Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDÁGUR 15. ÁGÚST 1986
Hinn nýskipaði samgönguráðherra Dana ásamt Erhard Jakobsen, formanni Miðdemókrataflokksins.
Danmörk:
Frode Nor Christen-
sen, samgönguráðherra
Kaupmannahöfn, frá Ib Björnbak, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRODE Nör Christensen, þing- hafði eytt 60.000 dönskum krónum í Paris á dýrara hóteli en danskir
maður Miðdemókrataflokksins, til þess að greiða fyrir hótelgistingu ráðherrar voru vanir að dveljast á.
verður eftirmaður Arnes Melchi-
Skoðanakannanir í Bretlandi:
V erkamannaflokk-
urinn með um-
talsvert forskot
Lundúnum, AP.
Skoðanakannanir, sem birtar
voru í gær í Bretlandi, sýna að
Verkamannaflokkurinn _ hefur
umtalsvert fylgi umfram Ihalds-
flokkinn, sem heldur um stjóm-
artaumana.
I skoðanakönnun Gallup-stofn-
unarinnar, sem birtist í breska
dagblaðinu Daily Telegraph, fékk
Verkamannaflokkurinn 36,5%
fylgi, en íhaldsflokkurinn 30%, jafn
mikið og flokkur sósíaldemókrata.
í skoðanakönnun í sama dagblaði
fyrir mánuði síðan fékk Verka-
mannaflokkurinn 38%, Ihaldsflokk-
urinn 33% og sósíaldemókratar
27%.
í skoðanakönnun í dagblaðinu
Guardian, sem einnig birtist í gær,
fær Verkamannaflokkurinn 38%,
íhaldsflokkurinn 32% og sósíal-
demókratar 27%.
Kannanimar sýna báðar að vin-
sældir Margaret Thatcher, forsæt-
isráðherra íhaldsflokksins, hafa
minnkað eftir fund samveldisríkj-
anna í Lundúnum nýverið, en þar
var Bretland eitt ríkja á móti hörð-
um efnahagsþvingunum gegn
ríkisstjóm Suður-Afríku. í könnun-
inni í Daily Telegraph sögðust 66%
aðspurðra vera óánægðir með for-
ustu hennar. Aðeins 28% sögðust
vera ánægðir og hafa þeir ekki
verið jafn fáir á þessu kjörtímabili.
Bretar vom heldur ekki ánægðir
með framgöngu Neil Kinnock, leið-
toga Verkamannaflokksins. Aðeins
38% voru ánægðir með hann og
hefur útkoma hans ekki verið jafn
slæm síðan í september á síðasta
ári.
or sem samgönguráðherra, en
Melchior heldur sæti sínu sem
óbreyttur þingmaður.
Arne Melchior, fyrrverandi sam-
gönguráðherra Dana, sagði í
danska sjónvarpinu í gær, að kring-
umstæður hefðu neytt hann til að
segja af sér embætti. Mistök hefðu
verið gerð sem hann bæri ábyrgð
á, en hann hefði ekki verið að reyna
að hagnast á annarra kostnað.
Melchior sagði sem kunnugt er
af sér í gær vegna ásakana um
bókhaldsóreiðu og að hafa látið hið
opinbera greiða fyrir einkaneyslu
sína. Hann hefur verið ráðherra í 4
ár og þykir hafa verið röggsamur
í starfi og leyst úr mörgum málum
sem lágu fyrir í ráðunejdinu er
hann tók við embætti.
Danskur ráðherra hefur áður
þurft að láta af ráðherradómi vegna
peningamála. Var það í rikisstjóm
Ankers Jörgensen, er Ritt Bjerre-
gard, félagsmálaráðherra, varð árið
1978 að segja af sér, þar sem hún
Veður
víða um heim
Lægst Hœst
Akureyri 7 þoka
Amsterdam 12 22 skýjað
Aþena 25 36 heiðskírt
Barcelona 28 iéttskýjað
Berlín 14 25 skýjað
Briissel 15 24 heiðskírt
Chicago 12 25 skýjað
Dublin vantar
Feneyjar 23 skýjað
Frankfurt 14 24 skýjað
Genf 10 23 heiðskírt
Helsinki 14 17 skýjað
Hong Kong 27 32 heiðskirt
Jerúsalem 18 31 heiðskírt
Kaupmannah. 14 22 heiðskírt
Las Palmas 24 léttskýjað
Lissabon 16 28 heiðskírt
London 22 skýjað
Los Angeles 17 29 skýjað
Lúxemborg 22 léttskýjað
Malaga 27 heiðskírt
Mallorca 30 léttskýjað
Miami 25 29 skýjað
Montreal 12 24 skýjað
Moskva 15 23 skýjað
New York 17 27 skýjað
Osló 10 21 heiðskírt
Parts 14 27 skýjað
Peking 21 28 rigning
Reykjavík 13 þoka
Ríóde Janeiro 15 28 skýjað
Rómaborg 20 34 heiðskírt
Stokkhólmur 10 17 skýjað
Sydney 10 17 skýjað
Tókýó vantar
Vinarborg 24 léttskýjað
Þórshöfn 10 rigning
P&Ö/SlA