Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 6
6 MORGtJNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚSf 1986 ÚTVARP/SJÓNVARP Tónlistar- deildin Eins og ég gat um í gærdags- greininni eru þeir býsna gamansamir á fréttastofu út- varps, á sama tíma og félagarnir á rás 2 stofna Bítlavinafélag stofna starfsmennimir á frétta- stofunni Castróvinafélag, hver maður hefur jú rétt á sínum prívathúmor. Nú og stundum eru menn fyndnir alls óvart. Þannig var undirritaður á ferð í bfl sínum síðdegis síðastliðinn miðvikudag. Sól var hátt á lofti fyllt sumarang- an. Hvert sem augað leit sást stritandi mannfólkið að laga götur borgarinnar fyrir afmælisdaginn eða að smíða hátimbraða afmælis- palla. I slíku veðri er lundin að sjálfsögðu létt og ég kveikti á útvarpinu í bflnum mínum og stillti á rás 1. Veðurfregnum var rétt að ljúka og drungaleg rödd veðurfræðingsins skemmdi lítt sumarkomuna síðbúnu, því enn var spáð björtu veðri. Þá tók þul- urinn við ögn vandræðalegur: Næst á dagskrá er tónlist eftir Pjotr Tsjaíkvoski. Fyrst forleikur að Ballettinum: Rómeó og Júlía. Hallé-hljómsveitin leikur, Okko Kamu stjómar. Hœfirskel... Persónulega hef ég gaman af Tsjaíkovski, en þegar ábúðarmiklir hljómar forleiksins fylltu bílinn, flýtti ég mér að slökkva. Þessi nítjándualdartónlist hæfði einhvem veginn svo illa umhverfinu að ég átti ekki annarra kosta völ, þið skiljið, eða er við hæfi til dæmis í kátri brúðkaupsveislu, þar sem brúðhjónin sveiflast um dansgólfið, að byrja allt í einu að leika ballett- tónlist? Með þessum orðum er ég alls ekki að bera í bætifláka fyrir hina oft stöðluðu og steingeldu poppmúsik er flæðir um hlustir frá Rás 2 og kananum hér suðvestan- lands, en stundum hljómar poppið alveg prýðilega og í samhljómi við amstur dagsins. En blessuð tónlist- ardeildin á rás 1 er nú einu sinni lokuð innan fjögurra veggja og þar sér hvorki til sólar né regns. Er ekki löngu kominn tími til að breyta fyrirkomulagi tónlistardeildarinnar í þá veru að þar sé ekki njörvuð niður tónlistardagskrá er tekur ekki hið minnsta tillit til umhverfis og aðstæðna? Þannig hefði mátt hugsa sér að í stað þess að þulurinn á miðvikudaginn var hefði lesið með grafarhljómi í röddinni: Næst á dagskrá er tónlist eftir Pjotr Tsjaíkovski. Þá hefði staðið í dag- skránni: Klassík á miðvikudagseft- irmiðdegi að hætti þular. Enn á ný Enn á ný skín sólin allt í kringum bílinn minn og á afmælisbamið sem verið er að færa í matrósafötin, í viðtækinu er veðurfræðingurinn að syngja sitt síðasta vers og nú hljóm- ar rödd þular: Kæru hlustendur nú er sumar og sól og héma útaf út- varpshúsinu við Skúlagötu breikkar óðum hraðbrautin er sópar gestun- um í afmælisveisluna. Við félagam- ir á tónlistardeildinni höfðum ákveðið að leika tónlist eftir Pjotr Tsjaíkovski en svo fannst okkur hún einhvern veginn ekki hæfa degi sem þessum og ákváðum að leika þess í stað valsa eftir Jóhann Strauss. Undirritaður hækkar í viðtækinu og ekur sæll og glaður sinn veg, í ys og skarkala hinnar rísandi borg- ar sem er þrátt fyrir allt ekki bara safn dauðra mannvirkja, heldur griðarstaður lifandi og framsæk- inna mannvera. Ólafur M. Jóhannesson. Bréf úr myrkri: Lesið úr verkum Skúla Guðjónssonar frá Ljótunnarstöðum ■■BBH í dag ætlar -j a 00 Baldur Pálma- A son að lesa úr ritum Skúla Guðjónssonar frá Ljótunnarstöðum í þætti sem ber nafnið Bréf úr myrkri. Skúli var rithöfundur og lést fyrir skömmu. Hann var blindur nærri hálfa ævi sína en skrifaði þó á þeim tíma einar sex bækur. Hann samdi einnig oftsinn- is pistla um daginn og veginn sem lesnir vom í útvarpi, auk þess sem lesið var úr ýmsum bókum hans og ein þeirra, Heyrt en ekki séð, var lesin í heild árið 1968. Skúli skrifaði um skeið í Þjóðviljann um dagskrá útvarpsins og ýmsar hug- leiðingar út frá henni. Baldur Pálmason mun lesa Úr tveimur af bókum Skúla, Bréfi úr myrkri, sem var hans fyrsta bók, og úr bók- inni Svo hleypour æskan unga. A undan lestrinum flytur Baldur formálsorð. Bergerac ■■■■ Þeir sem hafa 91 io gaman af saka- " A málamyndum ættu að fá eitthvað við sinn smekk í sjónvarpinu í kvöld. Kl. 21.10 er á dag- skrá fjórði þátturinn af tíu í breskum sakamála- myndaflokki um rannsókn- arlögreglumanninn Bergerac sem starfar á eyjunni Jersey í Ermar- sundi. Bergerac er hið mesta hörkutól og gefur illmenn- unum sem ætla að notfæra sér skattfríðindin á Jersey engin grið. í síðasta þætti barði hann eftirminnilega á nokkrum fíkniefnasmygl- urum og vafalaust tekst honum að koma nokkrum fúlmennum bak við lás og slá í kvöld. te'ýýMp| Eigur Richards ■■■■ Bíómynd sjón- 9930 varpsins í kvöld ^ " er bresk, frá ár- inu 1980, og nefnist Eigur Richards, Richard’s Things. Kona nokkur fréttir að eiginmaður hennar liggur þungt haldin á sjúkrahúsi. Þegar hún kemur á sjúkra- húsið bregður svo við að enginn fæst til að segja henni með hvaða hætti eig- inmaðurinn, Richard, hafi slasast. Þegar konan fer að grenslast fyrir um þetta kemur í ljós að maður hennar er ekki allur þar sem hann er séður. Með aðalhlutverk fara Liv Ull- man og Amanda Redman. Mynd þessi er byggð á skáldsögu eftir Frederic Raphael og leikstýrði Anthony Harvey henni. Þýðandi Reynir Harðarson. Lausar hendur: Fjallað um geim- verur í léttum dúr ■■■■ í kvöld er á dag- 9 Q 00 shrá rásar eitt þáttur Uluga Jökulssonar, Frjálsar hend- ur. Þar verður fjallað í létt- um dúr um geimverur og ýmsar hugmyndir sem menn hafa gert sér um þau greppitrýni sem hafast við úti í geimnum. Ungur fræðimaður ætlar að flytja pistil um það hvernig geimverum er lýst í vísindaskáldsögum og einnig verður ijallað um sögu Kristmanns Guð- mundssonar, Ferðin til stjarnanna, og lesið brot úr henni. UTVARP F0STUDAGUR 15. ágúst 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Morgunvaktin. 7.30 Fréttir. Tilkynningar 8.00 Fréttir. Tilkynningar 8.15 Veðurfregnir 8.30 Fréttir á ensku. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barn- anna: „Olla og Pési" eftir Iðunni Steinsdóttur. Höf- undur les (7). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesið úrforustugreinum dagblaðanna. 10.00 Fréttir 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Guðmundur Sæ- mundsson flytur. 10.10 Veðurfregnir 10.30 Ljáöu mér eyra. Um- sjón: Málmfríður Sigurðar- dóttir. (Frá Akureyri.) 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 „Bréf úr myrkri". Baldur Pálmason les úr ritum Skúla Guðjónssonar á Ljótunnar- stöðum og flytur formáls- orð. 14.30 Nýtt undir nálinni. Elín Kristinsdóttir kynnir lög af nýútkomnum hljómplötum. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Á hringveginum — Norðurland. Umsjón: Örn Ingi, Anna Ringsted og Stef- án Jökulsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a. Útdráttur úr óperettunni „Paganini" eftir Franz Le- hár. Margit Schramm, Rudolf Schock, Ferry Grub- er og Dorothea Chryst syngja með Gúnter Arndt- kórnum og Sinfóníuhljóm- sveit Berlínar; Robert Stolz stjórnar. b. „Ruslan og Ljudmila", forleikur eftir Michael Glinka. Concertgebouw- hljómsveitin leikur: Bernard Haitink stjórnar. c. Atriði úr „Kátu ekkjunni" eftir Franz Lehár. Elizabeth Harwood, Teresa Stratas og Werner Hollweg syngja með kór þýsku óperunnar í Berlín og Filharmoníuhljóm- sveit Berlínar; Herbert von Karajan stjórnar. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpiö. Stjórn- andi: Vernharöur Linnet. Aðstoðarmaður: Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.45 i loftinu — Hallgrímur Thorsteinsson og Guðlaug María Bjarnadóttir. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.50 Náttúruskoöun. Erling- ur Hauksson sjávarliffræö- ingur flytur þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins. Val- týr Björn Valtýsson kynnir. 20.40 Sumarvaka. a. Þrekraun Bensa. Margrét Guðmundsdóttir les siðari hluta frásagnar Erlings Sveinssonar. b. íslensk alþýðulög. Jó- hann Konráösson og Krist- inn Þorsteinsson syngja. c. Æskuminningar Ingveld- ar ömmu. Helga Einars- dóttir les úr bókinni „Afi og amma" eftir Eyjólf Guð- mundsson frá Hvoli. Háafell. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum les úr bók- inni „Á ferö" eftir séra Ásmund Gíslason 21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveinsson kynnir tónverkið „Greniskógurinn" eftir Sigursvein D. Kristins- son. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Hljómskálamúsík. Guð- mundur Gilsson kynnir. 23.00 Frjálsar hendur. Þáttur í umsjá llluga Jökulssonar. 24.00 Fréttir. 00.05 Lágnætti. Spilað og spjallað um tónlist. Edda Þórarinsdóttir talar við Þor- kel Sigurbjörnsson tón- skáld. 1.00 Dagskrárlok. Næturút- varp á rás 2 til kl. 3.00. FOSTUDAGUR 15. ágúst 9.00 Morgunþáttur i umsjá Ásgeirs Tómassonar, Kolbrúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. SJÓNVARP 19.15 A döfinni Umsjónarmaður Maríanna Friöjónsdóttir 19.25 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Babies) Fjóröi þátt- ur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi: Guðni Kolþeinsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingarogdagskrá 20.40 Unglingarnir í frumskóg- inum. Umsjónarmaður Jón Gústafsson. Stjórn upp- FÖSTUDAGUR 15. ágúst töku: Gunnlaugur Jónasson. 21.10 Bergerac - Fjóröi þáttur. Breskur sakamálamyndaflokkur i tíu þáttum. Aðalhlutverk: John Nettles. Þýöandi: Kristmann Eiösson. 22.25 Seinni fréttir 22.30 Eigur Richards (Richard's Things) Bresk biómynd frá árinu 1980. Leikstjóri: Anthony Harvey. Aðalhlutverk: Liv Ullman og Amanda Red- man. Myndin er byggð á skáldsögu eftir Frederic Raphael. Kona nokkur fréttir að bóndi hennar liggur slas- aður á sjúkrahúsi. Þegar þangað kemur eru menn tregir til að greina henni frá tildrögum slyssins. ÞaÖ kemur líka á daginn aö eig- inmaðurinn hefur leynt hana ýmsu um sjálfan sig. Þýö- andi: Reynir Harðarson. 00.15 Dagskrárlok 12.00 Hlé 14.00 Bót i máli Margrét Blöndal les bréf frá hlustendum og kynniróskalög þeirra. 16.00 Fritíminn Tónlistarþáttur með feröa málaívafi i umsjá Ásgeröar Flosadóttur. 17.00 Endasprettur Þorsteinn G. Gunnarsson kynnir tónlist úr ýmsum áttum og kannar hvaö er á seyði um helgina. 18.00 Hlé. 20.00 Þræðir Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir. 21.00 Rokkrásin Umsjón: Snorri Már Skúlason og Skúli Helgason. 22.00 Kvöldsýn Valdís Gunnarsdóttir kynnir tónlist af rólegra taginu. 23.00 Á næturvakt með Vigni Sveinssyni og Þor- geiri Ástvaldssyni. 3.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00 10.00, 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæöisútvarp fyr ir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr- ir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.