Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986 Islandsmótið ítennis: Spennandi keppni lýkur um helgina • íslandsmótið í siglingum verður um helgina. íslandsmótið bátum hefst í DAG hefst þriggja daga keppni siglingamanna um titilinn ís- landsmeistari á kjölbátum 1986 og munu siglingamenn tefla fram sínu besta liði til að manna hvert rúm þeirra 20 báta sem væntan- lega taka þátt í keppninni, en áætla má að þátttakendur verði allt að 100. Undanfarin ár hefur þessi keppni verið hápunktur siglingakeppenda, enda mikið fjör og hart barist. Keppnin hefst á Fossvogi í 0á kvöld, með því að bátar verða skoðaðir. Farið er yfir allan örygg- isbúnað og kannað hvort fylgt sé reglum um búnað báta til siglinga við landið. Ræst verður til keppni kl. 19.00 og sigld gefin braut til Reykjavíkur þar sem siglingamerki umhverfis Seltjarnarnes og eyjar verða notuð sem merki. Markið verður væntanlega í mynni Reykjavíkurhafnar. Á laugardag og sunnudag verð- ur keppnin haldin á „Ytri höfninni" annað hvort utan Engeyjar og Við- eyjar eða eyjarnar látnar falla inn í brautirnar. ÍSLANDSMÓTINU í tennis lýkur nú um helgina með undanúrslita- leikjum í einliða- og tvíliðaleik karla á föstudagskvöld og úrslita- leikjum i' öllum flokkum á laugar- dag. Þessir teikir fara fram á hinum nýju tennisvöllum við Hót- el Örk í Hveragerði. Mótið hófst si'ðastliðinn föstudag og settu veðurguðirnir strik í reikninginn í upphafi mótsins, en samt hefur tekist að halda leikjaáætlun. Öll keppni í mótinu er með út- sláttarfyrirkomulagi og verða samtals leiknir rúmlega 100 leikir í mótinu. Keppendur eru 39 í karla- flokki og 9 í kvennaflokki, en í unglingaflokkum eru samtals 37 keppendur, heildarfjöldi keppenda á mótinu eru því 85. Það er tölu- verð fjölgun frá því í fyrra, enda vex nú íþróttinni óðum fiskur um hrygg hér á landi. í einliðaleik karla var höfð for- keppni um sæti í úrslitakeppninni og tóku 26 keppendur þátt. I henni sigruðu þeir Ingvar Guðjónsson, Guðmundur T. Árnason, Victor Urbancic og Einar Ólafsson. Á á kjöl- ídag Mjög mikill stærðarmunur er á þeim bátum sem taka þátt; keppn- inni, en þeir minnstu eru 18 fet, svokallaðir „micro-bátar" en flagg- skip flotans er Sæstjarnan, 30 feta skúta með mjög stóran seglflöt. Þrátt fyrir stærðarmun báta geta þeir keppt á sömu brautum þar sem gefin hefur verið út jöfn- unartala milli bátanna, forgjöf. Þannig geta síðustu bátar unnið í keppninni allt eftir þvi hve vel skip- stjóri og áhöfn hafa ráðið við vind og strauma í hverri keppni. Golfmót GS GENGST fyrir opnu öld- ungamóti nú um helgina 1 Leirunni. Leiknar verða 18 holur á sunnudaginn og verð- ur ræst út frá klukkan 10 árdegis en skráning fer fram á laugardaginn í golfskálan- um. Á mánudaginn verður auka- mót hjá GR, ágústmótið, og verður ræst út frá klukkan 11 árdegis. Leiknar verða 18 hol- ur með forgjöf en einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor af gulum teigum. Stigameistaramót íslands verður haldið á velli Keilis í Hafnarfirði á laugardag og sunnudag. Keppni þessi er holukeppni þar sem stiga- hæstu menn sumarsins reyna með sér. Á laugardaginn keppa 16 efstu, sá er tapar fellur úr keppni og eftir hádepi keppa þeir sem eftir eru. Ur þeirri keppni falla fjórir og munu þeir reyna með sér fyrir hádegi á sunnudag og úrslita- leikurinn verður síðan eftir hádegi á sunnudaginn. Læknar gangast fyrir golf- móti hjá GR á fimmtudaginn 28. ágúst og verður ræst út hjá þeim frá klukkan 15 til 17. Blönduós: Meistaramót í golfi FYRSTA meistaramót golfklúbbs- ins Óss var haldið daganna 2. og 3. ágúst á golfvelli félagsins i' Vatnahverfi. Keppt var í tveimur flokkum, meistaraflokki og ungl- ingaflokki. í karlaflokknum sigraði Jón Jó- hannsson á 229 höggum. í öðru sæti á sama höggafjölda varð Guðmundur Ragnarsson en hann varð að lúta í lægra haldi fyrir Jóni í bráðabana. Páll Valgeirsson varð í þriðja sæti með 239 högg. í ungl- ingaflokki varð Steindór Grímsson hlutskarpastur en Hjörvar Péturs- son varð annar og Olafur Sveins- son þriðji. Vegleg verðlaun voru í boði sem Hótel Blönduósgaf. Enn- fremur voru veitt kylfuverðlaun og til þess að hreppa þau þurfti að slá kúluna næst holu 2. Kylfuverð- launin hlaut Einar Jóhannesson og vatnaði 7,84 m upp á að kúlan lenti í holu 2. Mótsstjóri á þessu fyrsta meistaramóti Blöndósinga í golfi var Sturla Bragason. Jón Sig. miðvikudag var leikin önnur um- ferð í úrslitakeppni karla og urðu úrslit þar þannig að Kjartan Óskarsson sigraði Árna T. Ragn- arsson 6—1, 6—3 og Arnar Arin- bjarnar sigraði Kristján Baldvins- son 6—0, 6—2 og munu þeir Arnar og Kjartan leika saman í undanúr- slitum en á hinum vængnum sigraði Úlfur Þorbjörnsson Ragnar R. Árnason 6—1, 6—1 og Jón Páll Gestsson sigraði EinarÁsgeirsson 6—3, 6—3 og munu þeir Úlfur og Jón Páll því leika í hinum undanúr- slitaleiknum. í tvíliðaleik karla tóku 10 lið þátt, en þar keppa í undanúrslitum bræðurnir Úlfur og Atli Þorbjörns- synir gegn Einari Óskarssyni og Guðbirni Gunnarssyni, en á hinum vængnum Ragnar T. Árnason og Jón Páll Gestsson gegn Árna T. Ragnarssyni og Kristjáni Baldvins- syni. í einliðaleik kvenna keppa til úrslita Margrét Svavarsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir og í tvíliða- leik kvenna Margrét Svavarsdóttir og Steingerður Einarsdóttir gegn Guðnýju Eiríksdóttur og Þórdísi Edvald. í tvenndarleik leika til úr- slita Margrét Svavarsdóttir og Úlfur Þorbjörnsspn gegn Guðnýju Eiríksdóttur og Árna T. Ragnars- syni. í einliðaleik pilta 11—13 ára leika til úrslita Stefán Pálsson og Eiríkur Önundarson, en í einliðaleik pi|ta 14—16 ára leika til úrslita Ragnar T. Árnason og Atli Þor- björnsson. Eins og fyrr sagði fara úrslit mótsins fram við hina nýju velli Hótel Arkar í Hveragerði á föstu- dag kl. 17—21 og á laugardag kl. 10.30—18 og er öllum áhorfendum heimill ókeypis aðgangur að úr- slitaleikjunum. Hópferð á leik Juventus og Vals NÚ FER að styttast í að Evrópu- leikirnir í knattspyrnu verði leiknir. Skagamenn leika fyrri leikinn hér heima 16. september og daginn eftir keppir Fram hér heima einnig. Valsmenn halda hinsvegar til Tóri'nó á Ítalíu þar sem þeir leika 17. september við risana í Juventus en seinni leikur- inn verður hér heima 1. október. Ákveðið hefur verið að efna til hópferðar á leik Vals og Juventus í Tórínó og er það ferðaskrifstofan Útsýn sem sér um þessa ferð. Ferðin tekur eina viku og hægt er að framlengja dvölina á Ítalíu eða í London ef menn vilja frekar stoppa þar og sjá einhverja leiki á Englandi. Dvalið verður í fimm daga í Lign- ano og tvo daga í Tórínó áður en haldið er heim á leið og kostar ferðin 24.000 fyrir hvern einstakl- ing og er aðgöngumiðinn á leikinn innifalinn í því verði. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um Juvent- us. Þeir eru heimsmeistarar félagsliða í knattspyrnu og í liðinu leikur margur knattspyrnusnilling- urinn og nægir þar að nefna þá Michel Platini og Mikael Laudrup. lan Rush mun ekki leika með liðinu fyrr en næsta keppnistímabil þó svo þeir séu búnir að kaupa kapp- ann en það ætti ekki að koma í veg fyrir að áhorfendur skemmti sér hið besta þar sem stemmning- in á velli Juventus er með eindæm- um. ____, , ,___ Pétursmálið: Dæmtá fimmtudag? HÉRAÐSDÓMUR íþróttabanda- lags Hafnarfjarðar „dómtók" Pétursmálið á fundi í Hafnarfirði i' gærkvöldi. Þá veitti dómurinn kæru FH-inga móttöku. Eftir að mál hefur verið dómtek- ið fá málsaðilar allt að viku frest til að afla sér gagna, en vonast er til að það þurfi ekki að taka svo langan tíma. Stefnt er að því að dæma í málinu í lok næstu viku - á fimmtudag eða föstudag. Gissur Kristjánsson, lögfræðingur, er for- maður dómsins. Hitachi-mót á Selfossi GOLFKLUBBUR Selfoss heldur árlegt Hitachi-golfmót á laugar- daginn á Svarfhólavelli við Sel- foss. Leikið verður með og án forgjafar og ræst út frá kl. 8.30 til 13. Verðlaun í mótinu verða hin glæsilegustu, þ. á m. litsjónvarp og myndbandstæki fyrir holu í höggi, hvor á sinni braut. Einnig verða aukaverðlaun til þeirra sem verða næstir holu á þessum tveim- ur brautum. Þetta er 5. árið í röð sem Hitac- hi-mótið er haldið. í fyrra var það haldið á Strandarvelli austan við Hellu og þá tóku þátt 70 manns. Núna eru kylfingar á Selfossi á heimavelli sem orðinn er mjög góður og er búist við góðri þátt- töku í mótinu. .gjg Jóns. iþróttaskólar að byrja 1 I #%■%«! L-. I I #%■ ■!##, rYi n A m á I/1 ■ ■ rv* A + i #-» ■ • ■ # ■ . „ . Handboltaskóli Hauka hefst eftir helgina, 18. ágúst, og er hann opinn öllum börnum á aldr- inum 6—14 ára. Kennt verður f Haukahúsinu og eru börn á aldr- inum 6—8 ára beðin að mæta klukkan 10, 9—11 ára strákar kl. 11, stelpur klukkan 13, 12—14 ára strákar mæta klukkan 14 og stelpur á sama aldri klukkustund síðar. Skólanúm verður síðan slitið laugardaginn 23. ágúst með miklu móti. Körfuknattleiksdeild Hauka verður með körfuboltaskóla í ágúst fyrir drengi og stúlkur og verður kennt í húsi Viðistaða- skóla. 7—9 ára krakkar mæti klukkan 10, 10 og 11 ára klukkan 13 og þau elstu, 12—14 ára, klukkan 15. Námskeiðið hefst á mánudaginn og það stendur í eina viku. Körfuknattleiksskóli ÍR hefst Seljaskóla þriðjudaginn 19. ágúst og lýkur 29. sama mánað- ar. ÍR-ingar byrja klukkan 9 á morgnana og þá mæta 11 ára krakkar. Ári yngri mæta klukkan 10 og klukkutíma síðar koma 8 ára börn til leiks. Klukkan 13 eru það krakkar sem eru 7 ára og klukkan 14 þau sem eru 9 ára. Innritun fer fram á morgun í and- dyri Seljaskóla milli klukkan 13 og 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.