Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
11
stórfenglegasta ferðalag söng-
leikjakvikmyndanna.
Rissa Kellys liggur á götunni í
tveimur hlutum. Skyndilega feykir
vindhviða þeim saman og hægt og
rólega breytist hún í sviðsmynd af
Place de la Concorde. Kelly gengur
inná sviðið, að eina litaða hiutnum
á því, rósinni rauðu. Hann tekur
hana upp og um ieið flæðir litur í
sviðsmyndina og hún verður að
málverki eins og eftir Dufy. Kelly
leitar að stúlkunni sem hryggbraut
hann og kemur á blómamarkað við
Rue la Madeleine með pensilfari
Renoir. Áfram heldur Kelly um
stræti Parísar eins og Utrillo og
Rousseau hefðu séð þau, síðan að
óperunni að hætti meistara Van
Gough og þaðan til Montramartre,
þar sem Lautrec hefur verið að
verki. í lokin kemur málarinn aftur
að gosbrunninum á Place de la
Concorde og við tekur 18 mínútna
langur ballett, uns sviðið tæmist
og Kelly stendur einn og yfirgefinn
eftir.
Það eru ótal fleiri myndir sem
liggja eftir þennan meistara sem
lést seint í sl. mánuði eftir langvar-
andi veikindi. Band Wagon og Gigi,
sem hlaut átta Oskarsverðlaun og
var síðasti stórsöngleikur MGM,
The Bad and the Beautiful, Á björt-
um degi sést til eilífðar (On a Clear
Day You Can See Forever) og
Heiman frá hæðinni (Home From
the Hill) eru aðeins nokkrar þeirra
gæðakvikmynda sem Minnelli hefur
skilið eftir sig.
Meistari söngleikjanna og meló-
dramans er horfinn okkur sjónum
og er kominn til síns Brigadoon.
Nafn Minnellis verður ætíð tengt
blómaskeiði söngleikjanna, hann
gerði aldrei þau hjákátlegu mistök
sem sjást oft í söngleikjum seinni
tíma og hann vissi alltaf hvar dans-
inn krafðist þess að myndavélin
væri staðsett. Kvikmyndaunnendur
um allan heim fyllast tómleika, og
lítil von um að í skarðið, sem hann
skilur eftir, verði fyllt. En eftir
standa minnisvarðarnir, sem flestir
glitra eins og gull og fyr-ir þá erum
við þakklát.
Höfundur hefur nýlokið námi í
kvikmyndagerd á Englandi.
*
Arbók
Lands-
bóka-
safnsins
1984
komin út
ÁRBÓK Landsbókasafns ís-
lands fyrir árið 1984 er
komin út. Á því ári voru liðin
fjögur hundruð ár frá útgáfu
Guðbrands Þorlákssonar á
biblíunni. Árbókin er því að
nokkru leyti helguð Guð-
brandsbiblíu.
í ritinu er meðal efnis að finna
grein um Guðbrand og bókaútgáfu
hans, eftir Einar G. Pétursson, sem
jafnframt bjó til prentunar fáein
atriði um biblíuna úr Minnis- og
reikningabók hans. Þá er einnig
að finna gi'ein eftir Eirík J. Eiríks-
son sem heitir Móðurmálið og
Heilög ritning.
Finnbogi Guðmundsson og
Carl-Otto von Sydow skrifa grein
sem fjallar um eintak af Jónsbók
í Visby, og Nanna Olafsdóttir skrif-
ar um handrit Eddukvæða Bjarna
Thorarensen. Einnig bjó Finnbogi
Guðmundsson til prentunar þijú
bréf Rögnvalds Ág. Olafssonar ti!
Guðmundar Finnbogasonar. Að
lokum er síðan að finna skýrslu
landsbókavarðar um Landsbóka-
safnið um árið 1984.
Hátíðarmessur á
höfuðborgarafmæli
Á SUNNUDAGINN kemur, þann
17. ágúst, verður þess minnst í
öllum kirkjum og messustöðum
Reykjavíkur, að höfuðborgin
okkar er að verða tvö hundruð
ára. Auk þess sem meira verður
haft við í söng og hljóðfæraleik
en vant er yfir sumarmánuðina
í hinu svokallaða hátiðalausa
misseri kirkjuársins, hefur borg-
arfulltrúum og varaborgarfull-
trúum verið sérstaklega boðið
að taka þátt í messuflutningnum.
Guðsþjónustumar hefjast allar
kl. 11 fyrir hádegi og auk prest-
anna og hins hefðbundna stárfsliðs
safnaðanna flytja borgarfulltrúar
ávörp eða lesa lexíur og bænir dags-
ins og stíga einnig í stólinn til að
flytja prédikun sunnudagsins. Hef-
ur verið leitað til borgarfulltrúanna
og varaborgarfulltrúanna af for-
ystumönnum safnaðanna, þar sem
þessir kjörnu fulltrúar eiga heima
og þeir beðnir um þetta eða boðið
þetta, allt eftir því hvernig menn
vilja túlka. En af hendi safnaðanna
er þessi þátttaka hinna kjörnu leið-
toga til þess að leggja áherslu á
stöðu kirkjunnar í borginni og þátt
þjóðkirkjunnar allrar í mótun þess
þjóðlífs, sem við njótum og þökkum
nú á þessum tímamótum í sögu
Reykjavíkur.
Klukkan tvö síðdegis er síðan
biskupsmessa í Dómkirkjunni og
mun biskup íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson, prédika en altaris-
þjónustu annast prestar Dómkirkj-
unnar ásamt dómprófasti. Við þá
messu sem flestar hinna er lögð
áhersla á lag og texta, sem tengj-
ast Reykjavík og íbúum hennar.
Er það von presta og sóknar-
nefnda og allra þeirra, sem hér
starfa saman, að messurnar verði
fjölsóttar og sunnudagurinn því
góður undirbúningur afmælisdags-
ins sjálfs með bænahaldi og boðun.
En höfuðborginni biðjum við bless-
unar og öllum íbúum hennar en
leiðsögn þeim, sem þar eru valdir
til forystu.
Ólafur Skúlason
dómprófastur.
TOYOTA
P. Samúelsson & Co. hf. hefur rekið
bílasölu fyrir notaða bíla samhliða sölu nýrra
Toyota bifreiða að Nýbýlavegi 8 í Kópavogi.
Nú hefur verið gerð breyting þar á og sala
notaðra bifreiða flutt í nýtt húsnæði í
Skeifunni 15. Þar er öll aðstaða eins og best
verður á kosið fyrir þá sem eru að kaupa,
vilja selja, eða skipta notuðum bíl.
Sýningarsalurinn er nokkuð stór á íslenskan
mælikvarða, enda mun þægilegra að skoða
bifreiðar innan húss en utan.
Bifvélavirki tekur alla okkar bíla í söluskoðun
áður en þeir eru settir í sölu. Með því
móti getur kaupandi kynnt sér mun betur en
áður ástand hverrar bifreiðar.
Sölumennirnir eru þaulvanir og leggja sig
fram um að veita góða þjónustu.
P.S.
Við seljum ekki eingöngu góðar, notaðar
Toyota bifreiðar, því við höfum ílestar
tegundir bíla á söluskrá.
SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK SÍMI (91)687120