Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 13
dsei T8Ú0Á t.í fluoAauTaö’3 .qiQAjanuDflOM MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986 13 Fundur samstarfsráðherra Norðurlanda á Höfn í Homafirði: Samningur um stofnun þróunar- sjóðs fyrir vestlæg Norðurlönd Dagana 19.-20. ágúst verður haldinn á Höfn í Hornafirði ráð- herrafundur samstarfsráðherra Norðurlanda, en fundir samstarfs- ráðherra eru haldnir með reglulegu millibili h.u.b. sex sinnum á ári til skiptis í löndunum. Fundinn sitja samstarfsráðherr- amir Halldór Ásgrimsson, sjávarút- vegsráðherra, Christian Christen- sen, umhverfismálaráðherra Danmerkur, Gustav Björkstrand, menntamálaráðherra Finnlands, Bjame Mörk Eidem, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, og Svante lund- kvist, landbúnaðar- og sjávanit- vegsráðherra Svíþjóðar. Ráðherrarnir skiptast á um for- mennsku í ráðherranefndinni. Sl. ár var Matthías Á. Mathiesen for- maður og var það í fyrsta skiptið, sem íslendingur hefur á hendi for- mennskuna, en í ár er finnski menntamálaráðherrann, Gustav Björkstrand, formaður ráðherra- nefndarinnar. Þá munu og sitja fundinn þeir Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landstjórnar- innar, og Atli Dam, lögmaður Færeyja, svo og allmargir embætt- ismenn. Meðal mála, sem á dagskrá em, má nefna ályktun Norðurlandaráðs Reykhólasveit: Heyskap og flugvelli að ljúka Reykhólasveit. HEYSKAP er víða lokið hér og aðrir eru að Ijúka við heyskap þessa dagana. Grasspretta var ágæt og þurrkar miklir og því er heyfengur mikill og góður. Allgóð atvinna hefur verið hér um slóðir í vor og sumar. Flugvall- argerð á Reykhólum er að ljúka og verður flugbrautin nær einn kíló- metri. Einnig er hér verið að undirbúa veg undir bundið slitlag og á að þekja sex kílómetra á næstu dögum. Þörungavinnslan hefur starfað í sumar á svipuðum grunni og áður. Á næstu dögum kemur hingað skip að taka 500 tonn af þangmjöli. -Sveinn Ólafsvík- ingar að fylla kvótann Olafsvík. GÓÐ TÍÐ hefur verið síðustu vikur til lands og sjávar. Rólegt hefur verið yfir sjósókn vegna sumar- leyfa, en nú eru róðrar hafnir að nýju hjá rækju- bátum og trillunum. Afli hefur verið þokkaleg- ur, en dragnótabátar hafa lítinn afla fengið. Aflamörk báta eru nú óðum að fyllast. Togarinn Már hefur aflað sæmilega. Hluta aflans er landað hér heima, en annars sent utan í gámum. Togskipið Jökull fiskar allvel og landar heima. Atvinna hefur verið næg og allar afurðir seljast ört og fara eftir hendinni. Ms. Suðurland lestaði í gær saltfisk, svo ekki er sporður eftir. Sama gildir um fiski- geymslurnar. Helgi. um norrænt samstarf á alþjóðavett- vangi, en það færist í aukana að Norðurlöndin hafi með sér samstarf á alþjóðavettvangi og þau komi fram sem einn aðili í ýmsum al- þjóðamálum, t.d. í sambandi við aðstoð við þróunarlönd, á sviði ör- yggismála og upplýsingamiðlunar vegna kjarnorkuslysa, í sambandi við loftmengun o.s.frv. Þá verða m.a. rædd ýmis atriði varðandi fjár- veitingar og fjárlög, en samstarfs- ráðherrarnir fara með yfirstjórn fjárlagagerðar norrænu ráðherra- nefndarinnar fyrir hönd ríkisstjóma landanna, segir í fréttatilkynningu frá stjórnarráðinu. Þróunarsjóður fyrir vestiæg Norðurlönd Aðaldagskrármálið verður þó, að á fundinum munu ráðherramir ganga formlega frá samþykkt og undirritun „Samnings um stofnun norræns þróunarsjóðs fyrir hin vestlægu Norðurlönd“ („Udvikl- ingsfond for Vestnorden") og staðfesta samþykktir sjóðsins fyrir hönd ríkisstjórna landanna. Stofnun þessa sjóðs hefur lengi verið í deiglunni og undirbúningur- inn fyrst og fremst verið á vegum byggðamálaráðherranna, en Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra fer með byggðamál hér, svo og „Nárp“ — norrænu embætt- ismannanefndarinnr um byggða- stefnu- og undirnefnda hennar. Á 34. þingi Norðurlandaráðs, sem haldið var í Kaupmannahöfn í mars sl., gerði ráðið að tillögu sinni með 65 atkvæðum og engu at- kvæði á móti, að samþykkt yrði tillaga ráðherranefndarinnar um stofnun norræns þróunarsjóðs fyrir hin vestlægu Norðurlönd. Síðar var ákveðið að samstarfsráðherramir gengju frá undirritun milliríkja- samnings þar að lútandi og samþykkta sjóðsins. Á ráðherrafundinum á Höfn í Homafirði 19. þ.m. mun Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs- og sam- starfsráðherra Norðurlanda, undir- rita samninginn fyrir hönd Islands. í 1. gr. samningsins segir um markmið sjóðsins: Sjóðurinn er stofnaður í þeim til- gangi að efla fjölhæft og samkeppn- ishæft atvinnulíf á hinum vestlægu Norðurlöndum (Færeyjum, Græn- landi og íslandi) með lánveitingum og styrkjum, ennfremur með því að veita litlum og meðalstómm fyr- irtækjum ábyrgð til að ráðast í verkefni sem em tengd þeim eða em til hagsbóta fyrir þau. Sjóðnum er jafnframt ætlað að stuðla að aukinni samvinnu Norðurlandanna á sviði iðnaðar, viðskipta og tækni, bæði milli hinna vestlægu Norður- landa innbyrðis svo og samvinnu þeirra við önnur Norðurlönd. „Stofnfé sjóðsins skal vera jafn- gildi 14,1 milljóna bandaríkjadala (USD) í dönskum krónum, og skipt- ist framlagið sem hér segir: Ríkisstj. Danmerkui- 2,7 m. USD Landstj. Grænlands 0,1 m. USD Landstj. Færeyja 0,1 m. USD Ríkisstj. Finnlands 2,7 m. USD Ríkisstj. íslands 0,4 m. USD Ríkisstj. Noregs 2,7 m. USD Ríkisstj. Svíþjóðar 5,4 m. USD Stofnféð greiðist sjóðnutn sam- kvæmt sérstakri greiðsluáætlun fram til 1. mars 1995.“ Aðsetur sjóðsins skal vera í Reykjavík og fulltrúar hans skulu vera í Þórshöfn og Nuuk. Skelltu þér á nýja PHILIPS-ÞVOTTAVÉL VIÐ TÖKUIUI ÞÁ GÖMLU UPP í Á KR. 3000.- Philips-þvottavélar hafa verið^fáanlegar um alllangt skeið, mörgum til mikils ama. En nú færum við viðskiptavinum okkar þá gleðifregn að þær eru fáanlegará ný. Til þess að auðvelda fólki að endurnýja þá tökum viðgömlu þvottavélina uppí á kr. 3000.- Reynsla og þekking er undirstaða framleiðslu Philips-þvottavéla. Þæreru sérhannaðartil að standast öll gæðapróf og bjóða aðeins það besta eins og Philips er þekkt fyrir. NOKKRAR UPPLÝSINGAR UM NÝJU VÉLARNAR: • Tekur inn á sig heitt eða kalt vatn • Með því að nota nýtni-stillinguna sparast um 30% af orku • Allt að 1000 snúninga vinda • Sérstakur „stuttur" þvottur fyrir föt sem eru aðeins lítils háttar óhrein • 9 stillingar fyrir viðkvæman þvott • Tekur 4.5 kg af þvotti PHILIPS Heimilistæki hf SÆTÚNI 8, SÍMI 27500. HAFNARSTRÆTI 3, SÍMI 20455. ERUM SVEIGJANLEGIR í SAMNINGUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.