Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
Stefán Hrannar og Birgir Már i í Skansmýrinni. Skansmýrin hefur í ómunatíð verið í senn leikvöllur
barna og vettvangur fjörugs fuglalífs.
Flatey vaknar
af vetrardvala
Séð yfir „Plássið". Á miðri mynd Silfurgarðurinn og reiturinn. Meðal
annars má sjá Eyjólfshús, Vertshúsið, Kaupfélagið og Vesturbúðir
næst og lengst til hægri.
Buslað í sjónum í Mjósundi. Talið frá vinstri: Birgir Már Ragnarsson,
Stefán Hrannar Guðmundsson og Birna Ögmundsdóttir.
Flatey á Breiðafírði sýndi
sínar bestu hliðar nú um
hvítasunnuna. Stafalogn og
blíða var hlutskipti Flateyinga
og helgargesta, en að venju
kom nokkur hópur fólks til
að eyða helginni í Flatey. Þar
búa nú aðeins hjónin Haf-
steinn Guðmundsson og Ólína
Jónsdóttir, þó fleiri búi þar
hluta úr árinu.
Eftir kulda og fremur leið-
inlega tíð að undanfömu má
segja að vorið hafí „sprungið
út“ nú um helgina og það ríkti
sannkölluð stemmning bæði
hjá mönnum og skepnum.
Sauðburður er vel á veg
kominn og krían komin fyrir
nokkra. Ritan er sest upp í
höfninni en nokkuð í að þær
stöllur he§i varp. Hins vegar
er æðarfuglinn farinn að
verpa nokkuð og skarfsung-
amir jafnvel orðnir stálpaðir.
Alls verpa um 30 fuglateg-
undir í Flateyjarlöndum og um
helgina dirraði loftið af lífí og.
þrótti nærri allan sólarhring-
inn.
Mannfólkið naut tilverann-
ar og bæði ungir og gamlir
teiguðu þann lífsþrótt og þá
lífsnautn sem slíkir Flateyjar-
dagar era svo ríkir af.
Þessar myndir vora teknar
í Flatey um hvítasunnuna og
segja meira en mörg um „Ijúft
líf“ um helgina.
Ærnar í Flatey eru líklega spakari en almennt gerist. Tvær þeirra
á tali við Birgi Má og Stefán Hrannar.
„Helgarkot". Skotta í Krákuvör og Stefán Ægir Guðmundsson.
Kveðjustund á bryggjunni. Talið frá vinstri: Gunnlaugur Óskarsson,
Ólina Jónsdóttir, Sigurbergur Bogason og Hafsteinn Guðmundsson.
Hallbjörn Bergmann og nikkan. Bæði ómissandi f Flateyjarferðum.
Við Bentshús. Talið frá vinstri: Guðmunda Ögmundsdóttir, Birgir
Magnússon, Vigdís Ólafsdóttir og Edda Úlfsdóttir.