Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 58
3861 rprái s fliJDAaiJKJííW .aiaAjanuDflOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JUNI 1986
Hin heilaga moska í Kairoun.
„ Allir gestir
okkareru
meiri háttar"
Þegar heim er komið eftir tveggja vikna veru í Túnis er fróðlegt að
velta vöngum yfir því, hveiju skýtur fyrst upp í hugann þegar til daganna
er hugsað: Var það fjölbreytt landslagið á leiðinni frá flugvellinum við
Túnis og til Hammamet? ferðin til hinnar heilögu borgar Kairoun?
blómaskreytingarnar á klósettinu? Letistundir við sundlaugina á
Residence, ágætt skraf við ferðamálafrömuði, dvölin á Djerba? Eða
kannski kvöldstundir á Hotel Les Orangers eða Bel Azur, þar sem ég
reyni hæfni mína í túnískum þjóðdönsum, þegar fór að líða á kvöldið?
Eða kannski hvað ég svaf vel í Túnis .. .líklega allt þetta og þó margt
fleira.
Búðarferð.
Túnískar þjóðdansastúlkur.
Veizlan byijaði í Kaup-
mannahöfn, kvöldið áður
en ég lagði af stað suður
eftir. Forstjóri Tunis Air
í Kaupmannahöfn, Ben
Hamed, hafði útvegað
mér flugmiða með af-
bragðs kjörum og gerði það ekki endasleppt
við mig; hann og indæl kona hans buðu
mér á nýjan túnískan veitingastað á Vester-
brogade, þar sem ég fékk forsmekkinn af
túniskum mat og leizt hann gimilegur.
Ég hef veitt því eftirtekt, að ýmsir hafa
fordóma gegn arabískum flugfélögum. Mín
reynsla af þeim er jákvæð og vel það. Seinna
í reisunni flaug ég tvívegis með marokk-
anska flugfélaginu og heppnaðist það ljóm-
andi vel. Hjá Tunis Air var á báðum leiðum
prýðileg þjónusta um borð og stundvísi til
fyrirmyndar. Mér skilst að flugfélagið hafi
verið sett á laggimar 1948 og það flýgur
nú til viðkomutaða í 25 löndum. Það hefur
flogið frá Kaupmannahöfn síðustu sex ár,
enda eykst áhugi Dana á Túnisferðum stöð-
ugt.
I annarri leiðinni lenti ég á kjaftatörn við
flugfreyjuna, Bhouri Samira, og fór að
spyrja hana um stöðu konunnar í Túnis.
Samira sagði mér að staða konunnar væri
Rósakaktusar bera blóm í öllum
regnbogans litum.
væntanlega þægilegri í heimalandi sínu en
mörgum öðmm arabalöndum. Því til sönn-
unar sagði hún mér þau ánægjulegu tíðindi,
að hún væri nú til dæmis að fara að gifta
sig í ágúst. í annað skipti. Það væri ekki
tiltökumál í Túni og frábmgðið þv'sem er
víða í Arabalöndum að fráskilinni konu er
nánast útskúfað og engar eða sáralitlar líkur
á því að nokkur karlmaður vilji gera hana
að löglegri eiginkonu sinni.
Þegar á flugvöllinn Tunis-Karþagó kemur
hefur þá ekki hæstráðandinn á Hotel Resid-
ence, herra Khechine, gert ráðstafanir til
að ég kæmist fyrirhafnarlaust út til Hamma-
met. Frá flugvellinum er góður klukkutíma
akstur og fjölbreytnin í landslaginu ótrúleg.
Og svo þessir frábæm risastóm kaktusar
meðfram veginum, sem bám blóm í öllum
regnbogans litum.
Ég nefndi einhvem tíma við herra Khec-
hine, að það gæti veri gaman að skoða
fleiri hótel, svo að ég gæti sagt löndum
mínum skilmerkilega frá þegar að því kæmi
að þeir uppgötvuðu Túnis. Eg var varla búin
að sleppa orðinu, þegar ég var komin í
kvöldverð á Appelsínuhótelið, Les Orangers,
sem er í útjaðri Hammamet í undurfallegu
og gróðursælu umhverfi. Sebai Hondher,
forstjóri Appelsínuhótels, bauð í kvöldverð
og síðan fómm við að horfa á þjóðdansa
og bingóspil og allir höfðu mikið gaman af.
Seinna var boðið í aðra veizlu á Hotel Bel
Azur; þar átti ég frábæra kvöldstund með
þeim félögum Mekni Abdelsalem, aðstoðar-
forstjóra, og Kochache Ezzedine, sem ég
er ekki alveg viss um hvaða titil hefur. Við
borðuðum yfir okkur af túniskum réttum,
VEGARÆSI
Eigum fyrirliggjandi rör í vegaræsi frá 12—48", efni
galv., 1,25—1,5 og 1,65 mm.
Hjólbörur
Eigum ávallt fyrirliggjandi sterku hjólbörurnar með
trésköftum sem við höfum framleitt í 45 ár.
Póstkassar
Eigum fyrirliggjandi á lager inni- og útipóstkassa.
NÝJA BLIKKSMIÐJAN HF.,
Ármúla 30, sími 81104.
Kínveijar gefa út greiðslukort
Peking. AP.
KÍNVERSKI ríkisbankinn hóf
útgáfu greiðslukorta nú á sunnu-
dag.
Samkvæmt frétt í kínverska sjón-
varpinu verður hægt að nota
greiðslukortið í Diaoyutai-gistihús-
inu og 35 stöðum öðrum. Kortin,
sem kennd eru við gönguna löngu,
verða notuð í stað gjaldeyrisvott-
orða og eru gefin út af Peking-
útibúi bankans. Kortin standa því
ekki hveijum sem er til boða, þar
sem gjaldeyrisvottorðin eru ekki
almenningseign. Vottorðin eru sá
gjaldmiðill Kína, sem hægt er að
skipta í erlendan gjaldeyri, en aðal-
gjaldmiðill landsins, renminbi, er
óskiptanlegur. Svartamarkaðs-
brask með gjaldeyrisvottorðin dafn-
ar því vel, enda má fá ýmsan sjald-
séðan vaming gegn framvísun
HUSIÐ sem leikarinn Rock
Hudson eyddi síðustu ævidögun-
um í er nú til sölu.
Húsið, sem er í suðrænum stíl,
situr efst á hæð og því fylgja bíla-
stæði fyrir 20 bíla, sýningarsalur,
sundlaug og skóglendi. Fjögurra
hektara land fylgir húsinu, sem er
þeirra. Þau eru hinsvegar aðeins
gefin út til útlendinga og kínverskra
viðskiptamanna, sem hafa aflað
erlends gjaldeyris.
skammt norðan við Beverly Hills,
innan borgarmarka Los Angeles,
en svæðið kallast Beverly Crest.
Húsið er metið á 2,95 milljónir
Bandaríkjadala, um 125 milljónir
ísl. króna.
Hudson, sem lést af völdum al-
næmis í október á síðasta ári, bjó
þar um 20 ára skeið.
Hús Rock Hudson til sölu
Los Angeles. AP.