Morgunblaðið - 09.08.1986, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Borgar-
skáld
w
Oköp notalegur þáttur er nefn-
ist Reykjavík í augum skálda
hefir verið á dagskrá rásar eitt
undanfama fimmtudaga. I þættin-
um eru leikin lög er hæfa efninu
og síðan rekja umsjónarmennimir,
Þórdís Mósesdóttir og Símon Jón
Jóhannsson, stuttlega feril
Reylqavíkurskálda, lýsa andrúmi
og lesa úr verkum skáldanna og
njóta þar fulltingis Barða Guð-
mundssonar leikara. I fljótu bragði
virðist þáttur sem þessi auðveld
smíði en gáið að því að hér þarf
að stilla saman þrjá strengi svo
samhljómur náist; streng tónlistar-
innar, verka skáldanna og lýsingar-
innar á Reykjavík hvers tíma.
I síðasta þætti er spannaði tíma-
bilið 1955-1965 náðist þessi
samhljómur.
Skarkalinn fyrir utan glugga
vinnustofunnar ef einhver var
hljóðnaði og ég hélt til móts við þá
skáldiegu mynd af Reykjavík er
skáldin og rithöfundamir Þórbergur
Þórðarson, Ásta Sigurðardóttir,
Jökull Jakobsson, Matthías Johann-
essen, Jón Óskar, Þorgeir Þorgeirs-
son, Nína Björk Ámadóttir og
Dagur Sigurðarson ristu í eterinn
með penna sínum. Siík orðsmíð yfir
oft á tíðum tilfínningar sem færa
hlustandann nær viðburðum en
beinskeytt myndmál filmunnar.
Þannig er skáldskapurinn máski
eina færa leiðin að kviku leyndra
hugsana og tilfinninga slíkra er
hafa löngu verið numdar burt af
holskeflu tímans? Lítum á brot úr
ljóði eftir Matthías Johannessen úr
Borgin hló.
Þegar myrkrið settist að i augum þinum
flissaði borgin eins og ungiingsstelpa
sem er nýbyijuð að drekka kókakóla
á Adlon
og götumar ómuðu af uppgerðarhlátri
þeirra sem gengu prúðbúnir
af dansleik kvöldsins.
Hver man nú eftir Adlon? — Ekki
ég — en í ljóði Matthíasar birtist borg-
in okkur í augum unglingsins er stígur
kvíðinn úr föðurhúsum inní hringiðu
dansleiksins mikla er gleypir suma en
skilar öðrum á ljúfan áfangastað.
Slíkar ljóðmyndir eldast ekki og þær
eru sifellt að kvikna í augunum ungu
er líta torg borganna.
f Ijóðsögu Dags Sigurðarsonar,
Hitabylgju í Hljómskálagarðinum, er
flutt var í fyrrgreindum þætti kvað
við nokkuð annan tón en hjá Matt-
híasi er vefur leiftrandi og óvæntar
líkingar inní hversdagsræðu þannig
að heilinn fær aldrei frið — hjá Degi
í fyrrgreindu ljóði er hins vegar hugur-
inn teymdur í samfylgd ljóns nokkurs
er vemdar elskendur í Hljómskála-
garðinum og slík er trú Dags á ljónið
að hlustandinn var fyrr en varir kom-
inn á bak dýrinu. Slík Ijóðmynd eldist
ekki heldur þvf þar spriklar hugarflug
bamsins sem býr í okkur öllum og það
sem meira er að Dagur hefir þroskaða
máltilfinningu.
ískólunum
Matthías og Dagur eru báðir borg-
arskáld því að þeir eru bomir og
bamfæddir Reykvíkingar en ( þeim
skilningi er til dæmis borgarskáldið
Tómas ekki borgarskáld. En það er
svo aftur stór spuming hvort rétt sé
að greina á milli hreinræktaðra borg-
arskálda og hinna er koma til borgar-
innar. Þau Þórdís og Símon Jón greina
ekki hér á milli enda geta næmir
menn vissulega numið hjartslátt borg-
arinnar þótt þeir séu utan af landi.
Hitt er ljóst að innfæddir Reykvíking-
ar sjá vafalaust borgina sína ætíð I
nokkuð öðru ljósi en þeir er nema við
móðurkné utan borgarmarka. Væri
máski ekki úr vegi að skoða íslenskan
nútímaskáldskap í ljósi þessa greinar-
munar og hafa hann til hliðsjónar við
bókmenntakennsiu í skólum landsins?
Fimmtudagsþættir Þórdísar Móses-
dóttur og Símonar Jóns Jóhannssonar
ættu hér að geta nýst bókmennta-
kennurum prýðilega.
Ólafur M.
Jóhannesson
Fiðlarinn á þakinu
^■^■1 f kvöld er á dag-
Ol 00 skrá sjónvarps
^ A þriggja tíma
bandarísk bíómynd gerð
eftir Ieikriti Joseph Stein,
Fiðlarinn á þakinu.
Myndin gerist í þorpinu
Anatevka í Ukraínu og
fjallar um sjö manna fjöl-
skyldu, hjón og fimm
dætur.
Tevye, fjölskyldufaðir-
inn, er fátækur mjólkur-
póstur og heldur
framtakslítill. Golde, kona
hans, er hins vegar ákveðin
og orðhvöss í meira lagi.
Hún hefur mjög fastmótað-
ar skoðanir á því hveijum
dætur þeirra eiga að gift-
ast en dætumar eru ekki
sammála móður sinni.
Raddir spaug-
stofunnar
Þeir sem hlustað hafa á
rás 2 í sumar hafa eflaust
furðað sig á undarlegum
innskotum með ýmiss kon-
ar spaugi, bæði í morgun-
útvarpi og á föstudagsnæt-
urvöktum.
Þeir sem eiga þessar
raddir eru Pálmi Gestsson,
Öm Ámason, Karl Ágúst
Úlfsson, Sigurður Sigur-
jónsson og Randver Þor-
láksson.
Þeir sprellikarlar ætla
að halda iðju sinni áfram,
að minnsta kosti í sumar.
Tzeitel þvertekur fyrir
að giftast slátrara þorpsins
en móðurinni leist vel á
hann sem tengdason. í
staðinn giftist hún fátæk-
um klæðskera. Þó tekur
fyrst steininn úr þegar
Chava segir skilið við trú
sína, en fjölskyldan er öll
gyðingar, og giftist kristn-
um manni.
Þessar Qölskyldueijur
falla þó fljótt í gleymsku
þegar keisarastjómin tekur
að ofsækja gyðingana í
Anatevka. Tevye, fjöl-
skylda hans og nágrannar
verða, að velja á milli þess
að týna lífinu eða yfirgefa
heimkynni sín.
Með aðalhlutverk fara
Chaim Topol, Norma
Crane, Rosalind Harris,
Leonard Frey og Michele
Marsh. Leikstjóri er Nor-
man Jewison.
Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
UTVARP
LAUGARDAGUR
9. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
7.30 Morgunglettur
Létt tónlist.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Fréttir á ensku
8.35 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna.
8.46 Nú er sumar
Hildur Hermóðsdóttir hefur
ofan af fyrir ungum hlust-
endum.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.20 Óskalög sjúklinga
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veöurfregnir.
10.25 Morguntónleikar
a. „Dans hinna sælu sálna"
úr „Orfeusi", óperu éftir
Christoph Willibald Gluck.
James Galway leikur á flautu
með Ríkisfílharmóníusveit-
inni f Lundúnum; Charles
Gerhardt stjórnar.
b. Serenaöa nr. 12 í c-moll
K. 388 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. Blásarar í
Nýju fílharmóníusveitinni
leika; Otto Klemperer stjórn-
ar.
11.00 Frá útlöndum
Þáttur um erlend málefni I
umsjá Páls Heiðars Jóns-
sonar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar.
Af stað
Björn M. Björgvinsson sér
um umferðarþátt.
13.50 Sinna
Listir og menningarmál
líðandi stundar. Umsjón:
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
og Þorgeir Ólafsson.
15.00 Miðdegistónleikar
Sinfónía nr. 4 eftir Gustay
Mahlef. Sinfóniuhljómsveit-
in i Chicago leikur; Georg
Solti stjórnar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 „Veröbólguþjóöfélag",
smásaga eftir Ingibjörgu
Þorbergs.
Höfundur les.
17.00 Barnaútvarpið
Umsjón: Kristín Helgadóttir
og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.40 Samleikur i útvarpssal
Anna Guðný Guömunds-
dóttir, Martial Nardeau,
Kristján Þ. Stephensen, Sig-
uröur I. Snorrason, Þorkell
Jóelsson og Björn Árnason
leika sextett fyrir flautu, óbó,
klarinettu, horn, fagott og
píanó op. 38 eftir Hans
Melchior Brugk.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
17.30 Iþróttir. Umsjónarmaö-
ur Bjami Felixsson
19.20 Ævintýri frá ýmsum
löndum (Storybook Internat-
ional) 4. Hermaðurinn sem
vildi ekki þvo sér. Mynda-
flokkur fyrir börn. Þýðandi:
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Sögumaður: Edda Þórarins-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.35 Auglýsingarogdagskrá
20.35 Fyrirmyndarfaöir
(The Cosby Show) Tólfti
19.30 Tilkynningar.
19.35 Hljóð úr horni
Umsjón: Stefán Jökulsson.
20.00 Sagan: „Sundrung á
Flambardssetrinu" eftir K.
M. Peyton
Silja Aöalsteinsdóttir les
þýðingu sina (20).
20.30 Harmonikkuþáttur
Umsjón: Einar Guðmunds-
son og Jóhann Sigurðsson.
(Frá Akureyri)
21.00 Frá (slandsferð John
Coles sumarið 1881
Fyrsti þáttur. Tómas Einars-
son tók saman. Lesari með
honum: Baldur Sveinsson.
21.40 Islensk einsöngslög
Elísabet Erlingsdóttir syngur
lög eftir Karl O. Runólfsson
og Pál (sólfsson. Guðrún
Kristinsdóttir leikur með á
píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 Laugardagsvaka
Þáttur I umsjá Sigmars B.
Haukssonar.
LAUGARDAGUR
9. ágúst
þáttur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur I 24 þáttum.
Aðalhlutverk: Bill Cosby og
Phylicia Ayers-Allen. Þýð-
andi: Guðni Kolbeinsson.
21.00 Fiðlarinn á þakinu
(Fiddler on the Roof)
Bandarísk bíómynd frá árinu
1971, gerð eftir samnefndu
leikriti eftir Joseph Stein.
Leikstjóri: Norman Jevyison.
Aðalhlutverk: Chaim Topol,
Norma Crane, og Rosalind
Harris. Tavye býr I þorpinu
Anatevka í Úkrainu á árun-
23.30 Danslög
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar —
Úr fórum Franz Liszts
Sönglög við Ijóð eftir þýsk
skáld, Goethe og fleiri, og
pianótónlist, m.a. „Heilagur
ái?
10.00 Morgunþáttur
* í umsjá Kristjáns Sigurjóns-
sonar.
12.00 Hlé.
14.00 Við rásmarkiö
Þáttur um tónlist, iþróttir og
sitthvað fleira. Umsjón: Einar
Gunnar Einarsson ásamt
um fyrir rússnesku bylting-
una. Hann er fátækur og á
fyrir eiginkonu og dætrum
að sjá. Kona hans bihdur
vonir við dætur sínar og
ætlar þeim auðug manns-
efni. Sjálfar hafa þær aörar
skoöanir á þeim málum en
brátt virðist sá ágreiningur
lltilvægur hjá gyöingaof-
sóknum sem fara i hönd.
Þýðandi: Óskar Ingimars-
son.
00.06 Dagskrárlok.
Franz frá Paula gengur á
vatninu". Umsjón: Jón Örn
Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
iþróttafréttamönnunum
Ingólfi Hannessyni og Samúel
Erni Erlingssyni.
16.00 Listapopp
i umsjá Gunnars Salvarsson-
ar.
17.00 íþróttafréttir
17.03 Nýræktin
Snorri Már Skúlason og Skúli
Helgason stjórna þætti um
nýja rokktónlist, innlenda og
erlenda.
18.00 Hlé
20.00 F.M.
Þáttur um þungarokk í umsjá
Finnboga Marinóssonar.
21.00 Milli striða
Jón Gröndal kynnir dægurlög
frá árunum 1920—1940.
22.00 Framhaldsleikrit: „( leit að
sökudólgi" eftir Johannes Sol-
berg. Þýöandi: Gyða Ragnars-
dóttir. Leikstjóri: María
Kristjánsdóttir. Fjórði og
siðasti þáttur: „Gildar ástæð-
. ur til grunsemda". Leikendur:
Þórhallur Sigurðsson, Jóhann
Sigurðarson, Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir, Gisli Rúnar
Jónsson, Kolbrún Erna Pét-
ursdóttir, Sigurður Skúlason,
Guðrún Gísladóttir, Helga
Jónsdóttir, Hallmar Sigurðs-
son, AÖalsteinn Bergdal,
Sigurveig Jónsdóttir og Hreinn
Valdimarsson. (Endurtekið frá
sunnudegi, þá á rás eitt.)
22.40 Svifflugur
Stjómandi: Ólafur Már Björns-
son.
24.00 Á næturvakt
með Jóni Axel Ólafssyni
3.00 Dagskrárlok.
SJÓNVARP
Verðbólgu-
þjóðfélag
■■■■■ í dag er á dag-
-i £20 skrá rásar 1
A ú smásaga eftir
Ingibjörgu Þorbergs. Nefn-
ist hún Verðbólguþjóðfé-
lag. Höfundur les sjálfur
söguna sem gerist í
Reykjavík. Að því er segir
í tilkynningu frá útvarpinu
er sagan fyrst og fremst
raunsæ ádeilusaga sem
sýnir fram á að verðbólgu-
þjóðfélagið leikur þegna
sína grátt og sviptir þá
jafnvel hamingjunfii.
Fyrirmynd-
arfaðir
■■■■■ Landsmenn fá í
QA 35 kvöld enn eitt
tækifæri til að
kynnast lífi
Cosby-Qölskyldunnar
bandarísku. Klukkan 20.35
er á dagskrá sjónvarps
tólfti þátturinn af fyrir-
myndarföðurnum, The
Cosby Show, sem fjallar
um þessa vinalegu fjöl-
skyldu.
Með aðalhlutverk fara
Bill Cosby og Phylicia Ay-
ers Allen. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.