Morgunblaðið - 15.08.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
29
Morgvnblaðid/Bðrkur
HAGRÆÐING — Grétar Haraldsson markaðsstjóri Kreditkorta hf., Gunnar Bæringsson fram-
kvæmdastjóri Kreditkorta hf., Kolbeinn Pálsson sölustjóri Flugleiða, Jón Karlsson framkvæmdastjóri
Teppalands-Dúkalands hf., Grimur Laxdal framkvæmdastjóri Radíóbúðarinnar, Jóhann Jóhannsson
framkvæmdastjóri Brimborgar hf. og Sigtryggur Helgason framkvæmdastjóri Brimborgar hf.
Afborganir greiddar
með greiðslukorti
HANDHAFAR Eurocard-krítarkorta geta nú greitt flugferðir,
bíla, teppi, tölvur o.fl. á afborgunarskilmálum með því að fram-
vísa kortinu. Hér er um að ræða jafnar mánaðarlegar greiðslur
í fjóra til átta mánuði eða jafnvel lengur, eftir vöruflokkum
og útborgun. Ætlunin er að þetta greiðslufyrirkomulag komi,
að nokkru leyti, í stað almennra skuldabréfaviðskipta og eru
vextir þeir sömu og gerast þar almennt.
Þau fyrirtæki sem standa að
samningum við Kreditkort hf eru
Flugleiðir hf., Brimborg hf.,
Teppaland hf. og Radíóbúðin en
í vor tókust svipaðir samningar
við ýmsar innlendar ferðaskrif-
stofur um að Kreditkort hf.
annaðist innheimtu á eftirstöðv-
um ferðakostnaðar.
Að sögn aðila þessa greiðslu-
fyrirkomulags, sem kallast
„Euro-credit“, er hér um verulega
hagræðingu að ræða, bæði fyrir
ryrirtækin og viðskiptavini þeirra.
Nú þurfi ekki lengur að leita til
bankanna um lán, finna vitundar-
votta eða sinna því umstangi sem
fylgi skuldabréfaviðskiptum, ein-
ungis leggja fram kortið og greiða
giróseðilinn sem berst mánaðar-
lega. Jafnframt flytjist ábyrgðin
um greiðslu skuldarinnar frá
kaupendum til Kreditkorta hf.,
sem vissulega yki öryggi í við-
skiptum og gæfí þar með mögu-
leika á rýmri kjörum. Einnig væri
lánafyrirkomulagið ódýrara en
almenn skuldabréfaviðskipti fyrir
kaupendur þar sem ýmsar fastar
greiðslur bankanna vegna inn-
heimtunnar féllu niður og auð-
veldara væri fyrir fóik að hafa
yfírlit yfir greiðslur hvers mánað-
ar.
Að sögn Grétars Haraldssonar
markaðsstjóra Kreditkorta hf.
hafa hlutfallsleg vanskil minnkað
verulega síðustu mánuðina og
þakkaði hann það aukinni hag-
sæld í landinu, auk þess sem
tekist hefði að sía burt þá við-
skiptavini sem ekki stæðu við
sínar skuldbindingar. „Við treyst-
um okkur til að tryggja það að
handhafar okkar koita greiði
sínar skuldir."
Með haustinu mun Kreditkort
hf. setja á markaðinn gullkort,
eins og tíðkast erlendis. Það veit-
ir handhöfum ýmis réttindi
umfram venjuleg greiðslukort s.s.
úttektarheimild sem getur numið
allt að 5.000 Bandaríkjadölum.
Verður þeim einstaklingum og
fyrirtækjum sem reynst hafa
traustir viðskiptavinir gefínn
kostur á að sækja um kort af
þessu tagi og búast forráðamenn
fyrirtækisins við að gefin verði
út um 12.500 kort. Núna eru
handhafar „Eurocard" um 25.
000.
40 ára afmæli Hveragerðishrepps:
„Menn hafa verið í há-
tíðarskapi þessa viku“
— segir oddviti, en afmælishátíðin stendur fram á sunnudag
Þingvallakirkja:
Lög frá endur-
reisnartíma
leikin á lútu
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Þing-
vallakirkju sunnudaginn 17.
ágúst ld. 14.00. Samvist þessi
verður að því leyti nýstárleg, að
í stað organleiks og safnaðar-
söngs flytur Snorri Orn Snorra-
son sjö smálög á lútu. Verkin eru
frá endurreisnaröld. Þeirra á
meðal eru Praeludium og Tocc-
ata, svo og tónsmiðin Christ ist
erstanden.
Snorri Öm Snorrason er þjóð-
kunnur fyrir lútuleik sinn. Undan-
farin fímm ár hefur hann starfað í
tónlistarhópnum Musica antiqua,
sem kynnir íslendingum tónverk frá
löngu liðnum öldum. Snorri hefur
áður sillt strengina í Þingvalla-
kirkju. Hógværir tónar lútunnar
eiga einkar vel heima í smáhýsinu
á bökkum Öxarár.
Lútan er ævafornt hljóðfæri, sem
barst frá fjarlægari Austurlöndum
til Evrópu á 8. öld. Breiddist notkun
hennar út á hámiðöldum. Lútan
varð vinsæl og að lokum tízkuhljóð-
færi í Mið- og Suður-Evrópu.
Snorri Örn Snorrason mun sjálf-
ur kynna þau verk er hann flytur
við guðsþjónustuna í Þingvalla-
kirkju á sunnudaginn kemur.
Sóknarprestur fer með ritningar-
lestra, bænir og predikun.
Guðsþjónustur hafa farið fram í
Þingvallakirkju alla helga daga það
sem af er þessu sumri og raunar
einnig við ýmis önnur tækifæri.
Kirkjusókn hefur að jafnaði verið
með ágætum.
(Fróttatilkynningf)
Sjónvarpi
og mynd-
bandi stolið
MYNDBANDST ÆKI og sjón-
varpstæki var stolið úr íbúð í
Hólahverfi í sumar, og hefur
ekkert til þýfisins spurst.
Eigandinn var fjarverandi í viku
frá 3. til 11. júlí í sumar. Þegar
hann kom heim hafði verið farið inn
í íbúðina og tækjunum stolið, og
einnig þremur myndböndum með
áteknum áramótaskaupum síðustu
ára og fleira efni. Nemur tjónið
allt að hundrað þúsund krónum ef
eigandinn verður að kaupa önnur
tæki. Þeir sem upplýsingar geta
gefíð um þetta mál geta haft sam-
band við Rannsóknarlögregluna.
Leiðrétting
í FRÉTT viðskiptablaðsins i gær
kom fram nokkur misskilningur
um fækkun farþega hjá Flugleið-
um og flogna farþegakílómetra.
Á fyrstu sex mánuðum þessa árs
hefur farþegum félagsins í Evr-
ópuflugi fjölgað um 11,9 sem er
18 milljón farþegakílómetra aukn-
ing. Hins vegar fækkaði farþegum
á flugleiðinni yfír Norður-Atlants-
haf um 12,9% á sama tíma, sem
er 103 milljón farþegakílómetra
samdráttur.
Markaðurinn
Grófartorg
Markaðurinn í Grófinni var
formlega opnaður i gær og gefið
nafnið Grófartorg. Þar verður
opin markaður frá klukkan 14 í
dag og framvegis á góðviðris-
dögum.
HÁTÍÐARHÖLD í tilefni 40 ára
afmælis Hveragerðishrepps
standa yfir helgina og lýkur á
sunnudag. Hljómsveitin Greif-
arnir leika á popptónleikum i
Hótel Ljósbrá i kvöld, föstudags-
kvöld, og er aðgangur ókeypis,
Tivolíið verður opið ókeypis fyr-
ir hádegi á laugardag og á
sunnudag er skemmtun í íþrótta-
húsinu í umsjá leikfélagsins,
lúðrasveitarinnar og harmon-
ikkufélagsins. Endapunktur
hátíðarinnar verður flugeldasýn-
ing við Tivolí og Eden klukkan
tíu á sunnudagskvöld.
„Afmælið hefur verið mjög vel
heppnað," sagði Hafsteinn Kristins-
son oddviti Hveragerðishrepps í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Síðastliðinn sunnudag söng Karla-
kórinn Fóstbræður í kirkjunni hjá
okkur og hafði orð á því að þar
væri sérlega gott að syngja. Skálda-
kvöld var haldið á Hótel Örk á
miðvikudagskvöld og mættu þang-
að um 200 manns sem var mun
fleira en við bjuggumst við. Þar
voru kynnt skáldin Gunnar Bene-
diktsson, Kristmann Guðmundsson,
Jóhannes úr Kötlum, Kristján Bend-
er, Kristján frá Djúpalæk, sr. Helgi
Sveinsson og Kári Tryggvason.
Margir ættingja skáldana mættu
og lásu upp úr verkum þeirra en
Kári Tryggvason, 81 árs gamall, las
sjálfur úr verkum sínum. Þetta
kvöld var mjög ánægjulegt og gerð-
ur að því góður rómur.
Kirkjukórinn er svo með tónlist-
arkvöld í kvöld, fimmtudag. Þar
syngja einsöng Helga Baldursdótt-
ir, kvartett og kirkjukór syngja og
Róbert Darling leikur á trompet.
Þá leika Grétar Einarsson og Einar
Markússon einleik á píanó.
Þá hafa sýningarnar verið opnar
í íþróttahúsinu, málverkasýning,
heimilislistasýning og blómasýning,
og verið vel sóttar. Almennt hefur
verið mikil aðsókn á hátíðardag-
skrána, góð stemmning og menn
verið í hátíðarskapi þessa viku.“
Fyrirlestrar
í Odda um
einkarekst-
ur og tækni-
breytingar
í heilbrigð-
iskerfinu
STADDUR er nú hér á landi á
vegum félagsvísindadeildar há-
skólans og landlæknisembættis-
ins bandaríski háskólaprófessor-
inn Odin W. Anderson. Anderson
mun halda tvo fyrirlestra um
einkarekstur og tæknibreytingar
í heilbrigðiskerfinu og fara báðir
fyrirlestrarnir fram í stofu 101
í Odda, hugvísindahúsi háskól-
ans.
Fyrri fyrirlesturinn fer fram
föstudaginn 15. ágúst kl. 17 og
fjallar um einkarekstur í heilbrigð-
iskerfinu, ástæður hans og afleið-
ingar.
Síðari fyrirlesturinn fer fram
laugardaginn 16. ágúst kl. 14 og
Ijallar um tæknibyltinguna í heil-
brigðiskerfinu og margvíslegar
afleiðingar hennar fyrir heilbrigðis-
þjónustuna.
Fyrirlestrar-.ir eru öllum opnir.
Njálssaga í Rauðhólum:
Síðustu
sýningar
um helgina
Söguleikhúsið sýnir Njálssögu
í Rauðhólum á föstudag og laug-
ardag klukkan 20.00 og eru þetla
allra síðustu sýningar verksins.
Þeir tólf leikarar sem (aka þátt
í sýningunni halda að hessu [oknu
hver í sína átt t.il að sinna vetrar-
störfum.
„Þetta ævintýri Iiefur gengið
ágætlega," sagði Helgi Skúlason
sem ásamt Helgu Bachman, gerði
leikgerð og leikstýrði verkinu. „Við
frumsýndum í lok júní og hefur
veðrið leikið við okkur, en það er
sá þáttur sem þetta útileikhús velt-
ur hvað mest á.“
Miðar og upplýsingar fást hjá
Söguleikháuinu, Ferðaskrifstofunni
Faranda og hjá Kynnisferðum,
Gimli.
Þröstur Leó Gunnarsson og
Valdimar Flygenring í hlutverk-
um Njálssona.
Heimsmeistaramót unglinga í skák:
Þröstur er
ofan við miðju
Gausdal, Norcgi, frá Davíð Ólafssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞRÖSTUR Þórhallsson gerði
jafntefli í gær við Barua frá
Indlandi og hefur þá hlotið sex
vinninga eftir tíu umferðir á
heimsmeistaramóti unglinga í
skák.
Efstir og jafnir með sjö og hálf-
an vinning eru fjórir skákmenn,
þeir Zuniga frá Perú, Bareev frá
Sovétríkjunum, Hellers frá
Svíþjóð og Klinger frá Austurríki.
Þröstur er ofan við miðju en
erfitt er að segja nákvæmlega
hvar hann er í röðinni vegna flölda
biðskáka, sem átti að tefla í gær-
kvöldi.
Ellefta umferð verður tefld í
dag.