Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3.JÚNÍ 1986
33
Tíu Pólverjar
/»• / •
og fjorir
Tékkar flúðu
MUnchen.AP.
TÍU Pólverjar — þeirra á meðal
táningur, sem taka átti þátt i
kraftlyftingum — svo og fjórir
Tékkar flýðu til Vestur-Þýzka-
lands um helgina.
Kraftlyftingamaðurinn Kristof
Piorczynski fór fram á að fá hæli
sem póltiskur flóttamaður á sunnu-
dag, eftir að hafa tekið þátt í keppni
fyrir 16 til 20 ára gamla íþrótta-
menn í grein sinni í bænum Donau-
eschingen í suðvesturhluta landsins.
Þá flýðu fjórir Tékkar á aldrinum
20 til 56 ára í Bæjaralandi. Yfírgafu
þeir ferðamannahópinn, sem þeir
voru með og sneru ekki aftur.
Pólland:
Þúsundir mótmæltu
handtöku Bujaks
Varsjá. AP.
ÞÚSUNDIR Pólveija fóru í mót-
mælagöngu á sunnudag til þess
að mótmæla handtöku Zbigniews
Bujak, eins helzta forystumanns
Samstöðu, en hann hefur farið
huldu höfði um langt skeið. Lech
Walesa, leiðtogi Samstöðu, skor-
aði á sunnudag á stuðningsmenn
samtakanna að halda áfram
baráttunni gegn „lögleysunni" í
Póllandi.
Bujak, sem er 31 árs gamall, var
handtekinn á laugardag. Pólsk
stjómvöld höfðu lengi reynt að hafa
hendur í hári hans sökum þess að
hann stjómaði þeim armi Samstöðu,
sem starfað hefur með leynd og
kunn er undir hinum pólsku upp-
hafsstöfum sínum, TKK. Bujak
hafði tekizt að leynast fyrir pólskum
yfírvöldum, allt frá því er þau settu
herlög í landinu i desember 1981 í
því skyni að bijóta Samstöðu á bak
aftur.
Handtaka Bujaks er talið mikið
áfall fyrir Samstöðu en að sama
skapi sigur fyrir pólsku stjómina,
þar sem handtakan á sér stað aðeins
flórum vikum áður en þing komm-
únistaflokks landsins á að hefjast.
Verður það fyrsta þing flokksins
frá uppreisn verkamanna
1980-1981.
Á útifundi með mörg þúsund
verkamönnum í Gdansk á sunnudag
sagði Walesa, að þar sem stjómvöld
hefðu ekkert annað til þess að státa
af, þá mikluðust þau yfír handtöku
Bujaks sem „afreki".
I borginni Wroclaw í Suðvestur-
Póllandi beitti lögreglan táragasi
og kylfum til þess að leysa upp
mótmælagöngu Samstöðumanna,
sem hrópuðu: „Látið politíska fanga
lausa" og kölluðu síðan nafn Buj-
aks.
í borginni Krakow í suðurhluta
Póllands hafðist lögreglan ekki að,
er 2.000 manns, þeirra á meðal
margar konur og böm, gengu yfír
Zbigniew Bujak, leiðtogi neð-
anjarðarhreyfingar Samstöðu,
var handtekinn í Póllandi á laug-
ardag. Hafði honum tekizt að
leynast fyrir pólskum yfirvöld-
um, allt frá því er herlög voru
sett i landinu 1981. Mynd þessi
af Bujak var tekin 1981 á úti-
fundi Samstöðu, þar sem hann
flutti ræðu, skömmu áður en
hann „hvarf undir jörðina" tíl
þess að forðast ofsóknir yfir-
valda.
markaðstorg borgarinnar höfðu
uppi mótmæli gegn kjamorku, köll-
uðu nafn Bujaks og hrópuðu síðan.
„Ekkert frelsi án Samstöðu."
Þessi mótmælaganga, sem var
skipulögð af óopinberum friðarhópi,
var upphaflega ráðgerð í því skyni
að mótmæla kjamorkuslysinu í
Chernobyl og tvær konur, sem fóm
í fararbroddi göngunnar, héldu á
loft borða, þar sem á stóð: „Enga
mengun frá Sovetríkjunum."
Danmörk:
Önnur sjónvarps-
rás á næsta ári
MEÐ tveggja atkvæða meirihluta — það er öllum atkvæðum
borgaraflokkannna nema Framfaraflokksins gegn öllum at-
kvæðum vinstri flokkanna og Framfaraflokksins að auki —
samþykkti danska þjóðþingið nú fyrir helgina að Danmörk fái
sjónvarpsrás nr. 2 á árinu 1987. Miklar deilur hafa staðið yfir
um þetta mál og hefur það ekki dregið úr, að þessi rás verður
að hluta rekin fyrir fé, sem fást á með auglýsingum.
Rás 2 á að vera sjálfstætt fyrir- marka þær á marga vegu. Eiga
tæki með sínar eigin fréttaútsend-
ingar, sem eiga að keppa við
fréttaútsendingamar á rás 1.
Áhrif danska menntamálaráðu-
neytisins em þó tryggð með því
að ráðherrann þar á að skipa þrjá
af fimm stjómarmönnum nýju
rásarinnar.
Þrátt fyrir það að auglýsingar
verða leyfðar er áformað að tak-
þær að vera samanþjappaðar í
tvær útsendingar og eftir kl.
19.30 á kvöldin verða engar
auglýsingar heimilaðar. Þá verða
því einnig skorður settar, hvaða
aulýsingar skulu leyfðar. Þannig
má ekki auglýsa áfengi, tóbak,
flokkspólitík, trúarbrögð né lækn-
islyf.
AP/Símamynd
Frá fjöldafundi stuðningsmanna Marcosar á Filippseyjum á sunnudag. Að fundinum loknum hélt
hluti fólksfjöldans til þjóðþinghússins og tók sér þar stöðu, en óeirðalögregla dreifði mannfjöldanum
um síðir.
Filippseyjar:
Stj órnar skrárnefnd
kemur saman fyrsta sinni
Manila, Filippseyjum. AP.
SVEITIR óeirðalögreglu dreifðu
þijú þúsund stuðningsmönnum
Marcosar fyrrum forseta með
táragasi, en fólkið hafði tekið sér
stöðu í kringum þjóðþingsbygg-
inguna í Manila aðeins fáum
stundum áður en ríkisskipuð
nefnd átti að koma þar saman
til þess að semja nýja stjórnar-
skrá fyrir landið í gærmorgun.
Til nokkurra átaka kom á milli
lögreglunnar og stuðningsmanna
Marcosar áður en lögreglunni tókst
að hrekja fólkið á brottu. Það hafði
tekið sér stöðu við bygginguna á
sunnudagskvöld og verið þar í níu
stundir er það varð að hverfa brott.
Var það skömmu áður en Corazon
Aquino, forseti landsins, átti að
flytja nefndinni ávarp sitt.
Aquino sagði nefridarmönnum í
ávarpi sínu að hún myndi ekki reyna
að hafa afskipti af störfum þeirra,
en ráðlagði þeim jafnframt að
vernda réttindi einstaklinga og
forðast deilur um stjómmál. Hann
bað nefndarmenn að vinna hratt
og vel og sagði að Filippseyingar
biðu í ofvæni eftir því að búa í
fullþroskuðu lýðveldi. Aquino hefur
óskað eftir því að stjómarskráin
verði tilbúin innan 90 daga og boðað
verði til þingkosninga snemma á
næsta ári en áður verður þjóðin að
staðfesta stjómarskrána í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Cecilia Munoz Palma, fyrmrn
hæstaréttardómari og einn af fyrstu
stuðningsmönnuin Aquino, 72 ára
að aldri, var einróma kjörin formað-
ur nefndarinnar. Hún sagði við það
tækifæri að nokkur tortryggni ríkti
í garð nefndarinnar vegna þess að
hún væri skipuð af stjómvöldum
Brussel. AP.
Samkvæmt skýrslu fram-
kvæmdanefndar Evrópubanda-
lagsins er líklegt að olíuverð verði
áfram u.þ.b. 15 dollarar tunnan
það sem eftir er þessa áratugar.
í skýrslunni, sem gerð var af
orkumáladeild framkvæmdanefndar-
innar, var því spáð að lækkun olíu-
verðs yrði til þess að auka hlutdeild
evrópskrar olíu, auk þess sem að
olíunotkun ykist almennt.
Skýrslan verður kynnt á fundi
orkumálaráðherra bandalagsins í
dag, en í henni er m.a. spáð að
orkunotkun verði um 7—14% meiri
árið 1990, en hún var 1985. Fyrri
spár höfðu gefíð til kynna að aukn-
ingin yrði minni en eitt prósent. Af
allri orkunotkun innan EB er talið
að olíunotkun verði um 48% árið
1990, en á síðasta ári var hún um
46%. Aður var ætlað að hún yrði 44%.
í skýrslunni sagði að þrátt fyrir
að bensínverð hefði fallið um 31%,
hefðu sumar ríkisstjómir hækkað
frekar en kjörin af þjóðinni, en
bætti við að „ást og trúnaður við
þjóðina" myndu vinna bug á öllu
slíku.
skatta svo að lækkunin varð mun
minni eða engin. í Danmörku hækk-
aði bensínverð um 7% frá 15 janúar
til 15 maí, en á sama tíma lækkaði
það um 22% í Vestur-Þýzkalandi.
Gengi gjaldmiðla
Lundúnum. AP.
EKKI urðu miklar breytingar á
gengi Bandaríkjadals á gjaldeyris-
mörkuðum i gær. Þannig kostaði
breska pundið við lok gjaldeyris-
markaða 1,4792, en kostaði á föstu-
dag 1,4725.
Gengi nokkurra annarra helstu
gjaldmiðla heims var sem hér segir,
gengið frá því á föstudag innan sviga.
Dalurinn kostaði 2,3220 vestur-þýsk
mörk, (2,3200), 1,9210 svissneska
franka, (1,9295), 7,3875 franska
franka, (7,3925), 2,6075 hollensk
gyllingi, (2,6075), 1.589,00 ítalskar
lírur, (1.591,50), 1,3858 kanadíska
dali, (1,37875) og 176,30 japönsk
yen, (172,05).
Skýrsla framkvæmdanefndar EB:
Olíutunnan á 15
dali tii aldamóta
TRYGGIÐ ORYGGI YKKAR
ALLT FYRIR ÖRYGGIÐ
Öryggisbelti, -blakkir, -hjálmar, -skór, -stígvél.
Heyrnarhlífar, andlitshlífar, -grímur, -síur og hanskar.
Viðurkenndur öryggis- og hlífðarbúnaður.
Skeifan 3h
Simi 82670