Morgunblaðið - 15.08.1986, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
Fiðlarinn
dansar á
milli borða,
og laðar
fram hug-
Ijúfa tóna.
íslenskir blaðamenn
spreyta sig í „rúllettu"
spilavítisins.
Þjónarnir á
Grand Hótel
Varna að
eldsteikja
gómsæta
steik.
Það er aðeins steinsnar niður að ströndinni,
frá Grand Hótel Vama.
Mikilvæg grein ferða-
útvegs í Búlgaríu
Heilsuhótel
Búlgaríu:
Grand Hotel Varna í
Varna í Búlgaríu hefur
undanfarin 9 ár státað
af því að vera besta
hótelið við
S vartahaf sstrendur
Búlgaríu. Ef marka má
tveggja daga dvöl á
þessu hóteli, er hér að
öllum líkindum ekki um
neinar ýkjur að ræða.
Hótelið er skrásett sem
fimm sljörnu hótel,
samkvæmt alþjóðlegum
stuðli og samkvæmt
mínum hugmyndum um
fimm síjörnu hótel, þá
stendur Grand Hotel
Varna undir hverri
stjörnu.
Búlgarir leggja ekki einungis
áherslu á uppbyggingu sum-
ardvalarstaða fyrii1 fjölskyldufólk
við Svartahafið, heldur leggja þeir
einnig mikið upp úr að geta boðið
upp á sem víðtækasta þjónustu,
hvers konar skemmtun, heilsurækt,
heilsugæslustöðvar, sund, vatns-
nuddmeðferðir, ýmisskonar stein-
efnameðferðir og þar fram eftir
Grein og myndir
Agnes Bragadóttir
götum, á stöðum eins og Grand
Hotel Vama, enda býður mér í grun
að meðalaldur þeirra sem gista hót-
elið sé ekki mikið fyrir neðan
sjötugt.
Hótelstjórinn upplýsti íslenska
blaðamenn um það á skoðunarferð
um hótelið, að það ætti sér 9 ára
sögu, en þótt saga þess væri ekki
lengri en svo, hefðu fjölmargir gest-
ir hótelsins nú þegar dvalist þar á
milli 10 og 20 sinnum. Sænska fyr-
irtækið ABV tók að sér allar
verktakaframkvæmdir, og hótelið
rauk upp með geysilegum hraða
(rétt eins og Hótel Örk í Hvera-
gerði). Hótelið er með sérmenntaða
lækna í heilsugæslustöðinni, og þar
geta viðskiptavinirnir leitað sér bóta
meina sinna.
Hótelstjórinn lagði þó áherslu á
að það væri aðeins hluti gestanna
sem það gerði, því herbergin væru
700, en þeir sem nýttu sér heilsu-
gæsluþjónustuna, sjúkraþjálfarana
og sérstakar lækningameðferðir,
væru ekki nema 20 til 30% gesta
hótelsins.
40 íslendingar á Grand Hót-
el Varna sl. ár
Hann upplýsti jafnframt að 40
íslendingar hefðu dvalið á Hótel
Varna sl. ár, og var mjög ánægður
með þá tölu.
Hvers konar íþróttaaðstöðu er
að finna við Grand Hotel Vama,
svo sem knattspymuvöll, með 3.000
áhorfendastæðum og íþróttasal fyr-
ir inniíþróttir, og sagði hann
handknattleikinn mjög vinsælan
þar. Tennisvellir eru við hótelið, ein
innisundlaug (sem er notuð í tengsl-
um við heilsugæslustöðina, þannig
að það er í rauninni bannað að
synda í henni) og 50 metra útilaug,
auk barnalaugar. Ég má til með
að greina frá því þegar ég prófaði
innisundlaugina, sem er greinilega
svo til eingöngu ætluð gömlu, las-
burða eða fötluðu fólki, slíkt var
hitastigið í henni (ábyggilega ekki
undir 35 gráðum). Ég hóf þessa
hrakför mína á því að stinga mér
til sunds, um leið og ég kom upp
úr kafi glumdi í eyrum mér slíkur
hávaði flautu sundlaugarvarðarins
að ég hafði það á tilfinningunni að
ég fengi að sjá rauða spjaldið. Hann
horfði á mig byrstur mjög, og upp-
lýsti mig síðan um það, að það
væri algjörlega bannað að stinga
sér til sunds í þessari laug. Þegar
ég ætlaði að heíja sundið, flautaði
hann á nýjan leik, og alls ekki
lægra, benti á kollinn á mér og
skipaði mér að ná mér í sundhettu,
hvað ég sneyptist til að gera. Hélt
ég nú að raunum mínum væri lokið
þegar ég kom hin rólegasta, gúmmí-
klædd til höfuðsins, og fór hægt
°g rólega niður í laugina á nýjan
leik. Tók ég þá nokkur skriðsund-
stök, en fékk að heyra flautið
hræðilega einu sinni enn fyrir vikið.
„Það má ekki synda í þessari laug,“
hrópaði vörðurinn, og var nú orðinn
byrstur mjög. Þijár áminningar
jafngilda á íþróttamáli brottvísun,
svo ég forðaði mér út í útilaugina
svölu, og synti að lyst. Sem sagt,
maður verður að kunna leikreglurn-
ar, áður en leikurinn er hafinn:
Engar dýfingar, ekkert sund, og
gúmmíhetta á kollinum!
Matreiðslan á hótelinu er til
stakrar fyrirmyndar. Ég hugsa að
við höfum fengið besta matinn á
þessu hóteli, í allri ferðinni. Þjónust-
an í veitingasal er mjög fáguð og
góð. Þjónarnir eldsteikja fyrir mat-
argesti með ánægju, og hinn liprasti
fiðluleikari gengur á milli borða og
leikur huglúfa tónlist. I kjallara
hótelsins er skemmtilegur keilusal-
ur, og. við vægu verði er hægt að
leika þar tímunum saman. Mig
minnir að einn leikur (10 umferðir)
fyrir þijá hafi kostað 6 leva, þann-
ig að hver greiddi 2 leva, sem
jafngildir um 40 krónum. Þá er hið
ágætasta diskótek í hótelinu, svo
og næturklúbbur, og það sem kem-
ur væntanlega mest á óvart, spila-
víti. Ég var nú reyndar hrifnust af
því, og uppgötvaði mér til skelfing-
ar hversu spilafíknin getur heltekið
mann. Það þarf mikinn viljastyrk
til að standa upp og skipta plast-
peningunum í dollarabankanum,
þegar maður er í einhvetjum gróða.
Sandanski heilsuhöllin
Frá Varna og lúxusnum á Grand
Hotel Varna vík ég sögunni lítillega
til annars heilsuhótels, sem Búlgar-
ir nefna „Sandanski heilsuhöllina".
Þetta er nýjasta hótelið í Búlgaríu,
og kostaði það hvorki meira né
minna en 27 milljónir dollara í upp-
byggingu. Hótelið er staðsett í
suðurhlíðum Pirinfjallanna, í sam-
nefndri borg, sem er á báðum
bökkum árinnar Bistritsa, um 180
kílómetrum frá höfuðborg Búlgaríu,
Soffíu. Þetta svæði Búlgaríu, suð-
vesturhlutinn, er einkum þekkt fyrir
hlýtt loftslag og heilsuuppsprettur,
sem margar hveijar eru sagðar
hafa mikinn lækningamátt. Vegna
þessara tveggja kosta hafa Búlgar-
ir byggt upp mikla heilsumiðstöð,
sem jafnframt er hótel, og þangað
laða þeir tugþúsundir ferðamanna,
sem vilja leita sér heilsubótar,
hvíldar og endurhæfingar. Þessi
samsteypa hefur nú nýverið hafið
sitt þriðja starfsár, en hótelið var
opnað 1983. Það var byggt af aust-
uríska byggingafyrirtækinu Öster-
reich Universale. Sandanski er
skrásett sem fjögurra stjörnu hótel.
Auk hvers konar íþrótta- heilsu-
ræktar- og endurhæfingaraðstöðu
sem hótelið býður úpp á, er mikið
lagt upp úr ráðstefnuhaldi á San-
danski. íbúar Sandanski státa sig
af því að ofnæmis- og lungnasjúk-
dómar eru svo til óþekkt fyrirþæri
þar í borg. Þakka þeir loftslaginu
þá náðargjöf.
Það var augljóst af máli viðmæl-
enda okkar, að Balkan Tourist
væntir mikils af heilsuhótelum
sínum, og ganga þeir ekki skemur
en svo í lýsingum sínum á þeim,
en að nefna Grand Varna Hotel og
Sandanski heilsuhöllina, tvö bestu
heilsuhótelin í Evrópu. Á það skal
enginn dómur lagður hér, en vissu-
lega hljóta þau bæði að teljast mjög
góð.