Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 180. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Beirút: Bílsprenging í verslunargötu Beirút, Líbanon, AP. ^ i J NÍTJÁN manns fórust og 90 slös- uðust þegar bílsprengja sprakk í gær í Austur-Beirút, hverfi kristinna manna. Talið er, að maður hafi verið i bifreiðinni þegar hún sprakk. Sprengjan sprakk í mikilli versl- unargötu í Austur-Beirút og urðu miklar skemmdir á 30 verslunum. 27 bifreiðir ónýttust og eldur kom upp í tveimur íbúðablokkum. Út- Mikil eyðilegging varð í spreng- ingunni. Jafntefli í 7. skákinni Frá Margeiri Péturssyni, London. ÞAÐ varð ekkert úr frekari tafl- mennsku í sjöundu einvígisskák Kasparovs og Karpovs sem fór í bið á miðvikudagskvöldið. Samið var jafntefli símleiðis í gærmorg- un. Það var Karpov sem bauð jafnteflið. Biðieikur Kasparovs var 41. — Kg8. Hann hafði riddara og tvö peð fyrir hrók Kai-j>ovs. Staðan var al- mennt talin í jafnvægi. Að loknum sjö skákum í einvíginu er staðan jöfn, þrír og hálfur — þrír og hálf- ur. Áttunda skákin verður tefld í kvöld, þá hefur Kasparov hvítt. Fjórða umferð á opna samveldis- mótinu var tefld í gær. Jóhann Hjartarson vann enska alþjóða- meistarann Hebden. Jón G. Viðars- son vann Singh frá Indlandi. .Jóhann hefur nú þijá og hálfan vinning en Jón einn vinning. varpsstöðin „Rödd Líbanons", sem kristnir menn reka, sagði og hafði eftir vitnum, að maður hefði verið í bifreiðinni þegar sprengjan sprakk. í gær var bæld niður uppreisn innan helstu samtaka kristinna manna í Líbanon. Vildu uppreisnar- menn hafa nánara samstarf við Sýrlendinga en hermenn hollir Sam- ir Geagea, sem er mjög andvígur afskiptum Sýrlendinga, neyddu þá til uppgjafar. Reykingar í flugvélum: Bindindis- mennirnir fá afslátt Houston, Texas, AP. CONTINENTAL-flug- félagið bandaríska ætlar að bjóða öllum þeim, sem ekki reykja, 10% afslátt af farmiðaverði. Mun þetta kostaboð standa i tæpa tvo mánuði til reynslu. Forráðamenn flugfélags- ins tóku þessa ákvörðun eftir að bandaríska vísindaaka- demían lét frá sér fara skýrslu þar sem hvatt var til algjörs banns við reykingum í flugvélum í innanlandsflugi. Var bent á óhollustuna, sem af reykingúm stafar, ekki aðeins fyrir þá, sem reykja, heldur einnig fyrir þá, sem neyðast til að anda að sér reyknum, og auk þess á það, að reykingar um borð í fíug- vélum geta verið hættulegar öryggi farþega og áhafnar. Reynslan af þessu nýmæli hjá Continental-flugfélaginu mun síðan skera úr um fram- haldið. AP/Símamynd „Múrnum fagnað“ í fyrradag var þess minnst víða um heim, að 25 ár'eru liðin frá því að Berlínarmúrinn var reist- ur. í Vestur-Þýskalandi héldu þeir Helmut Kohl, kanslari, og Willy Brandt, leiðtogi jafnaðar- manna, ræður um þennan bautastein, sem kommúnistar hafa reist sjálfum sér, en í Austur- Þýskalandi var tímamótunum fagnað með „stuðningsgöngu við múrinn“ og hersýningu. Erich Honecker, leiðtogi a-þýskra kommúnista, er fyrir miðri mynd að heilsa hermönnunum en honum til hægri handar er Willi Stoph, annar ráðamaðurinn i frá. Á vinstri hönd Honeckers er yfirmaður „hinna vopnuðu herja verksmiðju- verkamanna“. Tamílar handteknir í Vestur-Þýskalandi Grunaðir um að hafa skipulagl siglinguna til Kanada Hamborg ojf St. Johns, AP. TVEIR Tamílar frá Sri Lanka voru í gær handteknir i Vestur- Þýskalandi og eru þeir grunaðir um að hafa tekið þátt í að skipu- leggja siglingu 152 annarra Tamíla til Kanada. Enn er ekki ljóst með hvaða skipi þeir fóru en orðrómur er um, að það sé frá Hamborg. Sri Lankabúamir voru handtekn- ir í Hamborg en í nágrannabæn- um Stade dveljast margir landa þeirra. Við athugun hefur komið í ljós, að 20-25 Tamílar eru horfnir úr bænum og grunar yfirvöld í Neðra-Saxlandi, að þeir séu nú Orðrómur er um, að þetta skip, Nttmberg, hafi flutt tamílsku flótta- mennina. Kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum: Spurt hvort Islendingar tefji framgang málsins Kaupmannahöfn, lb Björnbak, fréttaritari Mor^unbladsins. A FUNDI með fréttamönnum eftir utanríkisráðh’errafund Norðurlanda hér í Kaupmanna- höfn var Matthías Á. Mathie- sen, utanríkisráðherra, spurður að því hvort íslending- ar hefðu á fundinum tafið fyrir framgangi hugmyndarinnar um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Utanríkisráð- herra sagði, að Islendingar vildu, að svæðið næði frá Aust- ur-Grænlandi til Úralfjalla. Á utanríkisráðherrafundinum komu hvalveiðar ekki til umræðu og sagði Sten Andersson, utan- ríkisráðherra Svíþjóðar, að ástæðan væri'sú, að áður hefði verið tekin ákvörðun um að tak- marka þær. Fyrir ráðherrafundinum lá til- laga um að skipuð yrði sérstök embættismannanefnd til að fjalla um kjamorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Varð það niður- staða fundarins, að forstöðu- mönnum stjórnmáladeilda utanríkisráðuneytanna skyldi fal- ið að kanna allar hliðar þcssa máls fyrir næsta fund ráðherr- anna. Verður hann haldinn í Reykjavík í lok marsmánaðar næstkomandi. Sjá ennfremur viðtal við Matthías Á. Mathiesen á bls. 20. staddir í Kanada ásamt Tamílum frá öðrum stöðum í Vestur-Þýska- landi og hugsanlega öðmm Evr- ópuríkjum. Frá árinu 1980 hafa 36.000 Tamílar sótt um landvist í Vestur-Þýskalandi en flestum verið neitað um hana. Þó hefur þeim ekki verið vísað brott úr landinu. Sjómaður á Nýfundnalandi, sem tók þátt í að flytja Tamílana úr björgunarbátunum, segir, að sumt af fólkinu hafí verið í björgunar- vesti með áletruninni Hapag-Lloyd, nafni skipafélags í Hamborg. Gámaskip frá því sigla reglulega til New York og Halifax á Nýja- Skotlandi. Hefur sérstaklega eitt skipa þess, Nurnberg, verið nefnt í þessu sambandi. Kanadísk stjómvöld hafa gefið í skyn, að Tamílamir fái að vera um kyrrt í landinu ef þeir geta fært sönnur á þjóðemi sitt. Nokkurs uggs gætir þó um að annað flótta- fólk frá þriðja heiminum muni reyna þessa sömu aðferð við að komast til Kanada.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.