Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3, JÚNÍ1986 ffl Frá Lánasjóði íslenskra námsmanna Vegna umsókna um námslán fyr- ir skólaárið frá 1986-1987 Er ekkí mál að skríða upp úr leðjunni? E|n af Suðurnesjum skrifar: „Á tímum blautbolskeppni, Ieðju- slags, hjálpartækja ástarlífsins og allskonar uppákoma spyr maður sjálfan sig gjaman, hvar er þjóðar- stolt íslendinga? Er siðmenning að komast á lægsta stig? Þessi hável- boma þjóð sem á tyllidögum segist vera komin af víkingum, á auk þess fomsögur, fegurstu tungu í heimi, hreinasta loft í heimi, besta vatn í heimi, og fegurstu stúlkur í heimi, en er allt í einu farin að skemmta sér við að horfa á ungt fólk gera sig að fíflum, þvílíkur tvískinnung- ur. Reyndar hafa skemmtanakóng- ar alltaf verið fundvísir á frumleg skemmtiatriði svo sem „Suzy baðar sig á dansgólfinu“ og allskonar erlent fólk svart og hvítt sem tínir af sér spjarimar, en nú á sem sagt að notast við landann í þessum bransa. Hveija á að áfellast, þá sem stjóma þessu eða þá sem taka þátt í því? Hjá báðum aðilum er augljós- lega einhver vöntun. Þeir sem stjóma em líklega fyrir löngu búnir að missa alla sjálfsvirðingu. Hjá þeim ræður gróðasjónarmið ríkjum. Aðferðimar sem beitt er virðast skipta litlu máli. Ungt fólk sem lætur gabbast til að gera hvað sem er fyrir peninga á bágt. Það hefur enga sjálfsvirðingu. „Margur verður af auram api“ segir máltækið og er víst talsverður sannleikur í því. Skemmtanaiðnað- ur, sem alltaf hefur viðgengist í skuggahverfum stórborganna er orðin aðalskemmtun á öldurhúsum íslendinga. íslenskar konur ættu að sjá sóma sinn í því að hætta að sækja svona samkomur. Hvar em nú kvennahreyfmgamar sem bera kvenfólk svo mjög fyrir bijosti. Er það bara í sambandi við stöðuveit- ingar kvenna og starfskraftaaug- lýsingar sem þær láta til sín taka? Við eigum fullt af ungu frambæri- legu listafólki sem getur skemmt íslendingum með reisn og sóma, og hvers vegna þurfum við þá að fara niður á lægsta plan? Er ekki mál að linni, er ekki mál að skríða upp úr leðjunni." Ferðasaga 5907-7627 skrifar: „Ætlunin var að bregða sér austur fyrir fjall með bam sem ætlaði að verða eftir í sveitinni. Ákvað ég að fara á föstudagskvöld- ið til að helgin nýttist betur. Ég skrifa þessar línur til að koma á framfæri þakklæti til lögreglunnar og fleiri aðila sem reyndust mér ómetanlega í ferðinni. Nú, komin er ég austur að Þjórsárbrú þegar mér finnst ég heyra torkennileg hljóð í bílnum. Ég stoppa þegar ég er komin yfir brúna til að athuga hvort þetta sé ímyndun en svo er ekki. Og ekki kom ég bílnum í gang aftur. Þama bíð ég á föstudags- kvöld með þijú böm í bílnum og ekki fínnst mér útlitið gott, helgin framundan, öll verkstæði lokuð og ég peningalaus í þokkabót! Nokkrir ökumenn renna framhjá eins og gengur, þar til einn stoppar og segir sá að ég sé heppin, því hann sjái að Reykjavíkurlögreglan sé að koma. Það reyndust orð að sönnu. Hugsanir mínar vom á þá leið að ekki væri gott að skilja bílinn eftir og rándýrt að fá hann dreginn og Beiðni um fjárhagsað- stoð frá Filippseyjum Velvakandi góður Vegna bréfs í blaðinu þ. 21. maí síðastliðinn sem ber yfírskrift- ina „dularfull hjálparbeiðni frá Filippseyjum" langar mig að koma því hér með á framfæri að ég hef einnig fengið svona bréf frá Filipps- eyjum. í bréfínu segir að maðurinn hafí misst foreldra sína í seinni heimsstyijöldinni, það sé búið að taka af honum annan fótinn og báðar hendur hans séu lamaðar, ung stúlka skrifi bréfíð fyrir hann. Hann biður um fjárhagsaðstoð. Ekki hef ég minnstu hugmynd um hvar hann hefur náð í nafn mitt og heimilisfang. Er ég helst á því að þetta séu skipulagðar aðgerðir. Með vinsemd og virðingu. Kristin Karlsdóttir mætti ég þakka fyrir að fá far í bæinn. Lögreglan stoppar, athugar málin og fleiri bætast í hópinn, og rætt er um hvað sé til úrbóta. Lögreglan spyr hvort ég vilji ekki fá viðgerðarmann að bílnum ef þeir ná í hann í talstöðinni og verð ég þá að koma upp um mig með pen- ingaleysið. Hann segir að það muni bjargast, hann láni mér fyrir við- gerðinni og ég gæti komið til hans peningum á stöðina þegar ég væri komin í bæinn. Mér fannst varla raunhæft að sleppa svona vel, fannst þetta draumi líkast. Viðgerð- armaðurinn kom, sá strax hvað var að og hófst strax handa við að ná í það sem vantaði. Ekki gekk það í fyrstu tilraun svo hann bauðst til að draga bílinn að Hellu, þar sem hann hefði hlutina við hendina og það varð úr að hann dró bílinn þangað. Eftir ferðir viðgerðarmannsins fram og aftur og með bflinn minn í eftirdragi, gerði hann við bflinn fljótt og vel og sá ég strax að ég hafði lent hjá góðum viðgerðar- manni. Ég reiknaði með mörg þús- und króna reikningi, svo ég trúði varla upphæðinni sem hljóðaði upp á rúmar 1300 krónur. Langar mig að lokum að þakka þessum mönnum fyrir hreint ótrúlega greiðasemi við mig í vandræðum mínum umrætt kvöld. Síðast vil ég þakka góðan kaffísopa sem kona viðgerðar- mannsins bauð upp á og svo sannar- lega hlýjaði manni eftir hráslaga- lega setu í bflnum og var hann innifalinn í verðinu! Krakkamir tóku gleði sína á ný og fundu betra nafn á Þjórsárbrú, hún heitir „Iöggubrú" hjá okkur í framtíð- inni.“ 1. IMámsmenn sem sækja um námslán í fyrsta sinn: Námsmenn sem hyggjast sækja um námsaðstoð frá L.Í.N. skólaárið 1986-1987 eru hvattir til að ganga frá umsóknum sínum sem fyrst. Umsjóknareyðublöð lyggja frammi í afgreiðslu sjóðsins að Laugavegi 77, 3. hæð. 2. Námsmenn sem sótt hafa um námslán áður: í maí voru námsmönnum send umsóknareyðublöð sem á voru skráðir grunnupplýsingar úr námsmannaskrá sjóðsins. Þeir sem ætla að sækja um námslán frá L.Í.N. skólaárið 1986-1987 eru hvattir til að endursenda umsóknir sínar sem fyrst. Lánasjóður íslenskra námsmanna. KROSSVIÐUR T.d. vatnslfmdur og vatnsheldur - úr greni, birki eða furu. SPÓNAPLÖTUR T.d. spónlagðar, plast- húðaðar eða tilbúnar undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu verði SPARIÐ PENÍNGA! - Smíðið og sagið sjálf! Þið fáið að sníða niður allt plötuefni hjá okkur í stórri sög - ykkur að kostnaðarlausu. BJORNINN Við erum í Borgartúni 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.