Morgunblaðið - 15.08.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.08.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986 Fegurðardrottning Bret- lands auglýsir Svala Sól hf. stuðningsaðili keppninnar SOL HF. hefur gert samning við keppnina „Ungfrú Stóra- Bretland" um að vera helsti stuðningsaðili (sponsor) keppn- innar gegn því að ávaxtadrykk- urinn Svali njóti einkaréttar í auglýsingum fyrir keppnina. í samningnum felst meðal ann- ars að orðið „Svali“ verður letrað á borða sem sigurvegari ber auk þess sem skilti með nafni drykksins verður framan við borð dómnefndar. Þá mun „Ungfrú Stóra-Bretland" aug- íýsa Svala í sjónvarpi og blöðum og kynna drykkinn í 15 verslunum í Bretlandi. Sól hf. hóf framleiðslu á Svala fyr- ir markað í Bretlandi í júlí og hefur nú selt þangað yfir millj- ón fernur af drykknum. Davíð Scheving Thorsteinsson, forstjóri fyrirtækisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að samningurinn hljóðaði upp á 30 þúsund sterlingspund og þar af mun Sól hf. greiða 20 þúsund pund eða um 1,2 milljónir íslenskra króna, en umboðsaðiii Svala í Bretlandi, „Peabody", greiðir 10 þusund pund. „Þessi upphæð er langt fyrir neðan það sem upphaflega var ætlað varð- andi keppnina, en það var 120 þúsund pund,“ sagði Davíð. „Fyr- irtækið sem hafði tryggt sér réttinn varð hins vegar að hætta við þátttöku á síðustu stundu og vegna sambanda Baldvins Jóns- sonar umboðsmanns „Miss World“-keppninnar komumst við inn í þessa samninga, en sömu aðilar standa aðhvorri tveggja keppni, „Miss World" og „Miss UK“. Hlutimir gengu hins vegar ótrúlega hratt fyrir sig og áður en varði höfðum við náð þessu niður í þessa upphæð," sagði Davíð. Auk einkaréttar á auglýsingum í sjálfri keppninni mun Sól hf. eiga fulltrúa í dómnefndinni, sem verður Árni G. Ferdinandsson, og ennfremur mun markaðsráðgjafi fyrirtækisins í Bretlandi, Bjöm Westergren, krýna fegurðar- drottninguna. Sól hf. hafði áður gert samning við fegurðardrottn- ingu heims, Hólmfríði Karlsdótt- ur, um auglýsingar á Norðurlönd- um og í Bretlandi og mun Hólmfríður einnig eiga sæti í dóm- nefnd keppninnar um „Ungfrú Stóra-Bretland“. Þá hefur fyrir- tækið „Henson“ hafið framleiðslu á íþróttafatnaði fyrir Sól hf. sem þátttakendur í keppninni munu klæðast á blaðamannafundi næst- komandi mánudag. Keppnin um titilinn „Ungfrú Stóra-Bretland“ verður haldin í London næstkomandi miðvikudag og er talið að um 10 til 12 milljón- ir manna muni fyigjast með keppninni í beinni sjónvaipsút- sendingu. Þá hefur keppnin ávallt vakið mikla athygli í breskum blöðum enda mun sigurvegarinn taka þátt í „Miss World-keppn- inni“ sem fram fer í London 13. nóvember næstkomandi. „Ég hef mikla trú á að þetta skili sér því það er ekki svo lítils virði að komast með þessum hætti inn á annað hvert heimili í Bret- landi," sagði Davíð Scheving Thorsteinsson. Morgunblaðið/Einar Falur Svali í umbúðum fyrir breska markaðinn, en yfir milljón fernur hafa nú verið seldar i Bretlandi á einum mánuði. Tilraunaveiðar í gulllaxi lofa góðu; Morgunblaðid/Júlíus Goðinn dregur Víking til Akraness í gær. Víkingur AK dreginn til heimahafnar; Bilaði á leið- inni úr slipp LOÐNUSKIPIÐ Víkingur AK 100 var dregið til Akraness í gær, en þegar það var að koma úr árlegri slippferð sinni 23. júlí sl. kom í ljós bilun i skrúfu- öxli skipsins. Víkingur hefur síðan legið í Reykjavíkurhöfn „B^agðgóður ófrýnilegur skratti“ — segir skipstjórinn á Hilmi SU, sem stundað hefur veiðarnar í sumar „GULLLAXINN er eins og hum- ar á bragðið en það má eiginlega alis ekki láta neytandann sjá fisk- 'nn áður en hann er borðaður — hetta er neldur ófrýnilegur skratti," sagði Lárus Grímsson, skipstjóri á Hilmi SU, sem stund- að hefur tilraunaveiðar á gulllaxi síðan í lok júní. Árdegis í dag á að landa úr Hilmi 17 tonnum, sem fengust í fjórðu og síðustu veiði- ferðinni á sumar. Ekki hafa fyrr verið gerðar til- raunir til að veiða gulllax hér við land en talsvert inun vera af hon- um, einkum á vorin þegar hann er talinn ganga á grunnsævi. Þessi sautján tonn fengust í Skeijadýpi út af Reykjanesi í bland við karfa en í sumar hefúr Hilmir SU verið notaður til leitar allt frá Homafírði vestur á Breiðaíjörð. Upphaflega var ætlunin að gull- laxinn yrði flakaður og settur í maming um borð í skipinu en þeg- ar til kom reyndust síldarflökunar- vélar, sem settar voru um borð í þeim tilgangi, ekki henta fyrir svo stóran fisk — gulllax er almennt 40-60 cm langur. „Nú fömm við á loðnu en byijum aftur að leita að gulllaxi í mars og þá verðum við búnir að fá heppilegri vélar fyrir þetta,“ sagði Láms Grímsson. Góður markaður mun vera fyrir gulllax í Noregi og fæst fyrir hann ágætt verð, að því er Láms taldi. þar til í gær að björgunarskip- ið Goðinn dró það til lieima- hafnar. Bjöm Pétursson, fram- kvæmdastjóri Síldar- og físki- mjölsverksmiðjunnar hf. á Akranesi, útgerðarfélags skips- ins, sagði í samtali við fréttarit- ara Morgunblaðsins að verið væri að kanna orsök bilunarinnar og taldi hann að viðgerð myndi Ijúka á 2-3 vikum. Hann sagði að verið væri að bíða eftir vara- hlutum og sérfróðum viðgerðar- manni frá útlöndum og myndi skipið fara í slipp á ný þegar sú bið væri á enda. Bjöm sagði að skipið hefði verið flutt til Akraness svo að heimamenn gætu sinnt undir- búningi fyrir loðnuveiðar Vík- ings, sem eiga að hefjast í byijun október, svo og unnið að öðmm viðhaldsverkefnum um borð. -JG. „Skiljum mjólk einu sinni í viku“ - segja húsráðendur á Skarði í Landsveit, sem eru sjálfum sér nógir um smjör Selfossi. „ÞAÐ ER óhætt að segja að við fáum helmingi ódýrara smjör með þessu móti og erum sjálfum okkur nóg hvað það snertir," sagði Teodóra húsfreyja á Skarc þar sem búa Guðni Kristinsson dóttir og Kristinn Guðnason og Teodóra sagði að vinnan við smjörgerðina væri mikil en smjör- ið væri mjög gott. Tilraunir til að búa til skyr hefðu hins vegar ekki tekist eins vel. „Þetta varð bölvað graðhestaskyr, eins og það var kallað í gamla daga,“ sagði Dóra á Skarði. „Við komum sennilega til með að skilja mjólk einu sini í viku eftir 1. september þegar nýtt verðlagsár byijar," sagði Fjóla Runólfsdóttir. „Maður er orðinn svo vanur að nota ijómann við heimilishaldið." Þessar ráðstafanir að Skarði til búdrýginda á mjólkinni hófust 1. ii í Landsveit. A Skarði er tvíbýli og Sigríður Teodóra Sæmunds- Fjóla Runólfsdóttir. maí í vor þegar þau byijuðu að gera allt til að spara kvótann. Hann kláraðist 10. júlí og eftir það hafa ekki fengist nema 4 krónur og 60 aurar fyrir lítrann af mjólk í stað tæplega 23 króna meðalverðs. „Mér fínnst verst að sjá af þess- ari mjólk í búið á svona lágu verði og síðan eru framleiddar úr henni vörur sem seldar eru á fullu verði til neytenda eða hún seld beint," sagði Fjóla. Hún sagði erfítt að horfa upp á kýmar rýma í holdum þegar haldið væri í við þær með fóðurbæti. Betri kýmar mjólkuðu og mjólkuðu og gengju á eigin hold, en annað væri ekki að gera því það væri að fleygja peningum að gefa meiri fóðurbæti. Kristinn Guðnason bóndi sagði það til í dæminu að menn næðu ekki að fylla kvóta sinn og væru tilbúnir að kaupa mjólk af öðmm sem fyllt hafa kvótann. Þetta væri ekki hægt, þrátt fyrir að kvótinn væri eign bóndans væri honum meinað að fara með þessa eign sína að eigin vild. Þessu væri alfarið neitað af hálfu Stétt- arsambandsins. „Það eru allir sem geta þetta nema við,“ sagði Krist- inn og benti á fiskikvótann sem hægt er að flytja milli báta. Þetta væri jú mögulegt með því annað- hvort að reka kýrnar milli bæja og láta mjólka þær í fjósi þess sem ekki næði að fylla kvótann eða aka mjólkinni á milli bæja og hella í tank hins en slíkt væri skrípaleikur og verið að fara í Morgunblaðið/Sigurður jónason Fjóla Runólfsdóttir og Kristinn Guðnason í Skarði fyrir utan dyr mjólkurhússins. kringum hlutina. Ef sams konar staða kæmi upp í sauðfjárbú- skapnum væri ekkert auðveldara en leggja dilkana inn á nafn þess sem vantaði upp á kvóta sinn og gera síðan upp á eftir. „Ástæðan fyrir því að þetta má ekki er kannski sú að þá fjölgar þeim lítrum sem borga þarf fullt verð fyrir," sagði Kristinn. „Eg er viss um að margir þeirra sem búnir eru með kvótann eru tilbúnir að láta aðra fá mjólk og þeir tilbúnir að kaupa mjólk til að fylla örugglegqa sinn kvóta og ná betri stöðu fyrir næsta verð- lagsár til viðmiðunar," sagði Fjóla. Hún benti á að ef flytja mætti kvóta á milli gerði það fólki í sömu sveit mögulegt að hjálpast að. Kristinn gat þess að þeir bændur sem verst ástatt væri fyr- ir og væru komnir yfir gamla búmarkið þyi-ftu að greiða kr 1,39 með hveijum lítra sem þeir sendu til mjólkurbúsins, það er flutning- inn. Þessir menn væru örugglega tilbúnir til að selja þeim mjólk sem ekki hafa náð að fylla sinn kvóta. Sig Jóns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.