Morgunblaðið - 15.08.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
AKUREYRI
Eyjafjörður:
Hólavatnskaffið
a sunnudaginn
A SUNNUDAGINN kemur, 17.
ágúst, verður hin árlega kaffi-
sala KFUM og K á Hólavatni í
Eyjafirði. Þetta er í tuttugasta
sinn sem kaffi verður selt á Hóla-
vatni.
Fyrir tuttugu árum var ákveðið
að ljúka sumarstarfi KFUM og K
með kaffisölu í húsi sumarbúðanna
á Hólavatni. Upphaflega var til
hennar stofnað til styrktar sumar-
búðastarfmu og til þess að velunn-
arar þess og aðrir bæjar- og
héraðsbúar gætu komið saman yfir
kaffibolla. Kaffisalan fékk góðar
viðtökur í upphafi og hefur hún
verið árviss viðburður síðan.
Forráðamenn sumarbúðanna
vonast eftir því að sem flestir láti
sjá sig á Hólavatni á sunnudaginn
milli kl. 14.30 og 18.00 til að fá
sér kaffisopa.
Kaupféiag Svalbarðseyrar;
Stefnt að stofnun
hlutafélags um rekstur
kartöfluverksmiðjunnar
Eru skuldir 100 milljónir umfram eignir?
NÚ ER stefnt að því, að stofnað verði sérstakt félag um rekstur
kartöfluverksmiðjunnar á Svalbarðseyri, sem verið hefur í eigu
kaupfélagsins þar, en i leigu hjá KEA. Ætlunin er að KEA eigi 60%
í félaginu, Ágæti i Reykjavík 20% og sérstakt félag kartöflubænda
i Eyjafirði 20%, en það var stofnað í gær. Talið er að með því móti
verði unnt að ná hallalausum rekstri kartöfluverksmiðjunnar, en
litlar likur eru taldar á arðvænlegum rekstri annarra deilda Kaup-
félags Svalbarðseyrar. Hins vegar er enn ekki ljóst hvort kröfuhafar
sætta sig við það, að arðvænlegasti þáttur rekstrarins verði tekin
með þessum hætti út úr fyrirtækinu og þeir sitji eftir með kröfur
í eignum, sem erfitt getur orðið að selja eða koma í viðunandi verð.
Vegna rekstrarerfiðleika Kaup-
félags Svalbarðseyrar tók KEA
reksturinn á leigu með þeim hætti,
að lager var keyptur á ákveðnu
verði og hugsanlegur hagnaður af
rekstrinum til Kaupfélags Sval-
barðseyrar, en KEA tæki á sig
hugsanlegt tap. Þessi leigusarrtn-
ingur hefur nú verið framlengdur
til 1. nóvember næstkomandi.
Við rekstur hins nýja kartöflufyr-
irtækis á Svalbarðsströnd er reikn-
að með því að Ágæti sjái um alla
dreifmgu kartaflna frá Eyjafjarðar-
svæðinu auk kartaflna frá öðrum
framleiðendum. Miðað er við að
verð til framleiðenda verði aldrei
hærra en svo, að möguleikar séu á
hailalausum rekstri. Með stofnun
féiags kartöflubænda munu félags-
menn væntanlega krefjast þess, að
sitja fyrir hvað innlegg varðar.
Greiðslustöðvun Kaupfélags
Svalbarðseyrar rennur út þann 21.
þessa mánaðar og í kjölfar þess
mun skýrast hvort af þessum hug-
myndum getur orðið. Fjárhagsleg
staða kaupfélagsins er sögð mjög
slæm og óstaðfestar fréttir herma
að skuldir séu nálægt 100 milljón-
um meiri en verðmæti eigna.
Frá sjóstangaveiðimóti Akureyrar í fyrra.
Sj óstangaveiðimót
Akureyrar fer fram
5. og 6. september
HIÐ ÁRLEGA sjóstangaveiði-
mót Akureyrar verður haldið
dagana 5. og 6. september nk.
Róið verður frá Dalvík eins og
undanfarin ár. Þátttöku skal
tilkynna til Jóhanns Kristins-
sonar, Akureyri, í síma 96-
21670 eða 96-23583.
Ef að líkum lætur munu kepp-
endur koma hvaðanæva af landinu
og verður keppt um vegleg verð-
laun að vanda.
Mótið verður sett í Alþýðuhús-
inu fímmtudaginn 4. september
nk. kl. 20.30. Verðlaunaafliending
og mótsslit fara fram á sama stað
laugardagskvöldið 6. september.
Frá hátfðarhöldum fjördaganna á sl. ári á Akureyri.
Skátabandalag Akureyrar:
Fjördagar um helgina
SKÁTABANDALAG Akureyrar heldur hátíð um helgina
á útihátíðarsvæðinu fyrir neðan samkomuhúsið og ber
hún nafnið „Fjördagar“. Hátíðahöld standa yfir bæði á
laugardag og sunnudag, en undanfarin tvö ár hafa slíkar
hátíðir verið haldnar á vegum ýmissa aðila á Akureyri
auk skátanna, en þó með misjöfnum árangri, að sögn
Tryggva Marinóssonar, eins af skátaforingjum Skáta-
bandalagsins. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að
Skátabandalagið taki hátíðahöldin alfarið í sínar hendur
og hefur undirbúningsvinna að mestu verið í höndum
krakkanna sjálfra í skátahreyfingunni.
Fjördagar heíjast kl. 14.00 á afmæli höfuðborgarinnar á Ak-
laugardag með því að karamell-
um rignir yfír hátíðarsvæðið.
Frá 14.00 til 18.00 verður eins-
konar tívolí í gangi með hinum
ýmsu atriðum eins og tíðkast í
skátastarfí. Um kvöldið kl.
20.30 hefst hljómsveitakeppni,
sem veitt verða verðlaun fyrir,
og á meðan á keppninni stendur
verður bæjarbúum boðið í grill-
veislu og jafnframt fer fram
flugeldasýning. Kl. 11.00 álaug-
ardagskvöld hefst síðan dans-
leikur í Dynheimum. Á
sunnudag verður tívolíinu fram
haldið milli kl. 14.00 og 17.00.
Tryggvi sagði að i upphafí
skipulagningar mótsins hefði
verið fyrirhugað að halda upp á
ureyri og gera þar með Akur-
eyringum kleift að halda upp á
afmæli höfuðborgarinnar í sinni
eigin heimabyggð þar sem
Reykjavík væri höfuðborg allra
landsmanna, en hinsvegar væru
helstu skemmtikraftar landsins
uppteknir fyrir sunnan svo að
horfið hefði verið frá þeirri hug-
mynd.
„Þessi hátíðahöld nú eru fyrst
og fremst ljáröflun hjá skátum
á Akureyri enda brýn þörf á fjár-
magni. Breytingar og endur-
bætur á skátaheimilinu standa
fyrir dyrum og eins hafa skipu-
lagsbreytingar á skátamálum í
bænum verið þó nokkrar og eru
dýrar í framkvæmd. Þá hefur
verið ráðinn fastur starfsmaður
til Skátabandalagsins, Ragn-
hildur Jónsdóttir."
Á Akureyri eru starfrækt tvö
skátafélög, Skátafélag Akur-
eyrar og Kvenskátafélagið
Valkyrjan, en fyrir ári var kosin
sameiginleg stjóm beggja félag-
anna til reynslu og stendur til
að sameina félögin verði jákvæð-
ur afrakstur af samstarfinu.
Fimm deildir starfa innan Skáta-
bandalagsins og er meiningin
að virkja hveija deild fyrir sig
meira en orðið er á viðkomandi
svæðum, að sögn Tryggva. „En,
ijármagnið vantar og eiga þessi
krakkafélög mjög undir högg
að sækja hvað varðar fjáröflun
með tilkomu ýmissa fullorðins-
félaga og því verðum við að
finna nýjar fjáröflunarleiðir."
Tryggvi sagði að bærinn styrkti
skátahreyfinguna lítillega en
það tæki tvöfaldan styrk bæjar-
félagsins að reka skátaheimilið
Hvamm eitt og sér. „Við teljum
að skátahreyfíngin sé svo mikill
hluti af æskulýðsstarfsemi
þannig að eðlilegt væri að bæjar-
félögin myndu styrkja hana
myndarlega."
Norðurland:
Aætlanir fræðsluráðs um
sérkennslu skornar niður
Menntamálaráðuneytið hefur samkvæmt áætlunum
sínum skorið niður rúmlega helming- þeirra nemenda sem
þurfa á sérkennslu í skólum að halda í Norðurlandsum-
dæmi eystra. Samkvæmt áætlanagerð fræðsluráðs
umdæmisins, sem send var ráðuneytinu, var reiknað með
100 nemendum sem ættu rétt á 850 vikustunda sérkennslu.
Nú hefur ráðuneytið hinsvegar gert tillögu til hagsýslu
um 44 nemendur og 200 vikustunda sérkennslu.
Sturla Kristjánsson, fræðslu-
stjóri Norðurlands eystra, sagði á
blaðamannafundi sem haldinn var
á Akureyri í gær að varla væri
að vænta aukningar fjármagns í
meðförum fjármálaafla úr því sem
komið væri. „Við sem störfum að
þessum málum erum að gera okk-
ur vonir um að þessi niðurstaða
ráðuneytisins sé aðeins mistök,
sem bætt verði úr. Þá erum við
að vonast til að sjálfur mennta-
málaráðherra viti sem minnst um
málið, þetta hafí verið hver önnur
skrifstofuvinna, sem ráðherra
leiðréttir þegar hann fær allan
sannleikann."
Sturla sagði að slíkur niður-
skurður úti á landi skapaði
auðvitað samkeppni á milli sveit-
arfélaga og þeim gert erfíðara
fyrir þar sem það væri ríkissjóðs
að standa undir fjárútlátum
menntamála. „Yfírvöld geta ekki
litið fram hjá þessu vandamáli —
það virðist sem litið sé á þetta sem
hvert annað spamaðarmál. Það
er ekki hægt að taka svona á
þessu því sérkennslan getur oft á
tíðum ráðið örlögum fólks.“
Þráinn Þórisson, skólastjóri á
Skútustöðum í Mývatnssveit,
sagðist hafa ieitað til sveitar-
stjórnar Skútustaðahrepps þegar
þessi niðurskurður lá fyrir og hef-
ur stjórnin samþykkt af mannúð-
arsjónarmiðum að hlaupa í skarðið
með fjármagn fyrst um sinn með
það fyrir augum að ríkissjóður
greiði það sem honum ber eftir
að fjárlög hafa verið afgreidd.
Þá kom fram á fundinum að
flestir skólana hefðu nú þegar
ráðið kennara með tilliti til áætl-
ana fræðsluráðs og yrði nú að
segja þeim upp aftur ef ekkert
yrði að gert, t.d. sagðist skóla-
stjóri Lundaskóla á Akureyri,
Jóhann Sigvaldason, þurfa að
segja 2 til 4 kennurum sínum upp
ef ástandið yrði óbreytt. Sturla
sagði að gífurleg mismunum væri
í afgreiðslu ráðuneytisins á milli
landshluta, t.d. fengi sérkennsla
í Reykjavík það sem fræðsluráð
þar hefði óskað eftir.
í Norðurlandsumdæmi vestra
gerir áætlun fræðslustjóra ráð
fyrir stuðnings- eða sérkennslu
við rúmlega 300 nemendur.