Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986 Hvað segja þau um úrslit sveitarstjórnarkoSninganna: REYKJA ViK 1978 1982 47,5% 1986 KÓPAVOGUR 1978pS* 52,7% 15,3% 1982 1986 SEL TJARNARNES 42,1% 32,1% ' 1978 63,0% 1982 I 64,4% 1986 i;:;:;:;:;:;:;:;:;^:;:;:;:;:::;:;:;:::;:::;:;:;:;:::;:;:::;:;:;:;:;:::;:;:;:;:;:;:;:;:;:;:;:;:::::;:;:;:;:::;:;:::;:::::;:;:::;::::: 61,6% GARÐABÆR 1978 47,4% 1982 1986 HAFNARFJÖRÐUR 60,5 % 52,9% 1982 1986 GRINDAVÍK 1978 plÍ 1982 1986 KEFLAVÍK 1978 pl 1982 1986 NJARÐVÍK 1978 PM 36,1% 37,5% 32,1% 25,7% 38,3% 30,2% 28,2% s> 24,5 % 39,2% 41,7% 1986 AKRANES 1978 1982 1986 SELFOSS 1978pW 1982 1986 46,4% 33,4% 33,5% 27,9% 28,1% x 26,8% VESTMANNAEYJAR 1978 x:;:::::::::;::::'::;-::;:;:::::: 1982 1986 36,5% 38,5% _______ 43,9% 58,9% MEÐALTAL 1978pS 1982 1986 :;;S;S s;j 36,81% MEÐALTAL ÁN REYKJAVÍKUR 1978|::::::;:;:;:;::::::S:;>:;:;::::::::;:;>:::S::: 46,94% 38,00% 1982 1986 35,75% 36,54% 46,39% Fyigi Sjálfstæðisflokksins á Suðvesturhorni landsins í kosningunum á laugardaginn fékk Sjálfstæðisflokkurinn 13 færri fulltrúa kjörna en 1982 í 10 kaupstöðum á suðvesturhomi iandsins. í Reykjavík var borgarfulltrúum fækkað um 6 og fækkaði fulltrúum Sjálfstæðisflokksins um 3 vegna þess, en fylgisaukning var 0,2% miðað við kosningamar 1982. Fylgi Sjálfstæðisflokksins í um. Meðfylgjandi súlurit sýnir umræddum kaupstöðum var svip- fylgi Sjálfstæðisflokksins í að að meðaltali og í kosningunum Reykjavík og kaupstöðunum 10 í 1978, en heldur lægra en í síðustu kosningunum 1978, 1982 og bæjar- og sveitarstjómarkosning- 1986. Jón á Reykjum sagði í fyrirsögn: „Eg þekki þetta fólk, ykkur er óhætt að treysta því“. Þetta er gott dæmi um stjómmálaástandið í sveitinni." Aðalheiður sagði að sér þætti samt sem áður erfitt að svara því hversvegna D-listinn hefði náð 5. manninum. „Svo má líka benda á að nú hafa Sjálfstæðismenn 54% atkvæða á bak við sig og 5 fúlltrúa, en við vinstrimenn samanlagt um 45% og aðeins 2 fulltrúa. Maður harmar auðvitað slíkt þegar listinn tapar." Magnús Sigsteinsson, D-lista: „Uppskárum laun erfiðis okkar“ „EG ER geysilega ánægður með úrslit kosninganna, þetta er mesti kosningasigur flokksins frá upphafi. Þó höfum við verið með hreinan meirihluta frá árinu 1974,“ sagði Magnús Sigsteins- son, efsti maður á D-listanum í Mosfellshreppi, en Sjálfstæðis- flokkurinn bætti við sig 5. mann- inum í hreppsnefnd. „Því verður ekki neitað að það var mjótt á mununum, Framsókn vantaði aðeins 2 atkvæði til að koma manni inn. Endurtalning at- kvæða breytti þó engu um úrslit- in. Eg tel að vel skipulögð kosn- ingabarátta hafi skilað árangri. Við uppskárum laun okkar erfið- is.“ Magnús sagði að prófkjör flokks- ins sl. haust hefði án efa ráðið miklu um vinsældir framboðslistans. 400 manns tóku þátt í valinu. „Við vorum með geysisterkan lista. Vin- sældir frambjóðendanna og sterk málefnastaða eiga dijúgan þátt í sigrinum. Meirihlutinn hefur staðið sig vel þetta kjörtímabil, og kjós- endur voru ánægðir með störf okkar." Sjálfstæðismenn voru með mjög skipulagt starf á kosningadag. Magnús sagði að sér hefði ekki litist á blikuna frameftir degi, því kjörsókn hefði verið dræm. „Um kvöldmatarleytið byijuðum við að hóa í fólk og bar það góðan árang- ur. Ef maður ætlar að vinna kosn- ingar þýðir ekki annað en að vinna skipulega." Vestmannaeyjar: Sigurður Einarsson, D-lista: „Við erum enn stærsti flokkurinn“ „ÞVÍ ER ekki að neita að við urðum fyrir miklum vonbrigðum með kosningaúrslitin," sagði Sigurður Einarsson, efsti maður D-listas í Vestmannaeyjum, en flokkurinn missti tvo fulltrúa úr bæjarstjórn. „Við höfum verið að leita í huga okkar að einhverri ástæðu, en þær hljóta að vera margar. Sjálfstæðisflokkurinn var með hreinan meirihluta, og er því kennt um allt sem miður fer. Hinir flokkamir voru sam- einaðir í andstöðu sinni. Einnig virðist straumurinn í landinu hafa verið andstæður flokkn- um.“ A lista Sjálfstæðisflokksins var mikið af nýjum nöfnum að þessu sinni, en Sigurður taldi það ekki hafa skipt sköpum. Ekki hefði verið kosið um menn, ýmis staðbundin mál hefðu verið megineftii kosn- ingabaráttunnar. Hann minnti á að þrátt fyrir missi tveggja fulltrúa væri þetta næstmesti atkvæðafjöldi sem flokkurinn hefði fengið frá upphafi. Eins væri fylgið í prósent- um það þriéja mesta. „Nú erum við komnir með þann fulltrúaíjölda sem var fyrir árið 1982. Segja má að sigur okkar í síðustu kosningum, 58%, hafi verið frekar afbrigðilegur. Við erum enn langstærsti flokkur- inn og ætlum að axla þá ábyrgð sem því fylgir." Ragnar Óskarsson, G-lista: „Osk kjósenda um vinstri meirihluta“ „EG ER ákaflega ánægður með úrslitin, enda eykur Alþýðu- bandalagið fylgi sitt um 50%,“ sagði Ragnar Oskarsson, efsti maður G-lista í Vestmannaeyjum. Alþýðubandalagið er nú með tvo fulltrúa í bæjarstórn, en var með einn. „Við lítum á þetta sem eindregna ósk kjósenda um vinstri meirihluta í bænum. Efstu menn A-, B- og G-lista hafa fundað í dag og mér sýnist að okkur takist að mynda meiri- hluta.“ Ragnar þakkaði fylgisaukning- una málefnalegri baráttu flokksins. Alþýðubandalagið hefði lagt áherslu á atvinnumál, málefni ungs fólks og að koma fjármálum bæjar- félagsins í lag. „Við vorum einnig með unga frambjóðendur á listun- um. Eg rek stóran hluta af auknu fylgi flokksins til ungra kjósenda." Ragnar sagði að fjármálastjóm kaupstaðarins hefði ekki verið góð undanfarið kjörtímabil. G-listinn hefði einnig gagnrýnt harðlega að bæjarstjórinn væri yfirlýstur Sjálf- stæðismaður. „Okkur finnst það frumskilyrði að bæjarstjórinn og bæjarritarinn séu fagmenn, ekki flokksmenn. Við bentum líka á að minnihlutaflokkamir hafa aðeins einn áheymarfulltrúa í bæjarráði, af þremur. Það má ekki útiloka þannig flokka frá því að fylgjast með rekstri bæjarfélagsins.“ Selfoss; Brynleifur H. Stein- grímsson, D-lista: „Spurningin hvor stóru f lokkanna verður í minnihluta“ „ÉG TEL okkur hafa unnið þann vamarsigur sem stefnt var að,“ sagði Brynleifur H. Steingrims- son, efsti maður D-listans á Sel- fossi, en flokkurinn tapaði einum manni miðað við síðasta kjör- tímabil. „Við voram í þeirri erf- iðu aðstöðu að allir fulltrúar okkar hættu í bæjarstjóm og gáfu ekki kost á sér. Flokkurinn skipti því alveg um forystu, og inn kom nýtt fólk með sinar hugmyndir. Að minu mati var kosningabaráttan ekki nógu snörp. Það var ekki kafað ofan í mál, og andstæðingarnir börð- ust með innantómum loforða- ræðum.“ A síðasta kjörtímabili voru Fram- sóknarflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn í meirihlutasamstarfi. Brynleifur sagði að enn væri ekki farið að ræða um hvort framhald yrði á því. „Spumingin er í raun hvor stóru flokkanna verður í minnihluta. Framsóknarmenn settu málið þannig upp fyrir kosningar að það væri verið að kjósa um bæjarstjóra þeirra eða mig. Þeir sögðu að ég ætlaði að reka bæjar- stjórann." Brynleifur sagði að fram- sóknarmenn hefðu óspart notfært sér aðstöðu sína í kosningabarátt- unni. Fimmtudaginn fyrir kosning- ar hefði nýja félagsheimilið verið opnað, og 600 manns boðið til veislu. „Okkur var meinað að halda framboðsfund í félagsheimilinu þetta kvöld og urðum að dúsa í leikfímihúsinu." Brynleifur sagði að þótt sterk öfl í bænum hefðu unnið leynt og ljóst gegn framboði flokksins hefði náðst upp góð stemmning dagana fyrir kosningar. „Við lögðum mesta áherslu á atvinnumálin af öllum flokkum. Einnig viljum við beijast fyrir stækkun sjúkrahússins sem reyndist þungt kosningamál. Við ætlum okkur að standa við þessi loforð og vinna vel á kjörtímabilinu. Eg er ánægður með úrslitin, og þakka öllum stuðningsmönnum, þá sérstaklega nýju fólki sem kom og stóð við bakið á okkur.“ Steingrímur Ingvars- son, A-lista: „Niðurstaðan dómur um meirihlutann í bænum“ „NIÐURSTÖÐUR kosninganna eru einfaldlega dómur um þann meirihluta sem var við sljóra í bænum,“ sagði Steingrímur Ingvarsson, efsti maður á lista A-lista. Alþýðuflokkurinn jók fylgi sitt um 59% en er áfram með 1 mann í stjórn. „Við vorum með góðan lista, hresst og ungt fólk. Það má heldur ekki loka augum fyrir þvi að flokkurinn hafði meðbyr um allt land.“ Steingrímur sagði að hann vildi ekki gera kjósendum upp skoðanir. An efa hefði hver haft eigin rök- semdir fyrir atkvæði sínu. „Báðir meirihlutaflokkamir guldu afhroð í þessum kosningum. Framsókn tap- aði til dæmis manni í kosningunum árið 1982, og var nærri því núna. Þar á skuldasúpa bæjarfélagsins stærstan þátt.“ Ungt fólk var áberandi á lista Alþýðuflokksins að sögn Stein- gríms. Taldi hann að það hefði höfðað til ungra kjósenda. „An efa hefur fundaherferð Jóns Baldvins á síðasta ári kynnt flokkinn rækilega fyrir fólki. Eg hef fundið það greini- lega að fólk á miðjum aldri er að snúast á sveif með okkur. Við höf- um núna á að skipa mjög hæfu og starfsömu liði.“ Steingrímur vildi engu spá um hvaða meirihluti myndi ráða bænum næsta kjörtíma- bil. Líklega yrði annar stóru flokk- anna að vera í minnihluta. „Enn sem komið er höfum við aðeins rætt þetta okkar á meðal. Það er svo stutt liðið frá kosningum." Akranes: Gísli S. Einarsson, A-lista: Stefndum að því að fá þrjá menn „VIÐ stefndum að því að fá þijá menn kjörna í þessum kosningum og það tókst og eram við hæstán- ægðir með það,“ sagði Gísli S. Einarsson, efsti maður á lista Alþýðuflokksins á Akranesi, jafnframt því sem hann vildi koma á framfæri þakklæti til stuðningsmanna A-listans. Gísli sagði að enn sem komið væri hefðu þreifíngar milli flokk- anna ekki hafist og kvaðst hann líta svo á að Framsóknarflokkurinn ætti að hafa frumkvæði að meiri- hlutamyndun þar sem fylgistap hans var óverulegt þrátt fyrir aðild hans að ríkisstjóm. Gísli sagði að lokum að Alþýðu- flokkurinn myndi halda fast við þær beinu tillögur sem þeir settu fram fyrir kosningamar og að ekki yrði gengið til stjómarsamstarfs nema samstaða næðist um þær. Guðjón Guðmundsson, D-lista: Staða bæjarmála góð og því ekki skýringin Á AKRANESI tapaði Sjálfstæðis- flokkurinn tveimur mönnum í bæjarstjóra, hafði haft fjóra fulltrúa en fékk einungis tvo fulltrúa kjörna. Guðjón Guð- mundsson efsti maður D-listans sagðist ekki geta gefið neinar skýringar á þessu mikla fylgis- tapi flokksins í þessum kosning- um. „Staða bæjarmála var góð síð- asta kjörtímabil og um það voru allir sammála þannig að skýringu þessa er ekki þar að finna,“ sagði Guðjón. Hann benti á að skipting atkvæða hefði verið óhagstæð og mörg atkvæði til D-listans fallið dauð, ef svo mætti að orði komast. Ólaffsvík: Sveinn Þór Elín- bergsson, A-lista: Óskum eftir við- ræðum við alla „ÚRSLITIN hér á Olafsvík voru okkur Alþýðuflokksmönnum verulega ánægjuleg, við fengum tvo menn kjörna og erum að atkvæðamagni komnir fast að hliðinni á Sjálfstæðisflokknum," sagði efsti maður lista Alþýðu- flokksins, Sveinn Þór Elínbergs- son. Hann sagði að þeim Alþýðu- flokksmönnum hefði reynst svolítið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.