Morgunblaðið - 09.08.1986, Side 1
48 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
175. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Noregur:
Afengisverk-
falli lýkur
Osló, frá Jan Erík Laure,
fréttaritara Morgunbladsins.
LAUNAÁGREININGUR starfs-
manna áfengisverslana og
norska ríkisins var leystur í gær
og áfengisverslanir opna á
þriðjudag.
Starfsmönnum áfengisverslana
var boðin 10,2 prósent launahækk-
un þegar þeir fóru í verkfall. Nú
sættust þeir á 10,4 prósent hækk-
Neyðarástand
vegna þurrka í
Frakklandi
París, AP.
MIKLIR þurrkar hafa verið í
Frakklandi undanfarna þrjá
mánuði og hafa ræktuð svæði
skrælnað upp og þurfa bændur
að líkindum að leiða búfénað til
slátrunar vegna fóðurskorts.
A ýmsum svæðum landsins hefur
ekki rignt í þtjá mánuði. Skógareld-
ar hafa geisað í hæðunum fyrir
ofan frönsku rívíeruna vegna þurrk-
anna, með þeim afleiðingum að
uppskera hefur eyðilagst á stórum
svæðum og heimili fólks brunnið til
grunna.
Víða hefur landbúnaðarfram-
ieiðsia dregist saman um þijá fjórðu
hluta vegna þurrka og bændur eru
uppiskroppa með fóður handa naut-
gripum og sauðfé. Bændur hafa
sagt að þeir neyðist til að slátra
kvikfénaði sínum verði ekki þegar
ráðin bót á þessu.
Francois Guillaume, landbúanað-
arráðherra hefur rætt við fulltrúa
bænda og tilkynnt að grípa eigi til
skammtímaaðgerða til að ráða bót
á neyðarástandinu eftir tíu daga.
Ppcssens Bild/Símamynd Presscns Bild/Sfmamynd
Víkingasveit finnsku lögreglunnar kom þegar á vettvang eftir að vopnaður Finnskur lögregluþjónn liggur á skyggni bankans, sem
ræningi hafði tekið ellefu manns í gíslingu í banka í Helsinki. ráðist var inn í í gær. Bankaræninginn tók ellefu manns í
gíslingu og komst undan með hátt lausnargjald.
Bankarán í Finnlandi:
Komst undan með 3
gisla og lausnargjald
Helsinki, AP.
VOPNAÐUR ræningi réðist inn
í útibú Kansallis Osake Pankki
bankann í úthverfinu Jokoma-
eki í Helsinki í gær og tók ellefu
manns í gislingu. Lögreglan
skildi eftir hátt lausnargjald
fyrir gíslana fyrir utan aðaldyr
bankans og hafði ræninginn sig
á brott í Volkswagen Passat
bifreið með þijá gísla, einn
Ensk félagslið áfram úti-
lokuð frá Evrópukeppni?
i_i_a r*
London, AP.
BLÓÐUG átök brutust út milli
áhangenda þriggja enskra knatt-
spymuliða í feiju á leið til
Hollands í gær. Iþróttamálaráð-
herra Bretlands, Richard Trac-
ey, segir að átök þessi gætu orðið
til þess að það dragist um nokkur
ár að ensk knattspyrnulið fái að
taka þátt í Evrópukeppni félags-
liða.
Fimm fótboltabullur særðust og
voru þijár þeirra stungnar með
hnífi. Fjórtán slagsmálaseggir voru
handteknir.
Enskum félagsliðum var bannað
að taka þátt í Evrópukeppni um
óákveðinn tíma eftir að 39 manns
biðu bana í óeirðum, sem áhangend-
ur Liverpool stofnuðu til á Heysel
ieikvanginum í Briissel í fyrra.
Tracey sagði að enskir áhang-
endur knattspymuliða hefðu
hegðað sér vel síðan þá. „Forráða-
menn enskra knattspymuliða voru
því famir að vona að banni Knatt-
spymusambands Evrópu (UEFA)
yrði aflétt eftir næsta keppnistíma-
bil. En hegðun þessi gæti leitt til
þess að mörg ár líði þar til ensk lið
fá að taka þátt,“ sagði Tracey.
2.000 farþegar voru um borð í
feijunni og ákvað skipstjórinn að
snúa aftur til hafnar á Englandi
þegar átökin hófust. Áhangendur
liðanna West Ham, Manchester
United og Everton ætluðu að fylgj-
ast með liðum sínum leika æfinga-
leiki við félagslið í Hollandi og
Belgíu. Deildakeppnin hefst á Eng-
landi eftir tvær vikur.
karl og tvær konur.
Ekki var vitað hvert för ræn-
ingjans var heitið en bíll hans
sást síðast nærri bæ u.þ.b. 200
km norður af Helsinki. Þar nam
hann staðar á bensínstöð, fleygði
miða út um gluggann og krafðist
eldsneytis og bílasíma og fór fram
á að lögreglubíll, sem hafði fylgt
honum, léti af eftirför. Maðurinn
er vopnaður haglabyssu og dýn-
amítsprengjum.
Lögregla sagði að ræninginn
sæti milli kvennanna í aftursæti
bifreiðarinnar með teppi yfir höfð-
inu til þess að ekki mætti bera
kennsl á hann. I útvarfii sagði að
viðskiptavinur bankans sæti undir
stýri. Lögreglan telur að ökumaður-
inn hafi ákveðið að ganga til liðs
við ræningjann og segir að honum
verði leyft að fara óhindrað til ann-
ars lands.
Ekki er vitað hversu mikið fé
ræninginn fékk fyrir að láta gíslana
lausa. Finnsk yfírvöld segja að ekk-
ert verði gert, sem stefnt geti lífi
gíslanna þriggja í hættu.
Lögregluþjónar sömdu við ræn-
ingjann gegnum síma fyrir milli-
göngu framkvæmdastjóra bankans,
þar sem ræninginn neitaði að tala
við lögreglu.
Lögreglan sagði að ræninginn
hefði farið fram á hátt lausnargjald
og krafðist þess að sér yrði hleypt
á braut óhindrað í fylgd lögreglu.
Ríkin í sunnanverðri Afríku:
Vöruskortur og nefna-
hagsstríð“ í uppsiglingu
Jóhannesarborg, Harare, Bonn, AP.
EFNAHAGSÞVINGANIRNAR, sem bresku samveldislöndin ákváðu
að beita Suður-Afríkustjórn, eru farnar að hafa ntikil áhrif og aðal-
lega fyrir þau Afríkuríki, sem að ákvörðuninni stóðu, framvarðarrík-
in svokölluðu. Suður-afrískir tollverðir hafa tafið vöruflutninga til
og frá löndunum og er búist við, að brátt fari að gæta þar skorts
á ýmsum nauðsynjum. Mugabe, forsætisráðherra Zimbabwe, sagði
í gær, að Iivergi yrði hvikað frá refsiaðgerðunum þótt afleiðingarn-
ar kynnu að verða alvarlegar fyrir efnahagslífið í landinu.
Ríkisstjómir í nágrannaríkjum
Suður-Afríku sögðu í gær, að suð-
ur-afrískir tollverðir hefðu þá hert
enn eftirlit með vöruflutningum til
og frá löndunum og umferð tefðist
um allt að sólarhring af þeim sök-
um. Var gripið til þessara aðgerða
daginn eftir að samveldislöndin
ákváðu að beita Suður-Afríkustjóm
efnahagsþvingunum og einnig tekið
upp innflutningsgjald, sem þó er
endurgreitt síðar. Búist er við, að
vöruskorts, einkum olíu- og hveiti-
skorts, fari fljótt að gæta í mörgum
ríkjum í Afríku sunnanverðri, allt
norður til Zaire. Eiga þau mikið
komið undir góðum höfnum og full-
komnu járnbrautaneti í Suður-
Afríku.
Robert Mugabe, forsætisráð-
herra Zimbabwe, skoraði í gær á
ianda sína að búa sig undir skort
og „efnahagslegt stríð“. Sagði
hann, að vömflutningar til og frá
landinu myndu fara um Mósambík.
Þar em þó jámbrautasamgöngur í
kaldakoli vegna aðgerða skæmliða.