Morgunblaðið - 15.08.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
27
Frönsk listflug-
sveit sýnir yfir
Reykjavík í dag
FRANSKA listflugsveitin Patrouille de France mun sýna list-
flug yfir Reykjavík síðdegis í dag með tilheyrandi reykjar-
strókum í frönsku fánalitunum. Samkvæmt flugáætlun
sveitarinnar áætlar hún að vera yfir Reykjavík um kl. 18:30
og sýna listir sínar í 10 mínútur áður en hún lendir á
Reykjavíkurflugvelli. Sýning sveitarinnar hér er liður í 50
ára afmælishátíð Flugmálafélags Islands. Að sjálfsögðu er
listflug háð því að veður leyfi.
Patrouille de France-sveitin milli-
lenti á Keflavíkurflugvelli fyrr í
sumar á leið sinni til Bandaríkjanna
og Kanada þar sem hún hefur ver-
ið á sýningarferðalagi að undan-
förnu. Er það í fyrsta sinn sem
sveitin sýnir utan Evrópu. Nú er
hún á leið heim. í henni eru 10 eða
12 herþotur af gerðinni Alpha Jet
og eldsneytisbirgðaflugvél. Áhafn-
armeðlimir eru 54 talsins.
Ferðin yfir N-Atlantshafið var
erfið enda hafa þotur þessar ekki
mikið flugþol. Fyrir ferðina voru
tekin af þeim öll vopn og í staðinn
settir aukaeldsneytistankar.
Franski flugherinn hefur á að
skipa þremur listflugssveitum og
er Patrouille de France ein þeirra.
Það er mjög eftirsótt að komast í
þessar sveitir og komast færri að
en vilja, þrátt fyrir að þetta sé sjálf-
boðavinna í 1-2 ár. Flugmennirnir
eru allir orustuflugmenn í franska
flughernum.
Góðir f lugeiginleikar
og ódýrar í rekstri
Alpha Jet-þoturnar eru þýsk/
franskar og eru hannaðar og
smíðaðar af þýsku Dornier- og
frönsku Dassault-Breguet-flugvéla-
smiðjunum. Þær eru léttar þjálfun-
arþotur en sumar gerðir þeirra eru
bunar sem léttar sprengivélar til
orustu í nágvígi. Þotur þessar eru
búnar tveimur hreyflum og eru með
sæti fyrir tvo flugmenn. Einn helsti
kostur þeirra, fyrir utan flugeigin-
leikana, er hve ódýrar þær eru í
rekstri miðað við ýmsar aðrar sam-
bærilegar þotur.
Hönnun þeirra hófst haustið
1973, að undirlagi þýsku og frönsku
ríkisstjórnanna sem vantaði léttar
og ódýrar æfingaþotur fyrir flug-
heri sína. Fyrstu Alpha Jet-vélunum
var flogið til reynslu árið 1973 en
fyrstu fjöldaframleiddu vélunum
íjórum árum síðar.
Fyrir þá sem hafa áhuga eru hér
birtar örlitlar tæknilegar upplýsing-
ar.
Alpha Jet-þoturnar hafa um
þriggja stunda flugþol og geta flog-
ið 900 km vegalengd fullbúnar
vopnum en 2.400 km í svokölluðu
feijuflugi. Hreyflarnir eru tveir og
getur hvor um sig framleitt tæplega
3 þúsund punda kný. Tóm vegur
þotan 3,5 tonn og hámarksflugtaks-
þyngd er 6,1 tonn en mögulegt er
að hækka þá vigt um 1,1 tonn ef
nauðsyn krefur t.d. í stríði. Flug-
taksvegalengdin fer eftir því í hvers
konar orustur þær eiga að fara og
hvernig þær eru hlaðnar vopnum.
Þær taka sig styst á loft á 400
metrum en þurfa allt upp í 1.150
metra ef þannig stendur á. Þær
klifra mest 57 metra á sekúndu.
Áætlað er að Patrouille de France, listflugsveit franska flughers-
ins, verði yfir Reykjavík um kl. 18:30 i dag og sýni listflug í 10
mínútur ef veður leyfir. Á myndinni sést sveitin á flugi yfir mið-
borg Parísar og ætti sjónarhornið að vera mörgum kunnugt því
myndin er tekin úr Eiffel-turninum. »
Afmælisterta Reykjavíkur:
Marsipanið
verður sérrí-
inu sterkara
Áhyggjur af sérríbragði af
afmælistertu Reykjavíkurborgar
hafa komið upp og meðal annars
birtist í Morgunblaðinu í gær
áskorun bakara frá móður á
Akranesi um að sleppa sérríinu,
þar sem börnum þætti ekki gott
vínbragð af tertum. Morgun-
blaðið hafði samband við Svein
bakara Kristdórsson sem á sæti
í tertunefndinni og spurði hann
um þetta.
„Eg hef notað sérri í tertur í
tugi ára og hef aldrei fengið kvört-
un þess efnis að böm geti ekki
borðað þær. Auk þess er þetta svo
lítið magn að það verður rétt keim-
ur og held ég að börnum eigi eftir
að þykja það gott eins og okkur.
Marsipanið á tertunni á líka eflaust
eftir að verða sérríinu yfirsterkara
og vinna vinsældir barnanna."
Bakstur tertunnar miklu hefst á
morgun. Hjálpast öll bakarí borgar-
innar að og gera nokkra tugi metra
hvert en tertan verður alls 200
metra löng. Botnarnir verða sem-
sagt tilbúnir á morgun, fyllingin
sett í á laugardag og marsipaninu
bætt ofaná á mánudagsmorgun.
Morgunblaðid/Ámi/Sæberg
Tæknisýning vegna 200 ára afmælis Reykjavíkur verður í nýja Borgarleikhúsinu við Kringluna.
200 ára afmæli Reykjavíkur:
Tæknisýning í nýja
Borgarleikhúsinu
TÆKNISÝNING verður opnuð í tilefni 200 ára afmælis
Reykjavíkurborgar í anddyri og kjallara nýja Borgar-
leikhússins kl. 17:00 sunnudaginn 17. ágúst.
Á sýningunni er kynnt starf-
semi hinna ýmsu stofnana
borgarinnar og er sýningin
byggð upp á líkönum, teikning-
um og ljósakössum með myndum
frá starfsvettvangi þeirra. í and-
dyri hússins hefur verið komið
fyrir líkani sem starfsmenn
byggingardeildar Reykjavíkur-
borgar hafa unnið af landnámi
Ingólfs Arnarsonar og á tjaldi
yfir líkaninu verður biugðið upp
svipmyndum af merkum stöðum
í landi Ingólfs.
Jarðgöng, foss og þverskurður
af Búrfellsvirkjun ásamt mynd-
um og lýsingum á öðrum virkjun-
arframkvæmdum eru á
sýningarsrði Landsvirkjunar.
Rafmagnsveita Reykjavíkur sýn-
ir spennistöð og stjórnstöð og lax
í búri minnir sýningargesti á
Elliðaárnar. Hitaveita Reykjavík-
ur og Orkustofnun bregða upp
myndum frá virkjunarsvæðum
og þeirri vinnu sem þar fer fram.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
sýnir með garðyrkjudeild
Reykjavíkurborgar og geta sýn-
ingargestir leitað upplýsinga og
ráðlegginga varðandi ræktun hjá
starfsmönnum stofnananna á
meðan á sýningunni stendur.
I kjallara sýnir byggingardeild
Reykjavíkurborgar hvernig
standa ber að endurnýjun gam-
alla húsa. Þar hefur gatna- og
holræsadeild Reykajvíkur komið
fýrir eftirlíkingu af malar- og
gijótnámi og brugðið upp sýnis-
hornum af framleiðslu á blóma-
keijum, hellum og rörum.
Vatnsveita Reykjavíkur sýnir
þverskurð af dælustöð og vatns-
geymum við Gvendarbrunna í
Heiðmörk. Þá hefur verið gert
líkan af Sundahöfn og Reykja-
víkúrhöfn og gefst sýningargest-
um tækifæri á að stjórna
fjarstýrðum smábátum um
Reykjavíkurhöfn. Leiksvæði fyrir
börn með leiktækjum er einnig
í kjallara og þar verða fóstrur
sem skemmta börnunum með
föndri og sögustund. í bás
Skýrsluvéla ríkisins og Reykja-
víkurborgar eru tvö vélmenni,
sem taka gesti tali.
Sýningin stendur til 31. ágúst
og er aðgangseyrir kr. 200 fyrir
fullorðna og kr. 100 fyrir börn
yngri en 12 ára.
Juvena snyrtivörukynningar
ídagkl. 13.00-18.00
Libfa — Laugavegi 35
Hárprýöi — Háaleitisbraut 58-60
Juvena snyrtivörur - Svissnesk gæðavara unnin úr jurtum
fyrirþá sem láta sérannt um velferð húðarinnar
0)
JUVENA
OF SWITZERLAND
Munið Juvena getraunina
ViKu ferð til Sviss ogJuvena
vöruúttektir í verðlaun
Sundaborg 36