I læknismeðferð á Vesturlöndum, sagði á fundi með fréttamönnum á Linate-flugvelli í Mílanó, að sig langaði ekki minnstu vitund til að snúa aftur til Sovétríkjanna. Hún minnti á, að móðir hennar, tvö böm og bamaböm byggju í Bandaríkjunum. „Eg held, að hver andlega heill maður væri ófús að hverfa úr frelsi í fangavist, ætti hann nokk- urra kosta völ,“ sagði hún. „Eg hef enga köllun til að vera hetja, mig langar aðeins til að vera amma, móðirogdóttir." Hún gagnrýndi harðlega það sem hún nefndi „upplýsingafols- un“ sovéskra stjómvalda varðandi þau hjónin. Einnig gagnrýndi hún nokkra vestræna íjölmiðla og þá sérstaklega vestur-þýska blaðið Bild, sem hún kvað hafa fengið „fölsuð" myndbönd af þeim hjón- um hjá sovéska blaðamanninum Viktor Louis. Þegar frú Bonner var spurð álits á Vesturlöndum, sagði hún, að þar ríktu flóknar aðstæður og við fjölda vandamála og and- stæðna væri að etja. „En þar nýtur fólk frelsis til að ráða fram úr vandamálum sínurn." Hún sagðist vonast til að koma aftur innan tveggja ára til Vestur- landa til þess að gangast undir læknisskoðun. Kvaðst hún sér- staklega þakklát Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, og Francois Mitter- rand, forseta Frakklands, fyrir góðar móttökur. I þessu sambandi nefndi hún ekki ítalska stjómmálamenn. Meðan á dvöl hennar á Italíu stóð, tók enginn háttsettur embættis- maður á móti henni, en þegar hún kom þangað í desembermánuði sl., fékk hún bæði áheym hjá Bettino Craxi forsætisráðherra og Jóhannesi Páli páfa II í Vatíkan- inu. Mæðginin Bonner og sonur hennar, Alexei Semyonov, kvödd- ust á flugvellinum í Mflanó. Hugðist hann fylgja móður sinni til Moskvu, en bæði honum og systur hans, Tatiönu Yankelevich, var neitað um vegabréfsáritun þangað. „Við fáum ekki með nokkm móti skilið, hvers vegna stórveldi á borð við Sovétríkin hræðist svo mjög hugrakkt fólk eins og frú Bonner og eiginmann hennar," sagði bandaríski þingmaðurinn BameyFrank. embættismanns hjá loftferðaeft- irlitinu var þarna um að ræða sovéska eldflaug að hrapa til jarðar. Embættismaðurinn sagði að eld- flaugin hefði verið notuð til þess að skjóta sovéskum gervihnetti, Cosmos 1746, á loft. Sagði hann að eldflaugin hefði komið inn í andrúmsloftið í námd við Jackson- ville í Bandaríkjunum, farið yfir Flórída-ríki og síðast sést í grennd við Kúbu. Hann sagðist ekki vita hvar eldflaugin hefði fallið til jarðar. íranir vilja fá stórlán gegn olíu- afslætti Abu Dhabi. AP. HAFT var eftir áreiðanlegum heimildum í gær, að íranir væru að leita fyrir sér um skammtima- lán að fjárhæð margir milljarðar dollara frá Japan og Singapore gegn því að selja þessum rikjum 20% af ársframleiðslu sinni af olíu fyrir lækkað verð. Það var blaðið Al-Ittihad í Sam- einuðu furstadæmunum, sem sagð- ist hafa það eftir „öruggum heimild- um“, að „leynilegar viðræður" færu nú fram um það tilboð írana að selja 20% af ársframleiðslu þeirra með þriggja dollara afslætti frá heimsmarkaðsverði hveija tunnu gegn 2,8 milljarða dollara láni frá japönskum bönkum og 1,9 milljarða dollara lánum fra bönkum og pen- ingastofnunum í Singapore.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.